Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 21.11.2020, Qupperneq 56
30-50% Opið virka daga frá kl. 11 til 18 laugardaga frá kl. 11 til 17 sunnudaga frá 13 til 17 Suðurlandsbraut 54 Sími 568 9512 bláu húsin (við faxafen) Vetrarljóð Ragnheiðar Grön- dal verða flutt í streymi í fyrsta sinn í beinni útsend- ingu frá Langholtskirkju á morgun, sunnudag, kl. 20. „Ég er búin að bóka Lang- holtskirkju og með mér verða Guðmundur Pétursson og Ró- bert Þórhallsson á þessum einstaka streymisviðburði. Við munum byggja efnis- skrána á tónlistinni af diskn- um Vetrarljóðum ásamt öðru spennandi efni sem pass- ar með. Ég sjálf elska þessi ljóð og lög og finnst þau eiga erindi til fólks á öllum aldri. Vetrarljóð er líka mín mest selda plata frá árinu 2004 og ég veit að lögin eru fyrir löngu orðin ómissandi hluti af vetrarmánuðunum hjá mörgum. Ég vona að ég geti hlýjað okkur aðeins um hjartarætur á meðan tónleikahald er í sögulegu lág- marki,“ segir hún í tilkynningu. Miðaverð er kr. 2.400 og má frekari upplýsingar finna á facebooksíðu tón- leikanna með því að slá „Vetrarljóð“ inn í leitarglugga. Vetrarljóð Ragnheiðar í beinni LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 326. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudaginn körfu- knattleiksdeild ÍR til að greiða Sigurði Gunnari Þor- steinssyni tæpar tvær milljónir króna vegna vangold- inna launa. Sigurður var að vonum ánægður með niðurstöðuna er hann ræddi við Morgunblaðið. Ágrein- ingsmál sem þessi koma stundum upp en fara sjaldan fyrir almenna dómstóla og þá virðast íþróttamenn ekki alltaf þekkja rétt sinn nægilega vel. Þá er annað mál í aðsigi innan hreyfingarinnar en landsliðsmaður telur sig eiga inni milljónir hjá uppeldisfélaginu. »47 Körfuboltamaðurinn Sigurður Gunn- ar hafði betur gegn ÍR í dómsmáli ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jón Hjaltason, sagnfræðingur á Ak- ureyri, hefur skrifað sögu Káins, Kristjáns Níels Jónssonar, Fæddur til að fækka tárum KÁINN Ævi og ljóð, þar sem hann gerir lífi og ljóð- um kímniskáldsins ítarleg skil. Völu- spá útgáfa gefur bókina út. Fyrir um þremur árum var haldið málþing um Káin í Há- skólanum á Ak- ureyri og það var kveikjan að bók- inni. Jón segist lengi hafa haft áhuga á skáldinu og sögu Vestur- Íslendinga og ráðstefnan hafi gert útslagið. „Þá var að hrökkva eða stökkva og ég stökk,“ segir hann. „Eftir að hafa lesið ljóð Káins þóttist ég vita að þetta væri skemmtilegt sjónarhorn á sögu landa okkar fyrir vestan og svo reyndist vera.“ Bókin varpar skýru ljósi á söguna. Höfundur leitaði víða fanga, eins og sjá má í skrám yfir tilvísanir, heim- ildir og mannanöfn. Um form ljóðanna styðst hann að mestu við Vísnabók Káins, sem kom út 1988, en hefur leiðrétt og lagað gögn og fært til nútímahorfs, eins og fram kemur í eftirmálum. Káinn beygist venjulega Káinn um Káin frá Káin/Káni til Ká- ins, en Jón skrifar Káinn í þremur föllum og til Káins í eignarfalli og vitnar í formála í Tryggva Gíslason, fyrrverandi skólameistara Mennta- skólans á Akureyri, sér til stuðnings. Mokaði skít og drullu Kristján Níels Jónsson fæddist á Akureyri 1859. Hann flutti til Vest- urheims 1878, tók upp nafnið K.N. Júlíus og hefur alla tíð verið þekktur undir nafninu Káinn. Í fyrstu vann hann fyrir sér sem verkamaður í Winnipeg í Manitoba í Kanada, „var einn af þessum óþrifalegu verka- mönnum sem leirugir upp fyrir haus mokuðu skít og drullu allan liðlangan daginn eða kámugir af ryki og svita- blautir reistu hús og hlóðu skor- steina“ (bls. 123). Síðan flutti hann suður fyrir línu, eins og sagt er fyrir vestan, bjó fyrst í Duluth í Minne- sota og síðan í grennd við Eyford í Norður-Dakóta, þar sem hann and- aðist 1936, 77 ára. Ýmislegt kom Jóni á óvart við rit- un sögunnar, ekki síst hvað hann fann margt og mikið um Káin. „Hann var verkamaður alla ævi, lifði ekki neina stóratburði sjálfur, en stóð alltaf á hliðarlínunni og lagði í púkk- ið, þegar landar deildu.“ Sagan hafi þannig undið upp á sig, kvæðin séu ómetanlegar heimildir og því sé tölu- vert af þeim í bókinni. „Ég reyni að draga upp mynd af aðdraganda og afleiðingum kvæðanna og skemmti- legt er að velta fyrir sér hvað menn voru deilugjarnir. Landar okkar fyr- ir vestan fóru í hár saman út af öllum sköpuðum hlutum, jafnvel um Al- þingishátíðina 1930 blossuðu upp heitar deilur. Ætli þeir hafi samein- ast um mikið meira en styttuna af Jóni Sigurðssyni í Winnipeg og þó var deilt um hvar hún ætti að rísa. Og auðvitað gat Káinn ekki á sér set- ið að gera þessu skil á sinn kankvísa hátt.“ Jón kemst að þeirri niðurstöðu að Káinn hafi verið viðkvæmur og ein- lægur innst inni, þungur í skapi, hvorki glaður né margmáll hvunn- dags, en eftir að hafa fengið sér í aðra tána hafi hann verið allra manna glaðastur. „Með það í huga kom mér á óvart að hann bjó hálfa ævina í ríki, þar sem var vínbann, og ekki var linað á banninu fyrr en síð- asta árið sem hann lifði.“ Ljóð Káins spegla tíðarandann vestra Í Vesturheimi Káinn, Jónas Hall og Stephan G. Stephansson.  Yfirgripsmikil bók Jóns Hjaltasonar um kímniskáldið Káinn Jón Hjaltason skrifaði ævi- sögu kímniskáldsins Káins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.