Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 6

Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stytta af Ása í Bæ hefur verið sett upp við höfnina í Vestmannaeyjum. Eyjamaðurinn Áki Gränz, listmálari og myndhöggvari, gerði styttuna að beiðni Árna Johnsen. Fyrirmyndin var ljósmynd sem Sigurgeir Jónas- son, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók af Ása. Ísfélag Vestmannaeyja kostaði gerð bronsafsteypu af stytt- unni og uppsetningu hennar. „Ási í Bæ er einn af menningar- frömuðum Eyjanna. Hann setti mik- inn svip á mannlífið með söng sínum, laga- og textagerð og ritstörfum. Hann var einn aðalhöfundur texta við þjóðhátíðarlög Oddgeirs Krist- jánssonar ásamt þeim Árna úr Eyj- um og Lofti Guðmundssyni. Það er einsdæmi í heiminum að í litlu þorpi hafi lent saman fjórir menn sem sköpuðu jafn falleg ljóð og lög og þeir gerðu. Þeir túlkuðu hjartalag Eyjanna sjálfra og fólksins,“ sagði Árni. „Ási var gegnheill Eyjamaður og átti þessa stórkostlegu gáfu, söng og spil. Auk þess var hann fiskikló og aflamaður, allt í senn.“ Ási í Bæ hét fullu nafni Ástgeir Kristinn Ólafsson. Hann fæddist 27. febrúar 1914 og lést 1. maí 1985. Ási kenndi sig við Litlabæ í Vestmannaeyjum. Hann sagði að varla hefði liðið svo dagur á bernskuheimili hans að ekki heyrðist söngur í húsinu. Síðar bjó Ási með fjölskyldu sinni í húsi við Hásteinsvöll sem hann nefndi Bæ. „Ég sá gifsafsteypu af styttunni hjá Árna Johnsen og lagði til að við myndum klára þetta,“ sagði Örvar Guðni Arnarson, fjármálastjóri Ís- félags Vestmannaeyja. Hann hefur haldið utan um verkefnið fyrir hönd Ísfélagsins. „Ég kvæntist sumarið 2018 og brúðkaupsveislan var haldin í Smiðjunni hjá Árna Johnsen. Þar sá ég gifsafsteypuna af leirstyttu Áka Gränz og þurfti að bera hana í fanginu á milli herbergja. Þannig byrjaði þetta.“ Söngur og sögur Ása í Bæ Bronsafsteypan var gerð í Pól- landi og Málmsteypan Hella steypti skjöld með upplýsingum um Ása í Bæ og styttuna. Starfsmenn fiski- mjölsverksmiðju Ísfélagsins önn- uðust svo uppsetningu og frágang. Frosti Gíslason hannaði hljóðkerfi sem er við styttuna. Með því að ýta á hnapp er hægt að hlusta á um 50 hljóðskrár með söng og frásögnum Ása í Bæ sem Ingi Gunnar Jóhanns- son og Gísli Helgason útbjuggu. Sæþór Vídó hjá Eyjafréttum gerði myndskeið um styttuna og Ása í Bæ fyrir Ísfélag Vestmanna- eyja og verður það sett á mbl.is í dag. Ætlunin er að efna til formlegrar afhjúpunar styttunnar þegar heims- faraldur kórónuveirunnar verður að baki, mögulega næsta sumar. Ási í Bæ setti svip á mannlífið  Stytta af Ása í Bæ, sem var allt í senn söng- og textaskáld, aflakló og rithöfundur  Stendur við smábátahöfnina í Vestmannaeyjum  Hægt er að hlýða á söng og frásagnir Ása í Bæ við styttuna Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Ási í Bæ Við styttuna er hægt að heyra söng og frásagnir Ása. Friðrik Ragnarsson átti leið hjá og tyllti sér hjá Ása. Ríkisstjórnin kynnti í gær nýjar efnahagsaðgerðir vegna afleiðinga kórónuveirufaraldursins. Sagði Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra þegar hún kynnti aðgerðirnar ásamt öðrum ráðherr- um í gær, að reikna mætti með sóttvarnaráðstöfunum í samfélag- inu fram eftir vetri. Aðgerðunum nú væri ætlað að koma til móts við atvinnulífið og almenning í landinu. Atvinnuleysið væri stærsta vanda- málið og ríkisstjórnin hefði lagt áherslu á að fjölga störfum og efla nýsköpun og rannsóknir. Atvinnuleysisbætur hækka Meðal annars verður greitt sér- stakt viðbótarálag á grunnbætur at- vinnuleysistrygginga á næsta ári til að koma til móts við þann hóp sem fellur á næstu mánuðum út af tekju- tengdum atvinnuleysisbótum. Þá verður greidd desemberuppbót til atvinnuleitenda sem eru í staðfestri atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvem- ber til 3. desember. Skerðingarmörk í barnabótakerfinu verða einnig hækkuð frá áramótum og svonefnd hlutabótaleið framlengd til 31. maí. Greidd verður út 50 þúsund króna skattfrjáls eingreiðsla til þeirra ör- orku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem eiga rétt á lífeyri á árinu fyrir 18. desember, til viðbótar við des- emberuppbót sem jafnframt kemur til greiðslu í desember. Í upphafi næsta árs eru síðan boðaðar var- anlegar breytingar á örorkulífeyr- iskerfi almannatrygginga. Viðspyrnustyrkir Þá kom fram á fundi ráð- herranna að frumvarp um við- spyrnustyrki hefði verið samþykkt í ríkisstjórn og biði þinglegrar meðferðar. Samkvæmt frumvarp- inu geta rekstraraðilar, sem hafa orðið fyrir a.m.k. 60% tekjufalli í almanaksmánuði á tímabilinu frá 1. nóvember 2020 til og með 31. maí 2021, frá sama mánuði árið 2019, fengið styrk úr ríkissjóði til að mæta rekstrarkostnaði í mánuðin- um. Áskilið er að tekjufallið stafi af heimsfaraldri kórónuveiru eða að- gerða stjórnvalda til að hefta út- breiðslu hennar. Styrkirnir geta hæst orðið 2-2,5 milljónir króna. Viðspyrna fyrir Ísland Framhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn efnahagsáhrifum kórónuveirunnar 125,0 5,0 3,0 285,0 80,0 20,0 20,0 125,0 15,0 50,0 80,0 42,5 40,0 890,5 Félagsstarf fullorðinna Félagsleg einangrun Vitundarefling — fræðsla fatlaðra Félagsstarf fatlaðra Biðlistaátak GRR Fjölmenningarsetur Virkni ungmenna af erl. uppruna Félagsstarf viðkvæmra barna Forvarnir lögreglu, viðkvæm börn Tilfinninga- og hegðunarvandi Frjáls félagasamtök Heimilislausir Velferðarreiknir og ráðgjöf á vef SAMTALS Sértækar félagslegar aðgerðir í milljónum króna Grunnatvinnuleysisbætur 2021 hækka 17.920 kr. 50-100% starfshlutfall 40-70% tekjufall 70-100% tekjufall 10.422 kr. 7.948 kr. hækkun 18.446 kr. 6.149 kr. með hverju barni 600.000 kr. að hámarki á starfsmann (á hvert 30 daga tímabil) 120 milljónir kr. að hámarki á hvern rekstraraðila viðbótarframlag 307.430 kr. Desemberuppbót atvinnuleitenda Hlutabætur framlengdar til 31. maí 2021 Tekjufallsstyrkir apríl til nóvember 2021 Viðspyrnustyrkir apríl til nóvember 2021 86.853 kr. á mánuði 344.322 kr. á mánuði Grunnatvinnuleysisbætur foreldra með tvö börn Hærri greiðslur vegna framfærslu barna Lokunarstyrkir Fyrir lokanir 18.9.2020 til 31.5.2021 700.000 kr. 400.000 kr. að hámarki á stöðugildi 500.000 kr. að hámarki á stöðugildi 2.000.000 kr. Heildarfjárhæð rekstaraðila á mánuði 2.500.000 kr. Heildarfjárhæð rekstaraðila á mánuði 17.500.000 kr. að hámarki til rekstaraðila á tímabilinu að hámarki 0 10 20 30 40 50 60 þ.kr. Hækkun Óbreytt 3 börn2 börn1 barn 60-80% tekjufall 80-100% tekjufall 400.000 kr. að hámarki á stöðugildi 500.000 kr. að hámarki á stöðugildi 2.000.000 kr. Heildarfjárhæð rekstaraðila á mánuði 2.500.000 kr. Heildarfjárhæð rekstaraðila á mánuði 17.500.000 kr. að hámarki til rekstaraðila á tímabilinu Stjórnvöld kynna nýjar aðgerðir  Atvinnuleysisbætur hækka og atvinnuleitendur fá desemberuppbót  Eingreiðsla til örorku- og end- urhæfingarlífeyrisþega  Fyrirtæki geta sótt um viðspyrnustyrki ef tekjur hafa lækkað yfir 60% Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðgerðir kynntar Ráðherrar kynntu efnahagsaðgerðirnar í Hörpu í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.