Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 21.11.2020, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 þann dag í dag geri ég það oft ósjálfrátt. Við höfum rúntað ansi mikið saman með Geirmund í græjunum og sungum mikið með. Við fjölskyldan fórum einnig oft með ykkur ömmu í útilegur á sumrin og þaðan eigum við marg- ar skemmtilegar minningar. Þú varst mikið inni í hjólhýsi hjá okk- ur að spila eða leggja kapal, því inni hjá okkur þurfti ekki að passa jafn mikið upp á mylsnuna eða tóbakið. Margar eru minningarnar, ég trúi því að nú sért þú á betri stað og að pabbi minn hafi tekið vel á móti þér. Nú set ég lagið okkar á fóninn, Nú er ég léttur með Geirmundi, tek upp spilastokkinn og legg einn kapal þér til heiðurs. Sofðu rótt, elsku afi. Þín Bára Sif. Elsku afi, fyrst komið er að leiðarlokum í bili þá vil ég segja þér frá þeirri minningu sem kem- ur einna helst upp í hugann. Ég var um það bil 11 ára gömul, örlít- ið óörugg, rétt áður en langt var af stað í mína fyrstu hestaferð. Þú tekur eftir því og segir „mundu að vera ákveðin“. Lengra var það nú ekki, en skilvirkari hefðu þessu orð ekki getað verið. Nú af öllum þeim ævintýrum, sögum og eða ráðleggingum sem þú gafst mér, þá get ég lofað þér því að ég mun halda áfram að vera ákveðin. Brynja. Elsku afi. „Þetta er Diljá, barnabarnið þitt,“ líkt og við hófum öll okkar símtöl. Það er ekki okkur líkt að flækja hlutina um of. Hvíl í friði, afi minn, þín er sárt saknað. Takk fyrir allt. Diljá. Í dag er kvaddur góður æsku- vinur, Gunnar Árni Sveinsson. Þegar ég hugsa til baka er margs að minnast. Við Gunnar ólumst upp í sjávarplássi sem byggði af- komu sína á því sem sjórinn gaf. Unglingsárin gengu ljúft í leik á Skagaströnd og var bryggjan ansi oft leiksvæðið okkar. Sjómennsk- an hófst snemma og mikið vorum við montnir ungir menn þegar okkur bauðst pláss á Sæljóninu RE-317 sem var svo að segja nýtt síldveiðiskip sem gert var út frá Reykjavík. Þar var mikið gaman og margt nýtt sem bar fyrir augu og áhöfnin var frábær. Það var víða komið við á næstu árum eins og títt er hjá ungu fólki. Á síld- veiðum á Húna HU-1 árið 1960 er ákveðið að sækja um inngöngu í Sjómannaskólann í Reykjavík og gekk það eftir. Við vorum saman í herbergi á heimavistinni við skól- ann. Þær eru margar minning- arnar frá þeim frábæra tíma. Eft- ir útskrift var farið á vertíð í Ólafsvík sem gekk vel en eitthvað var Gunnari farið að leiðast að deila herbergi með mér því að þeim fækkaði hratt nóttunum sem hann skilaði sér heim í herbergi en þá var ung og glæsileg kona að norðan komin í spilið, hún Bára Þorvaldsdóttir sem varð svo lífs- förunautur hans, stoð og stytta. En hugur okkur stefndi á eigin útgerð. Við félagarnir ásamt Birni Haraldssyni festum kaup á 10 tonna bát, Hafrúnu HU-15, árið 1961 sem við gerðum út í okkar heimabyggð. Þarna hófst skip- stjórnarferill Gunnars. Þetta samstarf varði ekki lengi og nýjar áskoranir tóku við og fór Gunnar til starfa sem skipstjóri hjá Hóla- nesi hf. Eftir það tímabil hóf Gunnar aftur eigin útgerð með Eiði Hilmarssyni. Þeir félagar eignuðust fyrst trillubát sem hét Flosi, þeir seldu bátinn og keyptu sig inn í útgerð hér í bæ sem átti bátinn Vísi. Áfram var haldið og smíðaður nýr bátur, Auðbjörg HU-6, og komu nú nýir sam- starfsmenn að þeirri útgerð. Á áttunda áratugnum var keyptur 26 tonna bátur í félagi við Indriða Hjaltason, sem einnig var skírður Auðbjörg, síðar var Gunnar einn með útgerðina og átti hann bátinn í áratugi þar til hann hætti sjó- mennsku. Gunnar var hestaeigandi og hafði mikið yndi af hestum og naut sín vel í góðum hópi í útreið- um. Hann var hrókur alls fagn- aðar og kunni mikið af kveðskap og sagði vel frá. Þau hjónin eign- uðust húsbíl sem þau nýttu til ferðalaga um landið okkar og eignuðust góðan hóp félaga í þeim ferðum. Svo voru það spilin sem Gunnar var sennilega með í hönd- unum nærri hvern dag, hann var briddsspilari og keppti í þeirri íþrótt. Margir Skagstrendingar eiga eftir að minnast Gunnars í tengslum við sjómannadaginn, hann var mikill keppnismaður og tók þátt í reiptogi og róðri. Hann stýrði seinna reiptogskeppninni niður á plani, þar var oft heitt í kolunum og tók hann sig vel út við stjórnvölinn, þessi stóri glæsilegi maður í frakkanum sínum. Við munum ylja okkur við góð- ar minningar, öll ferðalögin inn- anlands sem utan, við fjölskyldan þökkum samfylgdina, kæri vinur. Elsku Bára okkar, Gunnar Þór, Anna Bogga, Ása og fjölskyldur, megi Guð varðveita ykkur og styrkja. Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Vinur okkar Gunni Sveins hef- ur kvatt þessa veröld og langar okkur til að minnast hans með ör- fáum orðum. Margt kemur upp í hugann af samskiptum okkar gegnum tíðina. Ein mín fyrsta vinna fyrir kaupi var hjá Gunna, þá eitthvað í kringum 10 ára. Það var við að hnýta línukróka á tauma. Gunni borgaði í beinhörð- um peningum og tíndi peningana niður í línubalann sem hann var að beita. Ég labbaði út alsæll. Seinna lágu leiðir okkar saman þegar ég réð mig á fyrsta Arnar sem Skagstrendingur hf. átti. 180 tonna bátur. Gunni var þar stýri- maður. Í áhöfninni voru nokkuð margir uppivöðslusamir ungling- ar sem sjálfsagt var erfitt að stjórna en Gunni kunni lagið á okkur. Hann var ótrúlega laginn við að hafa ofan af fyrir okkur ef fiskirí var lítið. Mikið spilað á spil, sagðar sögur og farið í ýmiskonar ráðgátukeppnir. Man ég eftir að þegar við stóðum stundum í mik- illi aðgerð, þá lét hann okkur syngja við mikla kátínu. Dæmdi Gunni svo hvern og einn eftir frammistöðu sinni við sönginn. Eitt sinn var farið í siglingu með aflann til Grimsby í Englandi. Fannst mér merkilegt þegar Gunni bað mig að koma með sér upp í bæ til að kaupa gjafir handa börnunum sínum. Man ég að hann lagði mikið upp úr því að leikföngin væru þroskandi. Gunni var svo mikill félagi og var okkur fyrirmynd. Afar góður sjómaður. Upp úr 1970 voru margir að byggja hús og tókum við allir þátt í að hjálpa hver öðrum. Lenti ég stundum í steypuvinnu hjá Gunna þegar hann var að byggja húsið þeirra Báru við Bogabrautina. Seinna á lífsleiðinni áttum við Guðbjörg mín þess kost að fara í ferðalög með þeim Gunna og Báru á húsbílunum okkar ásamt fleiri vinum. Var þá gjarnan farið í leiki og mikið spilað á spil. Einn- ig svokallað kubbaspil. Var mað- ur stundum með strengi í hand- leggjunum í marga daga eftir viðureignina við Gunna. Gunni var svo mikill keppnismaður. Mætti segja margar sögur frá þessum ferðalögum. Gunni var heimsborgari og líka mikill sveitamaður í sér og hafði mikið gaman af hestum og átti marga góða hesta um ævina. Ég tel það hafa verið okkar happ og forrétt- indi að hafa fengið að kynnast Gunna og ég að hafa siglt með honum. Elsku Bára okkar og fjöl- skylda. Okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Finnur og Guðbjörg. ✝ HrafnhildurValdimars- dóttir fæddist 22. nóvember 1941. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu 13. júlí 2020. Móðir hennar var Víbekka H. Jóns- dóttir húsmóðir, f. 12.12. 1911, d. 5.6. 1990, og faðir hennar var Valdi- mar Ólafsson hjá rafveitunni, f. 9.1. 1904, d. 20.5. 1978. Bróðir hennar var Örn, f. 4.12. 1936, d. 5.8. 1986. Hrafnhildur giftist Jóni Ó. Ragnarssyni, f. 29.6. 1939, veitingamanni. Börn þeirra eru tvö: Júlíana, f. 30.11. 1968, og Valdimar, f. 26.6. 1965. Börn Júlíönu eru Jón Högni, f. 1.12. 2000, og Víbekka Íris Yrja, f. 2.1. 2010. Börn Valdi- mars eru Hrafnhildur Birta, f. 19.6. 1998, Hákon Rafn, f. 13.10. 2001, og Ragnar, f. 4.9. 2014. Hrafnhildur ólst upp á Leifsgötu og síðar í Með- alholti. Hún gekk í Austurbæjarskóla. Hrafnhildur fór í húsmæðraskóla til Danmerkur, í framhaldi af því lærði hún fótaað- gerðafræði hjá Dr. Scholls í Kaupmannahöfn. Hrafnhildur vann samhliða manni sínum við hótel- og veitingarekstur. Einnig við rekstur kvikmynd- hússins Regnbogans sem þau stofnuðu og ráku um langt skeið. Síðustu árin dvaldi Hrafn- hildur langtímum á Spáni ásamt manni sínum. Útför Hrafnhildar fór fram í kyrrþey að ósk hennar 23. júlí 2020. Elsku amma. Takk fyrir okk- ur og þá daga sem við fengum að njóta með þér á Spáni í sum- ar. Minning um örláta, hlýja og bestu ömmu lifir með okkur á hverjum deg. Við elskum þig og söknum. Jón Högni og Víbekka. Hrafnhildur frænka mín og vinkona varð bráðkvödd í svefni. Andlátið var mjög óvænt enda hafði hún alltaf verið frekar hraust. Við erum bræðradætur, feð- ur okkar yngstir af 14 systk- inum sem fæddust og ólust upp í Stóra-Skógi í Miðdölum í Dalasýslu. Valdimar var einu ári eldri en pabbi og Hrafn- hildur níu mánuðum eldri en ég. Við höfum því verið sam- ferða í bráðum 78 ár. Í æsku voru fjölskyldurnar mikið saman, t.d. alltaf á jólum. Eftir að pabbi keypti bíl var farið í margar ferðir saman um landið og ekki síst vestur í Dali. Öllum pakkað í bílinn og brun- að eftir þessum vondu vegum. Þá voru nú engar reglur um það hversu margir mættu vera í bílnum, eins gott. Við sungum venjulega mikið á leiðinni og aldrei kvörtuðu foreldrar okk- ar. Við frænkur gengum báðar í skátahreyfinguna, fórum í úti- legur og áttum skemmtilegar stundir. Hrafnhildur var alltaf hress og skemmtileg, mjög já- kvæð eins og foreldrar hennar. Við áttum báðar góða og skemmtilega æsku. Hrafnhildur fór í húsmæðra- skóla í Danmörku í eitt ár og svo að vinna í Kaupmannahöfn eftir það. Hún vann m.a. í mjög virðu- legri búð í höfuðborginni, sem heitir Dr. Scholls og er örugg- lega enn þá til, held ég. Ég heimsótti hana þangað eitt sumarið í hálfan mánuð og við áttum dásamlega daga. Í minn- ingunni var sól og 30 stiga hiti allan tímann. Við giftum okkur báðar sama árið og eignuðumst okkar fyrstu börn með tveggja mán- aða millibili. Síðan tók lífsbar- áttan við og samveran minnk- aði, en alltaf vorum við mjög tengdar og í góðu sambandi. Síðustu ár hefur Hrafnhildur dvalið mikið á Spáni, enda elsk- aði hún hitann og sólina. Hún var nýkomin þaðan þegar hún sofnaði svefninum langa og við höfðum ekki hist í marga mán- uði. Ég sá núna þegar ég fór að athuga gömul gögn, að þær mæðgur, Hrafnhildur og Vi- bekka, voru næstum því jafn- gamlar þegar þær létust. Örn bróðir hennar var aðeins 49 ára þegar hann féll frá. Það er því öll eldri kynslóð fjölskyldunnar farin. Þetta er mikið áfall fyrir fólkið hennar, og votta ég þeim Jóni, Valda, Júllu og börnum þeirra mína innilegustu samúð. Sjáumst síðar kæra frænka mín. Sigríður Gústafsdóttir. Hrafnhildur mín. Já, aldur er afstæður þegar kemur að vin- áttu, ég hélt að þú færir ekki á undan mér, sem er þér eldri. Í dag kveð ég góða vinkonu sem ég kynntist þegar ég fór að vinna hjá fjölskyldu manns hennar á Þingvöllum 1967 og var í þessari Þórskaffifjöl- skyldu í mörg ár því systkinin voru og ráku þetta fyrirtæki á mörgum stöðum í fleiri ár. Svo varst þú, Hrafnhildur mín, uppalin í Meðalholtinu og í sama húsi bjuggu foreldrar vin- konu minnar Ingerar sem flutti svo til Danmerkur með danska manninum sínum. Ég kom því oft í Meðalholtið og þá hitti ég oft foreldra þína – yndisleg hjón sem bæði eru látin nú. Þegar þú, Hrafnhildur mín, varst með börnin þín smá á Þingvöllum hafði ég gaman af að hitta þau og elta um. Valdi- mar var ekki stór þegar við fór- um í berjamó og hann var svo glaður að vera kominn með fleiri ber í fötuna en hann skildi ekki að þetta voru lambaspörð. Svo liðu árin og við hittumst alltaf af og til og eins og geng- ur og gerist eignaðist ég stóra fjölskyldu. Þegar börnin svo stækkuðu fór ég að fara til Spánar, Ali- cante, og þá voruð þið Jón þar líka. Ég og Siddi maðurinn minn fórum í margar góðar ferðir með ykkur því þið voruð svo góð að hafa okkur með. Við heimsóttum ykkur líka í Selju- gerðið þegar við komum í bæ- inn. Í vetur eða vor áður en plág- an kom hringdi Jón í mig og sagði: „Við hittumst í haust á Spáni!“ og ég hélt það nú. En svona getur lífið verið, enginn veit sína ævina fyrr en öll er og aldur hefur ekkert með það að gera. Ég votta Jóni, börnunum og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. (Þórunn Sigurðardóttir) Samúðarkveðjur, Bryndís Flosadóttir og Sigtryggur Benedikts (Biddý og Siddi). Hrafnhildur Valdimarsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Dalsbyggð 15, 210 Garðabær Sími 551 3485 • olip2409@gmail.com Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF GUÐRÍÐUR SIGURSTEINSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 15. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir. Útförinni verður streymt frá vef Akraneskirkju www.akraneskirkja.is Jón Sigurðsson Brynhildur Magnúsdóttir Jakob Sævar Sigurðsson Magnús H. Sigurðsson Sesselja Salóme Tómasdóttir og barnabörn Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA LÓA MARINÓSDÓTTIR, Holtsbúð 22, Garðabæ, lést á heimili sínu umvafin fjölskyldu sinni föstudaginn 13. nóvember. Anna Lóa verður jarðsungin frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. Útförinni verður streymt á vefslóðinni https://youtu.be/cYsNrg2T55o Einnig verður hægt að nálgast útsendingu á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellow. Fjölskylda Önnu Lóu vill koma á fram miklu þakklæti til alls starfsfólks Kvennadeildar Landspítala 21A Pálmi Sigurðsson Marinó Pálmason Guðbjörg Erlingsdóttir Steinar Pálmason Sigríður Birgisdóttir Sigurður Pálmason Valdís Harrysdóttir Lovísa Anna Pálmadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁRÓRA HELGADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 12. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 27. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. Útförinni verður streymt og verður hún aðgengileg á mbl.is/andlát. Árni Jóhannesson Laufey Valdimarsdóttir Sólveig Jóhannesdóttir Gunnar Árnason Sigurlaug M. Guðmundsd. Pétur Hjaltested Jóhannes Kristberg Árnason Helga Árnadóttir Árni Kristinn Gunnarsson Regína Diljá Jónsdóttir Hörður Gunnarsson Ólöf Önundardóttir Gunnar Snær Gunnarsson og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.