Morgunblaðið - 27.06.2020, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
✝ Skúli Andr-ésson fæddist
á Snotrunesi á
Borgarfirði eystra
26. maí 1928.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Dyngju á Egils-
stöðum föstudag-
inn 19. júní 2020.
Foreldrar hans
voru hjónin Andr-
és Bjarni Björns-
son, bóndi á Snotrunesi, f. 10.
sept. 1893, d. 20. apríl 1974, og
Valgerður Jónsdóttir, f. 26.
sept. 1890, d. 18. júní 1967.
Skúli var næstyngstur af sex
systkinum. Hin voru: Björn
(1919-2007), Elín Björgheiður
(1920-1998), Jón (1921-2003),
Vilborg Ingibjörg (1924-2009)
og Anna Þuríður (1930-1943).
Auk þess ólst upp með þeim
fósturbróðir þeirra, Halldór
Vilmundur Andrésson (1938).
1. janúar 1956 kvæntist
Skúli eftirlifandi eiginkonu
sinni, Kristínu Sigurlaugu Eyj-
ólfsdóttur, sem fædd er 3.
október 1934 á Bjargi í Bakka-
gerði, þar sem foreldrar henn-
ar, Anna G. Helgadóttir og
Eyjólfur Hannesson hrepp-
stjóri, önnuðust póst- og síma-
afgreiðslu í áratugi. Skúli og
Kristín eignuðust sjö börn: 1)
Eftir skólagöngu á Borg-
arfirði var Skúli tvo vetur í
Eiðaskóla, 1944-1946. Þar
hreifst hann af íþróttastarfi og
lagði síðan stund á margar
greinar frjálsíþrótta. Hann var
harðsnúinn hlaupari, keppti
víða á mótum og vann til fjölda
verðlauna.
Árið 1954 hófu þau Kristín
sambúð á Snotrunesi í sambýli
við foreldra hans. Árið 1959
fluttu þau á nýbýlið Framnes,
sem þau stofnuðu í landi Snotr-
uness. Þar voru fyrir beitarhús
og ræktarland. Húsa- og túna-
kost jók Skúli og nýtti einnig
jörðina Geitland sem hann átti
um skeið. Hann var glöggur og
góður fjárbóndi og átti jafnan
afurðagott fé. Auk búskapar
sinnti Skúli ýmsum störfum,
var m.a. á vertíðum í Eyjum á
yngri árum, verksmiðjustjóri í
Fiskimjölsverksmiðju KHB,
vann við sláturhússtörf og var
lengi sveitarpóstur í Borg-
arfirði. Hann sat í hreppsnefnd
tvö kjörtímabil og var formað-
ur Búnaðarfélags og Bridge-
félags Borgarfjarðar um tíma.
Haustið 2013 brugðu Skúli
og Kristín búi og fluttust í Eg-
ilsstaði. Þar héldu þau í fyrstu
heimili uns þau fluttu á Hjúkr-
unarheimilið Dyngju, þar sem
Skúli lést.
Útför hans fer fram frá
Bakkagerðiskirkju í dag, 27.
júní 2020, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Sigrún, f. 28. júní
1952, hún á 2 börn
og 5 barnabörn.
Sambýlismaður er
Gunnlaugur Har-
aldsson. 2) Björn, f.
3. ágúst 1954, maki
Björg Aðalsteins-
dóttir (d. 2019) og
eiga þau 2 börn og
3 barnabörn. 3)
Eyjólfur, f. 28. des.
1956, maki Sigrún
Bjarnadóttir, og eiga þau 2
börn og 5 barnabörn. 4) Val-
geir, f. 16. ágúst 1958, maki
Lára Vilbergsdóttir og eiga
þau 2 dætur og 1 barnabarn. 5)
Anna Bryndís, f. 15. júní 1961,
hún á 3 börn og 1 barnabarn.
6) Andrés, f. 3. mars 1963,
maki Gréta Jónsdóttir og eiga
þau 3 börn og 6 barnabörn. 7)
Emil, f. 4. febr. 1966, hann á 2
börn og 2 barnabörn. Sam-
býliskona er Oddný Freyja
Jökulsdóttir.
Skúli ólst upp við hefð-
bundin bústörf á Snotrunesi
með foreldrum og systkinum
ásamt föðursystur hans, Gróu
Björnsdóttur, og manni henn-
ar, Halldóri Ármannssyni.
Samheldni og vinátta þessara
fjölskyldna var einstök alla tíð.
Þegar flest var á bænum voru
þar 32 til heimilis.
Í dag fylgjum við elskulegum
föður okkar til grafar, þeim
manni sem mest og best hlynnti
að okkur, svo lengi sem kraftar
leyfðu. Hann lagði áherslu á þær
lífsins reglur sem fólk skyldi
hafa í heiðri. Þar bar hæst að
enginn skyldi tala illt á bak öðr-
um og hann gekk sinn æviveg án
þess að hallmæla nokkrum
manni. Heiðarleiki og dreng-
skapur voru í hans huga mikils-
verðir eiginleikar. Skömmu fyrir
andlátið átti hann samtal við
prest. Skilaboðin voru skýr og
hann bað um að þau kæmu fram:
Hann var þakklátur fyrir lífið og
að eiga konu sem hann sagði
sína stoð og styttu gegnum allt
og að afkomendur þeirra væru
heilir á húfi. Einlægar þakkir til
samferðafólks á Snotrunesi fyrr
og síðar, svo og til annarra
frænda, vina og sveitunga með
þökkum fyrir ánægjulega sam-
ferð og vinskap við hvað eina
sem hið litla samfélag færðist í
fang með gleði eða sorgum og
tókst á við í samhug og sam-
heldni.
Pabbi okkar var fæddur í torf-
húsi á Snotrunesi. Á þriðja ald-
ursári hans flutti fjölskyldan í
myndarlegt steinsteypt tvíbýlis-
hús á sömu jörð, þar sem frænd-
fólk hans bjó einnig. Þar bjuggu
foreldrar okkar fyrstu búskapar-
árin ásamt Björgheiði föðursyst-
ur okkar og hennar fjölskyldu,
afa, ömmu og Villa fósturbróður
pabba. Í húsinu bjuggu einnig
frænkur okkar tvær, hvor með
sína fjölskyldu. Þegar flest var á
bænum voru börnin 17 og þá var
oft glatt á hjalla. Þessi sambúð
styrkti enn frekar þau fjöl-
skyldubönd sem aldrei hafa
rofnað.
Pabbi var frár á fæti eins og
bræður hans Jón og Björn og
urðu þeir sigursælir á hlaupa-
brautinni. Á landsmóti UMFÍ
1952 vann pabbi m.a. 1. verðlaun
í víðavangshlaupi og forláta bik-
ar vann hann til eignar eftir að
hafa sigrað þrívegis í víðavangs-
hlaupi UÍA.
Fjölskyldan flutti á nýbýlið
Framnes 1959 ásamt Villa
frænda. Þar fæddust þrjú
yngstu börnin. Þar ólumst við
upp í sveitinni fögru við gott at-
læti. Sauðburður með vökunótt-
um, að sumri, heyskapur undir
dyggri stjórn pabba og var
gengið rösklega til verka. Sagt
var fyrir í fáum, skýrum orðum
og allt gekk vel eftir. Þegar
húmaði að kveikti pabbi á gas-
luktinni sem lýsti svo vel, gengið
í Grundarhúsin og gefið á garð-
ann.
Barnabörnin minnast margra
ánægjustunda með afa og ömmu
á Framnesi. Ferðirnar í fjárhús-
in, fjöruna og upp í fjall, póst-
ferðir um sveitina og það sem
öllu tók fram, rúnturinn á stóra
traktornum þar sem barnabörn-
unum var pakkað inn í stýrishús-
ið og rúntað um túnin kringum
bæinn. Þá var sælubros á öllum
sem þar voru í ferð. Umhyggja
hans fyrir öllum afkomendum
var einstök.
Árið 2013 hættu foreldrar
okkar búskap og fluttu í Egils-
staði, nær heilsugæslu. Pabbi
bað um að skilað yrði þakklæti
hans fyrir hlýjar móttökur við
komu þeirra og dvöl á Egils-
stöðum.
Við erum innilega þakklát fyr-
ir að hafa alist upp í faðmi góðra
foreldra sem alla tíð áttu falleg
samskipti og kærleikur milli
þeirra augljós til hins síðasta.
Við kveðjum pabba með söknuði,
virðingu og þökk fyrir það vega-
nesti sem hann veitti okkur og
afkomendum.
Sofðu rótt, elsku pabbi.
Sigrún, Björn, Eyjólfur,
Valgeir, Bryndís, Andrés
og Emil.
Elsku Skúli afi.
Ég minnist þín með svo mikilli
hlýju í hjartanu og þakklæti fyr-
ir allt sem þú hefur gert fyrir
mig og okkur fjölskylduna.
Það var alltaf gaman þegar afi
var nálægt, hann sagði svo
skemmtilega frá og minnið alla
tíð svo gott og ómetanlegt að
heyra allar sögurnar frá því
hann var barn eða ungur maður
á Eiðum að vinna einhver af sín-
um mörgu íþróttaafrekum.
Að fara með afa í póstferð á
rauða súbbanum var sko topp-
urinn! Smá stopp í kaffi hér og
kleina þar, alltaf var hann til í
smá spjall við frændfólk og fá
fréttir úr sveitinni. Og þvílíkt
jafnaðargeð sem hann sýndi
okkur alltaf, eða oftast! Ekki nóg
með að þau amma hafi alið upp
sjö börn, þá eignuðust þau sex-
tán barnabörn, þannig að það
var sko oft stuð á sumrin þegar
margir voru á Framnesi, þá sér-
staklega í kringum heyskapinn.
Hann lagði sig fram um að
fylgjast með okkur krökkunum,
hvað við værum að aðhafast og
hann hafði alltaf á hreinu hvað
langafabörnin voru orðin mörg.
Skúli afi var frændrækinn
með eindæmum, enda afar ríkur
af skyldfólki og vinum.
Ég hef alla tíð litið upp til afa
míns og verið stolt af því að eiga
hann fyrir afa.
Það er ég viss um að þú hafir
fengið góðar móttökur hinum
megin og að þið mamma séuð
komin á kaf í ættfræði og þið
Jónsi komnir í brids með góðum
vinum.
Takk fyrir
væntumþykjuna,
ferðirnar á heyvagninum
gullskóna, sem enn eru í fullri
notkun,
símtölin á afmælinu mínu,
traktorsferðirnar, þar sem
sjaldnast voru færri en fimm í
traktornum,
perubrjóstsykurinn,
sögurnar
og allt hitt!
þín,
Harpa Rún.
„Gibbagibb!“
Ef þú þekktir afa Skúla þá
heyrir þú röddina hans hljóma
við það eitt að lesa þetta orð. Afi
Skúli gargaði „gibbagibb“ í tón
sem aldrei verður leikinn eftir
þegar hann kallaði rollurnar sín-
ar heim í fjárhús. Það skipti ekki
máli þótt þær væru langt niðri á
sjávarbakka, þennan tón heyrðu
þær alls staðar frá og komu rölt-
andi heim stuttu síðar.
Þegar ég var barn fannst mér
afi Skúli vera frekar óþolinmóð-
ur maður með stuttan þráð. Eft-
ir því sem ég eldist finnst mér
erfitt að skilja hvernig það var
hægt hafa svona ómælda þolin-
mæði með hrúgu af barnabörn-
um á eftir sér sem gerðu sig
heimkomin á Framnesi á sumr-
in. Afi var alltaf tilbúinn að taka
okkur með í fjárhúsastúss, hey-
skap, rekstur, réttir, að bera út
blaðið og svaraði aldrei neitandi
ef við vildum stela hundinum
Pílu í heimsókn heim í Framnes.
Afi Skúli var stríðinn og elsk-
aði að bregða á leik þegar tæki-
færi gafst. Ég veit ekki hversu
oft hann var með okkur barna-
börnin á bakinu og lék ótemju
sem reyndi að henda okkur af
baki. Ég hef varla verið meira en
þriggja ára en ég gleymi aldrei
hvað mér fannst þetta skemmti-
legur leikur og hvað ég grenjaði
úr hlátri.
Afi Skúli bauð oft upp á æsi-
spennandi ferðir inn í þorp þar
sem hann tjáði okkur á leiðinni
að Súbbi væri alveg að verða
bensínlaus og ef til þess kæmi
yrðum við að fara út að ýta. Afi
hló á meðan hann lét hann
Súbba hökta út í eitt og við
krakkarnir hvöttum bílinn áfram
af spenningi og hræðslu við að
þurfa að ýta bílnum alla leið inn í
þorp. Aldrei varð bíllinn bens-
ínlaus og ég var orðin vel stálpuð
þegar ég áttaði mig á því að afi
var auðvitað bara að stríða okk-
ur.
Eitt sumarið var afi að keyra
með mig og Valdísi innan úr
þorpi og stoppaði óvænt í kríu-
varpinu á móti Geitlandi. Hann
sagði að nú skyldum við fara út
og tína nokkur egg með hádeg-
ismatnum. Við Valdís horfðum
skelfingu lostnar hvor á aðra. Afi
hughreysti okkur og sagði að við
þyrftum ekkert að óttast, krí-
urnar réðust bara á hæstu
manneskjuna í hópnum svo við
skyldum bara halda okkur ná-
lægt honum. Við Valdís stigum
út úr bílnum og sáum kríurnar
koma brjálaðar á móti okkur.
Við litum til baka en þá var afi
sestur aftur inn í bíl, búinn að
læsa öllum hurðunum og skelli-
hlæjandi eins og honum einum
var lagið. Svona gat afi Skúli
verið stríðinn. Þessi stríðni hefur
greinilega gengið í ættir því það
er alltaf stutt í næsta hrekk eða
brandara hjá Framnes-fjöl-
skyldunni.
Elsku afi minn, takk fyrir allt.
Takk fyrir að búa okkur heimili
sem er barnabarnanna þinna
uppáhalds- og öruggasti staður í
veröldinni.
Þín
Maríanna.
Hjartkæri afi minn. Nú er
komið að leiðarlokum.
Ég hef ávallt litið upp til þín.
Þú hefur verið og verður fyr-
irmynd mín; frjáls, sjálfstæður,
traustur, ábyrgðarfullur, velvilj-
aður og ósérhlífinn. Virðing ann-
arra í þinn garð var áunnin og
verðskulduð. Þú varst lifandi
sönnun þess, sem faðir þinn og
langafi minn ritaði oft, að sig-
ursæll er góður vilji.
Minning um þig og andi þinn
mun svífa yfir vötnum og lifa svo
lengi sem brimaldan brotnar á
klöppum og skerjum undir bökk-
um fósturjarðar þinnar, í fjalla-
sal Borgarfjarðar eystri. Tilvist
þín markaði djúp spor í lífshlaup
mitt og var mér hvatning til
góðra verka. Ég verð þér æv-
inlega þakklátur.
Hvíl í friði, afi minn.
Stefán Þór Eyjólfsson.
Elsku afi minn. Það er svo
margt sem ég þarf að þakka þér.
Þolinmæði ykkar ömmu til okkar
barnabarnanna er eitthvað sem
ég mun seint skilja.
Það sem þú hefur gefið mér í
gegnum tíðina er ómetanlegt.
Mínar bestu minningar úr æsku
eru að vera send upp í sveit til
ömmu og afa. Þar fékk maður að
klappa rollunum, leika sér í gull-
abúinu, horfa á Múmínálfana og
borða kleinur í óhóflegu magni.
Það var þetta frelsi sem ég upp-
lifi enn þann dag í dag þegar ég
renn í hlaðið á Framnesi. Algjör-
lega áhyggjulaust líf þar sem
maður finnur fyllsta öryggi.
Ég mun seint gleyma því þeg-
ar ég kom til ykkar eina helgina
og amma leyfði mér að elda
kvöldmatinn. Ég var um 12 ára
og því einungis fær um að elda
pasta og rjómasósu. Hnussið
sem þú framkallaðir þegar þú
settist við eldhúsborðið var á við
virkt eldfjall, svo hneykslaður
varstu en borðaðir þetta þó af
kurteisi við kokkinn. Það liðu
ekki margar mínútur þar til þú
varst mættur inn í búr að leita að
almennilegum mat.
Það eru fáir sem eru jafn
heppnir og við fjölskyldan að
hafa átt ykkur að og að hafa
myndað þessi sterku fjölskyldu-
bönd sem munu endast til eilífð-
ar. Það eru algjör forréttindi að
eiga allt þetta góða og frábæra
fólk að og að geta alltaf farið á
griðastaðinn Framnes.
Takk fyrir allt, afi minn.
Þín yngsta,
Snærós Vaka.
Elsku afi.
Orð eru fátækleg þegar mað-
ur missir einhvern sem maður
elskar. En þessi minningarorð
viljum við senda með þér í sum-
arlandið.
Við munum svo vel hvernig þú
lagðir hendur í kjöltu og snerir
þumalfingrunum í hring.
Við munum svo vel hvernig þú
helltir að minnsta kosti þrisvar
úr sykurkönnunni í kaffið og
hrærðir vel þegar þú sast við
eldhúsborðið á Framnesi.
Við munum svo vel eftir í fjár-
húsferðunum og hvernig þú kall-
aðir á kindurnar.
Við munum svo vel að þú vild-
ir alltaf hafa okkur systkina-
börnin með þér, eftir ferðunum í
traktornum og við öll í hrúgu í
kringum þig.
Þú varst svo hjartahlýr og
góður, elsku afi, þér munum við
aldrei gleyma.
Takk fyrir að þið amma hafið
alltaf verið okkur góðar fyrir-
myndir. Takk fyrir að þið hafið
gefið okkur ævintýraland sem
mun alltaf eiga stað í hjarta okk-
ar. Takk fyrir allar minningarn-
ar. Takk fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði.
Þínar
Andrea og Valdís.
Hjartkæri afi minn. Nú er
komið að leiðarlokum.
Skúli Andrésson
Mér er ljúft að
minnast með nokkr-
um orðum Ástu
Arnórsdóttur
frænku minnar sem
kvaddi þennan heim
á þriðjudaginn 92 ára gömul.
Ásta ólst upp í stórum systkina-
hópi á Jófríðarstaðavegi 5 í Hafn-
arfirði. Jófríðarstaðarvegurinn
var á leiðinni frá Hafnarfirði upp
að Ási þar sem amma mín bjó. Ef
einhverjir af Ásfólkinu voru á leið
upp í Ás þá var alltaf stoppað á
Jófríðarstaðarveginum, rætt við
heimilisfólkið og fengið kaffi og
með því. En kynni mín af Ástu
hófust þó ekki fyrr en þegar ég
var að hefja nám í Flensborg
Ásta Arnórsdóttir
✝ Ásta Arnórs-dóttir fæddist
17. apríl 1928. Hún
lést 2. júní 2020.
Útför Ástu fór 8.
júní 2020.
haustið 1958 þá 15
ára gamall en móðir
mín fékk Ástu til að
taka mig til vetrar-
dvalar. Ég átti síðan
eftir að dvelja hjá
Ástu og Skúla eigin-
manni hennar
næstu fimm vet-
urna, fyrst við nám í
Flensborg og síðan
MR. Segja má að
þau hafi verið fóst-
urforeldrar mínir á þessum árum
og all tíð síðan hef ég ásamt fjöl-
skyldu minni haft náið samband
við þau og fjölskyldu þeirra.
Heim kominn eftir margra ára
dvöl erlendis þá var það föst
venja í mörg ár hjá okkur að fara
í heimsókn til þeirra í sunnudags-
kaffi en þar voru að jafnaði mætt
öll börn þeirra ásamt mökum,
börnum þeirra og á síðari árum
barnabarnabörnum.
Samheldni þessarar fjölskyldu
hefur verið einstök í gegnum tíð-
ina, hittust flesta sunnudag hjá
mömmu og pabba. Það var gott
sem ungur piltur að búa hjá Ástu
og Skúla, þar leið mér mjög vel.
Ef á móti blés þá veittu þau mér
þann stuðning sem ég þurfti og
ég mun alltaf minnast þess að
þegar ég ætlaði að hætta námi þá
hvöttu þau mig til að halda áfram
og gefast ekki upp. Ég fór að ráð-
um þeirra og á þeim mikið að
þakka fyrir þennan stuðning.
Það var hlutverk Ástu stærsta
hluta ævi hennar að vera heima-
vinnandi húsmóðir, hlutverkisem
hún sinnti af mikilli prýði. Hún
undirbjó sig fyrir það starf með
því að fara í Húsmæðraskólann á
Ísafirði. Ung að árum fór hún í
starfsmannaferð til Stykkis-
hólms með Rafha þar sem hún
vann. Á dansleik þar hitti hún
ungan pilt frá Hólminum og síðan
dönsuðu þau saman í hartnær 70
ár. Hún bjó Skúla og börnunum
gott og fallegt heimili og kom öll-
um börnunum vel til manns.
Lengstum ævinnar lifði Ásta við
góða heilsu og alla jafnan var hún
glöð og jákvæð en þegar Skúli féll
frá fyrir 2 árum þá var eins og
lífslöngunin hyrfi og síðustu tvö
árin hafa verið erfið.
Hún hefur á þessum tíma notið
mikillar umhyggju barna sinna
og fjölskyldna þeirra, aldrei leið
sá dagur að eitt eða fleiri þeirra
kæmu ekki við hjá henni til að
veita henni stuðning. Síðan kom
veiran og þá var þetta ekki hægt
og það voru mjög erfiðir tímar
fyrir þau öll.
Kæra Ásta, ég þakka þér fyrir
árin sem ég var hluti af fjölskyldu
þinni þið reyndust mér afskap-
lega vel og vinátta ykkar hefur
alltaf verið svo traust. Við Kristín
og fjölskylda okkar þökkum þér
fyrir allar ánægjulegar samveru-
stundir liðinna ára og vottum
börnum þínum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð við
fráfall þitt.
Hugur okkar er með þeim á
þessari stundu og við biðjum að
ljúfar minningar þeirra um þig
veiti þeim styrk á þessum erfiðu
tímum.
Geir A. Gunnlaugsson.
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is