Morgunblaðið - 26.10.2020, Page 16

Morgunblaðið - 26.10.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Pike Ward (1856- 1937) var fiski- kaupmaður frá Devon á Suðvestur-Englandi. Hann fæddist í fiski- bænum Teignmouth sem liggur við mynni árinnar Teign, u.þ.b. 19 km suður af borginni Exeter. Íbúar Teignmouth eru í dag rúmlega 15.000 talsins. Pike Ward var veittur stórriddarakross hinn- ar íslensku fálkaorðu árið 1936, til við- urkenningar fyrir framlag sitt við eflingu á fiskiðnaði og þar af leiðandi efnahag Íslands um áratugaskeið, eða allt frá 1893 til 1915. Viðvera hans á Íslandi var yfirleitt frá vori til hausts ár hvert, á þessu tuttugu og tveggja ára tímabili, og vegna aðdá- unar hans á landi og þjóð var það hans einlægur vilji að tala íslensku eftir því sem best hann gat. Nýjung í fiskverkun Pike Ward var frumkvöðull á ýmsum sviðum hér á landi, og vildi hann aðstoða við frelsisbaráttuna sem var öflug um þessar mundir. Eignaðist hann marga góða vini hér á Íslandi á þessum árum. Þá vissi hann að ef hann gæti skipt milliliða- laust við íslenska sjómenn gætu bæði hann og þeir hagnast betur á viðskiptunum. Hann hafði bundist vináttuböndum við ljósmyndarann og bóksalann Sigfús Eymundsson í Reykjavík, og strax árið 1893 reyndi hann að eiga viðskipti við fiskimenn á Akranesi með Sigfús sem milli- göngumann. Kaupmenn í Reykjavík reyndu að hafa áhrif á þessi viðskipti og réðu sjómönnum á Akranesi frá þessum viðskiptum; en tilboð Pikes Wards um kaup á undirmálsfiski var of gott til að hafna því, enda gafst til- raunin vel og var viðhöfð víða um land eftir þessa frumraun á Akra- nesi. Fiskviðskipti Wards jukust og voru síðar bundin nokkrum stöðum svo sem Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Bakkafirði, Vopnafirði, Seyðisfirði, Egilsstöðum, Eskifirði og Berufirði, auk Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Nýir greiðsluhættir Þar sem hvergi voru vegir milli héraða á þessum árum ferðaðist Ward milli staða á hestum eða minni bátum. Hvar sem hann eða umboðs- menn hans komu setti hann skilyrði um hvernig fiskurinn skyldi vera, hve stór og hvernig verkaður. Hann vildi aðeins smáfisk (undir 30 cm langan), þ.e. bútung, sem var saltaður, óflattur. Hér var um að ræða smáfisk sem var salt- aður með gæðasalti í 10 daga, síðan þveg- inn, pressaður og létt- þurrkaður utanhúss. Ward kenndi mönn- um réttu handtökin, en þessi fiskur varð síðar þekktur á er- lendum mörkuðum sem „Wardfiskur“. Þetta var ný fram- leiðsla fyrir nýjan markað, nokkuð sem ekki var stjórnað af dönskum kaup- mönnum, og það sem meira var; greiðslan fór öll fram með peningum en ekki vöruskiptum eins og áður hafði viðgengist. Um þessi peninga- viðskipti má nefna sem dæmi að þeg- ar bankinn í Reykjavík varð uppi- skroppa með danska mynt árið 1896, þá greiddi Ward með gulli, og frá og með því ári var hann jafnan með gull með sér í leðurpoka á ferðum sínum, eða allt þar til Íslandsbanki hóf út- gáfu bankaseðla árið 1904. Aukinn útflutningur Um miðja 19. öld voru aðeins um 30 tonn flutt út af íslenskum saltfiski til Bretlands ár hvert, en árið 1906 keypti Ward einn u.þ.b. 500 tonn á ári, og hann var ekki sá eini á Bret- landi, heldur flutti skoska félagið Co- peland & Berrie töluvert magn af fiski til Bretlands og greiddu þeir einnig með peningum. Ekki þarf að taka fram hve miklar framfarir voru hér á ferðinni frá því sem áður var. Þessi árangur á Akranesi varð til þess að Pike Ward hætti ekki aðeins við heimferðina til Englands, heldur ílentist hér og byrjaði á miklum fiski- kaupum sem hann hélt áfram lengi síðan í Hafnarfirði og víðar. Talandi um Hafnarfjörð, þá má geta þess að Pike Ward varð fyrstur einstaklinga til að gera út togara frá íslenskri höfn, þ.e. togarann UT- OPIA frá Hafnarfirði. Sú útgerð var áhættuspil sem af ýmsum ástæðum bar ekki árangur, og var þeirri út- gerð því sjálfhætt. Skömmu síðar, þ.e. 1905, kom fyrsti íslenski tog- arinn, COOT, en hann var einnig gerður út frá Hafnarfirði. Saga Akraness og Ólafur B. Björnsson Ólafur B. Björnsson, ritari sögu Akraness, getur atburða þessara að nokkru í fyrra bindi sínu í Sögu Akraness árið 1957 og segir m.a.: „Hér á Akranesi mun verkun og hirðing aflans yfir höfuð hafa verið eins og í öðrum verstöðvum á hverj- um tíma. Þó má til gamans segja hér frá einu atviki, þar sem Akurnes- ingar ásamt einum útlendum manni urðu frumkvöðlar að nokkurri nýj- ung í saltfiskverkuninni, sem reynd- ist haldgóð og happadrjúg, og hefur haldist meira og minna æ síðan fram að síðasta stríði. Vorið 1893 kom hingað til lands enskur maður, Pike Ward. Erindi hans var að gera hér mikil kaup á undirmálsfiski (labra) og fá menn til að taka upp þessa ný- breytni í verkun. Fyrst átti hann tal um þetta við Reykvíkinga, en fékk þar daufar undirtektir. Menn höfðu yfirleitt litla trú á því að hálfþurrk- aður smáfiskur mundi leggja undir sig heimsmarkaðinn, og þá enn síður að slík verslun yrði til frambúðar. Ekki virðist heldur sem kaupmenn hafi haft neinar óskir í þessa átt. Ward vildi þó ekki gefast upp við þetta áform sitt fyrr en í fulla hnef- ana, svo viss var hann um ágæti þessarar nýju verkunaraðferðar. Þegar hann var því búinn að fá hryggbrot hjá Reykvíkingum fór hann upp á Akranes til þess að eiga tal við útgerðarmenn þar um þessa verslun. Boðaði hann til fundar í þessu skyni og komu þar margir for- menn. En fundurinn bar engan ár- angur, og var Ward mjög gramur yf- ir þessum leikslokum. Hann sagðist með engu móti skilja þennan þráa og skilningsleysi, þar sem vitað væri að kaupmenn greiddu þennan fisk litlu verði og vildu helst ekki kaupa hann. Hér var líka um mikinn herslumun að ræða frá glerhörkuversluninni til „Spaníólans“. Nú var Ward ákveðinn að hætta við frekari tilraunir í þessu máli, og tókst á hendur skemmtiferð austur að Geysi, meðan hann beið eftir skipsferð heim. Eftir þennan fund hafa Akurnes- ingar vaknað í þessu máli og séð sig um hönd, því þeir sendu menn gagn- gert suður til þess að sitja fyrir Ward er hann kæmi úr austanför- inni. Aðalsendimaðurinn var Níels Magnússon í Lambhúsum, sem kom með þau skilaboð frá Akurnesingum, að flestir þeirra myndu selja honum smáfiskinn og verka hann eftir hans eigin fyrirsögn. Þetta varð til þess að Ward hætti ekki aðeins við heimferð- ina, heldur ílentist hér og byrjaði á miklum fiskkaupum, sem hann hélt áfram lengi síðan í Hafnarfirði. Þar gerði hann og síðar út lítinn togara. Frumkvæði Wards, með endanlegri aðstoð Akurnesinga (um þessa nýju verkunaraðferð á smáum illselj- anlegum fiski), varð þannig vel þegin og kom Íslendingum í heild sinni að miklu gagni og markar spor í ís- lenskri fisksölustarfsemi. Verkun þessi var kennd við Ward og kölluð „Wardfiskur“ eða „Wardverkun“. Þetta var smáfiskur frá 10-16“. Hann var ekki flattur afturúr, heldur skor- ið út úr fyrir aftan gotrauf. Þessi fiskur var aðeins „visaður“ (þ.e. sig- inn).“ Ljósmyndir Pikes Wards, safngripasöfnun og sögubrot (dagbækur) Ward var einnig áhugaljósmynd- ari og tók myndir af daglegu lífi á fá- förnum slóðum áður en Íslendingar hófu almennt að taka myndir. Í því felst sérstaða mynda hans. Heild- arsafn ljósmynda Wards frá Íslandi, bæði í úrklippubókunum, albúmi og lausum stereóskópmyndum, telur rúmlega 1.500 myndir. Langdvalir Wards hér á landi leiddu til þess að hann hóf að safna margvíslegum gripum sem voru einkennandi fyrir Ísland. Alls eru nú 379 gripir úr hans eigu í vörslu Þjóðminjasafns Íslands, og var úrval ljósmynda, úrklippa og gripa úr fórum Pikes Wards til sýnis í myndasal safnsins í lok síðasta árs. M.a. voru þarna ljósmyndir sem teknar voru á Akranesi árið 1893, og mega þær teljast einstakar. Sýning á myndum og gripum Wards var einnig haldin í Teignmo- uth á vegum Íslendinga árið 2017 til heiðurs þessum Íslandsvini. Einnig var gefin út bókin „The Adventures of Pike Ward“ árið 2018, en sú dag- bók snerist aðallega um Ísland, eins og raunar allt hans líf gerði. Heimildir: The Icelandic Adventures of Pike Ward. Saga Akraness eftir Ólaf B. Björnsson, Þjóðminjasafn Íslands, Ljós- myndasafn Akraness o.fl. Eftir Ásmund Ólafsson » Frumkvöðull í fisk- verkun og ljós- myndun á Íslandi. Ásmundur Ólafsson Höfundur er fv. framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Íslandsvinurinn Pike Ward Fyrsti vitinn á Akranesi. Hér er einstök ljósmynd sem Pike Ward tók á sínu fyrsta ári á Íslandi, 1893, þ.e. þegar hann var að hefja fiskikaup sín af Akurnesingum. Á þessum teig eða hæð var reistur staur, 20 álna langur, og á hann var sett lugt sem í var 14 línu brennari; þetta var árið 1891. Líklega hefur verið spegill í ljóskerinu til að auka ljósmálið. Lugtin var dregin upp og niður. Á henni var kveikt þegar dimma tók og höfðu sjómenn mikil og góð not af henni. Þessi viti stóð þar til „Gamli vitinn“ á Suðurflösinni var tekinn í gagnið árið 1918. Þessi tegund vita gekk undir nafninu vörðuviti eða fiskimannaviti. Bærinn á myndinni, Teigakot, var síðasti uppistandandi torfbærinn á Akranesi, rifinn 1943. Þessa býlis er getið í heimildum frá 17. öld. Þessa mynd tók Pike Ward af bænum Heimaskaga í Steinsvör. Bátar í fjöru. Árar, mastur og segl upp við grjóthlaðinn vegg við enda kartöflugarðsins framan við bæinn. Þvottur hefur verið lagður til þerris á grindverkið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.