Morgunblaðið - 27.06.2020, Side 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Lengjudeild kvenna
ÍA – Grótta ................................................ 1:1
Tindastóll – Keflavík................................ 1:1
Afturelding – Víkingur R ........................ 2:0
Augnablik – Völsungur..................... frestað
Fjölnir – Haukar ...................................... 0:2
Staðan:
Keflavík 2 1 1 0 5:1 4
Haukar 2 1 1 0 3:1 4
Tindastóll 2 1 1 0 3:1 4
Grótta 2 1 1 0 2:1 4
Afturelding 2 1 0 1 2:2 3
ÍA 2 0 2 0 2:2 2
Augnablik 1 0 1 0 1:1 1
Víkingur R. 2 0 1 1 1:3 1
Fjölnir 2 0 0 2 0:3 0
Völsungur 1 0 0 1 0:4 0
2. deild kvenna
Hamar – Hamrarnir................................. 1:4
Fram – ÍR ................................................. 3:3
Staðan:
Hamrarnir 2 2 0 0 6:2 6
ÍR 2 1 1 0 5:4 4
HK 1 1 0 0 3:0 3
FHL 1 1 0 0 5:3 3
Fram 2 0 1 1 6:8 1
Álftanes 0 0 0 0 0:0 0
Grindavík 1 0 0 1 1:2 0
Sindri 1 0 0 1 1:2 0
Hamar 2 0 0 2 1:7 0
Danmörk
AGF – AaB................................................ 1:4
Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn
með AGF.
Staða efstu liða:
Midtjylland 29 22 3 4 47:18 69
København 29 19 4 6 51:31 61
AGF 30 16 6 8 49:36 54
Nordsjælland 29 13 6 10 54:38 45
Brøndby 29 13 6 10 48:38 45
AaB 30 12 5 13 48:42 41
England
B-deild:
Brentford – WBA..................................... 1:0
Staða efstu liða:
WBA 39 19 14 6 64:38 71
Leeds 38 21 8 9 56:32 71
Brentford 39 19 9 11 67:33 66
Fulham 38 18 10 10 52:40 64
Nottingham F. 38 16 13 9 49:39 61
Preston 38 16 9 13 51:46 57
Ítalía
B-deild:
Chievo – Spezia........................................ 1:3
Sveinn Aron Guðjohnsen var allan tím-
ann á varamannabekk Spezia.
Þýskaland
Fyrri úrslitaleikur:
Alba Berlín – Ludwigsburg .............. 88:65
Martin Hermannsson lék í 22 mínútur
með Alba, skoraði 14 stig, gaf sex stoðsend-
ingar og tók tvö fráköst.
Seinni leikurinn fer fram á morgun.
Spánn
Úrslitakeppnin, B-riðill:
Real Madrid – Zaragoza..................... 97:88
Tryggvi Snær Hlinason lék í 22 mínútur
fyrir Zaragoza, skoraði sex stig, tók fjögur
fráköst og gaf tvær stoðsendingar.
Lokastaðan: Valencia 8, Real Madrid 6,
San Pablo Burgos 6, Andorra 4, Gran Can-
aria 4, Zaragoza 2. Valencia og Real Ma-
drid í undanúrslit.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Samsung-völlur: Stjarnan – KA ............ S17
Norðurálsvöllur: ÍA – KR ................. S19.15
Kórinn: HK – Valur.............................. 19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Domusnovav.: Leiknir R. – Vestri......... S14
Grindavíkurv.: Grindavík – Þróttur R .. S14
Grenivíkurvöllur: Magni – Fram........... S16
Fagverksvöllur: Afturelding – ÍBV ...... S16
Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Keflavík..... S16
Fjarðabyggðarhöll: Leiknir F. – Þór .... S16
2. deild karla:
Fjarðabyggðarhöll: Fjarðabyggð – ÍR L13
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Víðir............... L14
Jáverksvöllur: Selfoss – Njarðvík......... L14
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – Kári....... L14
Vodafonev.: Völsungur – Haukar.......... L14
Framvöllur: Kórdrengir – Dalvík/Rey. L16
3. deild karla:
Bessastaðavöllur: Álftanes – Sindri...... L14
Blue-völlur: Reynir S. – Augnablik....... L14
Fylkisvöllur: Elliði – Einherji ............... L14
Vilhjálmsvöllur: Höttur/Huginn – KV.. L14
Samsung-völlur: KFG – Ægir............... L16
Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Tindastóll S14
2. deild kvenna:
Grindavíkurvöllur: Grindavík – FHL... L14
Sindravellir: Sindri – Álftanes............... S14
Kórinn: HK – Hamrarnir ....................... S14
KRAFTLYFTINGAR
Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu fer
fram í Fagralundi í Kópavogi í dag og hefst
klukkan 12.
UM HELGINA!
Það virðist fátt geta komið í veg fyr-
ir að Martin Hermannsson og fé-
lagar í Alba Berlín fagni þýska
meistaratitlinum í körfuknattleik á
sunnudaginn. Þeir mættu Ludwigs-
burg í fyrri úrslitaleik liðanna í
München í gærkvöldi og unnu sann-
færandi stórsigur, 88:65.
Úrslitakeppnin var öll færð til
München og hefur verið spiluð þar
síðan mótið hófst aftur eftir hlé
vegna kórónuveirunnar. Alba vann
tvo stórsigra á Oldenburg í undan-
úrslitum fyrr í vikunni og setti liðið
þar tóninn fyrir úrslitaeinvígið sjálft
sem hófst í gær.
Martin átti sjálfur stórleik. Skor-
aði 14 stig og var stigahæstur ásamt
liðsfélaga sínum Rokas Giedraitis.
Hann tók tvö fráköst, stal einum
bolta og gaf sex stoðsendingar, fleiri
en nokkur liðsfélagi. Alba-menn
unnu fyrstu þrjá leikhlutana sann-
færandi og, þótt þeir hafi gefið að-
eins eftir undir lokin, eru í algjörri
kjörstöðu fyrir seinni leik liðanna á
sunnudaginn. Þar mun vængbrotið
lið Ludwigsburg þurfa að vinna upp
23 stiga mun en liðið lék í gær án
tveggja stigahæstu leikmanna sinna
yfir tímabilið.
Alba er að leika til úrslita þriðja
árið í röð en liðið tapaði gegn Bayern
München í fyrri tvö skiptin. Martin
er á sínu öðru tímabili með liðinu og
mátti því þola tap í úrslitum í fyrra.
Öruggur sigur í
fyrri úrslitaleik
Martin stiga- og stoðsendingahæstur
Ljósmynd/Euroleague
Meistaraefni Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín eru nálægt því
að verða þýskir meistarar í körfubolta eftir stórsigur í fyrri leiknum í gær.
Bikarmeistarar síðustu tveggja
ára, Víkingur R. og Stjarnan mæt-
ast í Fossvoginum í 16-liða úrslitum
Mjólkurbikars karla í knattspyrnu
en dregið var í gær. Íslandsmeist-
arar KR fá Fjölni í heimsókn, Valur
tekur á móti ÍA og Breiðablik tekur
á móti Gróttu í úrvalsdeildar ein-
vígunum. Í hinum leikjunum mæt-
ast lið úr fyrstu og efstu deild.
Fram fær Fylki í heimsókn, HK tek-
ur á móti Aftureldingu, Þór sækir
FH heim í Hafnarfjörðinn og ÍBV
fer norður og mætir KA. Leikið
verður dagana 30. og 31. júlí.
Víkingar mæta
Stjörnunni
Ljósmynd/Eyþór Árnason
Bikarvörn Bikarmeistarar Víkings
mæta Stjörnunni í 16-liða úrslitum.
Karlalandsliðið í knattspyrnu mun
leika þrjá leiki á sjö dögum á Laug-
ardalsvellinum í október en nýir
leikdagar fyrir tvo leiki í Þjóðadeild
UEFA voru staðfestir í gær. Áður
hafði verið ákveðið að leikurinn við
Rúmena í undanúrslitum umspilsins
fyrir EM færi fram 8. október. Í
framhaldi af því hefur tveimur
heimaleikjum í Þjóðadeildinni verið
seinkað um tvo daga. Ísland mætir
Danmörku 11. október og Belgíu 14.
október. Á sama hátt verða þrír úti-
leikir á sjö dögum í nóvember ef Ís-
land vinnur Rúmeníu.
Þrír heimaleikir
á einni viku
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalur Eden Hazard og fé-
lagar frá Belgíu mæta í október.
Fjórir leikir fóru fram í fyrstu deild
kvenna í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, í gærkvöldi. Haukar sóttu þrjú
stig á Extra-völlinn í Grafarvoginum
með 2:0-sigri á gestgjöfum Fjölnis,
Afturelding vann 2:0-heimasigur á
Víkingum frá Reykjavík og í hinum
tveimur leikjunum varð niðurstaðan
1:1-jafntefli; hjá ÍA gegn Gróttu og
Tindastól gegn Keflavík.
Elín Klara Þorkelsdóttir kom
Haukum yfir í Grafarvoginum og
heimakonur skoruðu svo sjálfsmark.
Haukar eru því með fjögur stig efir
fyrstu tvær umferðirnar en Fjölnir
er áfram án stiga.
Kristín Þóra Birgisdóttir og Kaela
Lee Dickerman gerðu mörk Aftur-
eldingar sem einnig vann fyrsta sig-
ur sumarsins í Mosfellsbæ.
Tindastóll og Keflavík eru áfram
ósigruð eftir tvo leiki en liðin unnu
bæði í fyrstu umferðinni. Paula Wat-
nick kom heimakonum yfir á Sauð-
árkróki en Jacqueline Altschuld
tryggði gestunum stig. Þá skildu ÍA
og Grótta einnig jöfn á Akranesi.
Rakel Lóa Brynjarsdóttir kom gest-
unum yfir en Erla Karitas Jóhann-
esdóttir jafnaði metin fyrir Skaga-
konur seint í leiknum. Leik
Augnabliks og Völsungs var frestað
en hann átti að fara fram í gær-
kvöldi.
Haukar unnu í
Grafarvoginum
Jafnt hjá Tindastóli og Keflavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Extra-völlurinn Úr leik Fjölnis og Hauka í Grafarvogi í gærkvöldi.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Útskriftarveisla sem haldin var í
Kópavogi um síðustu helgi þar sem
margir leikmenn í úrvalsdeild
kvenna í fótbolta voru viðstaddir
gæti dregið talsverðan dilk á eftir
sér.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var þar á meðal gesta
leikmaður úr liði Breiðabliks sem
hefur síðan greinst með smit af kór-
ónuveirunni. Eins og áður hefur
komið fram eru lið Breiðabliks og
KR bæði komin í tveggja vikna
sóttkví í kjölfarið á viðureign liðanna
á Kópavogsvelli á þriðjudagskvöldið.
Þegar hefur verið staðfest að tveir
leikmenn úr liði Selfyssinga hafi ver-
ið í veislunni og þær verða ekki með
liðinu í næstu viku. Um er að ræða
einn af lykilmönnum liðsins, ásamt
leikmanni sem hefur ekki komið við
sögu í fyrstu umferðum Íslands-
mótsins. Þær missa af leik Selfoss og
Stjörnunnar í Garðabæ á mið-
vikudagskvöldið kemur.
Samkvæmt heimildum er smit-
rakning í gangi og gæti leitt til þess
að leikmenn úr fleiri liðum í deildinni
þyrftu að fara í sóttkví.
KSÍ staðfesti í gær frestanir á
fjórum leikjum í Pepsi Max-deild
kvenna næstu tvær vikurnar vegna
smits leikmanns Breiðabliks. Það
eru leikir Þróttar og Breiðabliks
sem fram átti að fara 30. júní, leikur
KR og FH sem fram átti að fara 1.
júlí og síðan tveir leikir úr fimmtu
umferð sem áttu að fara fram 6. júlí,
annarsvegar Breiðablik gegn Þór/
KA og hins vegar Selfoss gegn KR.
Til viðbótar var frestað leik
Augnabliks og Völsungs í 1. deild
kvenna sem fram átti að fara í gær-
kvöld en lið Augnabliks er að mestu
skipað ungum leikmönnum úr
Breiðabliki.
Æfingu aflýst en ekki smit
Selfyssingar aflýstu æfingu í gær
þegar í ljós komu veikindi hjá einum
leikmanna liðsins. Hún fór í skimun
og liðið í sjálfskipaða sóttkví á með-
an, en í gærkvöld var síðan staðfest
að ekki hefði verið um kór-
ónuveirusmit að ræða.
Þá var um tíma í gær talið að hluti
karlaliðs Breiðabliks þyrfti að fara í
sóttkví vegna tengsla við kvennaliðið
á einni æfingu. Eftir smitrakningu
upplýsti Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn í gærkvöld að karlaliðið
þyrfti ekki að fara í sóttkví.
Hins vegar staðfesti for-
ráðamaður Breiðabliks við 433.is í
gærkvöld að einn leikmaður karla-
liðsins þyrfti að fara í sóttkví. Sam-
kvæmt því missir viðkomandi af
leikjum Breiðabliks við Fjölni, KA
og FH í Pepsi Max-deild karla.
Smitaðir leikmenn í mörgum liðum?
Veisla gæti dregið dilk á eftir sér Selfoss og karlalið Blika með leikmenn í sóttkví