Morgunblaðið - 23.11.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 3. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 276. tölublað 108. árgangur
EKKI ER ALLT
SEM SÝNIST
Í KRÚNUNNI
LIVERPOOL
MEÐ GÓÐAN
SIGUR
BAGGALÚTUR
MEÐ BLÆTI
FYRIR KÁIN
ENSKI BOLTINN 26 KVEÐJU SKILAÐ 29SJÓNVARP OG SAGA 14
Morgunblaðið/Eggert
Skólastarf Heimsfaraldurinn hefur haft
nokkur áhrif á skólastarf í landinu.
Skólar og skólastarf færir sig nú
sífellt nær teymiskennslu, þar sem
kennarar bera sameiginlega
ábyrgð á námshópi. Ingvi Hrannar
Ómarsson, grunnskólakennari og
kennsluráðgjafi í Skagafirði, segir í
samtali við Morgunblaðið í dag að
aukin samvinna innan og á milli
skóla hafi gjörbreytt starfsum-
hverfi kennara. Þá hafi aukin notk-
un upplýsingatækni hjálpað til við
að halda kennslu gangandi í heims-
faraldrinum. »6
Aukin samvinna
gjörbreytti starfs-
umhverfi kennara
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tvo af þremur
liðum í áætlun um að koma til móts við íþrótta-
og æskulýðsstarf í landinu. Þegar hefur verið
ákveðið að veita styrki upp á 970 milljónir
króna og í burðarliðnum eru einnig tekjufalls-
styrkir. Af þeim styrkjum sem þegar er búið að
samþykkja eru 470 milljónir króna sem eiga að
koma til móts við rekstrarútgjöld íþrótta-
félaga. Þá hefur einnig verið ákveðið að veita
íþróttafélögum stuðning vegna launaútgjalda,
sem Ásmundur Einar Daðason, barna- og fé-
lagsmálaráðherra, hefur þegar kynnt, upp á
500 milljónir króna að lágmarki.
Í vor voru 500 milljónir króna veittar til
æskulýðsfélaga. Í því tilviki úthlutaði ÍSÍ um
500 milljónum króna í almennar og sértækar
aðgerðir til æskulýðsfélaga.
Tekjufallsstyrkir stærsti hlutinn
Verið er að leggja lokahönd á útfærslu
tekjufallsstyrkja. Er þeim ætlað að koma til
móts við tekjufall sem hlotist hefur af Co-
vid-19-faraldrinum. Er þá m.a. vísað í sam-
komutakmarkanir sem hafa komið í veg fyrir
eðlilega starfsemi félaganna og tekjuöflun þar
með. Á það meðal annars við um miðasölu
vegna kappleikja svo dæmi sé nefnt.
Ekki liggur fyrir heildarupphæð vegna
tekjufallsstyrkjanna en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er um talsverða upphæð að
ræða. Lætur nærri að heildarupphæð launa-,
rekstrar- og tekjufallsstyrkjanna hlaupi á
nærri tveimur milljörðum króna. Í heild munu
því beinir styrkir til æskulýðs- og íþróttafélaga
nema um 2,5 milljörðum króna á árinu.
Á einnig við um íþróttir fullorðinna
Er því munurinn á aðgerðunum nú og þeim
sem voru í vor sá að styrkirnir ná ekki ein-
göngu utan um barna- og unglingastarf heldur
geta íþrótta- og æskulýðsfélög sem hafa starf-
semi í meistaraflokki, eða fyrir fullorðna, sótt
um styrki til að bæta sér upp tekjufall.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, segir að tilgangur styrkjanna sé
að standa vörð um íþróttastarf í landinu. „Hug-
myndafræðin gengur út á að gera heldur meira
en minna þannig að þegar við komum út úr
þessu þá verði íþróttafélögin í lagi,“ segir Lilja.
Milljarðar í íþróttastyrki
Til stendur að styrkja íþróttastarf með milljarða framlagi Styrkir vegna launa, reksturs og tekju-
falls Menntamálaráðherra vill að íþróttafélögin verði „í lagi“ þegar veirufaraldrinum lýkur
Morgunblaðið/Eggert
Íþróttir fullorðinna Gert er ráð fyrir því að fé-
lög með fullorðna iðkendur geti sótt um styrk. M Íþróttafélögin eru „gimsteinar“ »10
Þau Ania og husky-hundurinn Vikur skemmtu
sér vel á Pollinum á Akureyri í gær þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að garði.
Þótti veðrið enda ágætt til róðurs og hitastigið
einungis rétt undir frostmarki.
Náði hitinn á Akureyri að vísu að kíkja nokkr-
ar gráður yfir það á laugardaginn, en óvíst er að
sú gæfa muni halda áfram næstu daga. Gerir
langtímaspá þó ráð fyrir hita á fimmtudag.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Skemmtu sér við róður á Pollinum
Sigurður Ingi
Jóhannsson, for-
maður Fram-
sóknarflokksins,
sendi við-
skiptabönkum
skýr skilaboð í
ræðu sinni á mið-
stjórnarfundi
Framsóknar-
flokksins sem
fram fór um
helgina. Hann sagði vaxtahækkun
bankanna ekki til þess fallna að
hvetja til fjárfestingar. Þá benti
hann á að bankaskattur hefði verið
lækkaður hraðar en til stóð upp-
haflega. „Nú er komið að bönk-
unum að sýna á spilin.“ »11
Skilaboð til bank-
anna á miðstjórn-
arfundi Framsóknar
Sigurður Ingi
Jóhannsson