Morgunblaðið - 11.08.2020, Side 17
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2020
590762
SsangYong Tivoli dlx ‘18, ekinn 59 þ. km.
Verð: 2.990.000 kr.
446184
Opel Corsa-Enjoy ‘17. ekinn 36 þús. km.
Verð: 1.890.000 kr.
446339
Toyota Corolla ‘18, ekinn 40 þús. km.
Verð: 2.690.000 kr.
SsangYong Korandodlx ‘18, ekinn 55 þús. km.
Verð: 3.590.000 kr.
590461 445859
Opel Mokka X ‘18, ekinn62þús. km.
Verð: 3.690.000 kr.
550151
Mazda 3 Vision ‘15, ekinn 59 þ. km.
Verð: 1.190.000 kr.
550153
Chevrolet Cruze ‘12. ekinn 106 þús. km.
Verð: 890.000 kr.
446372
Suzuki Vitara gl+ ‘19, ekinn 62 þús. km.
Verð: 2.990.000 kr.
Skoda Rapid ‘14, ekinn 97 þús. km.
Verð: 1.190.000 kr.
590704 550140
Chevrolet Captiva ‘14 ekinn 138þús. km.
Verð: 1.990.000 kr.
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Ísland vill sjá þig í sumar
Nú stendur íslenska ferðasumarið í hámarki - komdu og skoðaðu gott úrval af notuðum bílum hjá Bílabúð Benna og kynnstu Íslandi betur í sumar.
Eins og þeir vita
sem fylgst hafa með
afkomumálum þjóð-
arinnar þá hefur
loðnuafli að stórum
hluta brugðist, sér-
staklega við Suður-
landið og í kjölfarið
reyndar veiðst vel af
þorski.
Gera menn sér
einhverja grein fyrir
því í hvað stefnir því
hætt er við efnahagslegu hruni
hjá þjóðinni ef ekki verður grip-
ið í taumana og strax komið
fastari stjórn á vor fiskveiðimál.
Menn hugsa kannski ekki svo
langt að þeir komi auga á þá
hættu og hrun sem þjóð vor get-
ur lent í.
Þegar loðnuaflinn bregst þá
fara fiskimenn okkar af stað og
veiða glaðir þorskinn, það er jú
mikill afli og fallegur og menn
veiða ákaflega glaðir með sig og
sinn góða afla en ég undirritaður
spyr, gera menn sér virkilega
enga grein fyrir samspili því
sem náttúran hefur þróað með
sér í gegnum tíðina því þegar
loðnan hverfur þá hættir þorsk-
urinn að hafa það æti
sem hann er vanur
og syndir því hungr-
aður um sjóinn og
leitar að hverju því
sem hann getur étið
og er því fljótur að
taka við veiðarfærum
þeim sem sjómenn
okkar nota?
Hvað verður, þeg-
ar þorskurinn og
loðnan eru bæði
horfin af miðunum,
það ættu þeir að geta
séð sem eitthvað skoða málin. Ef
við getum ekki lengur veitt
hvorki loðnu né þorsk þá sé ég
ekki annað fyrir mér en stórfellt
efnahagslegt hrun hjá þjóð vorri
og held ég að þingmenn okkar
og ráðherrar ættu að skoða mál-
in út frá þessum sjónarmiðum og
taka á þeim af virkilegum mynd-
ugleik.
Hvert stefnum við
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar
Magnússon
»Hvað verður, þegar
þorskurinn og loðn-
an eru bæði horfin af
miðunum?
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri
SÁÁ var stofnað
1977 af framsýnu
fólki sem hafði farið
í áfengismeðferð í
Bandaríkjunum og
vildi bjóða upp á
sambærilega með-
ferð á Íslandi. Stór
hópur áhugasamra
einstaklinga gekk
fljótlega til liðs við
samtökin sem af
miklum eldmóði opnuðu afeitr-
unarstöð, fyrst í Reykjadal, síðan
á Silungapolli og loks á Vogi og
meðferðarstöðvar á Sogni, Stað-
arfelli og Vík. Í dag er meðferð-
arstarf SÁÁ í fararbroddi í heim-
inum.
Snemma árs 1979 fór Þórarinn
Tyrfingsson læknir að starfa hjá
SÁÁ. Þá var meðferðarstarfið á
Silungapolli og á Sogni. Öll að-
staða var mjög frumstæð á þess-
um árum og flestir starfsmenn
voru AA-félagar sem höfðu farið í
meðferð á Íslandi eða í Banda-
ríkjunum og náð nokkrum ár-
angri. Á þeim rúmlega 40 árum
síðan SÁÁ var stofnað hefur
starfsemin eflst mjög. Víkinga-
meðferð, kvennameðferð, ung-
lingameðferð, eldri karlameðferð,
spilafíklameðferð og göngudeild-
armeðferð eru dæmi um það. Þó
að margir hafi lagt hönd á plóg
er það Þórarinn Tyrfingsson sem
hefur leitt þetta frábæra starf.
Ráðgjafar hafa verið hryggj-
arstykkið í starfi SÁÁ frá upp-
hafi. Þórarinn hefur verið lyk-
ilmaður í leiðsögn þeirra og
kennslu allan tímann og beitti
hann sér mjög fyrir því að þeir
fengju starfsréttindi sem heil-
brigðisstétt árið 2006.
Strax í upphafi helgaði Þór-
arinn líf sitt algjörlega starfi sínu
hjá SÁÁ. Hann var yfirlæknir og
formaður SÁÁ og leiddi með
styrkri hendi og mikilli lagni
gríðarlega uppbyggingu samtak-
anna. Þúsundir alkóhólista og
tugþúsundir ættingja þeirra hafa
náð að snúa lífi sínu til hins betra
með hjálp Þórarins Tyrfings-
sonar og hans frábæra starfs-
fólks hjá SÁÁ. Þórarinn var allt-
af tiltækur þegar leitað var til
hans vegna fíkils sem var í
vanda. Hann tók vel á móti fár-
veikum fíklum og hafði næman
skilning á því hvað þeir þyrftu til
að ná árangri. Þúsundir fíkla
þakka Þórarni og hans góða
starfsfólki hjá SÁÁ fyrir að hafa
leitt þá fyrstu skrefin til alsgáðs
lífs. Þórarinn Tyrfingsson hefur
lagt meira af mörkum til að
breyta lífi fíkla og aðstandenda
þeirra til hins betra en nokkur
annar Íslendingur. Það er varla
til sú fjölskylda á Íslandi sem
ekki þekkir til einhvers sem hann
og SÁÁ hafa hjálpað.
Íslenska þjóðin stendur í mik-
illi þakkarskuld við SÁÁ og Þór-
arin Tyrfingsson.
SÁÁ og Þórarinn
Tyrfingsson
Eftir Sigurð
Gunnsteinsson og
Gísla Ragnarsson
» Þórarinn Tyrfings-
son hefur lagt meira
af mörkum til að breyta
lífi fíkla og aðstandenda
þeirra til hins betra en
nokkur annar Íslend-
ingur.
Gísli
Ragnarsson
Sigurður er áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi. siggi@saa.is; Gísli er fyrrv.
skólameistari. gisli.ragnars-
son@decode.is
Sigurður
Gunnsteinsson
Sérvalinn alþing-
ismaður Sjálfstæð-
isflokksins, Bryndís
Haraldsdóttir, vill inn-
leiða frjálsræði við
meðferð á jarðneskum
leifum þeirra sem
brottgengnir eru. Um
þessar hugmyndir
þingmannsins má lesa í
pistli á visir.is.
Við lesturinn rifj-
aðist upp fyrir mér frá-
sögn af því þegar dreifa átti ösku lát-
ins sjómanns nokkurs í úthafið.
Skipið, sem flutti
syrgjendur með
öskuna á haf út, nam
staðar og prestur fór
með bæn. Viðstaddir
stilltu sér upp þannig
að öskunni yrði dreift
undan vindi.
Dreifing ösku hófst
en skyndilega snerist
vindáttin og dreifðist
askan með vindkviðu á
viðstadda.
Flestir tóku nokkuð
af hinum látna í nefið
og hnerruðu.
Er ekki rétt og eðlilegt að viðhafa
ákveðinn aga og sýna hinum brott-
gengnu fulla virðingu, en ekki að
keppast í frumlegheitum við dreif-
ingu á ösku?
Eftir Vilhjálm
Bjarnason
Vilhjálmur
Bjarnason
»Er ekki rétt og eðli-
legt að viðhafa
ákveðinn aga og sýna
hinum brottgengnu fulla
virðingu, en ekki að
keppast í frumlegheit-
um við dreifingu á
ösku?
Höfundur var alþingismaður.
Að taka í nefið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?