Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 ✝ Þórunn JúlíaSteinarsdóttir fæddist í Reykja- vík 24. desember 1945. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Fells- enda hinn 6. júní 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Kristjana Hafstein hús- mæðraskólakenn- ari, f. 20. mars 1922, d. 19. júlí 1995, og Steinarr Kristjánsson, skipstjóri og hafnsögumaður, f. 28. janúar 1913, d. 4. nóvember 2007. Hinn 14. október 1972 giftist Þórunn Júlía Hauki Jónassyni lækni, f. 30. maí 1929, d. 16. ágúst 2009. Þau slitu sam- vistum. Sonur þeirra er Jónas Sveinn Hauksson ráðgjafi, f. 26. stjúpson, Reyni Hauksson, sem er grafískur hönnuður, f. 1. október 1964, og er búsettur í New York. Hann á dótturina Rakel Rut, f. 2. desember 1989, með Berglindi Helgadóttur, og synina Sebastian Ara, f. 17. október 1997, og Lucas Frey, f. 15. febrúar 2002, með eigin- konu sinni Monicu Hauksson. Þórunn tók landspróf og stundaði nám við Mennta- skólann í Reykjavík, en lauk ekki stúdentsprófi. Á árunum 1966-1973 starfaði Þórunn hjá Loftleiðum sem flugfreyja. Hún starfaði við sendiráð Banda- ríkjanna og Menningarstofnun Bandaríkjanna í Reykjavík á árunum 1980-1985, en fór svo í Leiðsöguskóla Íslands og út- skrifaðist sem leiðsögumaður árið 1986 og starfaði sem slíkur um árabil, með hléum, fram til 2005. Hún sneri einnig, tíma- bundið, aftur til flugfreyj- ustarfa, hjá flugfélaginu Atl- anta á árunum 1993-1995. Útför Þórunnar Júlíu fór fram í kyrrþey hinn 23. júní 2020 að ósk hinnar látnu. október 1973. Kona hans er Sandy Naush fjár- málastjóri, f. 2. febrúar 1980, og saman eiga þau Steinar Max, f. 13. nóvember 2013, en þau eru búsett í Noregi. Sonur Þór- unnar og Ómars Tómassonar, fv. flugstjóra hjá Loft- leiðum, f. 1. febrúar 1934, d. 2. desember 1970, er Steinarr Kristján Ómarsson lögreglu- fulltrúi, f. 3. maí 1968, og er hann kvæntur Úlfhildi Ösp Ing- ólfsdóttur tollfulltrúa, f. 8. des- ember 1967, saman eiga þau dótturina Helenu Júlíu Stein- arsdóttur, nema í Fjölbrauta- skólanum við Ármúla, f. 20. febrúar 2002. Þórunn átti einn Minningar um Þórunni Júlíu stórfrænku mína hrannast upp, þegar mér var sagt frá andláti hennar. Foreldrar hennar voru Þórunn K. Hafstein, ættuð frá Húsavík og Steinarr Kristjánsson, skipstjóri og hafnsögumaður, ættaður frá Flateyri, traustar og góðar mann- eskjur. Þórunn Júlía, eða Djúlí, eins og hún var ávallt kölluð, var fædd 24. desember 1945 á aðfangadag jóla og var því ávallt kölluð „jólaeng- illinn“ okkar í fjölskyldu minni, því jólin byrjuðu alltaf á aðfanga- dagsmorgni kl. 10, þegar okkur krökkunum var boðið í afmæli til Þórunnar. Í mínum augum var þetta alltaf svo flott og fallega skreytt afmælisborð. Dórí, mamman á heimilinu, var snill- ingur í köku- og matarskreyting- um. Minningar frá bernsku-, æsku- og unglingsárum hrannast upp, Þórunn var alltaf svo fallega klædd og átti falleg föt, sem bara fengust í útlöndum, þetta var á tímum skömmtunarseðla og krakkar yfirleitt í fötum saumuð- um upp úr öðrum fötum, þarna var lífið saumavélar og stag, en enginn að æsa sig yfir slíku. Þórunn kom oft í strætó nr. 16 frá Lönguhlíð og heim til okkar á Hringbraut, ég sótti hana á stoppistöðina, þá hafði ég fengið hvíta skauta og var búin að læra að beita þeim, hún hafði líka feng- ið skauta og niður á Tjörn skyldi haldið og þar kenndi ég henni að fara á skautum, hún var fljót til og nutum við skautaferða vetrum saman, fyrst á Tjörninni og síðar á Melavellinum. Hún sótti mikið til mömmu minnar, Helgu frænku sinnar, og fór alltaf vel á með þeim, mamma hafði þessa þægi- legu nærveru og þær gátu talað saman og skemmt sér. Mamma fór með okkur í bíó, hún sat á milli okkar og túlkaði fyrir okkur, þeg- ar enski flaumurinn varð of mikill og ímyndunarafl okkar fór for- görðum. Árin milli tektar og tvítugs runnu hjá, Þórunn varð flug- freyja hjá Flugleiðum, sem síðar var breytt í Icelandair, og vann þar í nokkur ár, síðar vann hún hjá Arnarflugi og var í pílagríma- flugi þar. Eftir það vann hún sem leið- sögumaður og hafði mjög gaman af að vinna við þau störf. 1968 eignaðist Þórunn soninn Steinar Kristján Ómarsson, sem starfar hjá rannsóknarlögreglu ríkisins, kvæntur maður og á fal- lega dóttur. Þórunn giftist Hauki Jónassyni lækni og eignuðust þau Jónas Svein Hauksson, sem býr í Noregi, er kvæntur þar og eiga þau soninn Steinar Max. Feðgarnir komu heim til að vera við jarðarför mömmu sinnar og ömmu. Það var dásamlegt að hitta þá. Í hjónabandi sínu ól hún upp Reyni, son Hauks. Þau bjuggu á Seltjarnarnesi í nokkur ár með strákunum þremur, á æsku- og unglingsárum þeirra. Á þessum tíma skildu hjónin. Síðustu árin voru Þórunni erf- ið, hún bjó í nokkur ár í Árbæj- arhverfi, flutti svo í Norðlingaholt í fallega íbúð sem hún bjó í um nokkra ára skeið. Skömmu eftir aldamót varð hún mjög veik og átti við erfið veikindi að stríða og voru þetta örðugir tímar hjá Þór- unni frænku okkar. Síðustu ár sín bjó hún á hjúkr- unarheimilum, þar sem hún naut atlætis, en hún vildi samt alltaf fara heim. Síðustu árin fórum við frænkur hennar, Þorbjörg og Margrét Guðmundsdætur, og undirrituð alltaf til hennar í heimsóknir á Kumbaravog, Vesturás í Hvera- gerði og síðustu ár hennar að hjúkrunarheimilinu Fellsenda. Hún gladdist alltaf þegar við komum, fórum með hana í sum- arbústaðina okkar Möggu, gerð- um henni glaðan dag, lituðum hár hennar og lökkuðum neglurnar eldrauðar, því hún elskaði að vera með rauðar neglur. Í fyrrahaust lá hún á Sjúkrahúsi Akraness og þangað fórum við Ása Hjartar- dóttir, mágkona mín, og dætur hennar Mill og Monna. Þá var hún orðin mikið veik. Hún fór síðan aftur að Fellsenda, þar sem hún andaðist í friði og ró. Nú vitum við að Þórunn er komin til fallegri heima og mun áreiðanlega hitta ættingja sína og vini. Við þökkum henni samfylgd- ina, hláturinn, grínið, sem hún átti fullt af. Blessuð sé ævinlega minning Þórunnar Júlíu. Gerður G. Bjarklind, Margrét og Þorbjörg Guðmundsdætur. Elskuleg frænka mín, hún Djúlý, hefur nú kvatt okkur. Ég hef þekkt hana alla mína ævi og má segja að við höfum næstum því alist upp saman því mikill og kærleiksríkur samgangur var í stórfjölskyldu okkar beggja á uppvaxtarárunum. Afmælis- dagurinn hennar var aðfangadag- ur jóla og alltaf var haldið upp á daginn snemma með tilheyrandi „mömmukræsingum“ og fögnuði sem stytti daginn og biðina eftir kvöldinu góða. Næstum öllum aðfangadags- kvöldum og gamlárskvöldum eyddum við saman sem litlar stelpur og unglingar ásamt for- eldrum okkar; þetta voru stundir sem ég minnist með hlýju og söknuði. Ég minnist einnig ævin- týraferðar á einu af „Fellunum“ hans pabba hennar þegar hann tók mig og Djúlý með sér í sjóferð um vesturströnd Íslands og alltaf var viss ævintýraljómi yfir heim- sóknum okkar um borð í gamla „Hræring“ þegar hann var í Reykjavíkurhöfn og pabbi í landi þegar við vorum börn. Djúlý mín átti sínar hamingju- stundir; hún eignaðist strákana sína, þá Steinar Kristján og Jónas Svein, og barnabörnin Helenu Júlíu og Steinar Max, flaug um loftin blá, þar sem hún dansaði skýjum ofar og naut sín, ásamt því að kynna land og þjóð fyrir er- lendum ferðamönnum sem leið- sögumaður. Ég kveð hana með margar góð- ar og ljúfar minningar í hjartanu, þakka henni samfylgdina og bið góðan Guð að blessa hana og minningu hennar. Ég og fjöl- skylda mín sendum ástvinum hennar hjartans samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. (Valdimar Briem) Þórunn Hafstein (Djonsý). Við kveðjum elsku frænku okk- ar, hana Þórunni Júlíu, sem við kölluðum alltaf Djúllý. Við þökk- um okkar himneska Frelsara fyr- ir hana og vottum Steinari og Jónasi okkar innilegustu samúð. Kærleikskveðjur sendum við öll- um þeim sem stóðu með henni og veittu henni umhyggju og samúð í hennar löngu baráttu. Hún er nú komin til stóra Guðs sem veitir henni alla ást og um- hyggju. Frelsarinn, sem var alltaf hennar góði hirðir, fagnar nú komu hennar. Við söknum þín, elsku Djúllý. Þórunn, Bergljót, Soffía og Gunnar Stefán. Fallin er frá æskuvinkona okk- ar Þórunn Júlía Steinarsdóttir, Djúlí eins og hún var ávallt kölluð, og viljum við minnast hennar nokkrum orðum. Við kynntumst á skólaárum okkar sem síðar leiddi til þess að við stofnuðum saman sauma- klúbb. Á tímabili vorum við flest- ar á faraldsfæti, sumar sóttu sér menntun til útlanda, aðrar settust að erlendis, en klúbburinn stóð það af sér og hefur notað hvert tækifæri til að hóa vinkonunum saman. Flugfreyjan Djúlí, var löngum á flandri um heiminn, en þegar hún mætti lýsti hún upp saumaklúbbinn með skemmtileg- heitum sínum og dillandi hlátri. Þó að lítið færi fyrir saumaskap gerðum við okkur ýmislegt annað til gamans. Minnisstæð er leik- húsferð sem við fórum til Akur- eyrar þar sem ein okkar lék aðal- hlutverkið á sviðinu. Við pökkuðum niður okkar fínasta pússi og vorum svo glæsilegar þegar í leikhúsið kom að vinkonan á sviðinu var spurð að því hvort hún veldi sér vinkonur eftir fríð- leika. Fleira bar til tíðinda í ferð- inni, til að mynda var okkur borið á brýn að hafa tekið ferðatösku ófrjálsri hendi á Akureyrarflug- velli. Málið var að vinkvennahóp- urinn var stór, töskurnar margar og handagangurinn svo mikill í öskjunni að óvart lenti ókunn taska í hrúgunni, en sem betur fer upplýstist málið og við sluppum með skrekkinn. Djúlí átti afmæli á aðfangadag jóla og hafði fyrir sið að bjóða gestum til sín um há- degisbilið. Þó að ekki stæði alltaf vel á hjá manni á lokametrum jólaundirbúningsins kom ekki annað til greina en að mæta og alltaf var það jafn ánægjulegt. Djúlí gekk ekki heil til skógar síðustu árin og þau reyndust henni erfið. En allar góðu minningarnar um okkar elskulegu og kæru vin- konu er fjársjóður sem við geym- um og erum innilega þakklátar fyrir. Við vottum Steinari, Jónasi og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúð. Soffía, Edda, Unnur, Björg, Guðný, Auður og Guðný Björnsson. Þórunn Júlía Steinarsdóttir HINSTA KVEÐJA Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. (Hugrún) Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Helga Kr. Bjarnason Ég hef ávallt litið upp til þín. Þú hefur verið og verður fyr- irmynd mín; frjáls, sjálfstæður, traustur, ábyrgðarfullur, velvilj- aður og ósérhlífinn. Virðing ann- arra í þinn garð var áunnin og verðskulduð. Þú varst lifandi sönnun þess, sem faðir þinn og langafi minn ritaði oft, að sigursæll er góður vilji. Minningar um þig og andi þinn mun svífa yfir vötnum og lifa svo lengi sem brimaldan brotnar á klöppum og skerjum undir bökkum fósturjarðar þinn- ar, í fjallasal Borgarfjarðar eystri. Tilvist þín markaði djúp spor í lífshlaup mitt og var mér hvatn- ing til góðra verka. Ég verð þér ævinlega þakklátur. Hvíl í friði, afi minn. Stefán Þór Eyjólfsson. Það er kominn gestur í eld- húsið á Snotrunesi. Ég þekki röddina og dríf mig í föt og niður í eldhús. Má ekki missa af því sem Skúli frændi á Framnesi er að segja mömmu. Þau eru systk- inabörn og ólust upp fyrstu árin í torfbæ á Snotrunesi, mamma sex árum eldri. Þau eru vinir. Skúli orðinn bóndi í Framnesi, nýbýli frá Snotrunesi. Hann hef- ur komið gangandi út bakka frá fjárhúsunum sínum á grundinni. Þau eru að ræða búskapinn og Skúli að gefa mömmu ráð. Svona man ég þetta 8 eða 10 ára gam- all. Skúli hjálpaði okkur mikið við búskapinn eftir að pabbi dó. Hann þjálfaði og kenndi Pétri bróður að taka við búinu og ger- ast bóndi. Þeir urðu góðir fé- lagar, hjálpuðust að og áttu sam- an tæki og tól. Góðir fjármenn og áhugasamir fjárbændur. Skúli var góður íþróttamaður, hafði alla tíð mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist vel með. Hann lék knattspyrnu, kastaði kringlu og kúlu. Líklega var hann bestur í millivegahlaupum og víðavangshlaupum, enda margfaldur Austurlandsmeist- ari. Árið 1952 vann hann víða- vangshlaupið á landsmóti á Eið- um. Þetta vissum við útbæingar og það hvatti okkur áfram. Skúli sagði okkur til og sýndi æfingum okkar áhuga. Þegar ég var að alast upp voru mörg börn á útbæjum og oft margt um manninn í Fram- nesi. Alltaf var okkur vel tekið af Skúla og Stínu, allir velkomnir og nutu þar veitinga þrátt fyrir að mamma vildi það ekki því margir munnar voru í Framnesi. Betri nágranna var ekki hægt að hafa en Skúla og Stínu. Skúli var hjálpsamur, greiðvikinn, skemmtilegur og traustur. Ég votta Stínu, börnum og afkom- endum öllum samúð mína. Njáll Eiðsson frá Snotrunesi. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þessi orð úr Gestaþætti Háva- mála komu upp í huga mér er ég fregnaði að móðurbróðir minn, Skúli á Framnesi, væri lagður af stað yfir landamærin. Víst er að orðstírs þessa eðalfrænda mun lengi verða minnst. Mörg minningabrot og mynd- ir koma upp í hugann, sérstak- lega minnist ég samskipta systk- inanna frá Snotrunesi, sem einkenndust alltaf af virðingu og kærleik. Glettnin, spaugið, litrík frá- sagnargáfa og eftirhermurnar, það var eins og að vera kominn í leikhús þegar sá gállinn var á hópnum. Alltaf innan þeirra marka að lítillækka engan þó sumir væru áræðnari og leiknari en aðrir að færa í stílinn. Mamma Villa og Skúli voru náin; það kom víst oft í hennar hlut að fást við stráksa sem gjarnan vildi fara sínar leiðir, en systir hans var ekki alltaf á því þegar Valgerður móðir þeirra hafði gefið sín fyrirmæli. Löngu síðar kom hann systur sinni heldur betur til hjálpar. Þá hafði hún háð harða baráttu við að koma frumburðinum í heim- inn. Hvorki gekk né rak eftir tveggja sólarhringa baráttu, krakkagemlingurinn allur þvers og kruss, læknirinn gjörsamlega búinn á því að reyna að toga barnið úr móðurkviði. Var þá Skúli frændi minn, 21 árs, sótt- ur, hann settur á tangirnar og að lokum náði hann að koma dreng inn í mannheim. Hann er því með réttu „ljósa mín“ og þarna sem fyrr og síðar gekk að hverju verki með einurð og staðfestu. Lífshlaupið er litrík fjallaleið. Langt af fjöllum hríslast lækirnir og laða þig margir til fylgdar. En vegurinn er einn, vegurinn velur þig, hvert spor þitt er stigið. Og frá upphafi allra vega fór enginn þá leið nema þú. (Snorri Hjartarson) Í hvert sinn sem ég kom aust- ur var það mitt fyrsta verk að heilsa upp á ykkur heiðurshjónin á Framnesi. Stína, sú gáfaða, hlýja og yndislega manneskja, tók manni ávallt opnum örmum, þú samur við þig, glettinn og til alls vís, maður hafði á tilfinning- unni að vera kominn heim. Við vorum ekki alltaf á sama máli hvað íhaldið og kommana varð- aði en allt um það, alltaf fór mað- ur ríkari í sinni að heimsókn lok- inni. Ég kveð þig, kæri frændi minn, með stóru þakklæti. Stínu og afkomendum öllum votta ég mína dýpstu samúð um leið og ég þakka ykkur trygga og gefandi vináttu. Andrés Bjarni Sigurvinsson. Skúli Andrésson bóndi á Framnesi, Borgarfirði eystri, lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum föstudag- inn 19. júní sl. eftir stutt veik- indi. Hann var búinn að dvelja nokkur ár á Dyngju ásamt Krist- ínu eiginkonu sinni. Skúli er ein- hver sá öflugasti og magnaðasti einstaklingur sem Borgarfjörður hefur alið á síðustu öld. Fyrir svo margt skaraði hann fram úr, hann var mikill íþróttamaður, einkum hlaupari, langhlaupari. Þá hlupu þeir bræður hans Jón og Björn líka með honum. Eitt sinn hlupu þeir allir bræðurnir á landsmóti og unnu mótið ásamt íþróttafélagi sínu. Margir ungir menn á Borgarfirði tóku hann til fyrirmyndar í mörgu enda veitti hann þeim leiðsögn og athygli. Hann gaf oft góð ráð, t.d. við mig sagði hann alltaf að ef ég vildi ná árangri í íþróttum skyldi ég hvorki reykja, drekka né stunda kvennafar. Ég tók þetta mjög bókstaf- lega, hef aldrei reykt, né drukkið og hitt stundað í löglegu lág- marki. Skúli var mjög duglegur bóndi og bjó með kindur á Snotrunesi og síðar á Framnesi. Hann var sérstaklega hjálpsam- ur og greiðvikinn, það þekktu þeir vel sem bjuggu honum næst og þekktu hann best eins og ég og mín fjölskylda. Skúli eignað- ist einn af fyrstu bílum sem komu í Borgarfjörð og lenti hann oft í fólksflutningum af þeim sökum og taldi það ekki eftir sér. Skúla frænda vil ég að lokum þakka fyrir vináttu og vinsemd í gegnum árin. Vegna fráfalls Skúla frænda míns sendi ég Kristínu, börnum, barnabörnum og öðrum ná- tengdum dýpstu samúðarkveðj- ur og megi hann hvíla í friði. Jón Björnsson frá Geitavík. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.