Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
HEARTSINE -SAMARITAN PAD
EINFÖLD OG GÓÐ HJARTASTUÐTÆKI
fyrir fyrirtæki og stofnanir. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar okkar
í síma 580 3900 eða á netfangið fastus@fastus.is
Opið virka daga frá 8:30 – 16:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Notendavæn
stuðtæki, tilbúin
til notkunar. 227.000
kr. m/vsk 312.000
kr. m/vsk
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er ekki að startamilljónasöfnun, heldurfyrst og fremst að vekjamáls á því að margir í
okkar samfélagi þurfa stuðning.
Mér finnst það mjög mikilvægt nú
þegar jólin nálgast og myrkrið vex,
þá líður ekki öllum vel. Og sumir
halda ekki jól vegna trúar til dæm-
is. Við getum öll lagt eitthvað af
mörkum með einum eða öðrum
hætti, ekki endilega með því að
gefa peninga, það skiptir líka máli
að gefa af tíma sínum, hvort sem
það felst í því að búa eitthvað til
eða heimsækja þá sem þurfa á því
að halda,“ segir Elfur Sunna Bald-
ursdóttir, en hún ákvað að sauma
bútasaumsteppi til að gefa þeim
sem þurfa, eða til að selja þau og
gefa ágóðann til bágstaddra.
„Ég fékk þessa flugu í höfuðið
eftir að hafa fylgst með mömmu
sauma bútasaumsteppi, ég fékk í
raun innblástur frá henni. Ég aug-
lýsti eftir efni í teppi, hvaða textíl
sem væri, og fékk alveg helling.
Þegar ég var komin með allt þetta
fría efni í hendurnar og fannst eins
og ég gæti ekki notað það til eigin
nota fékk ég hugmyndina að því að
sauma bútasaumsteppi til gefa eða
selja og láta ágóðann renna til ein-
hvers góðs málefnis. Mér var því
ekki til setunnar boðið og byrjaði á
fyrsta teppinu, en þetta tók reynd-
ar meiri tíma en ég hélt og svo
skall á prófatíðin í skólanum, svo
ég hef minna getað sinnt sauma-
skapnum en ég vildi,“ segir Elfur
Sunna sem leggur stund á nám í
lífrænni ræktun í Garðyrkjuskól-
anum sem er hluti af Landbún-
aðarháskólanum.
Annar taktur fyrir norðan
Elfur Sunna er fjölhæf og
skapandi og hefur komið víða við.
„Ég flutti til Berlínar og bjó
þar í eitt ár og sótti meðal annars
tíma í söngnámi. Síðan fluttist ég
til Amsterdam og fór í listnám í
Rietveld-listaháskólanum. Ég bjó
þar í þrjú ár en fluttist heim til Ís-
lands um síðustu jól. Reyndar fór
ég í einn mánuð til Bandaríkjanna
í upphafi þessa árs til að ferðast,
en svo flutti ég alfarið heim, norð-
ur á Akureyri, og bjó þar í sumar.
Í haust flutti ég svo í bæinn þegar
ég byrjaði í náminu í Garðyrkju-
skólanum,“ segir Elfur Sunna sem
er norðankona, hún fæddist á
Akureyri og bjó þar flest sín
bernskuár. „Vissulega er annar
taktur fyrir norðan en í höfuð-
borginni, þar liggur engum
neitt á. Afi keyrði til dæmis
bílinn sinn á Akureyri þar til
hann var 93 ára, allir virtust
taka tillit til hans. Allt er
persónulegra í minni samfélögum
og allir voða kumpánlegir og
spjalla saman þegar þeir mætast á
förnum vegi. Kærastinn minn er
frá Skotlandi og við vitum fátt
betra en fara norður til pabba og
mömmu í rólegheitin. Við höfum
ekkert komist í allan vetur vegna
Covid, við söknum þess heilmikið.“
Getum lært hvert af öðru
Elfur Sunna tekur fram að sér
finnist mikilvægt að benda á að
margir séu að gera góðverk núna,
til dæmis hafi einn maður auglýst
eftir mat á síðunni „allt gefins“ og
hundrað manns brugðist við því og
viljað gefa mat.
„Mér finnst ekki talað nógu
mikið um fátækt og stéttaskiptingu
í íslensku samfélagi, þetta eru mál-
efni sem eru þögguð. Ég vil líka
vekja athygli á einmanaleika, sem
hefur aukist mikið í Covid. Við
þurfum að sinna þessu með því til
dæmis að hringja og spjalla við
fólk, spjalla um daginn og veginn
án þess að eitthvað sérstakt sé að.
Nú eða heimsækja fólk, gera eitt-
hvað hversdagslegt saman, elda
saman eða fá sér kaffisopa. Mér
finnst eldra fólkið okkar líka vera
falið í okkar samfélagi og ekki
nógu mikill samgangur milli kyn-
slóða. Við getum lært svo mikið
hvert af öðru, eldra fólk og yngra.
Ég vil að umræðan sé tekin um fá-
tækt og einmanaleika, og ég vil
hvetja fólk til að leggja sitt af
mörkum,“ segir Elfur Sunna og
bætir við að sig langi með búta-
saumsteppunum ekki aðeins að
gefa eitthvað til að hlýja ein-
hverjum, heldur líka vekja þá til-
finningu hjá þeim sem þiggur að
einhver sé að hugsa til hans eða
hennar.
„Umhyggjan felst í að gera
eitthvað fyrir aðra. Ég er líka al-
veg til í að búa til bakpoka, kodda-
ver eða hvað annað sem kæmi sér
vel. Ég veit ekki hvort þessi teppi
hjá mér eru nógu fal-
leg, kannski vill eng-
inn þiggja þau eða
kaupa þau,“ segir
hún og hlær.
„Ég vil gjarn-
an fá ábendingar
frá fólki um hvert
ég eigi að snúa
mér með teppin,
nú eða hugmyndir
um hvað annað ég
ætti að sauma sem
kæmi sér vel fyrir
einhvern. Ég vil
gjarnan komast í
samband við ein-
staklinga eða sam-
tök sem geta komið
þeim þangað sem þörf er
fyrir þau, eða fá ábendingar um
hvert ég get farið með peninginn
sem ég fengi fyrir þau, ef ég sel
þau til að safna. Kannski Konukot
vilji þiggja teppi fyrir sína skjól-
stæðinga?“ spyr Elfur Sunna og
bætir við að fólk megi gjarnan
senda ábendingar og hugmyndir á
netfangið: elfursunna@simnet.is
Vill vekja athygli á fátækt á Íslandi
„Mér finnst ekki talað
nógu mikið um fátækt og
stéttaskiptingu í íslensku
samfélagi, þetta eru mál-
efni sem eru þögguð,“ seg-
ir Elfur Sunna.
Morgunblaðið/Eggert
Elfur Sunna „Umhyggjan felst í að gera eitthvað fyrir aðra,“ segir hún.
Bútasaumur Fyrsta teppið sem
Elfur Sunna bjó til er litríkt.
Nú þegar þættirnir um kórónuna –
ekki veiruna, heldur hina bresku The
Crown sem situr á höfði drottningar
– eru svo vinsælir sem raun ber vitni
er ekki úr vegi að sýna eina mynd úr
raunheimum þess kóngafólks sem
þættirnir fjalla um. Á myndinni hér
fyrir ofan gefur að líta Elísabetu Eng-
landsdrottningu og eiginmann henn-
ar, Philip prins, þar sem þau skoða
kort sem langömmu- og langafabörn-
in þeirra bjuggu til handa þeim í til-
efni af brúðkaupsafmæli þeirra. Það
eru börn Vilhjálms og Katrínar, þau
George, Charlotte og Louis, sem eiga
heiðurinn af kortinu sem hjónin
skoða hér í Eikarherberginu í Wind-
sor-kastala. Elísabet og Philip fögn-
uðu 73 ára brúðkaupsafmæli í gær
20. nóvember og hafa því gengið
saman dágóða stund, í blíðu og
stríðu, rétt eins og fólk hefur fengið
að kynnast í þáttunum The Crown, en
fjórða sería er nýfarin í loftið. Í þátt-
unum kynnast áhorfendur lífi fólks-
ins í Buckinghamhöll.
Brúðkaupsafmæli í Buckinghamhöll
Elísabet og Philip fagna því
að hafa verið gift í 73 ár
AFP
Gleði Elísabet og Philip gleðjast yfir kortinu frá barnabarnabörnum.