Morgunblaðið - 18.09.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Öryggiskerfi
01:04 100%
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á firmavorn.is
HVARSEMÞÚERT
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir hyggst leggja það til við heil-
brigðisráðherra að öllum skemmti-
stöðum og krám á höfuðborgar-
svæðinu verði lokað í dag og
staðirnir verði lokaðir um helgina.
Staðan verði svo endurmetin eftir
helgi. Tillagan mun ekki ná yfir
matsölustaði sem eru með vínveit-
ingaleyfi.
Sóttvarnalæknir og almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra
ákváðu síðdegis í gær að greina frá
nafni veitingastaðarins þar sem
talið er að margt fólk hafi verið út-
sett fyrir kórónuveirusmiti, í sam-
ráði við eigendur staðarins. Um er
að ræða The Irishman Pub, á
Klapparstíg 27, en fólkið var sam-
ankomið á barnum að kvöldi föstu-
dagsins 11. september.
Útbreiðsla kórónuveirunnar hef-
ur verið mikil undanfarna daga og í
gær höfðu 38 smit greinst þrjá sól-
arhringa þar á undan. Aðeins ellefu
þeirra sem greindust voru í sótt-
kví. Tólf smitanna tengjast Irish-
man Pub og hafa yfirvöld beðið þá
sem voru á staðnum milli klukkan
16 og 23 föstudaginn 11. september
að fara í sýnatöku. Það geta þeir
gert í dag með því að skrá sig á
vefnum Heilsuveru.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vínveitingastaður Greint var frá því að fjölda smita mætti rekja til föstudagskvöldsins 11. september á Irish Pub.
Skemmtistöðum verði
lokað yfir helgina
38 smit á þrem-
ur sólarhringum
Ellefu í sóttkví
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir mótefnamælingu
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna 15.6.-16.9.
546 einstaklingar eru í sóttkví
2.206 staðfest smit
84 eru með virkt smit
Heimild: covid.is
17,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
240.177 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
142.189 sýni
20
15
10
5
0
Nýgengi
innanlands:
júní júlí ágúst september
2.122 einstak-lingar
eru í skimunarsóttkví
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Auðvitað má alltaf gera betur en
miðað við aðstæður og fjármagn þá
hefur verið rífandi gangur í þessu
síðustu ár,“ segir Helga Lára Þor-
steinsdóttir, deildarstjóri safna-
deildar RÚV.
Mikið hefur áunnist við stafræna
yfirfærslu og skráningu hljóð- og
myndbandasafns
Ríkisútvarpsins á
liðnum árum.
Greint var frá því
í Morgunblaðinu
árið 2014 að hluti
safnsins lægi
undir skemmdum
en nú horfir til
betri vegar.
Stór breyting
varð á þegar tek-
ið var í notkun
tæki sem leyfir yfirfærslur á fjórum
segulböndum og fjórum geisla-
diskum í einu og hljóðmaður var ráð-
inn í fullt starf við þær yfirfærslur í
safninu.
Mikið starf er unnið við að frum-
skrá segulbönd sem ekki eru að-
gengileg í gagnagrunni að sögn
Helgu auk þess sem búið er að
skanna inn meginhluta spjaldskrár
safnsins, bæði skráningu á sjón-
varpsefni og útvarpsefni.
„Dagskrárgerðin hefur í auknum
mæli verið að nýta þessar heimildir
og endurspegla þá vinnu sem lagt
hefur verið í í safninu,“ segir hún og
vísar til þátta á borð við Glans á Rás
1 og sjónvarpsefnis sem finna má í
efnisflokknum Gullkistunni í spilara
RÚV.
Horfir til betri vegar
Helga segir að segulbönd í safni
RÚV séu um 72.500. Í lok árs 2017
höfðu 2.300 af þeim verið færð yfir á
stafrænt form. Núna er fjöldi yfir-
færðra segulbanda kominn í rúm-
lega 10.000. „Hvert segulband er yf-
irfært í rauntíma en hægt er að
yfirfæra fjögur samtímis,“ segir
Helga.
Dagskrárefni útvarpsins á geisla-
diskum er 12.800 diskar. Í lok árs
2017 höfðu 3.100 diskar verið yfir-
færðir en nú er búið að setja 6.700 á
stafrænt form. Þá eru 28.000 spólur
með sjónvarpsefni í safninu. Árið
2017 höfðu 5.300 spólur verið yfir-
færðar á stafrænt form. Nú hafa
10.400 spólur verið yfirfærðar og
gerðar aðgengilegar stafrænt. Alls
eru ríflega 3.000 filmur úr safni
RÚV í Kvikmyndasafni Íslands. Um
500 á enn eftir að yfirfæra.
„Með nýjum skanna í Kvikmynda-
safni Íslands bindum við vonir við
aukið samstarf um skönnun á þeim
filmum úr safni RÚV sem enn á eftir
að yfirfæra á stafrænt form. Unnið
er að því að bæta aðbúnað um film-
urnar í Kvikmyndasafninu þessa
dagana,“ segir Helga sem bætir því
við að verið sé að taka í gagnið nýja
skjalageymslu hjá RÚV og tryggja
betur aðbúnað skjala og gagna með
tilliti til öryggismála, t.d. hita- og
rakastigs, en nýtt skjalakerfi var
innleitt árið 2018 og ráðinn skjala-
stjóri. Nýtt brunakerfi er í skjala-
geymslunni.
Aukinn kraftur
settur í varðveislu
Vinna við stafræna yfirfærslu hljóð-
og myndbandasafns RÚV tekur kipp
Morgunblaðið/Kristinn
RÚV Hugað að menningarverðmæt-
um í safni stofnunarinnar.
Helga Lára
Þorsteinsdóttir
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Stjórn Eflingar lýsir andstöðu sinni
við þátttöku Alþýðusambands Ís-
lands í yfirlýsingu sem sambandið
undirritaði ásamt Icelandair og
Samtökum atvinnulífsins í gær.
Í yfirlýsingu ASÍ, Icelandair og
SA má segja að grafin sé stríðsöxin
frá kjaradeilu flugfreyja og Ice-
landair í sumar.
Þegar ekkert gekk né rak í þeim
viðræðum sagði Icelandair öllum
flugfreyjum félagsins upp og gaf
það út að samið yrði við annað félag
en Flugfreyjufélag Íslands, aðildar-
félag ASÍ, um störf flugfreyja.
Stuttu síðar náðist samkomulag
milli Icelandair og Flugfreyjufélags-
ins og voru flugfreyjur endurráðnar.
Ljúka öllum deilum sín á milli
Sammælast aðilar um að aðgerðir
Icelandair hafi ekki verið í samræmi
við þær góðu samskiptareglur sem
aðilar vinnumarkaðarins vilja við-
hafa og Icelandair telji nauðsynlegt
fyrir framtíð félagsins að virða
stéttarfélög og sjálfstæðan samn-
ingsrétt starfsfólks.
Einnig segir í yfirlýsingunni að
aðilar séu sammála um að ljúka öll-
um deilum sín á milli, en áður hafði
ASÍ sagst myndu stefna Icelandair
fyrir félagsdómi vegna aðgerðanna,
sem það taldi ólöglegar. Lára V. Júl-
íusdóttir sagði í samtali við mbl.is í
júlí að hún teldi uppsagnir Iceland-
air ekki ólöglegar en fordæmalaus-
ar.
Veiti enga lagalega tryggingu
Í tilkynningu Eflingar segir að
með yfirlýsingunni hafi ASÍ tekið
þátt í hvítþvotti brota Icelandair og
Samtaka atvinnulífsins á vinnu-
markaðslöggjöf með því að kalla þau
„brot á samskiptareglum“.
Bendir Efling á að umrædd yfir-
lýsing veiti enga lagalega vernd eða
tryggingu gegn því að önnur fyrir-
tæki muni síðar beita sömu aðför-
um.
„Alþýðusamband Íslands átti að
draga Icelandair og Samtök at-
vinnulífsins til fullrar ábyrgðar fyrir
Félagsdómi vegna brota þeirra líkt
og áður var samþykkt í miðstjórn
ASÍ. Þannig hefði verið staðinn
sómasamlegur vörður um réttindi
launafólks.“
Efling gagnrýn-
ir þátttöku ASÍ
ASÍ tekið þátt í hvítþvotti brota