Morgunblaðið - 18.09.2020, Side 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
Í áraraðir hefur
þú fjallað um lestr-
arkennslu á Íslandi
(sjá t.d. Morgun-
blaðið 4. febrúar
2014 og Ísland í dag,
7. september 2020).
Þú hefur áhyggjur af
slakri stöðu ís-
lenskra barna og
ungmenna í lestri,
einkum stráka, og
vísar til dalandi gengis á PISA-
prófum frá árinu 2000. Í sömu
andrá hnýtir þú iðulega í Byrj-
endalæsi en segir ekki hvað það er
í aðferðinni sem fer fyrir brjóstið
á þér. Þar af leiðandi er erfitt að
bregðast við þessari sérkennilegu
gagnrýni. Ég hef ítrekað kallað
eftir upplýsingum frá þér um
þessa gagnrýni í tölvupósti og
óskað eftir samtali við þig án
árangurs. Gagnrýni
þín er því órök-
studd.
Frammistaða ís-
lenskra barna á
PISA-prófunum
bendir ekki til þess
að aðdáun þín á
hljóðaaðferðinni sé á
rökum reist. Íslend-
ingar hafa þekkt að-
ferðina í meira en
100 ár (Jón Þorkels-
son, 1908) og frá
árinu 1932 var hún
kennd öllum kenn-
aranemum (Gísli
Magnússon, 1972). Í skýrslu sem
unnin var fyrir menntamálaráðu-
neytið (Auður M. Leiknisdóttir
o.fl. 2009) er fullyrt að hljóðaað-
ferðin sé ríkjandi í lestrarkennslu
í íslenskum grunnskólum og að
sáralítil formleg læsiskennsla eigi
sér stað eftir að yngsta stigi
grunnskóla lýkur. Það bendir því
flest til að 90-100% þeirra barna
sem tóku PISA-prófið á árunum
2000 til og með 2015 hafi lært að
lesa með hljóðaaðferðinni. Skólar
gátu fyrst innleitt Byrjendalæsi
haustið 2006 en þann vetur voru
innan við 10 skólar sem tóku upp
aðferðina. Þeirra nemendur tóku
PISA-prófið 2015 (sjá töflu).
Kjarninn í hljóðaaðferðinni er
að ná tökum á sambandi stafa og
hljóða og umskrárfærni. Í þeirri
aðferð vinna nemendur aðallega
með einfalda færni sem gerir litlar
kröfur um rökhugsun. Þeir læra
einn staf í einu og sjá ekki merk-
ingarbæran texta fyrr en seint og
síðar meir. Aðferðin einkennist af
tæknilegum áherslum. Fyrir þær
sakir, meðal annars, hefur aðferð-
in sætt gagnrýni (Resnick og Res-
nick, 1992; Rumelhart, 1977). Í
síðustu viku kom sex ára nemandi
sem ég þekki heim með lesefni.
Það var á þessa leið: I I I I, i i i i,
L L L L, l l l l. il il il il. Ó Ó Ó Ó,
ó ó ó ó. Ló Ló Ló Ló, ló ló ló ló.
Lóló, Óli, Lóló, Óli, Lóló, Óli. Í
þessum „texta“ er ekkert sam-
hengi og engin merking.
Það er misskilningur
að halda því fram að
hljóðaaðferðin sé ein
um að leggja áherslu á
samband stafs og
hljóðs. Það er gert
ítarlega í samvirkum
aðferðum í læsis-
kennslu (e. balanced
approach og integrat-
ed approach) þar sem
Byrjendalæsi á rætur
sínar. Slíkar aðferðir
eru vel þekktar meðal
læsisfræðinga og
byggðar á víðtækum
rannsóknum. Í bók-
inni Hið ljúfa læsi
(Rósa Eggertsdóttir,
2019) er gerð grein
fyrir báðum þessum
aðferðum.
Á sviði lestrar og
læsis verða framfarir
eins og á öðrum svið-
um skólastarfs. Að ná
tökum á sambandi
stafs og hljóðs og um-
skráningu er einungis
anddyri þess að vera
læs. Til að geta mætt
kröfum þjóðfélagsins
um flókna læsisfærni þarf því
meira að koma til. Samvirkar að-
ferðir, og þar með Byrjendalæsið,
hafa mætt þessum kröfum. Í sam-
virkum aðferðum er læsiskennslan
sett í merkingarbært samhengi
svo nemandinn sjái tengsl talmáls
og ritmáls. Auk umskráningar er
lögð rík áhersla á orðaforða, blæ-
brigði máls, margvíslegar lesskiln-
ingsaðferðir, greiningu á textum
og ritun. Þetta og meira til ein-
kennir Byrjendalæsið. Í Töflu 2 er
gerður samanburður á helstu þátt-
um lestrarkennslunnar á milli
Byrjendalæsis og hljóðaaðferð-
arinnar.
Hljóðaaðferðin var kærkomið
barn síns tíma fyrir nær hundrað
árum. Á þeim tíma sem liðinn er
hefur rannsóknum fjölgað gríð-
arlega, einkum síðustu fjóra ára-
tugina. Þekking á árangursríku
námi og kennslu læsis hefur auk-
ist að sama skapi. Samvirkar að-
ferðir hafa reynst farsæll farvegur
nýja starfshætti við læsiskennslu.
Í mestu vinsemd bendi ég þér á
kynningarmyndband um Byrj-
endalæsi en þar má sjá hvernig
staðið er að kennslu stafs og
hljóðs í Byrjendalæsi, sjá slóð
https://tinyurl.com/y3nuejd2/.
Eftir Rósu
Eggertsdóttur
»Hermundur fullyrðir
að hljóðaaðferð sé
besta kennsluaðferð í
lestri og deilir á Byrj-
endalæsi. Kallað er eftir
rökstuðningi frá Her-
mundi.
Rósa Eggertsdóttir
Höfundur er fv. sérfræðingur
hjá Miðstöð skólaþróunar við
Háskólann á Akureyri og er
höfundur Byrjendalæsis.
rosa@ismennt.is
Áætlað hlutf.
Ár BL-nemenda
2000 0%
2003 0%
2006 0%
2009 0%
2012 0%
2015 10-12%
2018 50%
Tafla 2
Sérkenni byrjendalæsis og hljóðaaðferðar
Byrjenda-
læsi
Hljóða-
aðferð
Nemendur læra til fullnustu samband stafs og hljóðs já já
Nemendur læra að skrifa stafinn samhliða námi á staf og hljóði hans já já
Merkingarbær texti er nýttur við kennslu stafs og hljóðs já nei
Nemendur læra tvo samliggjandi stafi í orði á viku já nei
Nemendur læra einn staf á viku nei já
Stafir kenndir í fyrirfram ákveðinni röð nei já
Kennari velur stafi til að kenna já nei
Hljóðvitund er mikilvægur þáttur í lestrarnáminu já já
Hljóðkerfisvitund er æfð áður en stafakennsla hefst nei já
Hljóðkerfisvitund er æfð samhliða stafakennslu já nei/já
Við innlögn á stöfum er stuðst við hljóðsögur nei já
Gæðatexti er lagður til grundvallar kennslu á staf og hljóði já nei
Vinnubækur og verkefnablöð fylgja kennslu stafs og hljóðs nei já
Einstaklingsvinna með stafi og hljóð er ríkjandi nei já
Samvinna nemenda með stafi og hljóð þeirra er ríkjandi já nei
Nemendur æfa stafi, hljóð og rithátt á fjölbreyttan hátt já já
Stuðst er við sérútbúnar námsbækur nei já
Opið bréf til Hermund-
ar Sigmundssonar um
lestrarkennsluaðferðir
Tafla 1
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson (VÞV) ritar
grein í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 3. sept-
ember sl. um flugvöll í
Vatnsmýri. Greinin
vekur óþægilegar
minningar frá árum
Vilhjálms í áhrifastöð-
um hjá Reykjavík-
urborg og frá sam-
skiptum Samtaka um
betri byggð (BB) við borgaryfirvöld
á þeim tíma.
Efnistök VÞV gætu bent til þess
að hann hyggi e.t.v. á endurkomu í
pólitíkina, jafnvel með atkvæðum
flugvallarvina. Hann þræðir í öllu
falli slóð þröngra sér- og sýndar-
hagsmuna. Hann virðir faglegar
niðurstöður að vettugi og sniðgengur
víðtæka almannahagsmuni. Full
ástæða er til að hressa ögn upp á
þekkingu og heimssýn VÞV og hans
nóta.
Vatnsmýrarsvæðið var fært úr
Seltjarnarneshreppi til Reykjavíkur
þann 1. janúar 1932 vegna fyrir-
sjáanlegs og yfirvofandi skorts á
heppilegu byggingarlandi í ört
stækkandi höfuðborg.
Fordæmalaus og fjandsamleg
yfirtaka ríkisins 6. júlí 1946 á svæð-
inu undir flugvöll til leigufrírra af-
nota fyrir ríkisstyrkt flugfélag
(Flugfélag Íslands, áður Flugfélag
Akureyrar, síðar Air Iceland Con-
nect) var óréttmæt og án lagastoðar.
Engin skilgreind þjóðarnauðsyn lá
fyrir. Hvorki voru greiddar skaða-
bætur né lóðarleiga.
Í stað NÝRRAR MIÐBORGAR
kom flugvöllur. Reykvíkingar glöt-
uðu þá besta mannvistar- og þróun-
arsvæði sínu og yfirráðum yfir allri
lofthelgi á Nesinu vestan Elliðaáa.
Skipulagsvald borgarinnar færðist
til ríkisins og forsendur borgar-
skipulags, byggðarþróunar, sam-
félags og stjórnsýslu gjörbreyttust.
Stjórnlaus útþensla borgarinnar
(Urban Sprawl) tók við og glænýtt
þéttbýli fyrir aðflutta landsbyggð-
arbúa spratt upp á áður óbyggðu
landi umhverfis Reykjavík. Höfuð-
borgarsvæðið varð til.
Uppsafnað tjón af því að skipta út
miðborg fyrir flugvöll er ólýsanlegt
fyrir Reykvíkinga, ís-
lenskt samfélag og
þjóðarhag. M.a. eru
bílaeign, samgöngu-
kostnaður, mengun og
útblástur CO2 hvergi
meiri en hér.
Langvarandi og stöð-
ugan landflótta a.m.k.
500 vel menntaðra Ís-
lendinga að meðaltali á
hverju ári áratugum
saman má að verulegu
leyti rekja til lélegs
borgarskipulags af
völdum flugvallar í stað miðborgar í
Vatnsmýri.
Vegna Vatnsmýrarflugvallar er
höfuðborgarsvæðið útþanið, óskil-
virkt og dýrt í rekstri. Það bitnar
með neikvæðum hætti á öllum þátt-
um mannlífs, á lýðheilsu, efnahag,
borgarmenningu o.s.frv. Víðátta
byggðar dregur úr tækifærum,
tekjumöguleikum og öðrum lífs-
gæðum landsmanna. Án vafa er
landsbyggðarflótti t.d. mun meiri og
afdrifaríkari en ella hefði orðið án
flugvallar í Vatnsmýri.
Aðeins með róttækri þéttingu
byggðar í og við Vatnsmýri geta
borgarbúar og aðrir landsmenn stað-
ið við alþjóðlegar skuldbindingar um
minnkun á losun CO2 fyrir 2030.
Með NÝRRI MIÐBORG í Vatns-
mýri vænkast hagur borgarbúa og
annarra landsmanna mjög. Allar for-
sendur byggðar og borgarskipulags
vestan Elliðaáa gjörbreytast þegar
Reykvíkingar endurheimta loks loft-
helgina yfir Nesinu. Flest eða allt
sem áður fór úrskeiðis getur þá
færst til betri vegar.
Misnotkun VÞV og annarra flug-
vallarvina á hugtakinu „sjúkraflug“
til þess eins að festa flugvöll í Vatns-
mýri er auðvitað vítaverð. Í sjúkra-
flutningum á Íslandi koma flugvélar
sjaldnast við sögu og þá aðeins í ein-
um af fjórum þáttum sjúkraflutn-
ings. Hinir þrír þættirnir eru flutn-
ingur sjúklings að ökutæki, akstur
að flugvelli og akstur frá flugvelli að
sjúkrastofnun. Notkun þyrlu minnk-
ar hnjask sjúklings, styttir flutnings-
tíma og styður batahorfur.
Þvert gegn fullyrðingum VÞV eru
í Hvassahrauni kjöraðstæður fyrir
flugvöll, sem byggja má upp í mark-
vissum áföngum, allt frá innanlands-
flugvelli upp í mjög stóran milli-
landaflugvöll, skv. þörfum
samfélagsins á hverjum tíma, sbr.
t.d. úttekt Airport Research Center
ARC árið 2000, skýrslu Rögnunefnd-
arinnar í júní 2015 og Áfangaskýrslu
starfshóps um framtíð Reykjavík-
urflugvallar í nóvember 2017.
Flugvellir í Vatnsmýri og á Mið-
nesheiði voru byggðir á hernaðar-
forsendum seinni heimsstyrjaldar án
nokkurra undangenginna rann-
sókna, nánast með því að smella
fingri. Þeir eru báðir á röngum stað
m.t.t. hagsmuna íslensks nútíma-
samfélags, hvor með sínum hætti.
Þeir sanna báðir þá kenningu að
koma megi upp flugvelli nánast hvar
sem er enda eru hátt í tvö þúsund
„alþjóðaflugvellir“ víðsvegar um
jörðina, m.a. á báðum heimskauta-
svæðunum, í hitabeltinu, við sjávar-
strendur og á hásléttum.
Hin fordæmalausa og fjandsam-
lega yfirtaka ríkisins á Vatnsmýr-
arsvæðinu er jafnandstyggileg og
ófyrirgefanleg á árinu 2020 og hún
var þann 6. júlí 1946. Í ramma gild-
andi laga er réttur Reykvíkinga til að
krefja ríkið skaðabóta fyrir ódæðið
löngu fyrndur en réttur þeirra til að
krefjast eðlilegrar lóðarleigu fyrir
borgarlandið undir flugvellinum er
enn í fullu gildi.
Landtakan 1946 var framkvæmd í
skugga mikils misvægis atkvæða og
hefur henni verið viðhaldið í 74 ár án
bóta og lóðarleigu, einkum fyrir til-
styrk Akureyringa og samherja
þeirra á landsbyggðinni með tvöfalt
vægi atkvæða. Samkvæmt sam-
komulagi borgar og ríkis frá 24.
október 2013 skal flugvöllur nú loks
víkja úr Vatnsmýri eigi síðar en 31.
desember 2022 eða innan 852 daga
(m.v. 1.9. 2020).
Eftir Örn
Sigurðsson » Í stað miðborgar
kom flugvöllur.
Reykvíkingar glötuðu
þá besta mannvistar- og
þróunarsvæði sínu og
yfirráðum á allri loft-
helgi vestan Elliðaáa.
Örn Sigurðsson
Höfundur er arkitekt.
arkorn@simnet.is
Borgarstjóri í framboð?