Morgunblaðið - 27.06.2020, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
27. júní 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.89
Sterlingspund 174.05
Kanadadalur 102.71
Dönsk króna 21.047
Norsk króna 14.464
Sænsk króna 14.98
Svissn. franki 147.37
Japanskt jen 1.3046
SDR 192.75
Evra 156.87
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.1934
Hrávöruverð
Gull 1758.55 ($/únsa)
Ál 1564.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.35 ($/fatið) Brent
● Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,44% í júnímánuði miðað við mánuðinn
á undan. Þetta kemur fram í nýbirtum
tölum Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitalan hækkað um
2,6%. Helst tólf mánaða verðbólga því
óbreytt frá maímánuði þegar hún mæld-
ist einnig 2,6%. Hefur hún ekki mælst
hærri síðan í nóvember í fyrra þegar hún
reyndist 2,7%. Lægst fór hún í janúar
þegar hún mældist 1,7%.
Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði
um 1% milli mánaða og þá hækkaði
reiknuð húsaleiga um 0,4%. Sé litið til
vísitölunnar að húsnæðisverði undan-
skildu hækkaði hún um 0,51% í júnímán-
uði. Án húsnæðis myndi 12 mánaða
verðbólga því mælast 2,7%.
Verðbólgan mælist
2,6% í júnímánuði
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Enn ber talsvert í milli í viðræðum
Landsvirkjunar og Rio Tinto um
endurmat á raforkuverði til verk-
smiðju síðarnefnda fyrirtækisins í
Straumsvík. Þetta herma heimildir
Morgunblaðsins.
Greint var frá því í Viðskipta-
Mogganum á miðvikudag að Rio
Tinto hefði lýst yfir vilja til þess að
auka framleiðslu sína í álverinu að
nýju en fyrirtækið hefur dregið tals-
vert úr framleiðslunni það sem af er
ári. Álverð hefur haldist mjög lágt á
heimsmarkaði síðustu mánuði og
flest bendir til þess að ástandið muni
haldast þannig á komandi mánuðum.
Verksmiðjan í Straumsvík var rekin
með nærri 14 milljarða tapi í fyrra.
Endurskoðun ekki lokið
Rio Tinto sendi frá sér yfirlýsingu
um miðjan febrúarmánuð þar sem
tilkynnt var um að farið yrði ofan í
saumana á rekstrarforsendum ál-
versins í Straumsvík, hvaða leiðir
væru færar til þess að bæta sam-
keppnisstöðu þess en þá kæmi einnig
til greina að draga enn frekar úr
framleiðslunni og mögulega loka ál-
verinu.
Kveinkuðu stjórnendur Rio Tinto í
Straumsvík sér undan því að Lands-
virkjun sýndi aðstæðum fyrirtækis-
ins takmarkaðan skilning. Fyrir-
tækið kaupir um fjórðung allrar
þeirrar raforku sem Landsvirkjun
framleiðir en stendur á sama tíma
undir u.þ.b. þriðjungi tekna orku-
fyrirtækisins.
Tímabundinn afsláttur
Skömmu síðar skall kórónuveiran
á heimshagkerfinu og hafði það nei-
kvæð áhrif á alla hrávörumarkaði.
Gaf Landsvirkjun út í lok apríl að
fyrirtækið myndi gefa stórnotendum
afslátt vegna ástandsins og að hann
myndi nema um 1,5 milljörðum
króna. Sagði í tilkynningu frá fyrir-
tækinu að átta af tíu stórnotendum
fyrirtæksins myndu njóta afsláttar-
ins og að hann þýddi allt að 25%
lækkun raforkuverðs til sex mánaða.
Morgunblaðið hefur ekki upplýsing-
ar um hvaða áhrif fyrrnefnd afslátt-
arkjör hafa haft á raforkukaup Rio
Tinto en fyrirtækið hefur kallað eftir
því að raforkusamningur frá árinu
2010 verði endurskoðaður. Heimildir
Morgunblaðsins herma að fyrirtækið
telji nauðsynlegt að þau verð sem
fyrirtækið greiðir skv. samningnum
lækki um 30%. Landsvirkjun hefur
ekki fallist á þær kröfur en tilboð og
gagntilboð hafa þó gengið milli aðila.
Talsverð harka virðist hafa hlaupið
í viðræðurnar og heimildamenn
Morgunblaðsins herma að stjórnend-
ur Rio Tinto hafi kvartað undan
meintri óbilgirni forstjóra Lands-
virkjunar í viðræðunum. Svo rammt
hefur kveðið að þessari óánægju að
stjórnendur Rio Tinto hafa beint er-
indum sínum til stjórnar Landsvirkj-
unar í stað forstjóra eins og hefð er
fyrir í samskiptum milli fyrirtækj-
anna.
Forstjóri Landsvirkjunar gagn-
rýnir framgöngu Rio Tinto
Sömu heimildir herma að Hörður
Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar,
hafi tekið bréfaskiptunum mjög illa
og gert stjórnendum Rio Tinto skrif-
lega grein fyrir óánægju sinni með
þessa þróun mála. Endurskoðun
rekstrarforsenda álversins töfðust
vegna kórónuveirunnar og Rio Tinto
gat ekki staðið við fyrirheit um að
vinnu við hana myndi ljúka á fyrri
hluta ársins. Vinnan er þó komin í
gang að nýju og vænta má niðurstöðu
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins síðar í sumar. Fyrirtækið mun
hafa lýst sig reiðubúið til þess að
auka framleiðsluna að nýju, náist
samningar um nýtt raforkuverð. Að
öðrum kosti komi enn til álita að loka
verksmiðjunni, annaðhvort tíma-
bundið, eins og eigendur PCC á
Bakka hafa gert, eða til frambúðar.
Enn ber talsvert í milli
Morgunblaðið/Eggert
Álverið í Straumsvík Verksmiðjan hefur verið í rekstri frá árinu 1969 en nú gæti svo farið að starfsemin leggist af.
Endurskoðun á rekstrarforsendum álversins í Straumsvík heldur áfram
Rio Tinto beinir viðræðum að stjórn Landsvirkjunar en ekki forstjóranum
Ferðaþjónustufyrirtækið Allra-
handa GL ehf., rekstraraðili Gray
Line á Íslandi, óskaði í gær eftir
greiðsluskjóli í samræmi við lög um
tímabundnar heimildir til fjárhags-
legrar endurskipulagningar, sem
samþykkt voru á Alþingi þann 16.
júní síðastliðinn.
Fyrirtækið varð fyrir verulegu
höggi líkt og önnur fyrirtæki í ferða-
þjónustu. Síðustu þrjá mánuðina
fyrir kórónuveirufaraldurinn voru
tekjur Gray Line samtals um 700
milljónir króna en síðustu þrjá mán-
uði voru tekjurnar 680 þúsund krón-
ur, eða um 1 prómill mánaðanna
þriggja þar á undan. Til að bæta
gráu ofan á svart hafa orðið miklar
tafir á greiðslu útistandandi við-
skiptakrafna.
Bókanir taka lítillega við sér
Samkvæmt tilkynningu frá fyrir-
tækinu er staða þess mjög óljós um
þessar mundir. Þar segir að margt
bendi til að aðstæður geti breyst til
batnaðar mjög hratt. Bókanir
lengra fram í tímann hafi verið að
taka við sér. Bókanir hjá Gray Line
fyrir haustið séu um það bil helm-
ingur af því sem var á sama tíma í
fyrra.
Sérstakur aðstoðarmaður í
greiðsluskjóli mun hafa umsjón með
fjárhagslegri endurskipulagningu
og samskiptum við kröfuhafa og
lánardrottna. Kannað verður hvaða
leiða verður leitað til að gera félag-
inu kleift að lifa áfram. Áform eru
uppi um að fara í hlutafjáraukningu
auk þess að gera aðrar nauðsynleg-
ar ráðstafanir. aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hrun Tekjur Grayline hafa þurrkast
að mestu upp á skömmum tíma.
Grayline leitar
greiðsluskjóls
Tekjurnar 680
þúsund krónur
síðustu mánuði
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18
● Hagar voru eina félagið sem hækkaði
í Kauphöll Íslands í gær. Nam hækkunin
0,1% í tæplega 20 milljóna viðskiptum.
Engin viðskipti reyndust með bréf
Heimavalla. Markaðsvirði allra annarra
fyrirtækja á aðallistanum lækkaði. Mest
var lækkunin í tilfelli Icelandair Group.
Nam hún 5,8% í tæplega 4,5 milljóna
króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf VÍS
um 2,8% í ríflega 180 milljóna króna
viðskiptum.
Aðeins eitt félag hækk-
aði í Kauphöll Íslands