Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfirði
Haustið hefur verið Borgfirð-
ingum fremur gott. Stillur hafa
verið að undanförnu og í þekktum
„kuldapollum“ héraðsins hefur ver-
ið grimmdarfrost síðustu daga, allt
að 17 stigum á óopinberum mælum.
Borgarfjörðurinn ofanverður hefur
verið þakinn íshröngli, en inn til
landsins eru stráin hrímuð og þakin
fögrum ísnálum. En nú eru blikur
komnar á loft og spáð er minna
frosti og roki næstu dægur.
Borgfirðingar hafa, eins og
aðrir landsmenn, ekki farið var-
hluta af heimsfaraldrinum. Lífið
hefur gengið hófstilltar fyrir sig en
stundum fyrr og lítið farið fyrir
heimsóknum til vina. Erfitt hefur
verið að bera kennsl á kunningja í
búðum, þar sem allir bera grímu.
Ekki er þó allt neikvætt við
það ástand sem ríkt hefur. Jóla-
ljósin hafa verið kveikt óvenju
snemma á mörgum húsum, eins og
sjá má víða um land, kannski til að
minna fólk á að það birtir upp um
síðir.
Jólin bíða þín í Borgarbyggð
er nafn á átaki sem sveitarfélagið
Borgarbyggð hefur ýtt úr vör. Mein-
ingin er að skapa notalega jólastemn-
ingu heima í héraði í aðdraganda jóla.
Vegna þessa hafa þegar verið
settar upp fyrstu ljósaskreyting-
arnar á vegum sveitarfélagsins í þétt-
býlinu Borgarnesi því stefnt er að því
að jólaljós og jólalög ásamt fjöl-
breyttu vöru- og þjónustuúrvali og
heitu kakói verði í boði í sveitar-
félaginu á aðventu.
Markmiðið er tvíþætt. Annars
vegar að kynna þá vöru og þjónustu
sem stendur til boða og hins vegar að
kynna aðventuviðburði sem fyrir-
tæki, félagasamtök eða aðrir munu
bjóða upp á.
Á þennan hátt er verið að hvetja
íbúa sveitarfélagsins og næstu ná-
granna til að gera jólainnkaupin
heima, tryggja þannig að fjölbreytt
þjónusta verði til staðar í heima-
byggð og skapa um leið ljúfa og nota-
lega stemningu á aðventunni.
Samhugur í Borgarbyggð er
hópur sem stofnaður var af Lindu
Kristjánsdóttur, yfirlækni Heilsu-
gæslustöðvarinnar í Borgarnesi.
Hlutverk hópsins er að aðstoða þá
sem minna mega sín í aðdraganda
jóla, svo enginn þurfi að líða skort yf-
ir jólin.
Margir hafa misst vinnuna í því
ástandi sem ríkt hefur svo þrengra er
í búi hjá fleiri fjölskyldum en oft fyrr.
Hægt er að setja gjafabréf inn um
bréfalúgu í Ráðhúsi Borgarbyggðar
sem merkt eru „Samhugur í Borg-
arbyggð“ og verður þeim komið til
skila. Fyrirtæki og einstaklingar hafa
þegar gefið ýmsar gjafir, m.a. mat.
Búið er að koma upp jólatré í
anddyri heilsugæslunnar í Borg-
arnesi og þangað er hægt að koma
pökkum, bæði til jólagjafa og eins til
að aðstoða jólasveina.
Þeir sem óska eftir stuðningi eða
vita um einhvern sem þarfnast hans
geta haft samband á netfangið sam-
hugur@samhugur.net.
Í Borgarfirði hagar svo til að sól-
in sést ekki alls staðar í dimmasta
skammdeginu þar sem landslag
skyggir á. Það á meðal annars við um
Hvanneyri. Þar hverfur hún í kring-
um 28. nóvember og sést ekki aftur
fyrr en um 14. janúar. Þeim tímamót-
um er að sjálfsögðu fagnað með góðu
kaffi og meðlæti, þegar sólin nær að
teygja sig yfir fjöllin.
Skapa jólastemningu
heima í Borgarbyggð
Morgunblaðið/BGK
Borgarbyggð Margir húseigendur hafa nú þegar kveikt jólaljós og sett upp skreytingar utan á húsunum.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Reykjavíkurborg leggst eindregið
gegn því að Alþingi samþykki tillögu
um þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar sem nú er
til meðferðar í þinginu. Ekki komi til
greina að svipta Reykjavíkurborg
skipulagsvaldi yfir flugvellinum.
Þetta kemur fram í umsögn Dags
B. Eggertssonar borgarstjóra og
Ebbu Schram borgarlögmanns um
tillöguna. Umsögnin var kynnt í
borgarráði á fimmtudaginn.
Fulltrúar meirihlutans í ráðinu
bókuðu að umrædd tillaga til þings-
ályktunar væri í andstöðu við stjórn-
arskrárvarinn sjálfsstjórnarrétt og
skipulagsvald sveitarfélaga. Þá sé
bent á í umsögn borgarlögmanns og
borgarstjóra að niðurstaða slíkrar
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu
getur hvorki bundið Reykjavíkur-
borg né haggað gildi lögmætra
skipulagsáætlana sem gilda um
Reykjavíkurflugvöll. Loks er bent á
að nú þegar er að störfum hópur
sem kannar Hvassahraun til hlítar
sem nýtt flugvallarstæði. Sá hópur á
að skila niðurstöðu fyrir lok árs
2022.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins,
Vigdís Hauksdóttir, lagði fram svo-
hljóðandi bókun: „Reykjavíkurborg
krefst þess að vera sjálfstæð og þá
sérstaklega í skipulagsmálum. En
þegar kemur að bágum fjármálum
borgarinnar á ríkið að koma með
gríðarlegt fjármagn inn í reksturinn.
Umsögn borgarlögmanns er sláandi
þegar litið er til samnings ríkisins
við Reykjavíkurborg um framtíð
Reykjavíkurflugvallar frá 29. nóv-
ember 2019. Ég hef nú þegar skrifað
stjórn umhverfis- og samgöngu-
nefndar bréf þar sem ég lýsti yfir
forsendubresti Reykjavíkurborgar
við samninginn.“ sisi@mbl.is
Borgin vill ekki
þjóðaratkvæði
Ekki sé hægt að
svipta borgina skipu-
lagsvaldi yfir flugvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugstarfsemi Miðstöð innanlands-
flugsins er á Reykjavíkurflugvelli.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Gert er ráð fyrir að Biskupsstofa
(þjóðkirkjan) verði rekin með 91
milljónar króna tekjuhalla árið 2021,
samanborið við 54 milljóna króna
tekjuhalla í áætlun ársins 2020.
Kirkjuþing fundaði sl. fimmtudag
um fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar
fyrir árið 2021.
Ráðgjafarsvið KPMG ehf. hefur
aðstoðað þjóðkirkjuna/Biskupsstofu
við fjárhagsáætlunargerð ársins
2021 og að styrkja innviði til áætl-
unargerðar í framtíðinni. „KPMG og
Biskupsstofa hafa, við gerð fjárhags-
áætlunarinnar, leitað leiða til hag-
ræðingar sem nú þegar hefur verið
tekið tillit til í fjárhagsáætluninni.
Framundan er þörf á frekari umbót-
um innan Biskupsstofu,“ segir í sam-
antekt fjárhagsáætlunarinnar.
Rekstrartekjur Biskupsstofu árið
2021 eru áætlaðar alls krónur
3.926.567.892. Þar vega greiðslur úr
ríkissjóði langmest, en þær eru áætl-
aðar 3.845 milljarðar. Leigutekjur
eru áætlaðar tæpar 80 milljónir.
Gagngreiðslur ríkissjóðs Íslands
byggjast á viðbótarsamningi ís-
lenska ríkisins og þjóðkirkjunnar frá
6. september 2019 og forsendum þar
að lútandi, segir í áætluninni.
Vegin hækkun gagngreiðslna á
milli ára er áætluð 3,2%, en áætluð
gagngreiðsla byggist á gögnum úr
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021.
Almennt er gert ráð fyrir 2,4% verð-
lagshækkun á árinu 2021 og 3,0%
hækkun launa starfsmanna Biskups-
stofu.
Laun og launatengd gjöld vega
langþyngst í rekstrarkostnaði Bisk-
upsstofu/þjóðkirkjunnar. Þær
greiðslur eru áætlaðar rúmir þrír
milljarðar á næsta ári eða 77,5% af
öllum kostnaði.
Áætlunin gerir ráð fyrir 144 stöðu-
gildum biskupa og presta að meðal-
tali, að teknu tilliti til mannabreyt-
inga og afleysinga vegna veikinda og
námsleyfa, og launum og launa-
tengdum gjöldum þeirra. Stöðugildi
einstakra sviða á Biskupsstofu eru
32. Þetta eru fasteignasvið, fræðslu-
svið, rekstrarsvið og þjónustusvið.
Samkvæmt fimm ára fjárhags-
áætlun þjóðkirkjunnar, þ.e. fyrir ár-
in 2021-2025, er áætlað að umskipti
verði á rekstrinum strax árið 2022.
Þá er gert ráð fyrir tæplega 10 millj-
óna tekjuafgangi og 43 milljóna af-
gangi öll árin þar á eftir.
Morgunblaðið/Ómar
Prestastefna Gert er ráð fyrir taprekstri kirkjunnar á næsta ári en síðan
fer að rofa til. Áætlunin gerir ráð fyrir 144 stöðugildum biskupa og presta.
Þjóðkirkjan rekin
með tapi næsta ár
Þörf er á frekari umbótum innan
Biskupsstofu, segir í fjárhagsáætlun
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Mercedes Benz C300e 4matic AMG line 2020
Erummeð glæsileg eintök af þessum stórskemmtilega bíl til sýnis og sölu.
Eknir frá 5-15 þkm. Bensín og rafmagn (plug in hybrid), drægni 50 km. Sjálfskiptir, fjórhjóladrifnir (4matic).
AMG line innan og utan. Stafræntmælaborð, leiðsögukerfi o.fl. Nokkrir litir í boði.
VERÐ frá 7.990.000
Audi A3 E-tron Design 2018
Erummeð glæsileg eintök af þessum
vinsæla bíl til sýnis og sölu.
Eknir frá 8-31þkm. Bensín og
rafmagn (plug in hybrid),
drægni 44 km. Sjálfskiptir,
framdrifnir. Stafræntmælaborð,
leiðsögukerfi, 18“ álfelgur o.fl.
Nokkrir litir í boði.
VERÐ frá
4.390.000
Sjón er sögu ríkari, sýningarbílar á staðnumog reynsluakstur í boði.