Morgunblaðið - 18.09.2020, Side 14

Morgunblaðið - 18.09.2020, Side 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, varaði við því í gær að tilfellum kór- ónuveirunnar væri að fjölga mjög ört í Evrópu. Þá varaði stofnunin ríki álfunnar við því að stytta þann tíma sem fólk þurfi að dveljast í sóttkví, en stjórnvöld í ríkjunum reyna nú að finna leiðir til að stemma stigu við kórónuveirufar- aldrinum án þess að gripið verði til jafnharðra aðgerða og í vor. Hans Kluge, svæðisstjóri WHO fyrir Evrópu, greindi frá því á blaða- mannafundi sínum að ný smit hefðu verið fleiri í Evrópu en í síðustu viku, en þá voru skrásett rúmlega 54.000 ný tilfelli á einum sólarhring. Sagði Kluge að sú staðreynd ætti að þjóna sem viðvörun. „Þó að þessar tölur endurspegli umfangsmeiri skimun en áður sýna þær einnig ógnvænlega útbreiðslu veirunnar vítt og breitt um álfuna,“ sagði Kluge. Kallaði Kluge eftir aukinni sam- stöðu Evrópuríkja í baráttunni gegn kórónuveirunni, en sagði jafnframt mikilvægt að viðurkenna að þreyta gagnvart sóttvarnaaðgerðum væri farin að gera vart við sig hjá íbúum álfunnar. Fara í svæðisbundnar aðgerðir Bresk stjórnvöld tilkynntu að nýj- ar og hertar aðgerðir myndu taka gildi í dag, en þær beinast aðallega að norðausturhluta Englands. Munu íbúar á þeim svæðum, sem meðal annars innihalda borgirnar New- castle og Sunderland, ekki fá að hitta fólk utan heimilis síns nema með miklum takmörkunum. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, varaði við því að það gæti þurft að loka öldurhúsum á Eng- landi fyrr á daginn til þess að hægt yrði að stemma stigu við næstu bylgju faraldursins. Tilkynnt var í gær að nýjum tilfellum á Bretlandi hefði fjölgað um 167% frá því í byrj- un ágúst, þegar farið var að draga úr sóttvarnaaðgerðum. Á mánudaginn tóku gildi nýjar reglur sem banna mannamót fleiri en sex manns á Englandi, en fjöldi nýrra tilfella á Bretlandi hefur ekki verið meiri síðan í byrjun maí. Nærri því 42.000 manns hafa látist þar frá upphafi faraldursins og um 378.000 manns smitast af kórónuveirunni. Vilja ekki stytta sóttkvína WHO lýsti því þá sérstaklega yfir að stofnunin myndi ekki breyta ráð- leggingum sínum um að þeir sem út- settir væru fyrir smiti yrðu settir í 14 daga sóttkví. Sagði í tilkynningu stofnunarinnar að þau meðmæli væru byggð á skilningi hennar á meðgöngutíma veirunnar og smit- leiðum og því yrði ekki breytt nema ef þær forsendur breyttust. Frönsk stjórnvöld styttu tímann sem fólk þarf að dveljast í sóttkví niður í viku, og bresk stjórnvöld hafa stytt tímann í tíu daga. Þá munu stjórnvöld í nokkrum öðrum Evr- ópuríkjum, þar á meðal Portúgal og Króatíu, einnig vera að íhuga slíka styttingu. Kórónuveirufaraldurinn Staðan fimmtudaginn 17. september 2020. kl. 11:00 að íslenskum tíma Þau lönd sem hafa orðið verst úti: Dauðsföll 941.473 Ný* 5.954 Tilfelli 29.914.297 Ný 282.592 *Fjölgun undanfarinn sólarhring, 16. september 2020. Dauðsföll Ný (síðasta tilkynning)Tilfelli Bandaríkin 196.831 968 6.631.561 Brasilía 134.106 987 4.419.083 Indland 83.198 1.132 5.118.253 Mexíkó 71.978 300 680.931 Bretland 41.684 20 378.219 Ítalía 35.645 12 291.442 Perú 31.051 124 744.400 Frakkland 31.045 46 439.360 Spánn 30.243 239 614.360 Íran 23.808 176 413.149 Kólombía 23.478 190 736.377 Rússland 18.917 132 1.079.519 Heimild: Talning AFP byggð á opinberum tölum Viðvörunarbjöllur hringja  WHO varar við mikilli útbreiðslu kórónuveirunnar í Evrópu  Vilja ekki að sóttkví verði stytt  Harðar svæðisbundnar aðgerðir í norðausturhluta Englands AFP Kórónuveiran Faraldurinn hefur meðal annars sett svip á skólahald í Evrópu og er grímuskylda þar víða. Sérfræðingar þýska hersins eru sagðir hafa fundið leifar af novichok- taugaeitrinu á vatnsflösku, sem fannst í hótelherbergi því er rúss- neski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní gisti í kvöldið áður en hann veiktist í síðasta mánuði. Þýsk stjórnvöld hafa áður sagt að þau hafi „óyggjandi sannanir“ fyrir því að eitrað hafi verið fyrir Navalní með novichok, en rússnesk stjórnvöld hafa borið brigður á þá niðurstöðu. Kíra Yarmysh, talskona Navalnís, sagði að uppgötvunin væri sönnun þess að eitrað hefði verið fyrir hann áður en hann yfirgaf hótel sitt í borginni Tomsk í Síberíu, en ekki á flugvellinum eða í flugvélinni þar sem leið yfir hann 20. ágúst síðast- liðinn. Vladimír Uglev, einn af þeim sem hönnuðu novichok-eitrið, sagði að sú staðreynd að Navalní hefði lifað af þýddi líklega að hann hefði einungis komist í snertingu við eitrið, en ekki drukkið það. Hvetja til þvingunaraðgerða Evrópuþingið samþykkti ályktun í gær um málið, þar sem Evrópu- sambandið var hvatt til þess að setja umfangsmiklar viðskiptaþvinganir á Rússland, á sama tíma og stjórnvöld þar voru sökuð um að beita sér markvisst gegn stjórnarandstöðunni með „pólitískum morðum og eitur- árásum“. Ályktunin er ekki bindandi fyrir sambandið og sagði María Zakhar- ova, talskona rússneska utanríkis- ráðuneytisins, að hugmyndir um refsiaðgerðir væru markaðar af Rússafælni. Rússnesk stjórnvöld hafa vísað öllum ásökunum á hendur sér varðandi Navalní-málið á bug. Fundu eitrið á vatnsflösku  Evrópuþingið kallar eftir aðgerðum AFP Navalní-málið Novichok-eitrið fannst á vatnsflösku Navalnís. Sú ímynd af víkingum að þeir hafi verið upp til hópa ljóshærðir og bláeygðir kann að vera röng, sam- kvæmt niðurstöðum nýrrar rann- sóknar sem birtist í tímaritinu Nature í vikunni. Í rannsókninni voru könnuð 442 bein frá 8. og 12. öld, en þau fundust vítt og breitt um Evrópu. Segir þar að vegna fólksflutninga frá suður- og aust- urhluta álfunnar hafi fleiri dökk- hærðir búið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á víkingaöld en séu þar nú. Ashot Margaryan, lektor við Kaupmannahafnarháskóla og einn af höfundum rannsóknarinnar, segir að ljóshært fólk hafi þó ver- ið í meirihluta meðal norrænna manna á þeim tíma. Segir Marg- aryan að þennan fjölbreytileika megi rekja til bæði viðskipta milli þjóðflokka og þrælahalds. DANMÖRK Ekki voru allir ljós- hærðir og bláeygðir Bill Barr, dóms- málaráðherra Bandaríkjanna, var harðlega gagnrýndur í gær eftir að upp- tökur birtust af ræðu hans, þar sem hann líkti þeim hörðu sótt- varnaaðgerðum sem sum ríki Bandaríkjanna settu á í vor við þrælahald í suðurríkjum Bandaríkjanna. Sagði Barr að að- gerðirnar hefðu verið mesta brot á lýðfrelsi Bandaríkjamanna fyrir ut- an þrælahaldið. James Clyburn, þingmaður demókrata, sagði að ummæli Barrs væru þau „fáránlegustu“ sem hann hefði nokkurn tímann heyrt. Cly- burn, sem er svartur, sagði það ótrúlegt að æðsti yfirmaður dóms- mála í Bandaríkjunum legði að jöfnu aðgerðir sem ætlað var að bjarga mannslífum og þrælkun á öðru mannfólki. „Þrælahaldið sner- ist ekki um að bjarga mannslífum, heldur að gera lítið úr þeim,“ sagði Clyburn. BANDARÍKIN Líkti sóttvörnum við þrælahaldið Bill Barr Pennaljós Raunveruleg „kúlupenna“-stærð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.