Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita,
segir aðlögun fram undan á húsnæð-
ismarkaði í miðborginni. Það verði
að óbreyttu offramboð á skrifstofu-
húsnæði. Hluti lausnarinnar geti því
verið að breyta skrifstofum í íbúðir.
Tilefnið er samtal við Dag B.
Eggertsson, borgarstjóra Reykja-
víkur, í Morgunblaðinu í gær.
Til upprifjunar sagði Dagur aukið
framboð á auðum atvinnurýmum
skapa tækifæri fyrir minni og
meðalstór fyrirtæki til að koma sér
fyrir í miðborginni. Daginn áður
kom fram í Morgunblaðinu að at-
vinnurými í tugatali standi nú auð í
miðborginni.
„Við höfum séð að verð hefur
hækkað gríðarlega á undanförnum
árum. Því er kannski ekkert óeðli-
legt að einhver leiðrétting verði þar
á. Hækkandi verð var auðvitað hluti
af ástæðunni fyrir því að einstakar
verslanir og rekstur var að færast
til,“ sagði Dagur um leiguverðið.
Endurspeglar liðna tíð
Þá gaf borgarstjóri í skyn að
heimilt yrði að breyta skrifstofum í
íbúðir. Á næstu misserum muni
losna mikið skrifstofurými í Kvos-
inni með flutningi Alþingis í nýtt
skrifstofuhús gegnt Ráðhúsinu og
flutningi Landsbankans í nýjar
höfuðstöðvar við Hörpu. En þessar
nýbyggingar eru 6.000 og 16.500 m2.
Spurður um þessa greiningu
borgarstjóra segir Guðjón að eflaust
megi finna dæmi þess í miðborg
Reykjavíkur að leiguverð hafi
„endurspeglað ævintýri fortíðar“.
Nánar tiltekið „þegar menn keppt-
ust við að opna verslanir og vera
með rekstur í miðborginni til að
sigla á öldum ferðamannastraums-
ins“.
Nýbyggingar auka framboðið
„Ég held að upptakturinn af því
sem Dagur er að segja séu atriði
sem við höfum komið á framfæri við
borgaryfirvöld ansi lengi,“ segir
Guðjón. „Við höfum bent á þróunina
sem er að eiga sér stað í miðborg-
inni, sérstaklega hvað varðar skrif-
stofuhúsnæði. Því staðreyndin er sú
að Alþingi er að stíga upp úr 4.000
fermetrum á almenna leigumark-
aðnum og byggja yfir sig og þar
með losna 4.000 fermetrar. Lands-
bankinn er að flytja úr geysimiklu
rými í miðborginni og að byggja
nýjar höfuðstöðvar sem þeim datt
svo í hug að hafa 6-7 þúsund fer-
metrum stærri en þeir hafa not fyr-
ir. Það aftur skapar framboð, fyrir
utan uppbygginguna á Hafnartorgi,
á Austurbakka og á öðrum stöðum.
Ef allt þetta húsnæði kemst í not
gæti það komið niður á öðrum stað-
setningum. Það er enda ekki þörf á
þessu skrifstofuhúsnæði á markaðn-
um. Einhvers staðar mun allt þetta
framboð rífa í,“ segir Guðjón sem
telur að í ljósi þessa kunni að vera
skynsamlegt að breyta skrifstofum í
íbúðir á völdum stöðum í miðborg-
inni. Það muni stuðla að jafnvægi á
markaðnum.
Gætu orðið eftirsóttar
Slíkar íbúðir gætu orðið eftirsótt-
ar enda eru skrifstofur Alþingis og
Landsbankans steinsnar frá Aust-
urvelli og nýjum bílakjallara á
Hafnartorgi. Slíkar íbúðir gætu m.a.
boðið upp á meiri lofthæð en al-
mennt er.
Guðjón telur ekki að kórónuveiru-
faraldurinn muni hafa varanleg
áhrif á spurn eftir atvinnuhúsnæði.
Þegar faraldrinum lýkur vilji fólk
aftur geta skilið milli heimilis og
vinnu.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir greiningu borgar-
stjóra engin nýmæli. Þróunin í mið-
borginni hafi verið fyrirséð, ef frá
séu talin tímabundin áhrif
kórónuveirufaraldursins.
Leiguverð „fáránlega“ hátt
„Markaðurinn með atvinnuhús-
næði í miðbænum er að ganga í
gegnum gagngerar breytingar. Sú
þróun hefur verið í undirbúningi
mjög lengi hjá bæði borgaryfirvöld-
um og einkaaðilum. Með uppbygg-
ingu á stórum einingum á Hafnar-
torgi og í Kvosinni kemur hágæða
verslunar- og atvinnuhúsnæði sem
hefur ekki verið til staðar í Reykja-
vík. Að sjálfsögðu hefur leiguverð
verið að lækka, til dæmis á Lauga-
veginum, enda var það líka orðið fá-
ránlega uppskrúfað,“ segir Helgi
sem telur að nýju jafnvægi sé náð.
Skal tekið fram að Reginn er með
atvinnuhúsnæðið á Hafnartorgi en
ÞG Verk er með íbúðir á reitnum.
Ekki eins og hrávara
Helgi kveðst bjartsýnn á fram-
haldið og spáir því að markaður með
atvinnuhúsnæði í miðbænum verði
enn sterkari innan fárra ára.
„Þegar menn fullyrða að offram-
boð sé að skapast á skrifstofuhús-
næði í miðbænum eru þeir að hugsa
um það eins og hverja aðra hrávöru
sem er alrangt. Nú er skrifstofu-
húsnæði að losna í 50-60 ára göml-
um byggingum sem fer ekki aftur á
markað sem skrifstofuhúsnæði. Af
því að það uppfyllir ekki lágmarks-
gæðakröfur til skrifstofuhúsnæðis
að teknu tilliti til aðgengis, lofthæð-
ar og hljóðvistar svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Helgi og gagnrýnir
hrakspár um miðbæinn. „Það þýðir
ekki að standa í miðjum storminum
og spá einhverju nú. Hann mun
lægja.“
Þungamiðjan færist til
Að sama skapi muni rými á
Laugavegi ganga í endurnýjun eftir
því sem þungamiðjan í verslunar- og
veitingarekstri færist vestar að
Hafnartorgi. Við þá tilfærslu kunni
að skapast tækifæri fyrir smærri
fyrirtæki til að innrétta skrifstofur
með móttöku á Laugavegi.
„Það felast mikið frekar tækifæri
í þessum breytingum en ógnanir.
Um 700 nýjar íbúðir hafa komið á
markað í miðbænum síðustu miss-
eri. Nýir íbúar munu skapa nýja
þörf fyrir atvinnuhúsnæði,“ segir
Helgi.
Miðborgin á umbreytingarskeiði
Forstjóri Reita segir nýbyggingar Alþingis og Landsbankans stuðla að offramboði í miðborginni
Forstjóri Regins telur rangt að spá offramboði Gömlum skrifstofum verði enda breytt í íbúðir
Morgunblaðið/Eggert
Miðborgin Með Hafnartorgi jókst framboð á vönduðu verslunarhúsnæði.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
ÍBÚÐIRMEÐBÍLSKÚROGÚTSÝNI
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@fjolhus.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@fjolhus.is
sími: 860 4700
www.fjolhus.is Ármúla 3 sími 511 1020
Sölusýning sunnudaginn 15. nóvember
Freyjubrunnur 23 Úlfarsárdal
Spennandi tveggja herbergja íbúðir
með glæsilegu útsýni og
innbyggðum bílskúr, í nýju
lyftuhúsi.
Fallegt 8 íbúða fjölbýli, vandaður
frágangur, viðhaldslétt.
Stærðir frá 95,1 – 122,8 fm.
Verð frá 48.9 millj.
Afhending í desember 2020.
Hafið samband við okkur.
BÓKIÐ SKOÐUN
Sýnummilli
kl. 14:00 –15:00