Morgunblaðið - 27.06.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra boðaði til blaðamannafundar í
Ráðherrabústaðnum við Tjarnar-
götu í gær, en tilefni fundarins var
sú reynsla sem fengist hefur af
skimunum við landamæri Íslands
síðustu vikur.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir, Alma D.
Möller landlæknir og Víðir Reyn-
isson, yfirlögregluþjónn hjá al-
mannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra, tóku einnig til máls á
fundinum.
Nú er tveggja vikna „reynslu-
tímabili“ í skimun við landamæri
lokið, en þótt ekki hafi greinst mörg
virk smit hjá þeim sem komið hafa
til landsins munu aðgerðir við landa-
mæri haldast tiltölulega óbreyttar.
Áfram verða allir sem koma til
landsins skimaðir við landamæri,
nema þeir sem kjósi frekar að fara í
sóttkví, en frá og með 1. júlí verður
innheimt gjald, sem nemur 9.000
krónum ef greitt er fyrir komu til
landsins, og 11 þúsund krónum ef
greitt er við komuna til landsins.
Greindist með mikið af veirunni
„Ég finn það í kringum mig að
margir hafa áhyggjur af því smiti
sem hefur komið upp. Að við séum
að sjá fjölda fólks fara í sóttkví eftir
að smit greindist,“ sagði Katrín á
fundinum, en á sjöunda tug manna
hafa verið sendir í sóttkví í tengslum
við tvö staðfest kórónuveirusmit Ís-
lendinga, annað hjá starfsmanni í at-
vinnuvega- og sjávarútvegsráðu-
neytinu og hitt hjá knattspyrnukonu
í Breiðabliki. Um er að ræða fyrsta
innanlandssmit kórónuveirunnar á
Íslandi í um tvo mánuði.
Knattspyrnukonan hafði verið í
Bandaríkjunum og við komuna til
Íslands greindist hún ekki smituð í
landamæraskimun. Hún fór aftur í
próf þegar upp komst um samskipti
hennar við smitaðan einstakling í
Bandaríkjunum, en Kári Stefánsson
greindi frá því á fundinum að konan
hefði verið með „mjög mikið af veir-
unni,“ þegar hún greindist.
Kári útskýrði að stuttu eftir smit
væri ólíklegt að próf við kórónuveir-
unni kæmi út jákvætt, jafnvel þótt
einstaklingur væri með virkt smit.
„Veikleikinn liggur í því að þegar
einstaklingur er nýsýktur, áður en
veiran hefur fengið tækifæri til þess
að fjölga sér, þá liggur það í hlut-
arins eðli að það getur verið erfitt að
finna hana með þessu klassíska
veiruprófi,“ sagði Kári.
Hann bætir þá við að veiruprófið
sem er notað við landamærin er að-
eins 70% næmt.
Þórólfur Guðnason sagði það vera
til skoðunar hvort Íslendingar sem
koma frá svæðum þar sem út-
breiðsla kórónuveirunnar er mikil
eigi að fara í sóttkví við komuna til
landsins auk sýnatöku.
Smithættan alltaf fyrir hendi
Þá bætti Þórólfur við í samtali við
Morgunblaðið að ýmsar útfærslur á
aðgerðum til að sporna við smiti séu
til umræðu.
„Þetta sýnir að smithættan er
alltaf fyrir hendi og kannski er smit-
hættan mest af Íslendingum sem
eru að koma erlendis frá vegna
tengslanets Íslendinga hér innan-
lands.“
Þórólfur sagði að yfirvöld myndu
læra af því og hvatti hann þá Íslend-
inga sem eru á ferð erlendis að huga
að einstaklingsbundnum sýkinga-
vörnum. Þá ættu þeir Íslendingar
sem koma hingað erlendis frá að
huga vel að sínum sýkingavörnum.
Sérstaklega ættu Íslendingar sem
koma frá Bandaríkjum, Brasilíu,
Svíþjóð, Indlandi og Rússlandi að
hafa varann á.
Sagði Þórólfur að of margir hefðu
slakað á einstaklingsbundnum sýk-
ingavörnum, og að slík hegðun væri
afar stór áhættuþáttur fyrir út-
breiðslu.
Draga lærdóm af síðustu dögum
Gjald verður tekið fyrir sýnatöku frá 1. júlí, en verð lækkar úr 15.000 krónum niður í 9.000 kr
Mesta smithættan er frá Íslendingum sem koma erlendis frá Veiruprófið aðeins 70% næmt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kórónuveiran Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar blaðamannafundinn. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, bíður álengdar.
1
2
1
2 2
1 1
3
1 1
3 3
1
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní
15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25.
Jákvæð sýni í landamæraskimun
Smitandi
Ekki smitandi
Beðið eftir
niðurstöðum
73.148 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
9.115 sýni180 manns eru í sóttkví
Uppruni smita frá 15. júní, öll sýni
Innanlands
Erlendis
Óþekktur
17 14
3 42
1.832 staðfest smit
9 eru með virkt smit
Landamæraskimun LSH Heimild: covid.is
Á þriðja hundrað manns eiga á
hættu að geta ekki greitt at-
kvæði í forsetakosningunum
sem fram fara í dag þar sem
þeir eru í sóttkví eftir samskipti
við einstaklinga sem reyndust
smitaðir af kórónuveirunni.
Þetta staðfesti Víðir Reyn-
isson yfirlögregluþjónn á blaða-
mannafundinum í dag. Hann
sagði að leitað hefði verið allra
leiða til að gera fólki í sóttkví
kleift að kjósa, en vegna stutts
fyrirvara væri kosning fyrir
þessa aðila óframkvæmanleg.
Sóttvarnir verða í hávegum
hafðar í kjörklefum um land allt,
en kjörfundur mun hefjast
klukkan níu í dag.
FORSETAKOSNINGAR
Kjósa ekki
vegna sóttkvíar
Ferðaþjónustan í Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp er lokuð vegna deilna
um nýtingarrétt á heitu vatni fyrir
reksturinn. Hótelstjórinn hefur ekki
fengið svör við erindum sínum til
stjórnenda Ísafjarðarbæjar vegna
málsins og segir lokunina neyð-
arúrræði til að fá áheyrn hjá bæj-
aryfirvöldum.
Núverandi eigendur mannvirkja
gamla héraðsskólans í Reykjanesi
reka þar gistihús, tjaldsvæði og
sundlaug og hafa verið þar í tæp
tuttugu ár. Hafa þeir notað heitt
vatn eins og notað hafði verið fyrir
sundlaugina og skólann frá því á
þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.
Orkustofnun veitti Ferðaþjónust-
unni nýtingarleyfi á jarðhita en
Orkubú Vestfjarða sem telur sig
eiga hitaréttindin og Ísafjarðarbær
sem á landið kærðu leyfisveitinguna
til úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála og fengu henni hnekkt.
Telja sig eiga nýtingarrétt
„Við teljum okkur eiga nýting-
arrétt samkvæmt kaupsamningi við
ríkið og lóðarsamningi Ísafjarð-
arbæjar en komumst ekki neitt,“
segir Jón Heiðar Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar.
Fyrirtækið sendi Ísafjarðarbæ bréf í
nóvember á síðasta ári en hefur ekki
fengið nein svör og stjórnendur bæj-
arins heldur ekki svarað síma né
tölvupósti. Hann segist með bréfinu
hafa skýrt mál sitt og óskað eftir að
stjórnendur bæjarins færu yfir mál-
ið. Þetta hafi hann ítrekað með bréfi
1. júní með sama árangri.
„Mér finnst erfitt að reka hér hót-
el, tjaldsvæði og sundlaug í óþökk
sveitarfélagsins. Það er tilgangs-
laust að halda áfram uppbyggingu
þegar réttindi sem við teljum okkur
eiga fást ekki viðurkennd,“ segir
Jón.
Hótelinu var lokað í haust og hef-
ur ekki verið opnað aftur af þessum
ástæðum. Segir Jón að tilgangurinn
sé að þvinga fram svör og viðurkenn-
ingu á nýtingarrétti að heita vatninu.
Þetta er að hans mati eina ráðið til að
fá samtal um málefnið. helgi@mbl.is
Deila um nýtingarréttinn
Reykjanes við
Ísafjarðardjúp lokað
til að fá áheyrn
Reykjanes Ekki hefur verið opnað
í vor vegna deilna um hitaréttindi.