Morgunblaðið - 26.10.2020, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2020
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Már Kristjánsson, yfirlæknir smit-
sjúkdómadeildar Landspítalans,
segir að unnið sé að því að rannsaka
hvað gerðist á Landakotsspítala og
leiddi til þess að smit barst í fjölda
sjúklinga. Þegar það liggur fyrir
verður það gert opinbert. „Það
skiptir okkur máli sem fagstofnun.
Við viljum komast til botns í því hvað
er á seyði hér og fyrst og síðast
draga af því lærdóm, ef það eru ein-
hver vandamál í okkar vinnuferlum,
þá þarf að laga þau,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið.
Samtals 77, þar af um fjörutíu
manns áttræðir eða eldri, eru smit-
aðir eftir hópsýkingu sem á uppruna
sinn að rekja til Landakots og talið
er að fyrst hafi smit ratað þangað
inn með starfsmanni. Það breiddi
síðan nokkuð hratt úr sér en talið er
að fyrsta kórónuveirusmitið laumist
inn á stofnunina 12. október. Síðan
voru sjúklingar fluttir þaðan á
Reykjalund og á Sólvelli á Eyrar-
bakka. Þeir reyndust sumir smitað-
ir, sem aftur leiddi til hópsýkinga á
þessum stofnunum.
Ekki fullnægjandi húsnæði
Óútskýrt er hvað átti sér stað sem
olli svona hraðri útbreiðslu smits
meðal sjúklinganna en Már telur að
starfsfólkið leiki þar lykilhlutverk.
Húsnæðið sé þá barn síns tíma. Í
flestum sjúkrarýmum spítalans eru
fleiri en einn sjúklingur: „Auðvitað
væri ákjósanlegt að alls staðar væru
einbýli en því er ekki til að dreifa á
Landakoti, þó að það sé á sumum
deildum,“ segir Már. „Það hefur
komið fram að húsnæðið þarna er
ekki „ídeal“ með tilliti til sýkingar-
varna. Þar eru of fá salerni miðað við
sjúklinga og slíkt, jafnvel þó að bætt
hafi verið úr þessu á undanförnum
árum. Þetta er ekki fullnægjandi og
vankantar svona húsnæðis koma
best í ljós þegar mest ríður á.“
Hann telur ekki að húsnæðismál
hafi haft mikið að segja um út-
breiðslu smitsins. „Ég held að út-
breiðslan hafi ekki tengst húsnæðinu
sérstaklega eða einhverri þröng á
þingi, heldur endurspeglar þetta
smitunarhátt þessarar veiru, sem er
dropasmit og snertismit. Eðli smits
af þessari tegund er slíkt, að það er-
um oftast nær við starfsmenn sem
erum farartæki smitefnisins á milli
sjúklinganna,“ segir hann. Þegar
smit sé síðan komið inn í sjúklinga-
hóp geta þeir borið það í hver annan.
„Það fer líka eftir færni þeirra til að
fylgja fyrirmælum og oft eftir vits-
munastigi fólks. Sumir eru með vits-
munasjúkdóma og annað sem getur
dregið úr getu þeirra til að bregðast
við.“
Tekið með í reikninginn
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir að meðan á smitrakn-
ingu stendur verði enn að gera ráð
fyrir að smitaðir séu fleiri en þeir
sem þegar hafa greinst, enda sé
meðgöngutíminn oft hátt í vika.
Hann harmar mjög að málum hafi
undið fram með þessum hætti á
Landakoti.
„Í þessu tilviki hefur þetta náð að
grafa um sig og Landspítalinn sjálf-
ur er að skoða þetta mjög ítarlega og
maður er ekkert að fella neina sér-
staka dóma um það nema þetta teng-
ist smituðum starfsmanni. Það er
náttúrulega vont að það geti gerst og
þess vegna var þetta ákall frá mér í
dag [í gær] til yfirmanna allra vinnu-
staða að brýna það fyrir öllu starfs-
fólki að mæta ekki í vinnuna veikt,
því við sjáum bara hvað getur
gerst.“
Meta gögnin á hverjum degi
Þórólfur segir að vissulega verði
hópsýking af þessari stærðargráðu
inni á sjúkrahúsi tekin með í reikn-
inginn þegar framhald aðgerða verð-
ur ákveðið fyrir 3. nóvember. „Ef
það sýnir sig að dreifingin er mikil
verður maður mjög smeykur við að
fara að slaka mikið á,“ segir hann.
„Við þurfum að meta gögnin sem
við fáum á hverjum degi varðandi
það hvort við eigum að halda
óbreyttu ástandi, slaka á eða herða.
Það eru bara þessir þrír möguleikar
í stöðunni og ég myndi segja að upp-
lýsingarnar næstu daga komi til með
að skera úr um það hverjar mínar
tillögur verða.“
Of snemmt sé að spá fyrir um
veikindin sem af þessu hljótast, en
þegar er ljóst að fjöldi fólks er orð-
inn veikur.
„Þetta fer náttúrulega allt eftir
því hve alvarleg veikindin verða á
næstu dögum. Það tekur nokkra
daga eða viku að sjá alvarlegar af-
leiðingar þessarar sýkingar. Fólk
byrjar með einkenni en fer að veikj-
ast eftir nokkra daga, þannig að
hvort þetta verði alvarlegt á alveg
eftir að koma í ljós. Ég óttast það
hins vegar að það geti gerst.“
Starfsmenn farar-
tæki smitefnisins
Tildrög hópsýkingar verði opinberuð þegar þau liggja fyrir
Sóttvarnalæknir óttast að veikindi geti orðið alvarleg
Ljósmynd/Landspítali/Þorkell Þorkelsson
Upp Umfangsmiklar ráðstafanir voru gerðar um helgina á Landakoti.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
segir greinilegt að ekki hafi verið
farið eftir reglum sem á að fara eftir
þegar smit kemur
upp á skipi í til-
felli hópsýkingar
um borð í togar-
anum Júlíusi
Geirmundssyni.
Greint hefur ver-
ið frá því að skip-
verjar hafi sinnt
vinnu sinni veikir
af Covid-19 um
borð í togaranum.
„Ég held að
þetta sé bara mjög alvarlegt mál,“
segir Þórólfur.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi, segir í tilkynn-
ingu að málið hafi skaðað samskipti
útgerða og sjómanna. Mikilvægt sé
að greina hvað fór úrskeiðis og læra
af því.
Stjórnendur Hraðfrystihússins
Gunnvarar, sem á skipið, telja að
rétt hefði verið að tilkynna grun um
kórónuveiru þegar smit kom upp í
togaranum. „Því miður fórst það fyr-
ir og ábyrgð á þeim mistökum mun
fyrirtækið að sjálfsögðu axla. Fyrir-
tækið biður hlutaðeigandi jafnframt
einlæglega afsökunar á þessum mis-
tökum.“
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
hraðfrystihússins.
Ömurlegt alveg
„Þetta eru bara mistök af okkar
hálfu og við erum að biðjast velvirð-
ingar á þeim, innilega. Það er enginn
afsláttur af því. Okkur þykir þetta
mjög miður; ömurlegt alveg. Þetta
sagði Einar Valur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss-
ins Gunnvarar (HG), í samtali við
mbl.is í gær.
„Fyrirtækið telur ljóst, líkt og áð-
ur hefur komið fram í fyrri yfirlýs-
ingu, að rétt hefði verið að tilkynna
grun um kórónuveiru um borð í skip-
inu til Landhelgisgæslunnar og láta
þeim yfirvöldum eftir að meta hvort
rétt væri að sigla skipinu til hafnar,“
segir í tilkynningu. Ekki sé verið að
leita að blórabögglum eða sökudólg-
um, heldur sé vinna í gangi við að
fara yfir atburðarásina, greina hvað
gerðist og finna út út hvernig skal
gera betur í framtíðinni. Mikilvægt
sé að byggja upp það traust sem
glatast hafi vegna málsins.
Einar segir að ekki sé byrjað að
ræða um hvort eitthvað verði gert til
að bæta áhöfninni upp fyrir atvikið.
Greinilega ekki farið eftir reglum
Hraðfrystihúsið Gunnvör baðst afsökunar á málinu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja að
traust hafi tapast Ekki verið að leita að blórabögglum eða sökudólgum, segir í tilkynningunni
Þórólfur
Guðnason
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Júlíus Geirmundsson ÍS Meirihluti 25 manna áhafnar hafði smitast af kór-
ónuveirunni. Hraðfrystihúsið Gunnvör hefur beðist afsökunar á málinu.
Aðstandendur konu sem greindist
með kórónuveiruna á Landakoti
fyrir helgi hafa áhyggjur af því að
aðstandendur smitaðra á Landa-
koti geti hafa smitast af veirunni.
Eiginmaður konunnar reyndist
sýktur af veirunni, en hann hafði
ekki verið settur í sóttkví eftir
heimsókn á Landakot.
Móðir Sigurjónu Jónsdóttur var
flutt á Landspítala vegna slæms
beinbrots nýverið og var í kjölfarið
flutt á Landakot. Á föstudag fengu
Sigurjóna og systkini hennar
fregnir af því að móðir þeirra hefði
sýkst af Covid-19. Það kom síðan í
ljós á laugardag að faðir þeirra var
einnig smitaður.
„Það sem við spyrjum okkur að
og höfum áhyggjur af er hvort það
séu margir þarna úti í sömu stöðu
og pabbi; hugsanlega sýktir án
þess að vita það enn þá. Það er
fullt af aðstandendum þarna, eldra
fólki, sem er ekkert endilega að
hugsa út í það. Það stóð ekki til að
senda pabba í skimun samkvæmt
þeim upplýsingum sem ég fékk og
þá spyr maður sig, hann er vænt-
anlega ekki sá eini,“ sagði Sig-
urjóna í samtali við Morgunblaðið.
Hún og systkini hennar velta
fyrir sér hvernig svo stór hópsýk-
ing hafi getað komið upp á heil-
brigðisstofnun.
„Ef það eru einhverjir verkferl-
ar í gangi hljóta þeir að eiga að
lágmarka þetta þegar svona gerist.
Þetta er svo mikill fjöldi starfs-
manna sem þarna um ræðir að
maður veltir fyrir sér hvernig
þetta gerist af svona stærð-
argráðu,“ sagði Sigurjóna. Sá
mikli fjöldi sem smitaður er bendi
til að eitthvað mikið hafi farið úr-
skeiðis.
liljahrund@mbl.is
Aðstandendur
geti reynst veikir
Spyrja sig hvað brást á spítalanum
Morgunblaðið/Golli
Landakot Sigurjóna lýsir áhyggjum
af nýju umfangsmiklu hópsmiti.
KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI