Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 „Ef þú þarft að ná í mig á næstunni, þá slærðu á þráðinn, sendir SMS eða tölvupóst. Sér- trúarsöfnuðurinn mun eyðileggja samfélagsmiðla í kvöld og næstu daga.“ Þessi skilaboð fékk ég frá stuðningsmanni erkifjenda Liver- pool í fyrrakvöld þegar ljóst varð að Manchester City myndi ekki vinna Chelsea og taumlaus meistarafögnuður Liverpool- manna eftir þrjátíu ára bið væri í þann veginn að hefjast. Ég held að hann hafi staðið við það, alla vega hefur viðkom- andi ekki verið sjáanlegur „á lín- unni“ frá þeim tíma. Þeim sem fylgja Liverpool að málum getur eflaust ekki verið meira sama, eða þannig. Ég kíkti aðeins á samfélagsmiðlana seint í fyrrakvöld og get alveg skilið að harðir stuðningsmenn andstæð- inga rauða hersins hafi forðað sér af þeim vettvangi. Þegar ég mætti í vinnuna í gærmorgun brá fyrir rauðum Liv- erpool-treyjum og þannig hefur það eflaust verið á mörgum vinnustöðum þar sem þess er ekki krafist að mætt sé í hvítri skyrtu og með bindi. En það er auðvelt að setja sig í þessi spor. Sjálfur á ég 35 ára gamlan son sem hefur haldið með Liverpool frá fimm ára aldri. Dóttir mín er í sama liði og fædd- ist tveimur árum eftir að Liver- pool varð síðast meistari. Þau eru alveg þokkalega sátt með sína menn. Þegar titillinn vannst loks- ins var það með slíkum yfirburð- um að í nokkra mánuði hefur þetta ekki verið spurning hvort, heldur hvenær. Nema á þeim kafla sem kórónuveiran virtist vera það eina sem gæti komið í veg fyrir að Jordan Henderson fengi að lyfta meistaraskildinum. Til hamingju Púlarar og njótið stundarinnar. Kannski kemur sá næsti ekki fyrr en 2050! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Matteo Guen- douzi, miðjumað- ur enska knatt- spyrnuliðsins Arsenal, hefur farið fram á sölu frá félaginu sök- um þess að hann er óánægður hjá Lundúnaliðinu og með stjórann, Mikel Arteta. Það er franski miðillinn L’Equipe sem greindi frá þessu í gærkvöldi en Arteta var sömuleiðis búinn að gefa það í skyn á blaðamannafundi fyrr í vikunni að Frakkinn ætti ekki framtíð hjá Arsenal. Guendouzi var ekki í leikmannahóp liðsins sem vann Southampton 2:0 í ensku úr- valsdeildinni í fyrradag en Arteta vildi ekki staðfesta að leikmaðurinn yrði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Miðjumaðurinn er aðeins 21 árs en hann á að 82 leiki að baki fyrir Arsenal frá því að hann kom frá Lorient í heimalandinu fyrir tveim- ur árum. Samkvæmt frétt L’Equipe hefur Frakkinn verið settur á sölu- listann hjá Lundúnaliðinu og því líklegt að hann fari í sumar. Leikmaður Arsenal vill fara í sumar Matteo Guendouzi LIVERPOOL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óhætt er að segja að frammistaða Liverpool á yfirstandandi keppnis- tímabili í enska fótboltanum sé orðin einstök. Meistaratitillinn er þegar í höfn að lokinni 31 umferð og 28 sigurleikir í úrvalsdeildinni í vetur segja meira en mörg orð um yfir- burði Jürgens Klopp og hans manna. Heil 23 stig skilja að tvö efstu liðin. Nú er spurningin bara sú hvort þeir bæti fleiri metum í sarpinn á lokasprettinum en þeim sem þegar eru í húsi, eða hvort leikmenn liðsins séu orðnir saddir þegar stóra tak- markinu er náð og slaki aðeins á síð- ustu vikur tímabilsins. Sem væri vel skiljanlegt. Spennufallið eftir að hafa tryggt félaginu þennan langþráða meist- aratitil, þann fyrsta í heil 30 ár, verð- ur eflaust til staðar og spurning hvaða áhrif það hefur á leik liðsins á lokasprettinum. Miðað við myndir sem birst hafa í fjölmiðlum og á sam- félagsmiðlum slettu leikmenn Liver- pool ærlega úr klaufunum eftir að flautað var til leiksloka hjá Chelsea og Manchester City í fyrrakvöld en þeir höfðu fylgst saman með leikn- um á hóteli í Liverpool. Þeir hafa hinsvegar viku til að jafna sig fyrir stórleikinn gegn Manchester City á fimmtudagskvöldið kemur, þar sem leikmenn City þurfa að standa heið- ursvörð þegar meistararnir ganga til leiks. En tímabilinu er ekki lokið og eft- ir að útkljá eitt og annað. Mohamed Salah og Sadio Mané eru með í bar- áttunni um markakóngstitilinn, með 17 og 15 mörk, en þar er James Vardy hjá Leicester með forystuna, 19 mörk. Eflaust koma nokkrir leik- menn Liverpool til greina þegar ein- staklingsverðlaunum deildarinnar verður úthlutað þar sem varnar- tröllið Virgil van Dijk og fyrirliðinn Jordan Henderson eru líklegir. Hefur notað 24 leikmenn Jürgen Klopp hefur teflt fram 24 leikmönnum í úrvalsdeildinni á tíma- bilinu og þeir eru eftirtaldir, leikir/ mörk í svigum: Markverðir: Alisson (22/0), Adri- án (11/0). Varnarmenn: Virgil van Dijk (31/4), Trent Alexander-Arnold (31/3), Andy Robertson (29/1), Joe Gomez (21/0), Dejan Lovren (10/0), Joel Matip (9/1), Nico Williams (1/0). Miðjumenn: Georginio Wijnaldum (30/3), Jordan Henderson (27/3), Alex Oxlade-Chamberlain (23/3), Fabinho (22/2), James Milner (19/2), Adam Lallana (15/1), Naby Keita (11/1) Xherdan Shaqiri (6/1), Curtis Jones (2/0), Harvey Elliott (2/0). Sóknarmenn: Roberto Firmino 31/8, Sadio Mané 28/15, Mohamed Salah (27/17), Divock Origi (23/3), Takumi Minamino (5/0). Af þessum leikmönnum voru Lall- ana, Milner og Origi í fyrsta byrj- unarliðinu sem Klopp tefldi fram eft- ir að hann tók við stjórn liðsins í október 2015. Frá þeim tíma hefur hann smám saman byggt upp það öfluga lið sem nú stendur uppi sem enskur meistari 2020, ásamt því að vera ríkjandi Evrópumeistari og heimsmeistari félagsliða. Sjö umferðir eftir Metin sem þegar eru í höfn hjá Liverpool eru þessi:  Liverpool er fyrsta liðið sem verður meistari þegar enn er sjö um- ferðum ólokið. Fyrra met áttu Man- chester United, vorið 2001, og Man- chester City, vorið 2018, en bæði lið tryggðu sér meistaratitilinn þegar þau áttu fimm leikjum ólokið.  Liverpool er fyrsta liðið í sög- unni sem nær 25 stiga forystu á ein- hverjum tímapunkti á tímabilinu.  Liverpool vann sinn 23. heima- leik í röð í deildinni á miðvikudags- kvöldið, 4:0 gegn Crystal Palace, en fyrra metið átti Manchester City, 20 sigrar í röð, frá árunum 2011 og 2012.  Byrjun Liverpool á þessu tíma- bili er sú besta í sögunni. Liðið var komið með 61 stig eftir 21 leik og það hefur ekkert félag gert áður í einhverri af fimm sterkustu deildum Evrópu. Þetta bætti liðið með sex sigrum í röð og var því komið með 79 stig af 81 mögulegu úr fyrstu 27 leikjunum þegar kom að eina tap- leiknum til þessa, gegn Watford. Fellur stigametið? Í þeim sjö umferðum sem eftir eru af deildinni getur Liverpool bætt nokkrum metum í safnið.  Liðið getur orðið það fyrsta til að vinna alla 19 leiki sína á heima- velli. Þeir eru orðnir 16, Aston Villa, Burnley og Chelsea eiga eftir að mæta á Anfield. Chelsea, Manchest- er United og Manchester City hafa öll unnið 18 heimaleiki á tímabili.  Manchester City á metið yfir flesta sigurleiki, 32 talsins. Liver- pool er komið með 28 sigra og þarf því að vinna fimm af síðustu sjö til að slá metið.  Manchester City á stigametið sem er 100 stig. Liverpool er með 86 og þarf því 15 stig úr sjö leikjum til að slá metið.  Manchester City á líka metið í mestum mun á tveimur efstu liðum, 19 stig tímabilið 2018-19. Núna skilja 23 stig að Liverpool og City þannig að það met er líka í hættu. Síðustu fjórir útileikir Liverpool eru gegn Manchester City, Brighton, Arsenal og Newcastle. Viðureign Manchester City og Liverpool næsta fimmtudag, 2. júlí, er því afar áhugaverð. Þó meistara- titillinn sé í höfn hjá Liverpool getur City lagt sitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir að félagið missi ein- hver meta sinna yfir til nágranna- borgarinnar. Frammistaðan er einstök  Englandsmeistarar Liverpool hafa þegar slegið nokkur met og gætu bætt fleirum við  Heldur liðið sínu striki eða verður spennufall á lokasprettinum? AFP Fögnuður Emily Farley stuðningsmaður Liverpool bauð í gær upp á þessa skreytingu framan við heimili sitt í borg- inni þar sem Jürgen Klopp, Virgil van Dijk og Jordan Henderson fyrirliði voru allir mættir til leiks. Tjasa Tibaut, ein marksæknasta knattspyrnukona í sögu Slóveníu, er gengin til liðs við Fylki og leikur með Árbæjarliðinu út þetta tímabil. Tibaut er 31 árs og skoraði rúm- lega 300 mörk í efstu deild í Slóven- íu fyrir Pomurje og Olimpia Lju- bljana áður en hún samdi við Tavagnacco í ítölsku A-deildinni snemma á þessu ári. Hún hafði að- eins leikið þrjá leiki þegar keppni var hætt vegna kórónuveirunnar. Þá hefur Tibaut leikið 33 landsleiki fyrir Slóveníu og skorað í þeim sex mörk. Markaskorari í Árbæinn Ljósmynd/Tavagnacco Fylkiskona Tjasa Tibaut með bún- ing ítalska liðsins Tavagnacco. Körfuknattleikskonan Haiden Den- ise Palmer er komin aftur í Snæfell þar sem hún mun spila á næstu leik- tíð í efstu deild, Dominos-deildinni. Snæfellingar greindu frá þessu á heimasíðu sinni í gær. Palmer kemur frá finnska liðinu Tapiolan Honka en hún spilaði með Snæfellingum árið 2016 og varð Ís- lands- og bikarmeistari með liðinu. Þá skoraði hún að meðaltali 20 stig, tók 11 fráköst og gaf fimm stoð- sendingar og var lykilmaður í lið- inu áður en hún færði sig til Þýska- lands. Palmer aftur til Stykkishólms Morgunblaðið/Eggert Endurkoma Haiden Denise Palmer er snúin aftur í lið Snæfells. Meistaratitillinn sem Liverpool tryggði sér í fyrrakvöld er sá 19. í sögu félagsins og sá fyrsti í þrjá- tíu ár. Þetta eru meistaraárin hjá Liverpool: 1901, 1906, 1922, 1923, 1947, 1964, 1966, 1973, 1976, 1977, 1979, 1980, 1982, 1983, 1984, 1986, 1988, 1990, 2020. Aðeins Manchester United hef- ur unnið enska meistaratitilinn oftar, eða 20 sinnum. United sigldi framúr Liverpool með sín- um 19. titli árið 2011 og bætti þeim 20. við 2013. Eftirtalin félög hafa orðið enskir meistarar: 20 – Manchester United 19 – Liverpool 13 – Arsenal 9 – Everton 7 – Aston Villa 6 – Sunderland, Manchester City, Chelsea. 4 – Newcastle, Sheffield Wed- nesday. 3 – Wolves, Leeds, Huddersfield, Blackburn. 2 – Preston, Tottenham, Derby, Burnley, Portsmouth. 1 – Sheffield United, WBA, Ips- wich, Nottingham Forest, Leic- ester. Nítján meistaratitlar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.