Morgunblaðið - 11.08.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.08.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2020 TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA - ALLA LEIÐ Rafgeymar í húsbíla og hjólhýsi fyrir ferðalagið í sumar Startaðu ferðasumarið með Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Hinn fjölhæfi austurrískirithöfundur PeterHandke hlaut Nóbels-verðlaunin í fyrra fyrir áhrifamikil verk þar sem hann af „mikill stílsnilld hefur kannað jaðra og sérstöðu í mannlegri tilveru,“ eins og segir í tilkynningunni um verðlaunaveitinguna frá Sænsku akademíunni. Handke hefur jöfnum höndum skrifað prósaverk og leikrit síðustu áratugi, og auk þess ljóð og kvik- myndahandrit, og fengist við þýð- ingar. Sú ákvörðun að afhenda hon- um Nóbelinn vakti deilur, enda hefur Handke verið umdeildur og ekki síst fyrir afstöðu sína til átakanna á Balk- anskaganum en þangað á hann ættir að rekja. Hann flutti ræðu við útför Slobod- ans Miloševic og hefur farið gagnrýnum orðum um stríðsglæpadómstólinn í Haag. Í kjölfar ákvörðunarinnar um að af- henda honum verðlaunin sögðu ein- hverjir höfundar sig úr Nóbelsnefnd sem var sett saman til að annast val- ið, og svo hart var deilt á Handke að hann kvaðst hættur að tala við blaðamenn, því þeir hefðu aðeins áhuga á afstöðu hans til Balkanskag- ans en ekki á verkunum hans. Handke hefur líka haft skoðun á Nóbelsverðlaunum í bókmenntum og árið 2014 kallaði hann eftir því að þau yrðu lögð niður og sagði verð- launin veita sigurvegaranum „falska dýrlingaupphefð“. En hann tók samt við þeim. Hvað sem deilum um skoðanir Handke varðar þá er ekki hægt að líta fram hjá því að hann er framúr- skarandi höfundur og hefur skapað mörg athyglisverð verk. Og því ber að fagna að bókaútgáfan Ugla hefur gefið út þessa athyglisverðu bók Nóbelskáldsins, Óskabarn ógæf- unnar, í vandaðri þýðingu Árna Ósk- arssonar. Áður hefur einungis ein bóka Handke verið þýdd á ísensku, Barnasaga sem Pétur Gunnarsson þýddi og kom út árið 1987. Vitaskuld er rétt að gera þá kröfu að forlög landsins sjái til þess að verk Nóbels- höfunda, og ekki bara eitt eða tvö, séu aðgengileg í góðum þýðingum. Óskabarn ógæfunnar (1972) var fjórða útgefna skáldverk Handke, kom út þegar hann var þrítugur, en hann skilgreinir verkið með þeim hætti þótt það sé byggt á minn- ingum hans og hugsunum um líf móður hans og eigin uppvöxt. Handke fæddist í miðri seinni heimsstyrjöldinni, árið 1942. Móðir hans var frá fátæku austurrísku hér- aði og eignaðist Handke með kvænt- um eldri bankamanni - Handke hitti föður sinn ekki fyrr en hann var orð- inn fullorðinn. Móðirin giftist hins vegar drykkfelldum hermanni og bjó um tíma með honum í Berlín, þar sem hún eignaðist tvö börn til, áður en fjölskyldan flutti til heimabæjar hennar. Móðir Handke tók eigið líf árið 1971 og á því hefst frásögnin, og jafnframt að höfundurinn hafi byrj- að að skrifa þessa sögu hennar fljót- lega á eftir: Undir fyrirsögninni ÝMISLEGT stóð eftirfarandi í sunnudagsútgáfu Kärtner Volkszeit- ung: „Aðfaranótt laugardags framdi 51 árs gömul húsmóðir frá A (bæjar- félag G.) sjálfsmorð með því að taka inn of stóran skammt af svefntöfl- um.“ Nú eru liðnar næstum sjö vikur frá því að móðir mín dó og mig lang- ar til að hefjast handa áður en þörfin fyrir að skrifa um hana, sem var svo sterk við jarðarförina, breytist aftur í sljólegt málleysi eins og þegar ég las fréttina um sjálfsmorðið. (7) Nálgun höfundarins við efnið hef- ur löngum vakið athygli lesenda, hvernig han lýsir lífi móður sinnar, uppvexti, vonum og vonbrigðum, með allt að því kaldranalegum hætti. Formlega og það er sem hann reyni markvisst og meðvitað að setja sig í fjarlægð frá henni. En í því felst jafnframt áhugaverð spenna og les- andinn finnur smám saman fyrir harminum, sorginni, sem hann eins og uppgötvar með hikandi höfund- inum sjálfum eftir því sem hann átt- ar sig betur á því lífi sem var var lif- að og lokið, í eins konar flótta frá djúpstæðum sársauka, þegar móðir- in var nýorðin fimmtug. Þegar kemur fram í frásögnina, og við höfum fylgst með sögumanni glíma við það hvernig hann eigi að segja frá, án þess að láta harminn taka yfir og tilfinningasemina brjót- ast í gegn, þá birtist löng skýring á aðferð og nálgun hans og er innan sviga. Þar segir í lokin: (… Saga móður minnar verður helst skiljanleg í svipleiftrum í draumum – vegna þess að þá verða tilfinningar hennar svo líkamlegar að ég lifi þær sem tvífari og sam- sama mig þeim; en það eru einmitt þau fyrrgreindu augnablik þegar saman fer ýtrasta tjáningarþörf og ýtrasta orðleysi. Þess vegna falsar maður reglufestu hefðbundins æviá- grips þegar maður skrifar: „Þá – síð- ar“, Það er – enda þótt“, „var – varð – varð ekkert“ og vonast til að sigr- ast á skelfingunni. Það er þá ef til vill það fyndna við söguna.) (48) Tjáningarþörf og orðleysi, hefð- bundið æviágrip og skelfing þess sem enn er á lífi. Þessir þættir tak- ast með áhrifaríkum hætti á í þess- ari fallegu og merkilegu frásögn framúrskarandi samtímahöfundar. Að sigrast á skelfingunni AFP Nóbelskáld Í Óskabarni ógæfunnar fjallar Peter Handke um sorglegt líf og dauða móður sinnar á óvenjulegan en jafnframt áhrifaríkan hátt. Minningar - skáldverk Óskabarn ógæfunnar bbbbm Eftir Peter Handke. Árni Óskarsson þýddi. Ugla, 2020. Kilja, 106 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Mér finnst eiginlega best að lýsa þessu sem draumkenndu rafpoppi,“ segir tónlistarkonan Annalísa Her- mannsdóttir sem gaf nýverið út EP-plötuna 00:01. Annalísa stundar nám við sviðshöfundabraut Listahá- skóla Íslands og hefur lært djass- söng í FÍH síðan árið 2017. „Ann- ars hef ég verið í hljómsveit með K.Óla og hef spilað með henni í tvö ár. Síðan hef ég verið að semja síð- an ég man eftir mér,“ segir hún. Gerast á einni nóttu Annalísa hefur áður gefið frá sér þrjú lög, „Ekki lengur“, „Skugga- myndir“ og ábreiðu af „Bláu augun þín“, en 00:01 er hennar fyrsta EP- plata. „Ég samdi öll lögin og pródú- seraði þau ásamt Gesti Sveinssyni hjá Stúdíó Sýrlandi.“ Auk þess komu ýmsir vinir Önnulísu og kunningjar að plötunni. „Andrés Þór Þorvarð- arson á eitt lag með mér, „Mér líður eins og ég líði eins og tíminn með þér“. Hákon Örn Helgason tók líka þátt í pródúseringu.“ Sara Ósk Þor- steinsdóttir og Magnús Thorlacius spila síðan á gítar hvort í sínu laginu og Katrín Helga Ólafsdóttir útsetti strengi fyrir lagið „Sofið rótt“. Annalísa segir að hægt sé að skilja óvenjulegan titil plötunnar, 00:01, á ýmsa vegu. „Öll lögin á plöt- unni gerast yfir nótt og titillinn þýðir í rauninni eina mínútu yfir miðnætti. Það er hægt að sjá vissa sögu í gegnum plötuna, þau renna þannig að þau gætu gerst á einni nóttu. Svo getur þetta auðvitað þýtt að þetta sé fyrsta platan mín, 00:01. Kannski heitir næsta 00:02, ég veit það ekki,“ segir hún og hlær. Hefur í nógu að snúast Annalísa segir að fullt af tónlistar- fólki hafi veitt henni innblástur og nefnir sem dæmi Hjaltalín, þýsku rafhljómsveitina Moderat, hina fær- eysku Eivør og kanadíska tónlistar- manninn The Weeknd. Það sé þó ekki síður fólkið í kringum hana sem hafi áhrif á hana og veiti innblástur. Annalísa hefur unnið plötuna í samstarfi við Listhópa Hins hússins en þar gefst ungu fólki kostur á að vinna að skapandi verkefnum í átta vikur yfir sumartímann. „Það var mjög dýrmætt að fá tækifæri, tíma og vettvang til þess að gera þetta. Ég er ekki viss um að ég hefði náð að koma þessu öllu í verk ef ég hefði ekki fengið að vera með í Listhópum Hins hússins.“ Samkomutakmarkanir gera tón- leikahald nærri ómögulegt. „Mig langar rosalega mikið að spila eitt- hvað en það verður auðvitað bara að koma í ljós hvernig þetta æxlast allt saman,“ segir tónlistarkonan. Hún hefur þó í nógu að snúast. Næsta verkefni er að vera skrifta í kvikmyndatökum næstu tvo mán- uði. Síðan hefur hún þriðja árið í Listaháskólanum innan tíðar. „En tónlistin verður þarna einhvers staðar líka,“ segir hin fjölhæfa Annalísa. Ljósmynd/Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir Tónlistarkona Annalísa Hermannsdóttir segist hafa samið tónlist síðan hún man eftir sér og hefur nú gefið út sína fyrstu smáskífu, 00:01. Dýrmætt að fá tæki- færi, tíma og vettvang  Annalísa Hermannsdóttir gefur út sína fyrstu smáskífu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.