Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk-
efni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
k
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Stigahlíð 28, Reykjavík, fnr. 203-1030, þingl. eig. Guðrún Margrét
Þrastardóttir, gerðarbeiðendur Stigahlíð 28,húsfélag og Reykja-
víkurborg, þriðjudaginn 22. september nk. kl. 10:00.
Lágholtsvegur 9, Reykjavík, fnr. 202-4770, þingl. eig. Margrét Sif
Hafsteinsdóttir og Júlíus Viðar Axelsson, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður,
Reykjavíkurborg og Skatturinn, þriðjudaginn 22. september nk. kl.
11:00.
Dísaborgir 3, Reykjavík, 50% ehl., fnr. 223-5489, þingl. eig. Justyna
Malgorzata Kozak, gerðarbeiðendur Abdelaziz Mihoubi og Aur app
ehf., þriðjudaginn 22. september nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
17. september 2020
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Eiðsvallagata 20, Akureyri, fnr. 214-5765, þingl. eig. Klara Sólrún
Hvannberg Hjartard og Sigurður Óli Jónsson, gerðarbeiðendur Akur-
eyrarbær og ÍL-sjóður, þriðjudaginn 22. september nk. kl. 10:00.
Laugartún 23, Svalbarðsstrandarhreppi, fnr. 216-0504, þingl. eig. Sig-
urður Hreinn Hjartarson og Bryndís Hafþórsdóttir, gerðarbeiðandi
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys, þriðjudaginn 22. september nk. kl.
13:50.
Hvanneyrarbraut 57, Fjallabyggð, fnr. 213-0551, þingl. eig. Anna
Hulda Júlíusdóttir, gerðarbeiðandi Fjallabyggð, fimmtudaginn 24.
september nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
17. september 2020
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á 8. september s.l. að auglýsa eftirtaldar tillögur í samræmi við
41. grein skipulagslaga nr. 123/2010:
Deiliskipulag Garðabrautar 1
Tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur aðeins til lóðarinnar við Garðabraut 1, á lóðinni stendur
félagsheimili KFUM og KFUK. Í skipulaginu felst m.a. að rífa núverandi byggingu.
Lóðin er stækkuð inn á vegstæði Garðabrautar um 339,0m², breytt lóð verður 3.424,0 m².
Skilgreindir eru byggingarreitir fyrir tvö íbúðarhús fjögurra og sjö hæða með alls 20-30 íbúðum,
hálfniðurgrafna bílageymslu sem tengist báðum íbúðarhúsum.
Deiliskipulag Stofnanareits – Kirkjubraut 39
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stofnanareits vegna lóðarinnar nr. 39 við Kirkjubraut.
Í tillögunni felst m.a. að í stað hótels er heimilt að byggja í íbúðarhúsnæði, með verslun og þjónustu
á fyrstu hæð og bíla- og geymslukjallara. Hámarks nýtingarhlutfall fer úr 1,56 í 1,90.
Tillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is frá og með 22. september 2020 til og með 6. nóvember 2020.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipu-
lagstillögurnar er til og með 6. nóvember 2020. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver
Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is
Sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30, nóg pláss.Stólaleikfimi
í Hreyfisal kl. 9.30. Zumba Gold kl. 10.30. Bingó kl. 13.30-14.30, spjald-
ið kostar 250 kr. Kaffi kl. 14.45-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-
2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Stólajóga með Hönnu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn
kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 411-2600.
Boðinn Hádegismatur kl. 11.20-12.30. Línudans kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Gönguferð
um hverfið kl. 10.30. Bíó í setustofunni kl. 13. Opið kaffihús 14.30-
15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl.
8.50-11. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrifstofunni kl
8.50-16. Thai Chi kl. 9-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhóp-
ur MZ kl. 12.30-15.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-
15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með-
læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Gönguhópur frá
Jónshúsi kl. 10. Dansleikfimi kl. 9.30 og 10.15 Stjörnuheimilið. Smiðja
opin kl. 13–16. Allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 Föstudagur kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa kl. 10-
12. Prjónakaffi (Háholt) kl. 10-10.20 Leikfimi gönguhóps (sólstofu) kl.
10.30 Gönguhópur um hverfið kl. 13-16. Bókband með leiðbeinanda
kl. 13-15. Kóræfing (Háholt).
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 13 tréskurður.
Heitt á könnunni kl. 9 til kl. 15.30.
Gullsmári Handavinna kl. 9.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15.
Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa-
vinna, opin vinnustofa kl. 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Brids í handa-
vinnustofu kl. 13. Bíósýning ,,Maður sem heitir Ove" kl. 13.15.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. í Borgum. Gönguhópar ganga
kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll. Hannyrðahópur í Borgum hittist
kl. 12.30 í listasmiðju, og vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30. Tréútskurður á
Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag. Allir velkomnir í Borgir og á Korpúlfs-
staði. Minnum á alla skráningarlista sem liggja frammi í Borgum á
hin ýmsu námskeið og viðburði.
Samfélagshúsið Vitatorgi Dönsum okkur inn í helgina með léttri
dansleikfimi í morgunsárið, kl. 9.30. Í framhaldi af því hittist föstu-
dags-spjallhópur í handverksstofu, kl. 10-11.30. Eftir hádegi verður
Handaband í handverksstofu milli kl. 13-15.30. Vöfflukaffið verður
einnig á sínum stað kl. 14.30. Hlökkum til að sjá ykkur og bjóðum
góða helgi!
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Syngjum saman í saln-
um á Skólabraut kl. 13. Spilað í Króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri
30, kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn
í Selinu er 568-2586.
Nauðungarsala
Smá- og raðauglýsingar
Í dag kveð ég
góða vinkonu og
samstarfsfélaga til
15 ára. Ég er svo sem ekkert
að meðtaka þetta ennþá og bíð
bara eftir að sjá hana mæta,
brosandi og með ný plön í
vinnunni eða sögur af barna-
börnunum sem áttu hug hennar
allan og nýja húsinu sem þau
Friðrik voru að kaupa.
Kynni okkar Guðnýjar Helgu
hófust í september 2005 þegar
ég byrjaði hjá KPMG. Þá var
ég send út í fyrirtæki eftir að
hafa unnið í einn mánuð og hitti
hana í fyrsta skiptið og ég var
um leið handviss um að ég væri
komin á réttan stað í lífinu með
svona skemmtilegan leiðbein-
anda, sem hún Guðný Helga
var. Leiðir okkar lágu líka sam-
an í gegnum Vestmannaeyjar
en fljótlega kom í ljós að ég
hafði unnið með pabba hennar,
sem hafði kennt pabba mínum
bifvélavirkjun, og þá fannst
Guðnýju Helgu svo flott að hún
væri að kenna mér.
Guðný Helga hafði mikinn
metnað í að opna útibú í Eyjum
og að sjálfsögðu vorum við
mættar til Eyja í febrúar 2014
og flögguðum KPMG-fána við
hátíðlega athöfn og fannst svo
gaman að vera loksins búnar að
opna skrifstofu í Eyjum.
Á hverri þjóðhátíð hitti ég
hana á laugardeginum þar sem
við fórum yfir hvað gerðist á
föstudeginum og var hún alltaf
með skemmtilegar sögur af
vinafólki eða ættingjum sem
hún hafði dregið til Eyja til að
upplifa þjóðhátíð með henni.
Guðný Helga var alltaf já-
kvæð og gat alltaf snúið leið-
indamálum í uppbyggilega
hluti.
Hún horfði ætíð á björtu
hliðarnar og kom með góðar at-
hugasemdir, þannig að alltaf
vildi maður bæta sig.
Guðný Helga
Guðmundsdóttir
✝ Guðný HelgaGuðmunds-
dóttir fæddist 22.
nóvember 1968.
Hún lést 5. sept-
ember 2020.
Útför Guðnýjar
Helgu fór fram 17.
september 2020.
Ég hef alltaf
dáðst að Guðnýju
Helgu og hennar
fjölskyldu því þeim
tókst á skemmti-
legan hátt að
tvinna saman vinnu
og fjölskyldulíf
með aðstoð stór-
fjölskyldunnar.
Guðný þurfti iðu-
lega að stinga af á
vertíðum því syn-
irnir áttu afmæli á þeim tíma.
Hún nefndi oft hlæjandi að
framkvæmdastjórinn væri nú
ekkert ánægður með hvað hún
hafði planað barneignir illa út
frá vinnunni.
Á móti kom að börnin áttu
yndislega ömmu og afa sem
voru alltaf til taks. Friðrik var
hennar stoð og stytta og sá
allra besti eiginmaður og félagi
sem ég hef séð.
Þótt Guðný Helga hafi fengið
erfiðar fréttir um páskana þá
vantaði ekki bjartsýnina í sím-
tölunum sem við áttum. Lítið
var um hittinga vegna Covid en
frekar voru það símtöl um
vinnu og vini og hvenær við
myndum hittast næst og halda
partí fyrir hæðina! Hún lofaði
mér nefnilega partíi þegar hún
væri búin að ná sér og það yrði
sko í nýja húsinu þeirra Frið-
riks!
Ég kvaddi hana með þeim
orðum og ég biði spennt eftir
því og við skyldum finna tíma
sem fyrst. Aldrei hefði ég trúað
að við myndum ekki hittast aft-
ur og hvað þá spjalla saman um
lífið og veginn og hvað væri að
gerast.
En þótt Guðný Helga sé búin
að kveðja þetta líf, þá trúi ég
að ég muni hitta hana aftur og
við tökum þá partíið sem við
sáum fyrir okkur og skálum
brosandi fyrir öllu því
skemmtilega, því þannig man
ég eftir elsku Guðnýju Helgu
minni og þannig mun ég muna
eftir henni.
Elsku Friðrik og aðrir að-
standendur, ykkar missir er
mikill. Mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til ykkar allra og megi
minningin lifa um ókomna tíð.
Sigríður Soffía
Sigurðardóttir.
Enn man ég þeg-
ar ég sá Þóru fyrst.
Hún var ásamt vin-
konu sinni, systur
vinkonu minnar, á skautum á
Tjörninni. Hún var glæsileg og
ógleymanleg 10 ára stelpu. Síðar
kynntumst við í félagsskap
kvenna sem hittist fyrir meira
en 30 árum, Lellunum svoköll-
uðu, og stundaði leikfimi árla
dags í Kramhúsinu. Þar var
Þóra elst okkar og áhugasöm
um að rækta líkamann, alltaf
brosandi, kurteis og prúð og bar
með sér gott uppeldi og góða
menntun. Hún var glæsileg og
bar aldurinn vel og hikaði ekki
við að taka þátt í að sýna dans á
samkomum í Kramhúsinu og
auðvitað tróð hún upp með okk-
ur í gleðskap og veislum félag-
anna. Og enn var hún í æfingu
og dansaði við Björgólf á 90 ára
afmæli sínu.
Ávallt fengum við góðar við-
tökur á heimili þeirra hjóna. Eitt
sinn þegar hún bauð heim eftir
Þóra Hallgrímsson
✝ Þóra Hall-grímsson fædd-
ist 28. janúar 1930.
Hún lést 27. ágúst
2020.
Útför Þóru fór
fram 4. september
2020.
leikfimi leið okkur
svo vel við spjall og
hlátur, að komið
var fram á kvöld
þegar haldið var
heim. Þóra var fag-
urkeri og var heim-
ili þeirra hjóna fal-
legt og bar vott um
smekkvísi hennar,
myndarskap og
rausn. Í samtölum
okkar kom oft fram
hversu annt henni var um vini
sína og vildi ávallt fylgjast með
hag okkar og líðan.
Hópurinn hefur ferðast mikið
innan lands og utan og oftar en
ekki var Þóra með. Hún var góð-
ur og rólegur ferðafélagi og kom
tungumálakunnátta hennar okk-
ur oft vel.
Þegar aldurinn tók að færast
yfir og danssýningar og leikfimi
heyrðu sögunni til mynduðum
við spilaklúbb. Í bridsinu var
Þóra síður en svo viðvaningur.
Þar kunni hún sitt fag, var vön
að spila brids og varð liðtækur
félagi okkar. Dáðist ég oft að
minni hennar og útsjónarsemi
við spilaborðið.
Við munum sakna Þóru og
minnumst góðrar vinkonu. Við
sendum Björgólfi og fjölskyldu
samúðarkveðjur.
María V. Heiðdal.