Morgunblaðið - 28.07.2020, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020
✝ Þórður Guð-mundur Sæ-
mundsson fæddist
25. mars 1940.
Hann lést 11. júní
2020.
Hann var sonur
hjónanna Sæmund-
ar Þórðarsonar, f.
19.10. 1903, d. 26.1.
1998, og Guðlaugar
Karlsdóttur, f. 23.6.
1919, d. 29.7. 2017.
Þórður var elstur systkina
sinna sem eru þau Anna, f. 21.9.
1942, d. 29.4. 2003, Þorsteinn Ív-
ar, f. 21.4. 1945, d. 6.6. 2016,
Guðrún, f. 25.3. 1953, og Svein-
laug Sjöfn, f. 9.9. 1954.
Þórður ólst upp í Reykjavík
til 14 ára aldurs og flutti þá í
Hafnarfjörð. Þar kynntist hann
konu sinni, Drífu Sigurbjarn-
ardóttur, f. 15.6. 1942, úr Njarð-
vík, dóttur hjónanna Sig-
urbjarnar Ketilssonar og Hlífar
Tryggvadóttur. Þau gengu í
hjónaband 30.12. 1961. Börn
móðir hans er Guðrún Sig-
urjónsdóttir. b) Nikita Yasmin,
f. 10.12. 2006. c) Sóley Dís, f. 8.3.
2008. d) Tiara Annarós, f. 16.4.
2011.
Þórður og Drífa hófu búskap
á Merkurgötunni meðan þau
voru bæði í námi. Árið 1963
fluttu þau í Ytri-Njarðvík þar
sem Þórður vann sem renni-
smiður í tvö ár. Í janúar 1965 fór
hann til Tulsa, Oklahoma að
læra flugvirkjun. Þaðan lá leiðin
til Lúxemborgar 1966 þar sem
Þórður vann sem flugvirki hjá
Loftleiðum næstu fjögur árin.
1970 fluttu þau búferlum til
Suður-Afríku, þar sem þau
dvöldu til 1977. Fluttu þau þá
aftur til Lúxemborgar þar sem
Þórður vann hjá Cargolux þang-
að til hann varð meðstofnandi í
fyrirtæki sem verslaði með flug-
vélar og varahluti árið 1983.
Suður-Afríka var alltaf ofar-
lega í huga þeirra hjóna og
byggðu þau sér hús í Pletten-
berg Bay árið 2005 þar sem þau
eyddu evrópsku vetrarmán-
uðunum í sumri og sól. Það var
þar sem hann varð bráðkvaddur
hinn 11. júní síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag, 28. júlí 2020,
og hefst athöfnin klukkan 15.
Þórðar og Drífu
eru: 1) Guðlaug Dís,
f. 28.7. 1961, gift
David Bond, f.
15.10. 1951. Börn:
a) James Ragnar
William, f. 24.4.
1986, giftur Mello-
ney Bird, sonur
þeirra Brandr
Blayne, f. 22.3.
2018. b) William
Þór, f. 10.5. 1989,
sambýliskona hans Jennifer Ca-
raccio, sonur þeirra Max Óskar,
f. 15.4. 2020. c) Sam Ívar, f. 4.5.
1993, sambýliskona hans Vic-
toria Gleeson. d) Kimberley
Drífa, f. 2.8. 1998. 2) Kristín, f.
19.7. 1964, gift Anthony Blewitt,
f. 7.4. 1954. Börn a) Þórður Daði
Gissurarson, f. 1.2. 1984, sonur
Gissurar Pálssonar. b) Richard
Týr, f. 28.3. 1990. c) Björn Bald-
ur, f. 14.7. 2001. 3) Sæmundur, f.
5.9. 1966, giftur Trianne
Imelda, f. 1.10. 1980. Börn a)
Daniel Bjarni, f. 15.8. 1992,
Elsku Tóti stóri bróðir okkar
er farinn í sumarlandið sem er
ótrúlega erfitt að sætta sig við.
Núna eru öll systkini okkar far-
in, Anna, Steini og nú Tóti. Það
var svo gott að eiga hann að,
aldrei neitt vesen, alltaf já-
kvæður og hjálpsamur. Við
þurftum ekki að hafa áhyggjur
af að garðurinn á Merkó væri
ekki sleginn þegar hann var á
landinu.
Tóti átti skemmtilegt líf,
hann lét sér ekki nægja að láta
sig dreyma um ævintýri, hann
lét þau rætast. Hann hafði
áhuga á því sem við og börnin
okkar tókum okkur fyrir hend-
ur og var mjög kærleiksríkur
við alla. Við sáum hann aldrei í
fýlu eða vondu skapi. Þegar
hann birtist lifnaði yfir öllu,
gamlir menn urðu ungir, konur
fengu blik í augu og börnin
brostu allan hringinn, nema
þau sem höfðu lausa tönn því
hann gerði ekkert skemmti-
legra en að rífa úr lausar tenn-
ur.
Elsku Tóti, við eigum eftir
að sakna þess að heyra í þér í
hverri viku og fá þig hressan
og kátan í heimsókn á Merkó.
Elsku Drífa og börn, við pöss-
um saman upp á að halda minn-
ingunni um þennan góða dreng
á lofti. Við sjáum hann í anda
með rautt í glasi að segja
skemmtilegar sögur þarna uppi
og allir brosandi í kring. Góða
ferð, við sjáumst síðar.
Þínar systur,
Guðrún og Sjöfn.
Í dag kveðjum við elsku
besta Tóta frænda. Það var
mikil sorg í fjölskyldunni þegar
við fengum fréttirnar að hann
væri farinn, því þótt hann væri
orðinn áttræður fannst okkur
öllum hann svo ungur, bæði í
anda og vel á sig kominn lík-
amlega. Við hefðum svo gjarn-
an viljað fá að hafa hann aðeins
lengur hjá okkur. Tóti var ein-
staklega skemmtilegur frændi
sem sýndi frændsystkinum sín-
um mikinn áhuga og kærleika
og okkur þótti öllum einstak-
lega vænt um hann.
Þótt þau Drífa byggju allt
okkar líf í Lúxemborg voru þau
mikið á Íslandi og mættu á öll
helstu fjölskyldumót og við-
burði í okkar lífi, sem var okk-
ur dýrmætt. Það voru því ófáar
veiðiferðirnar sem við fórum
saman og ekki má gleyma for-
leiknum, sem var að tína risa-
maðkana á Merkó sem við
fengum auðvitað að hjálpa hon-
um með. Hann var nefnilega
mjög góður í að fá krakkana
með sér í verkin og laumaði svo
alltaf smá pening til okkar að
launum, sem var nú alveg
óþarfi því fyrir okkur voru nóg
laun að fá að vera í kringum
hann.
Síðasta sumar voru þau
Drífa lengi á Íslandi eins og oft
áður og var gott að hafa þau á
Merkó. Oft hitti maður þau
hjón í sundi og eitt sinn var svo
skemmtilegt að við hittum þau í
sundi á Akureyri. Ein litla
frænkan var nú ekki lengi að
draga Tóta frænda með sér í
svakalega rennibraut í sund-
lauginni og hann lét ekki segja
sér það tvisvar heldur fór með,
þá 78 ára að aldri, en alltaf
hress og eins og unglingur í
anda.
Þetta var Tóti í hnotskurn;
lét aldurinn ekki aftra sér í að
lifa lífinu enda ferðuðust þau
Drífa mikið og nú síðastliðið
haust til Rússlands í mikla
skemmtiferð.
Við erum þakklát fyrir að
hafa átt Tóta að öll þessi ár,
þakklát fyrir hvað hann var
góður við mömmu, Gunnu og
ömmu, og þakklát fyrir Drífu
og öll börnin sem hann skilur
eftir sig. Elsku besti frændi,
við munum alltaf minnast þín
með bros á vör.
Íris Huld og fjölskylda.
Það var árið 1981 sem pabbi
kom að máli við mig vegna vin-
ar síns Tóta Sæm. sem var að
byggja hús í Lúx og vantaði
pípara. Þetta fannst mér
spennandi verkefni og fór í
febrúar og vann í tvær vikur
með Tóta að þessu og tókst
með okkur vinskapur fyrir lífs-
tíð.
Tóku þau hjónin af mér lof-
orð um að heimsækja þau þeg-
ar húsið yrði tilbúið. Það varð
úr og nutum við Dísa gestrisni
þeirra til margra ára.
Til að endurgjalda heimsókn-
irnar buðum við þeim í veiði í
Langá, þar hafði Tóti verið í
sveit hjá Einari á Jarðlang-
sstöðum og heimsóttum við
hann í einni ferðinni og Einar
bóndi sagði: „Nei Rindill, ert
þú kominn?“ Heildsalasonurinn
frá Reykjavík hafði áunnið sér
traust bóndans og þótti þeim
hjónum vænt um heimsóknina
eftir öll þessi ár.
Síðar lágu leiðir í Grímsá og
Laxá í Dölum og alltaf var Tóti
hrókur alls fagnaðar.
Veiðin gekk upp og ofan og
eitt sinn í Grímsá gekk illa og
veiðihatturinn frá föður hans
fékk að fjúka, hann var fylltur
af grjóti og hent í Strengina
með viðhöfn og veiðileysið von-
andi horfið.
Hann kynnti okkur skútu-
siglingar og áttum við ógleym-
anlega ferð með þeim hjónum
frá Aþenu til grísku eyjanna
þegar Dísa varð fimmtug.
Árið 2018 heimsóttum við
þau loks til Suður-Afríku þar
sem þau eiga fallegt hús í
Plettenberg Bay með frábæru
útsýni. Þar voru þau óþreyt-
andi að sýna okkur umhverfið,
dýralífið, fjöllin og golfvellina.
Það gustaði um Tóta þar sem
hann fór um með glettni sinni
og skoðunum á mannskepn-
unni.
Við söknum góðs vinar og
vottum Drífu og fjölskyldu
samúð.
Jóhann og Herdís.
Við undirritaðir æskuvinir
Þórðar frá þeim tíma er við
bjuggum allir á Hraunteig fyrir
meira en sex áratugum höfðum
allir hlakkað til að eiga fund
með honum í meira en heilt ár.
Við höfum varla sést í marga
áratugi en samt var minningin
um kæran vin ljóslifandi. Því
varð söknuðurinn við fréttir um
skyndilegt andlát hans enn þá
sárari.
Þórður og Valdimar mæltu
sér mót á kaffihúsi í fyrravor
síðasta daginn sem hann var þá
á landinu á leið til heimilis síns
í Lúxemborg. Þrátt fyrir
tveggja klukkustunda samtal
náðst aðeins að tæpa á örfáum
atriðum í æviferli beggja og
glaðra endurminninga um
æskuvinina góðu. Því var fast-
mælum bundið að við myndum
allir hittast í vor og eiga langan
fund þegar Þórður kæmi til Ís-
lands eftir vetrardvöl í S-Afr-
íku en þar dvaldi hann á vetr-
um þegar myrkrið og kuldinn
grúfði sig yfir norðurhvelið og
naut umbunar eftir farsælt og
skemmtilegt ævistarf.
Við minnumst allir Þórðar
fyrir mikla mannkosti hans,
glatt viðmót, skemmtilega
glettni og höfðinglega lund,
sem kom fram m.a. í því að
þegar hann fyrstur drengja þar
um slóðir eignaðist skellinöðru
– draumatæki allra ungra
drengja – fengu aðrir að njóta
þess með honum þó að margir
hafi þá kannski ekki fullnægt
ströngustu reglugerðum um
aldurstakmark. Við vissum vel
að faðir Þórðar, sem var
strangur maður, hafði bannað
slíkt en Sæmundur var bara
ekki alltaf til staðar en löng-
unin til að fá að þeysa um á
skellinöðrunni var alltaf jafn
fersk hjá okkur vinunum.
Þórður rifjaði upp annan
skemmtilegan mótþróa gegn
vilja föður síns í fyrravor.
Hann var sendur gegn vilja
sínum í inntökupróf hjá Verzl-
unarskólanum. Hann fékk núll
á prófinu. Þegar faðirinn leit-
aði skýringa á svo bágri ein-
kunn kom í ljós að Þórður hafði
aðeins skrifað nafnið sitt á
prófblaðið. Í refsingarskyni
fyrir mótþróann var Þórður
sendur til að vinna á kúabúi í
skosku hálöndunum. Hann átti
að læra í eitt skipti fyrir öll
hvað það kostaði að láta ekki
leiðbeina sér um góða vegferð í
lífinu.
Þetta varð hins vegar engin
refsing heldur undi Þórður sér
afar vel við að moka skít í há-
löndum Skotlands í eitt ár og
eignaðist ást á Skotlandi og
góða vini. Hann fór síðan sínar
eigin leiðir í lífinu og var full-
fær um að rata um rétta stigu
eins og lífshlaup hans vitnar
svo glæsilega um.
Við vinir Þórðar úr bernsku
söknum þess að hafa ekki átt
meiri samleið með honum en
látum þá ósk í ljós að fá meira
að heyra seinna um skemmtileg
ævintýri lífs hans, – helst af
munni hans sjálfs.
Arthur Farestveit,
Kjartan Borg og
Valdimar H.
Jóhannesson.
Þórður Guðmund-
ur Sæmundsson
Okkar ástkæra sambýliskona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR
Stella,
Hjarðarhaga 38, Reykjavík,
lést mánudaginn 20. júlí á Landspítalanum í
Fossvogi.
Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 29. júlí
klukkan 13.
Magnús Þ. Jónsson
Guðmundur Guðbjörnsson Friðbjörg Blöndahl
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, sonur og bróðir,
INGI BJÖRN BOGASON,
Hraunbæ 182,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
þriðjudaginn 14. júlí. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 29. júlí
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið
og Kraft.
Magdalena V. Michelsen
Steinunn Jónsdóttir Bogi Baldursson
María Erla Bogadóttir Hjalti Kolbeinsson
Jón Baldur Bogason Haukur Heiðar Steingrímsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTBJÖRG HARALDSDÓTTIR,
Dodda frá Sandhólum,
sem lést á Droplaugarstöðum
miðvikudaginn 22. júlí, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. júlí klukkan 13.
Gréta, Unnur, Birna og Jenný Sigfúsdætur
og fjölskyldur
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður
og ömmu,
KRISTÍNAR ANDREU SCHMIDT
Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum,
sem lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugardaginn 18. júlí.
Að ósk hinnar látnu hefur útförin farið fram í kyrrþey.
Ólafur Rósinkrans Guðnason
Birgir Ólafsson
Gunnar Ólafsson
Anna Kristín B. Jacobsen
Katrín Birgisdóttir
Ólafur Egill Birgisson
Elskuleg dóttir okkar og systir,
ALEXANDRA ÍSEY GRÉTARSDÓTTIR,
Hrafnhólum 4, Selfossi,
lést á Raufarhöfn 13. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 30. júlí klukkan 13.
Grétar Þór Pálsson Sóley Björk Sturludóttir
Kristófer Sævar Grétarsson Viktoría Eldey Grétarsdóttir
Ísabella Máney Grétarsdóttir Axel Sturla Grétarsson
Aþena G. Þórey Grétarsd. Elísa E. Glóey Grétarsdóttir
Hjörtur Snorri Grétarsson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALBORG RAKEL GUNNARSDÓTTIR,
áður til heimilis að Lerkilundi 12,
lést 21. júlí í Lögmannshlíð.
Útför hennar mun fara fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 31. júlí klukkan 13.30.
Gunnar Helgi Kristjánsson Ingibjörg Tómasdóttir
Anna Guðrún Ásgeirsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUNNHILDUR ERLA
ÞÓRMUNDSDÓTTIR,
Ljósheimum,
Selfossi,
lést föstudaginn 24. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Jakob Skúlason Jóhanna Hallgrímsdóttir
Þórmundur Skúlason
Vilberg Skúlason Guðlaug Skúladóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæri
HRÓLFUR RAGNARSSON
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
23. júlí. Útför hans fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 31. júlí
klukkan 13.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Íslenska ættleiðingu,
reikningsnúmer 0526-14-401578, kt. 531187-2539.
Sigríður J. Gísladóttir
Hildur Hrólfsdóttir Ragnar Þór Emilsson
Smári Hrólfsson Elísabet Hrund Salvarsdóttir
afabörn og langafabörn