Morgunblaðið - 27.06.2020, Qupperneq 44
Arkitekt Steve mun fylgja gestum um
Hafnarhús og segja frá byggingunni.
Gestum Hafnarhúss gefst færi á
leiðsögn um safnbygginguna í fylgd
arkitekts á morgun, sunnudaginn
28. júní, kl. 14. Steve Christer, arki-
tekt hjá Studio Granda, mun leiða
gesti um króka og kima Hafn-
arhússins í tengslum við sýninguna
Hafnarhús – pakkhús hugmynda í
miðborginni, sem er hluti af Hönn-
unarMars 2020. Leiðsögnin hefst á
sýningunni sjálfri í D-sal á 2. hæð.
Saga Hafnarhússins verður í for-
grunni og fjallað um umbreytingu
hússins í listasafn.
Leiðsögn arkitekts
um Hafnarhús
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fever Dream er listamanns-nafn Vigdísar HowserHarðardóttur. Hennar varð
fyrst vart sem hluta af Reykja-
víkurdætragenginu en lag,
„Reyndu bara“, kom svo út 2017
og plata einnig, Nom De Guerre.
Hún er sjö laga á Spotify, en þar
er einnig að finna stök lög (Fever
Dream er einnig með SoundCloud-
svæði). Baby Girl Vendetta kom
svo út í maí síðastliðnum, en hún
var unnin í Berlín, hvar Vigdís býr
um þessar mundir. Ljóst er að sú
yndislega borg er að styðja vel við
okkar stúlku,
maður finnur
fyrir heilnæmri
sköpunargleði á
plötunni og Vig-
dís nær að
streyma frjáls-
lyndinu og fram-
sækninni sem leikur um borgina
inn á hljóðrásirnar.
Fever Dream er neðanjarðar-
rappari samkvæmt skilgreining-
unni og er ekki í ósvipuðum gír og
Countess Malaise. Svona hryllings-
dæmi í gangi og vel af hráleik-
anum. Þær eru líka báðar að ýta á
hugmyndir okkar um kvenleika og
kynjahlutverk, toga þær og teygja
og fá neytendur til að hugsa og sjá
hlutina í nýju ljósi. Stíll þeirra er
samt ólíkur, þá sérstaklega með
tilliti til sjálfrar tónlistarinnar.
Fagurfræði Fever Dream er ann-
ars forvitnileg. Hún vísar að ein-
hverju leyti í „pin-up“ list fimmta
og sjötta áratugarins, hvar módel
eins og Bettie Page fóru mikinn í
sokkaböndum og ýjað var að
þræla- og húsbóndaleikjum. Um-
slagið á Baby Girl Vendetta er
skýr vísun í þetta tímabil en einnig
er nettur „voodoo“-blær yfir. Ég
hugsa líka um „psychobilly“ eins
og Cramps. Vigdísi tekst að sam-
þætta þetta allt á sannfærandi
hátt. Ímyndarsköpun Fever Dream
(sjá Instagram) er líka einkar
valdeflandi, hún er kynæsandi en
hikar ekki við að vera með hár
undir höndum um leið. Skemmti-
legir bjúgverplar á lofti þarna og
„sjokk“-takkinn í mikilli notkun.
Er það vel.
Tónlistin á Baby Girl Ven-
detta er fjölsnærð og lögin af ýms-
um toga. Fer stirðlega af stað
reyndar, „Gang gang“ er flutt með
rapptækni sem ég er ekki alveg
viss um lengur (og Vigdís útskýrði
fyrir mér að það væri viljandi
asnalegt). Kraftmikil byrjun engu
að síður. „Storage“, þar sem
DEATXWISH kemur við sögu, er
aftur á móti mjög flott. Svalt flæði
og mikið „avant-garde“ skugga-
dæmi í gangi. „Bouncing“ er enn
betra, Vigdís syngur og melódían
fín þó að lagið sé meira eins og
skissa. Hvet hana til að vinna
meira með svona hugmyndir í
næstu umferð. „Back Then“ er
ekki ósvipað, hæg og andvaka Lip
Peep áhrif. „Don’t Call Me“ setur
svo slaufu á plötuna á hressilegan
hátt. Textinn þar er svakalegur,
afar „líkamlegur“ svo ekki sé
meira sagt. Jafnvægið er gott á
plötunni, hráleiki í bland við popp-
aðri smíðar. Vigdís veldur þessum
mýkri þáttum vel og mögulega
vísa þeir til framtíðar. En ég
myndi hafa drulluna með líka.
Nauðsynlegt.
Eins og segir, gerjunin í þess-
um efnum er mikil nú um stundir.
Reykjavíkurdætur eða Daughters
of Reykjavík gáfu út nýja plötu,
Soft Spot, fyrir stuttu og var skellt
á forsíðu The New York Times
fyrir vikið. Þá er ekki langt síðan
þær Cell7 og Countess Malaise
voru í Osló vegna Norrænu tónlist-
arverðlaunanna, þar sem þær voru
tilnefndar fyrir Íslands hönd
ásamt líka Hildi Guðnadóttur (sem
var svo sæmd verðlaununum).
Hefndin er sæt
Ljósmynd/Berglaug Garðarsdóttir
Töff Vigdís Howser
Harðardóttir kallar
ekki allt ömmu sína.
» Fagurfræði FeverDream er forvitni-
leg. Hún vísar að ein-
hverju leyti í „pin-up“
list fimmta og sjötta
áratugarins, hvar módel
eins og Bettie Page fóru
mikinn.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Dúettinn Fluga, sem
er skipaður Hjörleifi
Valssyni fiðluleikara
og Björgvin Gísla-
syni, gítar-, sítar- og
píanóleikara, kemur
fram á tónleikum í
Hallgrímskirkju í
Saurbæ, Hvalfirði, á
morgun, sunnudag,
klukkan 14. Þetta eru
aðrir tónleikarnir í
ár í tónleikaröð til
styrktar kirkjunni en
þetta er jafnframt
annað árið sem lagt
er upp með tónleika í Saurbæ með
það að markmiði að viðhalda
staðnum sem menningarstað. Allur
ágóði af tónleikunum rennur til
styrktar staðnum sem með tím-
anum, eins og segir í tilkynningu,
„mun vonandi verða aðdráttarafl
fyrir landsmenn sem og erlenda
ferðamenn“.
Í kjölfar Covid-19-faraldursins
varð að aflýsa nokkrum tónleik-
unum sem voru fyrirhugaðir í vor
og sumar. Þar sem tónlistarfólk og
skemmtikraftar hafa orðið fyrir
verulegum tekjumissi undanfarna
mánuði sóttu aðstandendur tón-
leikaraðarinnar um styrk úr tón-
listarsjóði mennta- og menningar-
málaráðuneytisins og rennur hann
alfarið til flytjenda.
Efnisskrá dúettsins Flugu er
sögð einkennast af fjölbreytni og
má þar nefna verk eftir J.S. Bach,
Jimi Hendrix, Thelonius Monk,
Kurt Weill og fleiri, en þó sér-
staklega eftir Björgvin.
Hjörleifur býr nú og starfar í
Noregi og hefur leikið víða í Evr-
ópu. Björgvin er einn kunnasti gít-
arleikari íslenskrar rokksögu og
lék með hljómsveitum á borð við
Pelican, Náttúru, Pops og fleirum.
Dúettinn Fluga, Hjörleifur Valsson og
Björgvin Gíslason, leikur í Saurbæ
Björgvin Gíslason Hjörleifur Valsson
Pólska tvíeykið
Brokat Films
heldur vídeó-
listasýningu í
Midpunkt í Kópa-
vogi. Sýningin
var opnuð 20.
júní síðastliðinn
og lýkur nú um
helgina. Opið
verður í dag,
laugardaginn 27.
júní, og á morgun, sunnudaginn 28.
júní, milli klukkan 14 og 17. Á sýn-
ingunni er að finna myndbandslist,
innsetningu og lifandi gjörning í
streymi þar sem glimmer, gervi-
neglur og ýmislegt matarkyns kem-
ur við sögu. Þetta er í fyrsta sinn
sem Brokat Films heldur sýningu
hér á landi.
Sasa og Joasia eru pólskar lista-
konur sem urðu stafræna veflista-
tvíeykið Brokat Films árið 2016.
Joasia býr í Reykjavík en Sasa býr í
Lodz, Póllandi, og eru þær því al-
vanar fjarskiptum af því tagi sem
ýmsir hafa nýtt sér í kófinu. Þær
hafa gert vídeólist tengda þeirri
bylgju sem farið hefur um net-
heima undanfarin ár og snýst um
gera hlutina sjálfur (e. ’DIY’).
Stafrænt Úr einu
verka Brokat Films.
Pólsk myndbands-
list í Midpunkt Myndlistarkonan Gunnella opnar
sýningu í Galleríinu, Skólavörðu-
stíg 20, í dag, laugardaginn 27. júní,
milli kl. 14 til 18. Í tilefni af sumar-
sólstöðum mun hún sýna ný mál-
verk. Þau eru af svipuðum toga og
fyrri verk hennar. Innblástur sækir
hún í íslenskt landslag, bæi, hús og
mannlíf og er myndefnið ýmist úr
þekktu umhverfi eða skáldað.
Ýmislegt fleira verður um að
vera í Galleríinu dagana 24.-28.
júní. Þar verða verk eftir fjöl-
breyttan hóp listamanna til sýnis.
Gunnella sýnir ný málverk í Galleríinu
Málverk Gunnella sækir myndefni í
íslenskt landslag og mannlíf.