Morgunblaðið - 27.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Björn Bjarnason vék að dóm-aravali í grein sinni í Morg-
unblaðinu í gær. Þar nefnir hann
að dómaraskipti við þýska stjórn-
lagadómstólinn séu talin geta haft
áhrif á dóma hans
og segir: „Sú skýr-
ing að niðurstöður
þýska stjórnlaga-
dómstólsins ráðist
af afstöðu ein-
stakra dómara til
ESB minnir á að
dómararnir eru
valdir af þýska sambandsþinginu í
Berlín. Ekki er farið í launkofa
með hvaða stjórnmálaflokkur til-
nefnir þá. Að baki valinu eru lýð-
ræðisleg sjónarmið sem talið er
eðlilegt að endurspeglist innan
réttarins sem fjallar um pólitísk
álitamál eins og Hæstiréttur Ís-
lands gerir þegar lagt er mat á
hvort lög standist stjórnarskrána
eða ekki.“
Þá bendir hann á að þýskirþingmenn séu „ekki bundnir
af neinu Excel-skjali þegar þeir
velja menn í æðsta dómstól lands
síns. Nú liggur fyrir MDE í Strass-
borg að ákvarða hvort svo sé um
íslenska þingmenn.“
Þetta er gagnlegt innlegg í þáundarlegu umræðu sem oft
spinnst hér á landi þegar dómarar
eru skipaðir.
Raunar einskorðast undarlegumræða alls ekki við skipan
dómara, heldur á við um býsna
mörg embætti sem þarf að fylla
hjá hinu opinbera.
Hér eru það iðulega nafnlausirembættismenn með vafasamt
Excel-skjal að vopni sem ráða því í
raun hver hreppir hnossið hverju
sinni. Það er ekki lýðræðisleg
málsmeðferð. Oft er hún ekki
heldur vönduð.
Björn Bjarnason
Hvað segir MDE um
þýsku dómarana?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Mallorca línan
komin í sýningasal
Embætti ríkislögmanns hefur neitað
beiðni blaðamanns Morgunblaðsins
um að fá uppgefnar þær fjárhæðir
miskabóta sem samið var um við tvo
menn í svonefndu LÖKE-máli. Var
óskað eftir upplýsingunum á grund-
velli upplýsingalaga.
Fram kemur í svari lögmanns hjá
embættinu að aflað hafi verið afstöðu
bótaþeganna, sem hafi óskað því eft-
ir að bótafjárhæðirnar færu leynt,
eins og það er orðað.
„Embættið lítur á miskabætur
sem svo nátengdar persónu einstak-
lings að upplýsingar um fjárhæð
þeirra verði ekki veittar gegn vilja
þess sem í hlut á, sbr. 9. gr. upplýs-
ingalaga nr. 140/2012. Þessu til
stuðnings vísast til þess að í dómum í
málum er varða miskabætur á
grundvelli 246. gr. sml. eru nöfn bó-
takrefjenda almennt ekki birt,“ segir
enn fremur í svarinu.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu fékk Gunnar Scheving
Thorsteinsson, varðstjóri hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu,
ásamt félaga sínum greiddar miska-
bætur frá ríkinu fyrir ólögmæta
handtöku, húsleit og aðrar þvingun-
araðgerðir sem þeir máttu þola árið
2015, þegar þeir voru handteknir í
fyrrnefndu LÖKE-máli.
Voru þeir teknir vegna gruns um
að Gunnar hefði flett upp nöfnum
kvenna í innra kerfi lögreglunnar, er
nefnist LÖKE, á árunum 2007-2013,
og deilt þeim upplýsingum til lög-
manns og starfsmanns símafyrir-
tækis. Síðar var fallið frá ákæru á
hendur þeim.
Garðar Steinn Ólafsson, lögmaður
mannanna, samdi við ríkislögmann
um miskabæturnar en vildi ekki gefa
upp fjárhæðirnar.
Morgunblaðið mun bera neitun
ríkislögmanns undir úrskurðarnefnd
um upplýsingamál.
Bætur í LÖKE-máli ekki gefnar upp
Ríkislögmaður neitar beiðni Morgunblaðsins um upphæð miskabóta
Norræn nefnd leggur til að Norður-
landaráð þrýsti á að breytingar á
klukku á milli sumar- og vetrartíma
verði afnumdar og að tekið verði upp
sama tímabelti alls staðar á Norður-
löndunum.
Norræna hagvaxtar- og þróunar-
nefndin leggur þetta til og ríkis-
stjórnir Norðurlanda beðnar um að
standa saman í afstöðu sinni til þess
hvaða tímabelti Norðurlönd skuli til-
heyra. Enginn Íslendingur situr í
nefndinni, miðað við upplýsingar
sem fram koma á vef Norðurlanda-
ráðs.
Klukkan stöðvuð í ESB
Umræða hefur um samræmingu
klukkunnar hefur lengi verið í
Evrópu. Fram kemur í fréttabréfi
Norðurlandaráðs að Evrópuþingið
hafi samþykkt að afnema klukku-
breytingar á milli sumar- og vetr-
artíma frá árinu 2021. Sú vinna hafi
stöðvast og Króatía, sem fer nú með
formennsku í Evrópusambandinu,
hafi ekki viljað setja málið í forgang.
Þá sé ekki vitað hvað Þýskaland geri
þegar það tekur við formennskunni í
sumar.
Pyry Niemi, formaður norrænu
hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar,
vill að norrænu löndin nýti tímann
vel svo tímamismunur innan Norð-
urlanda aukist ekki heldur hverfi.
„Það skiptir máli fyrir norrænu
löndin að hafa ekki tímamismun.
Það væri því eðlilegt að Finnland,
Svíþjóð, Noregur og Danmörk væru
á sama tímabelti,“ segir hann og rifj-
ar upp að klukkunni sé ekki breytt á
Íslandi. Afnám þeirra annars staðar
á Norðurlöndum myndi stuðla að
aukinni samþættingu svæðisins.
„Við viljum einfaldlega auðvelda íbú-
um lífið.“
Ýmis ljón eru í veginum. Finnland
er á sama tímabelti og Eystrasalts-
ríkin og er mikilvægt fyrir Finna að
halda því áfram vegna sögulegra
tengsla milli landanna. helgi@mbl.is
Tíminn verði sam-
ræmdur í norðri
Vakning Norræn nefnd vill
samstilla allar klukkurnar.