Morgunblaðið - 28.07.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020
Lág
kolvetna
PURUSNAKK 60 ára Guðrún Helga
fæddist á Þórshöfn og
ólst þar upp. Hún er
lyfjatæknir að mennt
og býr og starfar á
Húsavík.
Börn: Sigurður Brynjar
Júlíusson, f. 1979, maki
Þórdís Huld Vignisdóttir, f. 1984. Börn:
Sædís Saga og Lilja Rós. Fyrir átti Sig-
urður Atla Val. Ríkey Júlíusdóttir jarð-
fræðingur, f. 1984, dóttir: Júlía Rósa
Björnsdóttir. Ásgeir Jarl Júlíusson, f.
1993, maki Sara Bestouh, f. 1991. Börn:
Kolbrún Mía og Úlfrún Lea.
Foreldrar: Sigurður Tryggvason, f. 11.2.
1928, d. 18.6. 1988, sparisjóðsstjóri á
Þórshöfn, og Bryndís Guðjónsdóttir, f.
14.10. 1934, d. 17.11. 2017.
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engu líkara en allir vilji eiga
stund með þér. Ef jákvætt viðhorf leiðir til
jákvæðrar útkomu hefur þú ekkert að ótt-
ast.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert allra vinur þessa stundina og
ættir að láta þér vel líka í flestum tilvikum.
Gakktu sjálfur úr skugga um sannleiks-
gildið. Treystu á sjálfan þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vísbendingarnar segja að ekki
eigi að hlusta á gagnrýnisraddir. Taktu þér
tíma til að hlusta á fjölskyldumeðlimi og
veittu þeim stuðning.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð leiðbeiningar frá ein-
hverjum sem veit hvað er að gerast.
Færðu þig nú frá og leyfðu fólki að berjast
í gegnum aðstæður.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er hætt við að þú sýnir sam-
starfsfólki þínu of mikla kröfuhörku í dag.
Haltu þessu aðskildu því allt hefur sinn
stað og stund.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Enn þarf að hnýta nokkra lausa
enda varðandi fasteignir og önnur verð-
mæti sem þú deilir með öðrum. Ekki velja
að vinna bara og eiga ekkert einkalíf.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nýr kunningi kemur þér skemmtilega
á óvart. Með réttu viðhorfi gæti þér fund-
ist sem þú hefðir engin vandamál og
kannski er það rétt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er í góðu lagi að lyfta sér
upp að loknu vel unnu dagsverki. Mundu
að verður er verkamaður launa sinna og
það á við um þig sem aðra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að eyða
tíma með börnum eða að finna barnið í
sjálfum sér. Hvað svo sem þú kemur af
stað í dag mun gagnast þér til lengri tíma.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinnan gengur vel þegar þú
veist hvenær þú átt að taka þátt í verkefni
og hvenær að hætta því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Góðverk eru aldrei til einskis.
Láttu það líka eftir þér að bregða svolítið á
leik.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt leysa gátu sem þú hefur
glímt við vikum saman. Njóttu velgengni
þinnar. Hafðu það hugfast að ekkert kem-
ur í stað góðrar vináttu.
menn. Hver einasti dagur færir nýj-
ar áskoranir og spennandi verkefni
sem ég hlakka til að takast á við. Iðn-
aðurinn er svo fjölbreyttur, hags-
munir íslensks iðnaðar eru samofnir
hagsmunum samfélagsins um aukna
verðmætasköpun og þar af leiðandi
bætt lífskjör. Þannig vinnum við að
bættum hag samfélagsins á hverjum
einasta degi“. Í tengslum við störf
fyrir Samtök iðnaðarins á Sigurður
sæti í ýmsum stjórnum, ekki síst
þegar kemur að nýsköpun. Má þar
nefna að hann er stjórnarformaður
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og í
stjórn Auðnu, tæknitorgs. Þá er
hann annar formanna Grænvangs,
samstarfsvettvangs stjórnvalda og
atvinnulífs um loftslagsmál og græn-
ar lausnir.
„Alls staðar hef ég verið hluti af
öflugu teymi og þar af leiðandi ákaf-
lega heppinn með samstarfsfólk sem
vinnur frábært starf. Ég lít um öxl
fullur þakklætis til samferðamanna
minna í leik og starfi; fjölskyldu,
góðra vina og samstarfsmanna sem
hafa kennt mér margt og veitt mikla
gleði á lífsleiðinni. Á sama tíma horfi
ég með tilhlökkun fram á veginn.
Stærstu verkefnin eru fram undan
en lítið kraftaverk mun líta dagsins
ljós í næsta mánuði þar sem við hjón-
landsins, nú í eigu Kviku banka. Árin
2013-2017 var Sigurður fram-
kvæmdastjóri eignastýringar Kviku
banka. Á síðasta aðalfundi Kviku var
hann kjörinn í stjórn bankans og er
nú formaður stjórnar.
Iðnaðurinn er fjölbreyttur
Frá árinu 2017 hefur Sigurður ver-
ið framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins. „Það er ákaflega gefandi
starf, ekki síst samskiptin við félags-
S
igurður Hannesson fædd-
ist 28. júlí 1980 í Reykja-
vík og ólst upp í Vestur-
bænum á Brávallagötu og
Bárugötu til sjö ára ald-
urs en þá flutti fjölskyldan á Hvann-
eyri í Borgarfirði þar sem móðir
hans, presturinn, fékk brauð. Árið
1994 flutti fjölskyldan svo til Bolung-
arvíkur. „Þannig kynntist ég bæði lífi
í sveit og í sjávarplássi á uppvaxtar-
árunum sem hafði mjög mótandi
áhrif á mig. Á litlum stöðum munar
svo um hvern og einn einstakling og
frumkvæði getur haft úrslitaáhrif.
Þannig magnaðist upp áhugi á því að
vinna samfélaginu gagn.“
Á unglingsárunum starfaði Sig-
urður við ýmis störf til sjávar og
sveita. Hann fór í Menntaskólann á
Akureyri og útskrifaðist sem stúdent
árið 2000. Að því loknu lá leiðin í Há-
skóla Íslands þar sem hann nam
stærðfræði. Að loknu BS-námi stóð
hugurinn til þess að fara utan í fram-
haldsnám og hóf Sigurður doktors-
nám í stærðfræði við Oxford-háskóla
haustið 2003 og útskrifaðist þaðan
með doktorsgráðu árið 2007. Hann
sérhæfði sig í útsetningarfræði
umraðanagrúpa sem er svið innan al-
gebru og telst vera fræðileg stærð-
fræði. Meðan á námi stóð hlaut Sig-
urður ýmsa styrki, bæði frá breskum
sem og íslenskum styrktarsjóðum. „Í
huga margra er stærðfræði reikn-
ingur – að leggja saman og marg-
falda tölur – en stærðfræði snýst
frekar um að greina viðfangsefni og
draga ályktanir. Sú ákvörðun að
leggja fyrir mig stærðfræði hefur
nýst mér ákaflega vel í þeim verk-
efnum sem ég hef fengist við að námi
loknu þrátt fyrir að viðfangsefnin
hafi ekki tengst náminu með beinum
hætti, enda snúast verkefnin um að
sjá stóru myndina, greina viðfangs-
efnin, draga ályktanir og taka
ákvarðanir um skapandi lausnir eftir
því.“
Að námi loknu hóf Sigurður störf
hjá Straumi fjárfestingarbanka og
starfaði í fjármálageiranum í áratug.
Eftir nokkur ár hjá Straumi tóku
Sigurður og tveir félagar hans við
litlu fyrirtæki á sviði eignastýringar
sem þeir nefndu Júpíter sem í dag er
eitt öflugasta eignastýringarfélag
in eigum von á okkar fyrsta barni.“
Sigurður hefur tekið þátt í félags-
störfum og má nefna að hann tók ný-
lega sæti í stjórn Krabbameinsfélags
Íslands og hefur um nokkurra ára
skeið verið varamaður í sóknarnefnd
Dómkirkjunnar. „Ég brenn fyrir
samfélagsumbótum og hef helgað
þeim stóran hluta míns tíma, nú síð-
ast í starfi mínu fyrir íslenskan iðnað.
Þá tók ég virkan þátt í endurreisn ís-
lensks efnahagslífs. Þar á meðal er
þátttaka í losun fjármagnshafta en
niðurstaðan þar gerir það að verkum
að við getum tekist á við afleiðingar
kórónuveirunnar með myndarlegum
hætti. Þá má nefna Leiðréttinguna
þar sem komið var til móts við heimili
landsins en ég var formaður sér-
fræðihóps á vegum stjórnvalda sem
gerði tillögur að útfærslu sem stjórn-
völd hrintu í framkvæmd. Ég brenn
af metnaði fyrir þeim verkefnum sem
mér er treyst fyrir, legg mikið upp úr
því að ná árangri í átt til framfara og
hugsa þar af leiðandi í lausnum.“
Sigurður tók þátt í stofnun InDe-
fence-hópsins sem barðist gegn sam-
þykkt Icesave-samningsins 2010. Í
nýlegri bók Sigurðar Más Jónssonar,
Afnám hafta, samningar aldarinnar?
er Sigurður sagður maður stórra
lausna. Sigurður segir að færa megi
rök fyrir því með hliðsjón af viðfangs-
efnum og árangri. Sigurður var
sæmdur fálkaorðunni í byrjun þessa
árs.
Áhugamálin eru af ýmsum toga og
má þar nefna útivist, tónlist og lest-
ur. „Fyrst og fremst nýt ég samvista
við fjölskyldu og vini. Það er ákaflega
gaman að upplifa landið og náttúruna
og ver ég talsverðum frítíma í það,
gjarnan með veiðistöng í hendi. Þótt
ég lesi talsvert minna en ég vildi gera
þá gefur það mér ákaflega mikið og
veitir oftar en ekki innblástur. Mér
finnst einnig gaman að spila á píanó
og hlusta á tónlist. Það er óljóst hvort
aðrir hafa jafn gaman af hljóðfæra-
leiknum og ég en það dregur ekki úr
mér.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Gunnhildur
Ásta Guðmundsdóttir, f. 30.6. 1978,
verkefnisstjóri á Íslandsstofu. Þau
eru búsett í Reykjavík. Foreldrar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins – 40 ára
Afmælisbarnið „Ég brenn fyrir samfélagsumbótum og hef helgað þeim
stóran hluta míns tíma,“ segir Sigurður.
Stærsta verkefnið er fram undan
Á Rauðasandi Sigurður og Gunn-
hildur eiga von á sínu fyrsta barni í
næsta mánuði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
50 ára Golli er Akur-
eyringur, ólst þar upp
hjá móðurforeldrum
sínum en býr í Reykja-
vík. Hann er ljósmynd-
ari að mennt og er út-
gefandi hjá MD
Reykjavík, sem gefur
m.a. út Iceland Review, og Á ferð um Ís-
land. Hann situr í ritnefnd Veiðimanns-
ins.
Maki: Júlía Þorvaldsdóttir, f. 1975, sviðs-
stjóri hjá Þjóðskrá.
Börn: Kári Steinn, f. 2003, og Hjördís
Freyja, f. 2005.
Foreldrar: Þórhalla Gísladóttir, f. 1949,
frumugreinir, búsett í Reykjavík, og Þor-
björn Jónsson, f. 1949, húsasmiður, bú-
settur í Kópavogi.
Kjartan
Þorbjörnsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is