Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur kynnt fyrirhug-
aðar framkvæmdir við nýja brú á
hringvegi um Hverfisfljót í Skaft-
árhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Í tengslum við byggingu nýrrar
brúar þarf að endurbyggja hring-
veginn á kafla. Kostnaður við verk-
ið er áætlaður rúmar 700 milljónir
króna.
Nýja brúin, sem er um 20 kíló-
metra austan Kirkjubæjarklaust-
urs, mun leysa af hólmi einbreiða
stálbitabrú með steyptu gólfi sem
byggð var árið 1968.
Fyrirhugað er að byggja nýja 74
metra langa og tvíbreiða brú yfir
Hverfisfljót á hringvegi, við hlið
núverandi brúar, eða 20 metra neð-
an hennar, auk vega sem tengja
nýja brú núverandi vegakerfi. Nýr
vegur og brú verða samtals um 2,2
kílómetra löng, þar af verður 1,1
km nýlögn og 1,1 km endurbygging
núverandi vegar.
Tilgangur framkvæmdarinnar er
að fækka einbreiðum brúm á hring-
vegi. Markmiðið er að auka um-
ferðaröryggi og stuðla að greiðari
samgöngum. Vegagerðin áætlar að
vegur og brú verði byggð árið 2021
og hægt verði að taka mannvirkið í
notkun um haustið.
Einnig verður byggður nýr án-
ingarstaður við Hverfisfljót í stað
núverandi áningarstaðar sem
hverfur undir nýjan veg. Á þessum
stað er fallegt útsýni í átt að Lóma-
gnúpi og Öræfajökli og því er nauð-
synlegt að byggja nýjan, öruggan
og stærri áningarstað. Á núverandi
stað er aðeins pláss fyrir 3-4 bíla. Á
nýjum áningarstað verður eitt
rútustæði, þrjú húsbílastæði og 10
fólksbílastæði.
Framkvæmdum verður hagað
þannig að neikvæð áhrif þeirra á
umhverfið verði sem minnst, segir í
kynningu Vegagerðarinnar. Sam-
ráð hefur verið haft við hagsmuna-
aðila og sveitarfélag við undirbún-
ing framkvæmdarinnar. Vega-
gerðin telur að framkvæmdin hafi
ekki í för með sér umtalsverð áhrif
á umhverfið vegna umfangs, eðlis
eða staðsetningar.
Vegagerðin hefur sent kynning-
arskýrsluna til Skipulagsstofnunar
til ákvörðunar um matsskyldu
framkvæmdarinnar. Þeir sem vilja
veita umsögn um fyrirhugaða fram-
kvæmd hafa frest til 25. nóvember
til að skila umsögn til Skipulags-
stofnunar.
Hverfisfljót er jökulá með grunn-
vatnsþætti, segir í kynningu Vega-
gerðarinnar. Hún fellur úr Síðu-
jökli vestanverðum, meðfram eystri
jaðri Eldhrauns niður á Fljótseyr-
ar, rétt vestan Skeiðarársands. Við
jökulleysingu að sumarlagi er mik-
ill aurburður í Hverfisfljóti en að
vetrarlagi er vatnið að mestu tært.
Ný brú byggð yfir Hverfisfljót
Kemur í staðinn fyrir einbreiða brú á hringvegi Samhliða verður vegurinn færður til á kafla
Ný brú eykur umferðaröryggi Nýr áningastaður gerður með fallegu útsýni að Lómagnúpi
Hverfisfljót Núverandi brú er einbreið og farartálmi, byggð árið 1968.
Ný brú yfi r
Hverfi sfl jót
G
ru
nn
ko
rt
:
Lo
ft
m
yn
di
r
Núpsvötn
Brunná
Hverfisfljót
Fyrirhugað 74 m
löng og tvíbreið brú
verður 20 m neðan
við núverandi brú
Skaftafell
45 km
Kir
kju
bæ
jar
-
kla
us
tu
r
20
km
1
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Þrátt fyrir fækkun farþega kom upp
metfjöldi skilríkjamála í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar í fyrra. Þetta kem-
ur fram í ársskýrslu lögreglustjór-
ans á Suðurnesjum fyrir árið 2019.
Alls komu upp hundrað slík mál
árið 2019. Fjölgaði þeim lítillega
milli ára, en árið 2018 voru slík mál
98 talsins. Hefur umræddum málum
fjölgað gríðarlega hratt síðustu ár,
en þau hafa nær þrefaldast frá árinu
2015.
Fjölgunin skýrist m.a. af því að
verkefni greiningarsviðs flugstöðv-
ardeildar leiddu til fleiri afskipta af
einstaklingum með fölsuð skilríki
innan flugstöðvarinnar en árið á
undan. Að því er segir í ársskýrsl-
unni var grunnfölsun algengasta
leiðin, en breytifölsun og misnotkun
voru sömuleiðis algengar aðferðir.
Með misnotkun er átt við mál þar
sem einstaklingur framvísaði óföls-
uðu skjali annars manns.
Skilríkin sem um ræðir voru frá
27 mismunandi aðildarríkjum, en
sérlega mikið bar á fölsun kennivott-
orða. Má rekja skýringuna þar að
baki til ferða til Bretlands og Írlands
frá svæðum innan Schengen. Til
landanna tveggja gilda evrópsk
kennivottorð. Alls náðu skilríkjamál
á árinu 2019 til 30 þjóðlanda, en
langflestir voru frá Albaníu eða 41%.
Það sama átti við um árin 2017 og
2018. Næst komu Sómalía og
Georgía en þangað mátti rekja alls
26% þeirra sem hingað komu með
fölsuð skilríki.
Að því er fram kemur í ársskýrslu
2019 voru algengustu útgáfuríki í
skilríkjamálum í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar Ítalía og Grikkland. Þá
var talsverður fjöldi falsaðra skil-
ríkja gefinn út í Svíþjóð og Frakk-
landi.
Eftirlitið batnað mjög
Undanfarin ár hefur verið unnið
að því að bæta landamæravörslu hér
á landi. Við Schengen-úttekt árið
2017 komu í ljós ákveðnir veikleikar
við framkvæmd landamæraeftirlits.
Frá þeim tíma hefur verið unnið
markvisst að endurbótum. Í árs-
skýrslunni fyrir árið 2019 kemur
fram að nefnd á vegum Schengen
hafi komið hingað til lands að nýju í
október í fyrra. Samkvæmt niður-
stöðum nefndarinnar eru engir al-
varlegir veikleikar á framkvæmd og
stjórnskipulagi landamæramálefna
á Íslandi.
Þá hafa gæði landamæraeftirlits í
heild aukist og þá sérstaklega á
Keflavíkurflugvelli. Að því er segir í
ársskýrslunni munaði þar mikið um
fjölgun starfsmanna og aukið fjár-
magn til málaflokksins.
Morgunblaðið/Ómar
Flugstöð Skilríkjamálum hefur fjölgað gríðarlega undanfarin ár.
Metfjöldi skil-
ríkjamála í fyrra
Fjöldi mála hefur nær þrefaldast frá
árinu 2015 Hundrað mál komu upp
PCC Bakki mun ráða til sín fleiri
starfsmenn að nýju upp úr áramót-
unum, gangi áætlanir eftir, en von-
ir standa til að verksmiðjan verði
ræst á nýjan leik að vori. Kemur
þetta fram í tilkynningu.
PCC greip til tímabundinnar
stöðvunar á ofnum verksmiðjunnar
í ágúst sl. til að gera nauðsynlegar
endurbætur á reykhreinsivirki
hennar. Vegna erfiðra heimsmark-
aðsaðstæðna sem sköpuðust í kjöl-
far kórónuveirufaraldursins var
ákveðið að endurræsa verksmiðj-
una ekki að svo stöddu.
Í kjölfarið var gripið til hóp-
uppsagna en enn starfa þó ríflega
50 manns hjá fyrirtækinu sem
vinna að frekari endurbótum á
búnaði og undirbúningi endurræs-
ingar.
Undanfarna mánuði hafa mark-
aðir aðeins rétt úr kútnum, þó ekki
svo að verð geti enn talist við-
unandi, að mati fyrirtækisins.
„Vonir standa þó til að með vorinu
munum við bæði sjá fram á lægri
framleiðslukostnað sem og betri
markaðsaðstæður og miðast nú
vinnan á Bakka við að endurræsing
verksmiðjunnar hefjist næsta vor,“
segir í tilkynningu.
Gangi þessar áætlanir eftir er
ljóst að upp úr áramótum mun
ráðningarferli starfsmanna hefjast.
Jafnframt eru nú í gangi viðræður
við birgja verksmiðjunnar varðandi
endurræsinguna. Telur fyrirtækið
ljóst að til að verksmiðjan geti tal-
ist samkeppnishæf á heimsmarkaði
sé gott samstarf við birgja lykil-
atriði. helgi@mbl.is
Undirbúa fjölgun starfsfólks
Stefnt að endurræsingu kísilvers PCC á Bakka í vor
Morgunblaðið/Hari
Bakki Vonast er til að verksmiðjan
verði gangsett á ný í vor.
H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0
ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA
Óskum eftir ungum og glöðum fasteignasölum.
Góð vinnuaðstaða, miklir tekjumöguleikar.
Upplýsingar gefur Óskar í síma 893 2499 og oskar@eignaborg.is
Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali • Sími 893 2499 • oskar@eignaborg.is