Morgunblaðið - 11.08.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.08.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ValdamennESB ogstórríkj- anna tveggja sem fara þar með eign- arhaldið lásu út- gönguvilja bresku þjóðarinnar illa. Þeim var nokkur vorkunn. Skoðanakannanir virtust lengi sýna að jafnt myndi verða í þjóðaratkvæði Breta og skekkjumörkin virtust að auki langflest liggja með þeim sem vildu ekki út. Nokkrir hinna smærri flokka í Bretlandi, sem þó gátu haft töluverð áhrif, stóðu þétt um vilja til áfram- haldandi veru í ESB. Þeirra á meðal voru Skoski þjóðar- flokkurinn sem hefur þingstyrk í Westminster langt umfram stærð sína og Frjálslyndi flokk- urinn, sem hafði unnið góðan sigur árið 2010 þegar Gordon Brown missti meirihluta sinn á þingi, en þó án þess að höfuð- andstæðingurinn, Íhaldsmenn, næði hreinum meirihuta. Frjálslyndir fengu 57 þingsæti og komst Clegg leiðtogi þeirra í lykilaðstöðu og fékk embætti aðstoðarforsætisráðherra og frama fyrir sína menn fyrir stuðning við Íhaldsflokkinn. Pólitískur fóstbróðir Gord- ons Brown, Tony Blair, var orð- inn mikill áhugamaður um að Bretar tækju upp evru og hnýttust þannig kirfilega inn í ESB, og misstu um leið hið hefðbundna þétta samband sitt við Bandaríkin og sjálfstæð áhrif á heimsvísu, þótt úr þeim styrk hefði þegar dregið smám saman. Meirihluti þáverandi valdamanna Íhaldsflokksins voru ákafir evrópusinnar en fóru misjafnlega opinberlega með. Nefna má Cameron for- sætisráðherra, Osborne fjár- málaráðherra, Theresu May innanríkisráðherra og Ham- mond utanríkisráðherra. Verkamannaflokkur þeirra Blair, Brown og Mandelson var andvígur útgöngu sem og meirihluti þingmanna flokks- ins. Jeremy Corbyn hafði ára- tugum saman verið frábitinn aðild að ESB en eftir að hann tók við flokksforystu hafði hann haft hægar um sig í þeim efnum, en fann þó glöggt, sér til ánægju, að flokksfélagarnir „á götunni“ sem fjölgað hafði mjög deildu hans skoðunum og töldu sig ekki þurfa að pukrast með það. Blair vildi ólmur kasta pundinu og láta Seðla- bankann í Frankfurt fá loka- orðið yfir gjaldmiðlinum. Brown fjármálaráðherra hans og opinber krónprins varð smám saman annarrar skoð- unar og beitti sér gegn því að Bretar köstuðu pundinu. Í öll- um þessum slag hafði Blair hvatt nágranna sína í vestri, Írska lýðveldið, ákaft til þess að ganga alla leið í samstarfinu í Evrópu, enda taldi hann að hvert slíkt skref myndi gera Bretum örð- ugra að komast hjá upptöku evru, svo ekki sé talað um að yfirgefa sambandið. Getgátur hafa verið um að Blair hafi haft loforð um að fá að verða forseti yfir ESB í framhaldi af því að hann létti af sér húsbóndahlutverkinu í Downingstræti 10 eftir að hafa tryggt að Bretar tækju upp evru. Blair naut mikils álits í Dublin vegna friðarsamninga á Norður-Írlandi og ekki síst með því að draga forystumenn írska lýðveldishersins og hans flokks aftur inn í siðaðra manna tölu og gefa þeim þannig upp sakir í ógnarverkum í Bret- landi gegn saklausum borg- urum. En allt fór þetta öðruvísi en ætlað var. Brown tókst að koma í veg fyrir áform Blair um að kasta pundinu. Merkel og aðrir leiðtogar ESB misreiknuðu vilja bresku þjóðarinnar til út- göngu. Það sem þau misreikn- uðu ekki var að meirihluti breskra þingmanna var til- búinn til að hafa þjóðaratkvæði að engu og gera ekkert með sín eigin loforð um að virða þjóðar- viljann. Þetta lið lét eins og í ljós hefði komið að útgangan myndi skapa skelfileg vand- ræði og því væri þeim ekki rétt að halda sig við fyrri yfirlýs- ingar. Ekkert nýtt hafði þó komið fram sem ekki var langt innan ramma hræðsluáróðurs í kosningunum. Írska ríkisstjórnin gerði allt sem hún mátti til að spilla fyrir því að gengið yrði frá samn- ingum um útgöngu, sem auðvit- að voru í sjálfu sér aðeins formsatriði eftir að vilji bresku þjóðarinnar lá fyrir. Öllum þessum svikaöflum virtist mundu takast ætlunarverkið allt þar til Boris Johnson tókst að komast til þjóðarinnar á ný og tryggja sér frá henni afger- andi meirihluta á þingi til að efna loforðin við þjóðina. En þá sitja Írar uppi með svartapétur sem ESB hafði lofað þeim að tryggja að yrði ekki spiluðu þeir með. Bretar eru að fara. Samskipti Íra við sína helstu viðskiptaþjóð verða erfiðari en áður. Við bætist að með brott- för Breta færast Írar ofar í röð þeirra sem verða að standa undir peningaógöngum þeirra þjóða sem kunna ekki fótum sínum forráð. Hollendingar, Danir, Svíar, Finnar og Austurríkismenn eru búnir að fá sig fullsadda. Nú er því spáð að Írar muni horfa löngunar- augum á eftir Bretum og fyrstu skrefin verði að fylkja sér um andóf fyrrnefndra ríkja. Fróð- legt verður að fylgjast með þessari þróun. Illa brugðust vondra manna ráð, eins og fyrri daginn} Brostnar forsendur N ú er komið að stjórnvöldum,“ er setning sem bergmálar um samfélagið. Með þessu er átt við að það sé ríkisstjórnar að taka ákvörðun um framhald lífs okk- ar með kórónaveirunni. Hvernig þau hyggjast leggja línurnar fyrir skólastarf, atvinnulíf, lýð- heilsu, menningu og mannlíf. Til þessa hafa ráðherrar látið sóttvarnayfirvöld leiða aðgerðir vegna veirunnar en þó hefur verið ljóst frá því í vor að sóttvarnayfirvöld hafa ekki ráðið alfarið för. Okkar daglega líf þurfti að komast af stað en það skorti á að ríkisstjórnin hefði hagsmuni heildar að markmiði og höfum við í Samfylking- unni margbent á það. Hvar er stefnumótunin, greiningin á hag- rænum áhrifum, greiningin á lýðheilsu lands- manna, yfirsýn yfir aðgerðir og efnahagslegt mat á því sem gert er og ekki síður því sem ekki er gert? Við höfum kallað eftir slíkum upplýsingum allt frá fyrsta degi en ekki fengið. Við höfum einnig kallað eftir samráði við stjórnarandstöðuna en ríkisstjórnin virðist ekki hafa áhuga á að hleypa fleiri sjónarmiðum að við þessar björg- unaraðgerðir. Ríkisstjórnin hefur haldið öllu svo þétt upp að sér að nú er komið á daginn sem við óttuðumst að yf- irsýn og mat á áhrifum aðgerða er ekki til staðar. Und- irbúningur, hvort sem er við opnun landsins í vor eða núna, er í skötulíki. Talað er um það þegar komið er út í miðja á að skipa samráðshópa til að ræða framtíðina, en ákvarðanir þarf að taka núna. Stórir hópar bíða, mat á áhrifum þarf að eiga sér stað frá fyrsta degi og þá á breiðari grunni en eingöngu út frá tilfinn- ingu einstakra ráðherra á því hvað faraldurinn kunni að fara illa með eina starfsgrein í land- inu. Við í Samfylkingunni höfum sýnt rík- isstjórninni sanngirni varðandi kröfur um að þau viti hvernig veiran muni haga sér til fram- tíðar eða áhrif aðgerða á fyrstu viku faraldurs en við gerum þá skýlausu kröfu til ríkisstjórn- arinnar að hún sé við stjórn á hverjum tíma og taki ákvarðanir út frá faglegu mati en ekki til- finningum dagsins. Ríkisstjórnin hefur tækin og á að nota þau til að teikna upp ólíkar sviðs- myndir. Hvernig högum við skóla-, menning- ar- og íþróttastarfi í haust ef veiran hefur ekki látið á sér kræla? Hvað gerum við ef önnur bylgja er hafin? Hvað koma aðgerðir sem gerðar eru í þágu einnar atvinnugreinar til með að kosta aðra? Það eru svona spurningar sem við höfum spurt frá upphafi en ekki fengið svör og nú virðist því miður sem ríkisstjórnin hafi enn engin svör. Engin heildarsýn, engin sviðsmyndagreining, ekkert svar er fyrir hendi fyrir skólana, menningarstofnanir, íþróttafélög eða atvinnulíf. Enn bjóðum við þeim aðstoð okkar við að skapa bestu mögulegu útkomu, en þá þarf ríkisstjórnin að viðurkenna vanmátt sinn og opna dyrnar. Þannig verðum við fyrst öll almannavarnir. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Stjórn eða stjórnleysi Höfundur er þingman Samfylkingarinnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Við létum gera hagrænagreiningu í vor þegar viðvorum að undirbúa frá-hvarf frá sóttkví til landamæraskimunar og höfðum þar tölur frá apríl og maí að byggja á,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra þegar Morgunblaðið spurði hvort nægilegt tillit hefði ver- ið tekið til áhrifa sóttvarnaaðgerða á hagkerfið í heild. „En við höfum ekki í hendi spá um nákvæmlega hverjar efnahagslegar afleiðingar núverandi sóttvarnaráðstafana verða. Hins vegar er verið að uppfæra grein- argerð fjármálaráðuneytisins um efnahagsleg sjónarmið við losun ferðatakmarkana, sem ætti að koma út nú í vikunni og sömuleiðis höfum við í hyggju að fá utanaðkomandi að- ila til þess að leggja mat þar á.“ Snýst ekki um ferðaþjónustuna eina „Í mínum huga er tvennt sem mestu skiptir: Annars vegar heil- brigðis- og sóttvarnarsjónarmið, en einnig hitt, að halda samfélaginu gangandi. Hluti af því er að greiða fyrir samgöngum í frjálsu samfélagi og því fer fjarri að það snúist um ferðaþjónustuna eina.“ En hvað með tjónið, sem ítrekaðar takmarkanir valda, og þá kannski ekki síður hið félagslega tjón, t.d. fyrir aldraða og viðkvæma hópa? „Jú, auðvitað horfum við sér- staklega til þess. Það er liður í því að halda samfélaginu gangandi, eins og ég nefndi. En það er nú eins og sótt- varnalæknir hefur margsagt, að það er erfitt að halda landinu 100% lausu við veiruna. Þrátt fyrir allar reglur um sóttkví höfum við aldrei trygg- ingu fyrir því að allir fylgi henni. Þarna eru ótal erfiðar spurningar og þeim verður ekki svarað með hagfræðiúttekt eingöngu.“ Varðandi gagnrýni hagfræðipró- fessorsins Gylfa Zoëga bendir Katr- ín á að smitum virðist vera að fækka þó of snemmt sé að hrósa sigri í þeirri viðureign. „Við þurfum að bíða og sjá, en að því leyti virðast að- gerðirnar hafa borið tilætlaðan ár- angur. En við þurfum sífellt að bregðast við breyttri stöðu og ég get ekki útilokað að sóttvarnir þurfi að herða. Það er t.d. til skoðunar að efla sóttvarnir við landamærin og ég á von á að fá yfirlit um kosti í þeim efnum á næstu dögum.“ Hún ítrekar að þar sé markmið að halda samfélaginu gangandi. „Það birtist einnig í því að halda skól- unum opnum og starfandi í vor, ólíkt flestum öðrum ríkjum. Það verður áfram forgangsmál hjá okkur, ásamt því að menningar- og íþróttastarf geti þrifist. Við horfum sem áður fyrst og fremst til heilbrigðissjón- armiða, en við getum ekki leitt hin hagrænu áhrif hjá okkur frekar en hin félagslegu: hvernig við höldum áfram sem eðlilegt samfélag þó að- stæðurnar séu óeðlilegar.“ Faraldurinn notaður til póli- tískrar tækifærismennsku En hvað með gagnrýni Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, sem greint var frá á for- síðu Morgunblaðsins í gær, um að ríkisstjórnin skyti sér undan ábyrgð með því að skýla sér á bak við al- mannavarnateymið? „Ég furða mig satt best að segja á því ef stjórnmálamenn ætla að not- færa sér faraldurinn og sóttvarnar- aðgerðir okkar til pólitískrar tæki- færismennsku. Við berum ábyrgð á aðgerðum stjórn- valda, sem eru unnar í náinni samvinnu við sérfræð- ingana. Þar er sífellt samtal í gangi. Það eru mörg dæmi í heiminum um stjórn- málamenn, sem þykjast hafa öll svör um faraldurinn á reiðum höndum. Við er- um ekki í þeim hópi,“ segir forsætisráðherra. Þurfum að halda samfélaginu gangandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Forsætisráðherra Katrín segir ótal erfiðar spurningar til staðar. Aukin umræða um sóttvarnar- aðgerðir hefur sprottið upp síð- ustu daga, bæði um hvernig og á hvaða forsendum ákvarðanir stjórnvalda hafa verið teknar. Stjórnvöld hafa frá upphafi lagt áherslu á að ákvarðanir þeirra byggist á tillögum vísinda- manna. Það vakti því athygli þegar Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir ítrekaði í gær að það væri ákvörðun stjórnvalda og á þeirra ábyrgð hvort farið yrði eftir þeim tillögum, en á laugardag gat Alma Möller land- læknir þess að tilslakanir á landamærum hefðu verið að frumkvæði ríkisstjórnarinnar og þjónað efnahagslegum mark- miðum. Þá hefur gagnrýni Gylfa Zoëga hagfræðiprófessors vak- ið athygli, en hann leiðir rök að því að stjórnvöld hafi gert mistök með því að „opna“ landið fyrir ferðamönnum; ábati af því að slaka á ferða- takmörkunum til Íslands hafi verið ofmetinn þegar horft er til þess kostnaðar sem margvíslegar takmarkanir hafi í för með sér. Aukin gagnrýni BARÁTTAN VIÐ VEIRUNA Gylfi Zoëga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.