Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 26

Morgunblaðið - 21.11.2020, Page 26
Fjöldi sjúkrarúma á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum árið 2018 8.0 7.6 7.3 7.0 7.0 6.6 6.5 6.4 5.9 5.7 5.6 5.6 5.5 5.0 4.6 4.6 4.5 4.4 4.3 4.2 3.6 3.5 3.5 3.3 3.2 3.1 3.0 3.0 2.9 2.5 2.4 2.1 Þý sk al an d B úl ga ría Au st ur rík i U ng ve rja la nd Rú m en ía Té kk la nd Pó lla nd Li th áe n Fr ak kl an d Sl óv ak ía B el gí a Kr óa tía Le tt la nd ES B m eð al ta l Sv is s Ei st la nd Lú xe m bo rg Sl óv en ía M al ta G rik kl an d Fi nn la nd N or eg ur Po rt úg al Ký pu r H ol la nd Íta lía Ír la nd Sp án n Ís la n d B re tla nd D an m ör k Sv íþ jó ð Heimild: OECD Health Statistics 2020/Eurostat Fjöldi sjúkrarúma á hverja 1.000 íbúa SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sjúkrarýmum á Íslandi hefurfækkað töluvert á umliðn-um árum og enn hallar und-an fæti ef marka má árleg- an samanburð OECD á stöðu heilbrigðismála í ríkjum sem gefinn var út í vikunni (Health at a Glance: Europe 2020). Fjöldi sjúkrarúma á hverja þúsund íbúa var 2,9 á Íslandi árið 2018 og fækkaði lítið eitt frá árinu á undan þegar hér á landi var 3,1 sjúkrarúm skv. samanburði OECD. Aðrar norrænar þjóðir eru einn- ig neðarlega á lista þegar dvalarrými á sjúkrastofnunum eru borin saman. Þrjú lönd eru fyrir neðan Ísland í samanburði á sjúkrarúmum miðað við höfðatölu hverrar þjóðar, Bret- land (2,5), Danmörk (2,4) og Svíþjóð rekur lestina (2,1). Að meðaltali voru fimm sjúkrarúm á hverja þúsund íbúa í aðildarlöndum Evrópu- sambandsins á sama tíma. Alls eru 27 lönd fyrir ofan Ísland í þessum samanburði. Norðurlöndin koma mun betur út þegar lagt er mat á mannafla í heilbrigðisþjónustu og er Ísland yfir meðallagi Evrópulanda í þeim sam- anburði. Fjölmargir þættir heilbrigð- isþjónustu og heilsufars þjóðanna eru bornir saman í skýrslu OECD og kemur Ísland yfirleitt nokkuð vel út varðandi aðgengi og þjónustu, ævilengd o.fl. líkt og í fyrri úttektum OECD. Alls voru 14,7 starfandi hjúkr- unarfræðingar á hverja þúsund íbúa á Íslandi 2018 og er hærra hlutfall aðeins að finna í Noregi (17,7) og Sviss (17,6). Þá hefur starfandi lækn- um fjölgað á síðustu tíu árum ef mið- að er við höfðatölu. Alls voru 3,9 læknar á hverja þúsund íbúa hér á landi árið 2018 og er það lítið eitt fyrir ofan meðallag í Evrópu. Fjöldi tannlækna í Evrópulöndunum er mjög breytilegur og er fjöldi tann- lækna á hvern íbúa á Íslandi nálægt meðaltali í Evrópu eða 0,8 á hverja þúsund íbúa. Sjúkrahúslegur hafa styst í meirihluta Evrópulanda frá aldamót- um. Meðaltalsdvöl á sjúkrahúsum hér á landi var 5,9 dagar á árinu 2018, sem er töluvert undir meðal- legutíma í Evrópulöndum og eru að- eins fimm lönd með styttri meðal- legutíma en Ísland í samanburði OECD. Útgjöld til heilbrigðismála á hvern íbúa á Íslandi voru talsvert yf- ir meðaltali Evrópulanda í fyrra en Ísland er þó ekki meðal efstu þjóða í samanburðinum. Umreiknað til sam- bærilegs verðlags í evrum jafngiltu útgjöldin 3.261 evru á hvern íbúa hér á landi 2019 en t.d. 4.505 evrum í Noregi, 3.919 evrum í Svíþjóð og 3.154 í Bretlandi. OECD ber líka saman heilbrigðisútgjöldin, bæði opinber útgjöld og valfrjálsar trygg- ingar og greiðslur úr eigin vasa, mið- að við landsframleiðslu, og þá kemur í ljós að heildarútgjöldin til heilbrigð- ismála voru 8,8% af landsframleiðslu hér á landi í fyrra, sem er nokkru yf- ir meðaltali í löndum ESB (8,3%). Færri sjúkrarúm en í flestum Evrópulöndum 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ari fróði létþann fyr-irvara fylgja Íslendingabók að væri eitthvað þar missagt væri „skylt að hafa það heldur, er sannara reynist“. Í blaðamennsku hefur löngum verið haft að leiðarljósi að gott sé að vera fyrstur með fréttina, en fyrst verði fréttin að vera rétt. Á síðum Morgunblaðsins hef- ur undanfarið farið fram ritdeila milli Björns Bjarnasonar og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. Upphaf deilunnar var umsögn, sem birtist í aðsendri grein eftir Björn, um nýja bók Ólínu. Snýst deilan um fullyrðingar Ólínu um að Bjarni Benediktsson, faðir Björns, hafi þegar hann var utanríkisráðherra ásamt banda- rískum ráðamönnum og með að- stoð bandarísku alríkislögregl- unnar, FBI, komið því til leiðar um miðja síðustu öld að bækur Halldórs Laxness hættu að koma út í Bandaríkjunum. Í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Ólínu ásamt myndum af tveimur trúnaðarskjölum, sem eru frá 1948 og hafa verið gerð opinber, frá William Trimble, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík til utanríkisráðuneytisins í Wash- ington. Segir Ólína að skjölin sýni svo ekki verði um villst að hún hafi rétt fyrir sér. En er það svo? Í því fyrra segir Trimble að von sé á því að Atómstöðin komi út, væntanlega í Bandaríkj- unum, innan hálfs mánaðar. Kveðst Trimble þar eiga von á að það myndi skaða orðspor skáldsins kæmi í ljós að hann hefði skotið undan skatti og mælist til þess að greiðslur höfundarlauna til hans verði skoðuð. Í því skjali er hvergi minnst á Bjarna eða ís- lenska ráðamenn. Í seinna skjalinu er fjallað um höfundarlaun Halldórs og sagt að gögn hafi komið fram um að þau hafi ekki öll verið gefin upp til skatts. Þar kemur einnig fram að Bjarni hafi séð gögnin, en þar sem þau hafi verið sýnd honum í trúnaði sé ekki hægt að nota þau komi til þess að skatta- mál skáldsins fari fyrir dóm- stóla. Í þessu skjali er ekki orð um útgáfu bóka Halldórs. Það er auðvelt að draga ályktanir og smíða samsæris- kenningar, en hversu langt er réttlætanlegt að ganga í að lesa milli lína? Þessi samskipti um skattamál Halldórs kunna að þykja óviðurkvæmileg, en sam- kvæmt skeyti sendiherrans snerust þau aðeins um þessar erlendu greiðslur til Halldórs og hvort þær hefðu verið taldar fram. Ólína grípur til þess bragðs að slá saman efni skeytanna til þess að fá sína útkomu um hlut- verk Bjarna, sem varð síðar rit- stjóri Morgunblaðsins. Ólína segir í grein sinni að frumheim- ildirnar tali sínu máli. Þær segja bara ekki það sama og hún heldur fram. Frumheimildirnar tala sínu máli, en tala þær máli Ólínu?} Það sem rétt er Þessa daganastendur yfir kynning á breytingartillögum á aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar. Breyting- arnar eru við aðal- skipulag 2010 til 2030 og kveða jafn- framt á um framlengingu skipu- lagstímans um tíu ár eða til 2040. Þétting byggðar er leiðar- stefið í tillögunum og eru þétt- ingarreitirnir flestir nærri fyr- irhugaðri borgarlínu. Auðvelt er að gagnrýna bæði þessa stefnu og borgarlínuna. Er það virkilega vilji borgarbúa að búa í fjölbýlishúsum? Reynslan bendir til hins gagnstæða og kannski má segja að þessi stefna byggist á sömu ósk- hyggju og hugmyndirnar um borgarlínuna. Þar er stefnan að verja tugmilljörðum í ferða- máta sem ólíklegt er að margir vilji nota. Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Bjarna Reynarsson skipulagsfræðing þar sem farið er yf- ir inntak tillagn- anna og færð gild rök fyrir því að full ástæða sé til að staldra við þau áform sem þar koma fram bæði um þéttingu byggð- ar og borgarlínu. Bjarni setur í greininni fram margar spurn- ingar til borgaryfirvalda sem brýnt er að svara. Í upphafi sagði að nú stæði yfir kynning á þessum tillögum. Það er reyndar orðum aukið. Breytingartillögurnar hafa far- ið mjög leynt, svo leynt að leyniþjónustur gætu grætt á því að kynna sér vinnubrögðin til að átta sig á hvernig gera eigi hluti án þess að nokkur taki eft- ir. Nær hefði verið að kynna þetta með bumbuslætti og nú fer hver að vera síðastur því að frestur til að gera athuga- semdir við tillögurnar rennur út í næstu viku. Aðeins nokkrir dagar eru til stefnu. Lykilbreytingar á aðalskipulagi á að miða við þarfir og óskir borgarbúa og kynna með bumbuslætti} Framtíð Reykjavíkur C ovid-þreytan virðist alltumlykjandi í samfélaginu í dag. Veiran lætur enn á sér kræla þrátt fyrir að við sjáum smitum fækka ört. Það er mikið gleðiefni að sjá tölur smit- aðra fara niður en við höfum engu að síður lært af biturri reynslu að fagna ekki of snemma. Í sumar náðum við að lifa nærri eðlilegu lífi en þurftum svo að bakka til baka í það ástand sem við erum nú í með verulegri skerðingu á okkar daglega lífi. Covid-þreytan birtist í spurningum alls almennings en einnig kjörinna fulltrúa um hvort rétt sé að málum staðið. Ég spurði í vik- unni á vettvangi þingsins hvers vegna ekki væri tekin ákvörðun um að allir sem koma til lands- ins færu í tvöfalda skimun. Svar heilbrigðis- ráðherra var á þá leið að árangur skimana væri ótvíræður en það væri ekki víst að heimild til slíkrar skyldu væri fyrir hendi. Það þykir mér harla sér- stakt því það er jú val ferðamanna að koma hingað og þau gætu þá valið að koma ekki hingað vilji þau alls ekki sæta skimun. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skimun verði gjald- frjáls svo fjárhagshliðin ætti ekki að koma í veg fyrir þessa skyldu heldur ætti einmitt að vera hvati enda tíminn með- an beðið er niðurstöðu skimunar skemmri en sóttkví. Heimsfaraldurinn hefur einnig opinberað veikleika í heilbrigðiskerfinu. Húsnæði og mönnun í heilbrigðiskerf- inu er ófullnægjandi og því reynist íslenska ríkinu, eins og dæmin sýna, örðugt að tryggja fullnægjandi og örugga heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðiskerfið og starfsmenn þess hafa á undanförnum mánuðum verið undir nærri ómennsku álagi. Deildum hefur verið umturnað, breyta þurfti bráðadeild í covid- göngudeild, loka þurfti fyrir heimsóknir og taka upp fjarlækningar í ríkara mæli. Starfs- fólk hefur þurft að skerða mjög sitt persónu- frelsi utan vinnu og leggja sig í beina hættu á vinnustað við að sinna covid-sýktum ein- staklingum. Skinnið í lófum heilbrigðisstarfs- fólks tætist upp undan ofnotkun handspritts og andlitið er þrútið vegna notkunar andlits- gríma og búninga á heilu vöktunum. Þetta, of- an á ófullægjandi aðbúnað sjúklinga og heil- brigðisstarfsfólks, er ekki náttúrulögmál. Það er hægt að taka ákvörðun um að fjölga starfs- fólki í heilbrigðisgeiranum til að koma til móts við áralanga undirmönnun nú þegar atvinnu- leysi er í hæstu hæðum ef ríkisstjórnin hefði til þess kjark. Kjark og framsýni að horfa til framtíðar við uppbyggingu fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu á Íslandi eins og meirihluti þjóðar vill. Veiran sjálf er algjört skað- ræði og er í eðli sínu eins og náttúruhamfarir en ófullnægj- andi aðbúnaður og aðstæður til umönnunar er pólitísk ákvörðun, og það er þar sem ábyrgðin liggur, hjá stjórn- völdum sem taka ákvörðun um vanfjármögnun okkar grunnkerfis heilbrigðisþjónustu. Því er hægt að breyta ef vilji er fyrir hendi. Helga Vala Helgadóttir Pistill Heilbrigði þjóðar til framtíðar Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Íslendingar eru meðal efstu þjóða í Evrópu þegar lagt er mat á ævilíkur við fæðingu. Meðalævilíkur Íslendinga eru nú 82,6 ár og er Ísland í 8. sæti meðal 37 þjóða. Í skýrslu OECD kemur einnig fram að hvergi í Evrópu er að finna lægra hlutfall barna með litla fæðingarþyngd. Aðeins 3,6% barna voru undir 2.500 grömmum við fæðingu hér á landi en meðaltalið í löndum ESB var 6,6%. Líkt og í fyrri skýrslum OECD kemur fram að meirihluti Ís- lendinga teljist of þungur. Of- þyngd færist í vöxt í löndum Evrópu og er í skýrslunni sögð vera stórt heilbrigðisvandamál í álfunni. Eitt af hverjum fimm 15 ára ungmennum í Evrópu á við ofþyngd að glíma. Meðal fullorðinna Íslendinga telur ríf- lega fjórðungur sig vera of þungan og er það hlutfall hvergi hærra meðal ríkja Evr- ópu nema á Möltu. Tölur um út- breiðslu mislinga í fyrra sýna að tilfellin voru 2,5 á hverja 100 þúsund íbúa hér á landi, nokkru fleiri en annars staðar á Norðurlöndum. Ísland í átt- unda sæti ÆVILÍKUR EVRÓPUÞJÓÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.