Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
✝ Inga Ingólfs-dóttir fæddist á
Akranesi 22. desem-
ber 1929. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ 26. nóv-
ember 2019. Faðir
hennar var Ingólfur
Sigurðsson, f. í
Nýjabæ í Innri-
Akraneshreppi 2.
nóvember 1891, d.
6. febrúar 1954.
Móðir hennar var Kristín Ingunn
Runólfsdóttir, f. í Króki í Flóa í
Árnessýslu 14. nóvember 1894, d.
12. desember 1975. Systkini Ingu
voru Ragnheiður Arnfríður, f.
1920, látin; Jón, f. 1925, látinn;
Guðrún, f. 1927, látin; Ingólfur
Sigurðs, f. 1928, látinn; Ingólfur
Arnar, f. 1931, látinn; Svandís, f.
1932, látin; Runólfur Viðar, f.
1933, látinn; Lóa, f. 1934, látin;
og Ragnar, f. 1936. Uppeld-
isbróðir Ingu var Sigurður B.
Boga Halldórssyni og Elinborgu
Jónsdóttur í Leirdal, þótt hún
ætti alltaf einnig skjól hjá for-
eldrum sínum í Björk. Inga lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skólanum á Akranesi 1946. Eftir
útskrift hóf hún störf við Lands-
símann á Akranesi og vann þar í
nokkur ár, þar til hún fór í Hús-
mæðraskólann á Laugarvatni og
lauk námi þar. Árið 1956 fór hún
aftur til náms, þá til Noregs, í
heimilisiðnaðarskóla í Voss, Voss
Husflidskole, og útskrifaðist það-
an sem handavinnukennari.
Einnig starfaði hún í Noregi. Ár-
ið 1958 kom Inga aftur til Íslands
og hóf störf við Landssímann í
Reykjavík. Þá var hún einnig við
nám í norsku við Háskóla Íslands.
Í febrúar 1961 fluttist hún ásamt
eiginmanni sínum Stefáni í
Skagafjörð og tóku þau við bú-
skap í Grænumýri þar sem þau
ráku myndarbú. Eftir að Stefán
dó flutti Inga til Reykjavíkur og
bjó lengst af á Grandavegi 47.
Jarðsetning fer fram frá
Flugumýrarkirkju í dag, 27. júní
2020, klukkan 12:30.
Sigurðsson, f. 1915,
látinn.
Inga giftist 24.
desember 1960 Stef-
áni Jónssyni, f. 17.8.
1931. Hann lést 21.3.
2005. Þau eignuðust
þrjú börn. Elst
þeirra var drengur,
f. 14.12. 1961. Hann
lést í fæðingu. Næst
honum er Gunn-
hildur, þýðandi, f.
9.12. 1962, gift Einari Ólafssyni,
og yngst er Elínborg hjúkrunar-
fræðingur, f. 3.3. 1964. Börn
Gunnhildar og Einars eru: 1) Ás-
grímur, f. 23.11. 1988, og 2) Svan-
dís, f. 3.6. 1994. Stjúpsonur Gunn-
hildar er Bergur Einarsson, f.
15.6. 1981. Börn Elínborgar eru:
1) Gígja, f. 31.8. 1991, sambýlis-
maður Stefán Björnsson, dóttir
þeirra er Inga Sigurveig, f. 22.4.
2019, 2) Vignir, f. 29.5. 1997.
Inga ólst upp á Akranesi hjá
Sumarið er komið í Skagafjörð-
inn, næturnar bjartar og dagarnir
geisla af sól. Ástfangna parið
kemur í sveitina, bóndadrengur-
inn með stúlkuna að sunnan, sem
ákvað að fylgja honum norður til
að byggja með honum lífið. Síðan
eru liðin 60 ár.
Mamma hafði á orði að líf sitt
væri eins og kaflar í bók, lífsins
bók.
Hún fæddist á Akranesi og í
hjarta var hún ætíð Skagamaður
þótt hún byggi 46 ár í Skagafirði.
Skagfirsku fjöllin áunnu sér sess
hjá mömmu en bláa Akrafjallið
var fjallið hennar.
Þótt Héraðsvötnin væru stór-
fengleg saknaði hún ölduniðarins
og brimsins. Ófáar sögur sagði
hún af Langasandi, töfrafulla leik-
vellinum hennar; hún hljóp niður
úr Leirdal, eignaði sér pláss fyrir
sandkastala, óð sem lengst út í
öldurnar og ansaði ekki Ellu,
fóstru sinni, er hún kom og kallaði
á hana.
Leirdalur og Björk, æskuheim-
ilin mömmu. Í Björk voru foreldr-
ar hennar og systkini, þar var fjör
og gleði. Metnaður, dugnaður,
kapp en líka skaphiti. Amma
Stína, fjörug og meinstríðin og
Ingólfur afi, alvörugefinn og fast-
ur fyrir. Amma var mikill sauma-
snillingur sem mamma nam hjá
og átti eftir að miðla síðar af
ómældri ánægju. Afi með sína
doðranta sem mamma sökkti sér
í. Hún dáði þau bæði. Afi Bogi í
Leirdal átti sérstakan stað í
hjarta mömmu, hann umvafði
hana kærleik og umhyggju þar
sem hún kom sem uppeldisbarn
til þeirra hjóna.
Kappsemina fékk mamma frá
Björk, frá Leirdal iðjusemina.
Hún hóf öll verk samstundis. Hik
og seinlæti var sem eitur í hennar
beinum: „Hálfnað er verk þá hafið
er“, „jæja, það dugar ekki að
hangsa, eitthvað verð ég að láta af
mér leiða í dag“.
Í fátækt kreppuáranna þurfti
eljusemi til að hafa í sig og á.
Mamma kynntist því. Hún minnt-
ist með dimmum huga kartöflu-
garðanna þar sem hún vann dag-
ana langa og ömurlegs púlsins í
mógröfunum. Lífið var þó ekki
eintómt erfiði, á Skaganum voru
boltaleikir í hávegum hafðir og
þar var mamma á heimavelli. Við
systur fylgdumst agndofa með
mömmu í eldhúsinu með 5-6 bolta
á lofti, appelsínur eða epli eftir því
hvað var hendi næst.
Svo tók við Noregur þar sem
mamma viðaði að sér þekkingu á
handíðum, þaut yfir snjóinn í
skóginum og var frjáls eins og
fuglinn á ferðum sínum. Heim
kom hún ófús að beiðni fjölskyld-
unnar en þá beið næsti kafli. Ástin
birtist í bóndastrák að norðan og
hún varð að heilu æviskeiði með
honum í búskap, blíðu og stríðu í
Grænumýri í Skagafirði þar sem
mamma og pabbi stofnuðu og
ráku myndarbú. Kærleikurinn
ríkti milli þeirra, gagnkvæm virð-
ing, stuðningur í þrautum, sam-
fögnuður í gleði. Þau saman í bú-
verkunum, mamma að hvetja og
gefa ordrur, pabbi fór hægt en
örugglega. Í minningunni sitja
þau inni í stofu, grúskandi um tón-
list sem þau voru að hlusta á, höf-
undinn eða flytjandann og nýttu
sér uppflettirit og plötuumslög.
Síðasti kaflinn í bókinni hennar
mömmu var í Vesturbæ Reykja-
víkur, „það kom mátulega á mig
Skagamanninn að enda hjá KR“!
Hún naut sín við handavinnu og
íþróttaáhorf en þó vantaði pabba
til fyllingar í lífið.
Við systurnar erum þakklátar
fyrir þá gæfu að hafa átt hana fyr-
ir móður.
Gunnhildur og Elínborg.
Elsku amma, í dag kveðjum við
þig í síðasta skipti.
Það er erfitt að kveðja vegna
þess að við héldum að við fengjum
að hafa þig örlítið lengur hjá okk-
ur. Það var svo sárt að missa þig,
en þú varst víst betur undir það
búin að kveðja og hverfa á brott en
við. Það er svo margs að minnast
sem ég er þakklátur fyrir. Þess
vegna langar mig að þakka þér
fyrir alla dagana sem við áttum
saman, bæði þá góðu og þá erfiðu.
Ég veit að þú hvílir í friði.
En hamingjan geymir þeim gullkransinn
sinn,
sem gengur með brosið til síðustu
stundar
fær síðan kvöldroða á koddann sinn inn,
kveður þar heiminn í sólskini og
blundar.
(Þorsteinn Erlingsson)
Ásgrímur Einarsson.
Inga Ingólfsdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Guðmundur Baldvinsson,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT ERLINGSDÓTTIR,
Miðleiti 12,
lést mánudaginn 8. júní.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 29. júní klukkan 13.
Sigurður Hannesson Margrét Karlsdóttir
Kristín Hannesdóttir Páll Einar Kristinsson
Erlingur Hannesson Halldóra Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku systir mín, frænka og vinkona,
GRÓA JÓNATANSDÓTTIR,
Fannborg 8,
áður Bræðratungu 36,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
18. júní. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
1. júlí klukkan 13.
Ragnar Jónatansson
og aðrir aðstandendur
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi,
stjúpfaðir og bróðir,
HAFÞÓR INGI JÓNSSON
lögfræðingur,
Þórðarsveig 2, Reykjavík,
lést 11. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk.
Eygerður Inga Hafþórsdóttir Jacob Fouts
Tristan Kristofer
Auður Guðmundsdóttir
Helga María Jónsdóttir
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
STURLA SNÆBJÖRNSSON
kennari,
frá Grund í Eyjafirði,
sem lést 22. mars, verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju fimmtudaginn 2. júlí klukkan 13. Hann verður
síðan jarðsettur 3. júlí á Grund í Eyjafirði klukkan 14.
Þórður Sturluson
Svandís Sturludóttir Hannes Frímann Sigurðsson
Snorri Sturluson
Guðríður Sturludóttir Sævar Örn Sævarsson
Yngveldur Myrra Sturludóttir
afa- og langafabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
GUÐNA ÞÓRÐARSONAR
byggingatæknifræðings,
Sækambi vestri, Seltjarnarnesi,
sem lést 18. maí á Landakoti.
Við sendum starfsfólki á skilunardeild og deild 12e á
Landspítalanum við Hringbraut og á deild K1 á Landakoti okkar
allra bestu þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju við erfiðar
aðstæður á Covid-tímum.
F.h. aðstandenda,
Sjöfn Guðmundsdóttir
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur
og frændi,
INDRIÐI RÚNAR ÞORSTEINSSON,
Túngötu 1, Grindavík,
lést miðvikudaginn 17. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ingibjörg Vermundsdóttir
Sigríður Fjóla Þorsteinsd. Þráinn Maríusson
Friðgeir Már Þorsteinsson Jónína Björg Hilmarsdóttir
Brynja Hjarðar Þorsteinsd. Jón Gunnar Sigurðsson
Guðríður Helga Þorsteinsd. Kristján Símonarson
Elvar Þór Þorsteinsson Aníta Ósk Guðbjargardóttir
og frændsystkini
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SOLVEIG THORARENSEN
framhaldsskólakennari,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Jónsmessu,
24. júní. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 2. júlí klukkan 15.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir yndislega umönnun og hlýju.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á ABC barnahjálp.
Ingunn Ósk Sturludóttir
S. Rósa Sturludóttir Sigþór Sigurðsson
Óskar Sturluson Þorgerður Jörundsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Bróðir okkar og frændi,
SIGURBJÖRN ÞORGRÍMSSON,
lést 5. júní á Hrafnistu - Boðaþingi.
Útför hefur þegar farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Lóulundar.
Steinunn Þorgrímsdóttir
Jónína Þorgrímsdóttir
og stórfjölskyldan
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GYLFI ÓLAFSSON
bifvélavirki,
Arnarási 1, Garðabæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. júní.
Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar Landspítalans
fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Hildur Friðriksdóttir
Ólafur Gylfason Unnur Hallgrímsdóttir
Guðbjörg Gylfadóttir
Sölvi Gylfason
Brynjar Aron, Fanney Rún, Halla Hrund
Tania Lind Guðbjargardóttir Heimir Morthens
Hildur Anissa Guðbjargard. Sebastian Loui
Sölvi Snær Guðbjargarson Sara Regína Rúnarsdóttir