Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 „LÁGMARKSENDURBÆTUR SEM VIÐ LEGGJUM TIL ERU AÐ HAFA AÐVÖRUNINA Á PAKKANUM MEÐ STÆRRA LETRI.” „GÆTTU ÞÍN ÞEGAR ÞÚ HANDLEIKUR VÍNFLÖSKUNA. ÉG LENTI Í BASLI VIÐ AÐ NÁ TAPPANUM ÚR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila sömu heimsmynd. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HÓ! HÓ! HÓ! ÞAÐ ER ÉG … LÓU- JÓLI! VONANDI ERU RÚSÍNUR Í ÖLLUM SMÁKÖKUNUM! HVERS KONAR MANNI LANGAR ÞIG AÐ KYNNAST? ÉG VIL MANN SEM ER DUGLEGUR AÐ BERJAST! ÞAÐ ER ÉG! ÉG BERST VIÐ TÁRIN Á HVERJUM DEGI! VÖRUPRÓFUN HF. bændafélagi Vestmannaeyja í nokkur ár og hefur frá 2011 verið varastjórn- armaður í Vinnslustöð Vestmanna- eyja. „Í frístundum mínum hef ég gam- an af laxveiði og reyni að fara einu sinni til tvisvar góðar laxveiðiferðir á ári. Ég hef býsna oft farið í Norðurá og fór nokkur ár í Laxá í Dölum. Þá má ekki gleyma sumarbústaðnum í Vaðnesi í Grímsnesi en þar hef ég átt margar góðar stundir.“ Fjölskylda Eiginkona Eyjólfs er Sigríður Árný Bragadóttir, f. 21.1. 1958. Þau gengu í hjónaband 21.5. 1994. For- eldrar Sigríðar voru hjónin Bragi Guðmundsson, f. 6.12. 1932, d. 20.2. 2008, bæklunarlæknir, og Rakel Sól- borg Árnadóttir, f. 27.8. 1936, d. 29.9. 1999, húsfreyja. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Dætur Eyjólfs og Sigríðar eru 1) Elín Sólborg, f. 18.11. 1992, læknir, búsett í Reykjavík. Hún er í sambúð með Almari Gauta Guðmundssyni; 2) Guðrún Eydís, f. 24.12. 1993, hjúkr- unarfræðinemi, búsett í Vestmanna- eyjum. Börn Sigríðar úr fyrra sam- bandi eru Bragi Þór, f. 1.3. 1978, kvæntur Rósu Svövu sigurðardóttur og eiga þau tvö börn, og Donna Ýr, f. 22.12. 1981, gift Héðni Karli Magn- ússyni og eiga þau fjögur börn. Systir Eyjólfs er Anna Guðjóns- dóttir, f. 21.2. 1970, uppeldisfræð- ingur, gift Gísla Sigurgeirssyni og búa þau í Garðabæ. Foreldrar Eyjólfs: Hjónin Guðjón Pálsson, f. 10.5. 1936, d. 20.11. 1987, útgerðarmaður og skipstjóri í Vest- mannaeyjum, og Elínborg Jóns- dóttir, f. 6.9. 1941, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Ufsabergs, búsett í Vestmannaeyjum. Eyjólfur Guðjónsson Elínborg Gísladóttir húsfreyja á Laufási Þorsteinn Jónsson útvegsbóndi á Laufási í Vestmannaeyjum Anna Þorsteinsdóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Jón G. Ólafsson útgerðarmaður og verkstjóri í Vestmannaeyjum Elínborg Jónsdóttir fv. framkvæmdastjóri og húsmóðir í Vestmannaeyjum Auðbjörg Valtýsdóttir Húsfreyja á Garðstöðum Ólafur Eyjólfsson útgerðarmaður á Garðstöðum í Vestmannaeyjum Helga Jónsdóttir húsfreyja á Neistastöðum, síðar vinnukona í Skarði í Landsveit Guðjón Guðbrandsson bóndi á Neistastöðum í Flóa Jónína Guðjónsdóttir húsmóðir í Reykjavík Páll Guðjónsson trésmiður í Reykjavík Sólveig Magnúsdóttir húsfreyja í Nefsholti Guðjón Jónsson bóndi í Nefsholti í Holtum Úr frændgarði Eyjólfs Guðjónssonar Guðjón Pálsson útgerðarmaður og skipstjóri í Vestmannaeyjum Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Mér í koll hún kemur nú. Kennd við mýri bænum á. Mjög í ljósið sækir sú. Svo er hún loka fyrir skrá. Eysteinn Pétursson svarar: Í höfuð margur flugu fær. Á Flugumýri logaði bær. Flugu ljósið líst vel á. Er loka fyrir hurðarskrá. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Flugu í höfuð fékk hann Flugumýri hjá. Fluga flaug á lampann. Fluga yfir skrá. Sigmar Ingason leysir gátuna þannig: Barist var á Flugumýri fyrr á tíð. Flugur kringum lampann suða ár og síð. Skráargati áður skýldi flugan víst og skýst í margan hausinn þegar varir síst. Guðrún B. svarar: Fékk ég þá flugu í haus Flugumýri að skoða. Flugur við ljósin loða. Lá á skrá flugudaus. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Ég flugu í hausinn fékk, að Flugumýri gekk. Flugan í ljósið fer og fluga á skránni er. Þorgerður Hafstað sendi þetta svar frá Sviss: Fluga í höfuð, hugmynd snjöll. Höfuðból, Flugumýri. Ljósið freistar, flugan öll. Fluga opnar ævintýri. Góður vinur og frændi sendi þessa lausn: Flugu í haus ég fékk í gær hjá Flugumýrar-vánni; þá kom þar fluga, alveg ær upp að flugu á skránni. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Fluga í koll mér kemur sú. Kom ég að Flugumýri nú. Flugu í ljósið leita sá. Lauf er fluga á hurðarskrá. Þá er limra: Það sagt er um Sigurstein sálnahirði á Rein, að berji hann guma gamla og hruma, en geri’ ekki flugu mein. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Rísa verð ég fleti frá, fráleitt dugir þetta slen, gátu saman setja má, sem er núna ansi klén: Við hann oft ég lausan leik. Lausan oft ég gef hann Bleik. Rák er brún og rönd á kinn. Reipi eða kaðallinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Illa höggva hungraðar flugur AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT BYGGINGAKERFI Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is Bestu undirstöðurnar fyrir: SÓLPALLINN SUMARHÚSIÐ GIRÐINGUNA NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is Fáðu Dvergana senda heim að dyrum Dvergarnir R

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.