Morgunblaðið - 18.09.2020, Page 32

Morgunblaðið - 18.09.2020, Page 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GLÁMUR Dvergarnir R Dvergurinn Glámur er 35 cm á hæð, vegur 65 kg og er með innsteypta festingu fyrir 2“ rör Öflugur skiltasteinn fyrir umferðarskilti 60 ára Jóhanna Ríkey fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði en býr núna í miðbæ Reykja- víkur. Jóhanna er húsgagnasmiður að mennt og hefur starf- að hjá Á. Guðmundssyni í 27 ár en hún heillaðist af smíðum á unga aldri. Helsta áhugamál hennar í dag er golf sem hún hefur stundað mikið frá árinu 2008. Maki: Valgerður Ólafsdóttir launa- fulltrúi, f. 1965. Foreldrar: Sigurður Ágúst Finnbogason húsasmiður, f. 1939 og Guðríður Ein- arsdóttir húsmóðir, f. 1938. Þau búa í Hafnarfirði. Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  HrúturMundu að það er ekki allt gull sem glóir og lífshamingjan felst ekki bara í efn- islegum gæðum þótt gagnleg séu. Eftir nokkra daga getur þú skoðað ferðaplön á ný. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú lítur feiknavel út í augum annarra um þessar mundir. Íhugun mun hjálpa þér að taka réttar ákvarðanir þegar kemur að lausn á flóknu vandamáli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur haft mikið að gera að undanförnu og ert ef til vill annars hugar. Hafðu það í huga þegar þú situr undir gagnrýni góðs vinar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er orðið tímabært að þú hafir samband við vini þína þótt þeir hafi látið vera að hafa samband við þig. Vertu óhræddur við nýjar hugmyndir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að vera reiðubúinn að beita þínum innri styrk gegn tilfinningum og ásókn annarra. Sjáðu til þess að þú fáir út- rás fyrir sköpunargleði þína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð snjalla hugmynd um hvernig losa má vinnustaðinn við óþarfa og drasl. Haltu ótrauður áfram því árang- urinn mun ekki láta á sér standa. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu það ekki illa upp þótt vinir þínir séu þér ekki sammála í öllu. Gættu þess að missa ekki sjónar á takmarki þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Alvaran hefur ráðið ríkjum hjá þér og nú er orðið tímabært að þú veitir svolítilli gleði inn í líf þitt. . 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur svo margt á þinni könnu að hætta er á því að hlutirnir fari úr böndunum. En nú sannast að þolinmæðin þrautir vinnur allar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu ekki óvænta atburðarás kippa undan þér fótunum heldur stattu fastur fyrir og haltu þínu striki ótrauður. Vertu vakandi fyrir nýjum tækifærum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur orku og kraft til að hella þér út í það sem þú ætlar að gera í dag. Farðu ekki of varlega því allt sem þú byrjar á mun vinnast vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Viljirðu búa við áframhaldandi vel- gengni máttu í engu slaka á. Verkefnin munu leika í höndunum á þér. hönnun í Ráðhúsinu og í safnbúð Þjóðminjasafnsins. „Vörurnar fengu strax góðar viðtökur svo að núna sel ég þær sjálf og hægt er að sjá úrvalið á facebooksíðu KúMen.“ hluti. „Mér finnst það vera virðing við dýrin að nýta allt en ekki bara urða.“ Þórdís Halla hefur tekið þátt í ýms- um sýningum og verið með vörurnar til sölu til dæmis hjá Handverki og Þ órdís Halla Sigmars- dóttir fæddist 18. sept- ember 1970. Hún er uppalin í vesturbæ Kópavogs og hefur verið búsett þar mestan hluta ævinnar. Þórdís varð stúdent frá Kvennaskól- anum í Reykjavík og útskrifaðist sem smíðakennari frá KHÍ 1995. Eftir námið starfaði hún í 19 ár við Kársnesskóla sem umsjónar- og smíðakennari auk þess að sinna skálavörslu nokkur sumur hjá Ferðafélagi Íslands í Langadal í Þórsmörk. Skóli og menntun skipa stórt hlut- verk í lífi Þórdísar og sterkar taugar lágu til Kársnesskólans því það var hennar gamli grunnskóli og einnig hafði hún verið alla tíð í Skólakór Kársness sem hinn merki kórstjóri Þórunn Björnsdóttir leiddi. „Hún var alveg frábær og miklu meira en kórstjóri. Við vinkonurnar í kórnum lítum allar á hana sem mikilvægan hlekk í uppeldi okkar.“ Því má bæta við að Þórdís Halla gekk síðar í Dóm- kórinn og var þar í 20 ár, en þar var stjórnandi eiginmaður Þórunnar, Marteinn H. Friðriksson, sem nú er látinn. Árið 2016 ákvað Þórdís Halla að breyta til og hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá Janusi endurhæf- ingu síðan, auk þess að sinna sínu eigin fyrirtæki. „Árið 2010 stofnaði ég handverksfyrirtækið KúMen og smíða skart og nytjahluti úr horni og beinum svo sem ermahnappa, snaga og hálsmen. Efniviðurinn er aðallega hreindýrs- og kindahorn sem ég hef sankað að mér í mörg ár. Ég deili verkstæði með föður mínum sem er gullsmiður og nýti verkstæðið hans á kvöldin og um helgar.“ Þórdís segir að áhuginn á því að nýta bein í hand- verk hafi mest orðið til af því að efni- viðurinn var beint fyrir framan hana. „Pabbi átti fullan kassa af gömlum hornum sem hann hafði notað í gull- smíðinni þegar það var í tísku. Einn daginn datt mér í hug að það gæti verið gaman að nota þau sem efnivið og umbreyta þeim í einhverja hluti.“ Hún bætir við að einnig hafi hún ver- ið heilluð af þeirri hugmyndafræði umhverfissiðfræðinnar að nýta alla Þórdís Halla stundaði nám í heim- speki við Háskóla Íslands frá 2009- 2012 og tók svo aftur upp þráðinn árið 2019 og lauk MA-námi í umhverfis- og náttúrusiðfræði í júní sl. „Þar samein- aði ég áhuga minn á heimspeki og handverki og rannsakaði hvernig hug- ur og hönd hafa víxlverkandi áhrif í lokaritgerð minni: Tálgun, tal og hugsun.“ Í kjölfarið tók Þórdís Halla þátt í sýningunni Smáspeki/ Minisophy í Ásmundarsal í ágúst. „Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor í heimspeki og Katrín Ólína Péturs- dóttir hönnuður höfðu samband við mig og spurðu hvort ég vildi vera með í þessari samsýningu, sem ég og gerði. Ég var einn dag og tálgaði með gest- um sýningarinnar. Hugmyndin var að taka heimspekina úr þessum fræði- lega turni og tengja betur við hvers- daginn, og hafa þetta næði að velta hlutunum fyrir sér meðan maður vinnur.“ Helstu áhugamál Þórdísar Höllu allt sem tengist handverki og heim- Þórdís Halla Sigmarsdóttir – 50 ára Vinnustofan Þórdís Halla deilir vinnustofunni með föður sínum, gullsmiðnum Sigmari Ólafi Maríussyni. Sameinar heimspeki og handverk Systurnar Efri röð f.v.: Bella (Berg- laug), Þórdís Halla, Áslaug. Neðri röð f.v.: Sigrún og Hanna Synirnir Þórdís Halla með sonunum Hákoni Þorra (t.v.) og Víkingi (t.h.) Magnússonum. 50 ára Anna Ósk er fædd og uppalin í Keflavík en býr núna í Árbæ í Reykjavík. Anna Ósk er deildarstjóri mannauðsdeildar í utanríkisráðuneytinu. Anna Ósk hefur áhuga á þjóðfélagsmálum, íþróttum, útivist, hlusta mikið á hlaðvörp, lestur og sam- veru með fjölskyldu og vinum. Maki: Helgi Skúlason, flugstjóri hjá Atl- anta, f. 1964. Börn: Kolbrún Jóna, f. 2001 og Skúli Sturla, f. 2006. Foreldrar: Kolbeinn Pálsson versl- unarmaður, f. 1934, d. 2007 og Kolbrún Sigurðardóttir skrifstofumaður, f. 1939. Hún býr í Keflavík. Anna Ósk Kolbeinsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Anika Elín Andradóttir fæddist í Reykjavík 25. nóv- ember 2019. Hún vó 3.302 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Andri Heimir Frið- riksson og María Rós Arngrímsdóttir. Nýr borgariBörn og brúðhjón Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.