Morgunblaðið - 23.11.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það gefur augaleið að staða félags- ins er mjög alvarleg. Það hefur verið tekjulaust frá því í byrjun mars,“ seg- ir Björgólfur Jóhannsson, fyrrver- andi forstjóri Icelandair og eigandi 10% hlutar í Loft- leiðum Cabo Verde. Vísar hann í máli sínu til stöðu flugfélags- ins Cabo Verde Airlines (CVA) á Grænhöfðaeyjum. Loftleiðir Cabo Verde fara með 51% eignarhlut í flugfélaginu, en auk Björgólfs eru íslenskir einkafjárfestar og Loftleið- ir-Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, í eigendahópnum. Loftleiðir Icelandic fer með um 70% hlut í Loft- leiðum Cabo Verde og á félagið því alls um 36% hlut í CVA. Að sögn Björgólfs er staðan mjög snúin. Ríkisstjórnin á Grænhöfðaeyj- um fer með 39% hlut í CVA, en ný- lega var greint frá því að hún myndi koma að björgun félagsins með ein- hverjum hætti. „Ríkið hefur verið að aðstoða félagið eitthvað síðustu mán- uði. Þeir voru með svipaðar úrlausnir og á Íslandi hvað hlutdeild í launa- kostnaði varðar. Það var ekkert sem viðkom því að greiða skuldir félags- ins. Það er því alveg ljóst að fyrir- tækið er orðið mjög tætt vegna við- varandi tekjuleysis,“ segir Björgólfur sem kveðst ekki geta tjáð sig um frekari aðkomu ríkisins. „Það er ekkert sem hægt er að fjalla um, en auðvitað þarf ríkisstjórnin þar að huga að mörgum málum sem eru mjög snúin tengd þessu faraldri. Hins vegar er það svo að ferðaþjón- ustan er mjög mikilvægur þáttur í efnahag eyjanna. Við eigum í viðræð- um við ríkisstjórnina og þær munu halda áfram.“ Tækifærin eru enn til staðar Að sögn Björgólfs gekk fjárfest- ingin samkvæmt áætlun allt þar til faraldur kórónuveiru skall á. Í kjöl- farið hafi tekjufallið verið algjört. „Það er ekki komið ár frá fjárfestingu okkar þegar veiran fer af stað. Það gildir bara það sama um okkur og alla í fluggeiranum, vandræðin eru mikil. Eyjan hefur alveg verið lokuð þannig að ferðaþjónustufyrirtæki eru algjör- lega tekjulaus frá því í byrjun mars,“ segir Björgólfur sem þrátt fyrir það kveðst enn sjá mikil tækifæri í flugi á Grænhöfðaeyjum. „Ef við horfum lengra fram í tímann þá breytast ekki tækifærin í flugrekstri á eyjunum. Tækifærin eru til staðar, það hefur ekkert breyst. Það er bara spurning hvort við nýtum þau eða aðrir. Maður verður hins vegar að vera bjartsýnn og hafa trú á því að það sé hægt að snúa þessu. Við höldum því áfram að berjast.“ Spurður hvort til greina komi að bæta við fjárfestum í hópinn kveður Björgólfur já við. „Það er allt opið þegar staðan er svona.“ Alvarleg staða flugfélags- ins á Grænhöfðaeyjum  Cabo Verde Airlines hefur verið án tekna frá því í mars  Í viðræðum við ríkið Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugfélagið Cabo Verde Airlines hefur átt í rekstrarerfiðleikum að undanförnu og er staðan nú sögð alvarleg. Björgólfur Jóhannsson Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson á von á því að vera kominn í grunnbúðir K2 um miðjan desember, en svo muni hann hefja leiðangur upp á topp fjallsins í kringum 10. janúar. K2 er eini tind- ur heims, sem er yfir 8 þúsund metr- ar að hæð, sem ekki hefur verið klif- inn að vetri til. Ef John Snorra tekst ætlunarverkið verður hann sá fyrsti til þess að vinna það þrekvirki. K2 er 8.611 metrar að hæð og er annað hæsta fjall heims, næst á eftir Everest-fjalli sem er 237 metrum hærra. John Snorri varð fyrstur Ís- lendinga til að klífa tindinn Lhotse í Himalajafjallgarðinum, sem er 8.516 metra hár og fjórða hæsta fjall heims. Hann er einnig eini Íslend- ingurinn sem hefur klifið K2 og einn fárra í heiminum til þess enda K2 talið eitt erfiðasta fjall heims þegar klifur er annars vegar. Þetta er í annað sinn sem John Snorri reynir að klífa K2 að vetri til, en hann varð frá að hverfa í febrúar á þessu ári, m.a. vegna veðurs. guna@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjallganga John Snorri Sigurðar- son hyggst reyna aftur við K2. Gerir aðra atlögu að K2 að vetri til  Leggur af stað um miðjan janúar Oddur Þórðarson Guðrún Hálfdánardóttir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir of snemmt að lýsa yfir sigri í baráttunni við kórónu- veiruna, þrátt fyrir að smittölur fari lækkandi. Alls greindust fimm kór- ónuveirusmit innanlands í gær og voru allir sem greindust í sóttkví. Alls eru nú 205 í sóttkví og jafnmargir í einangrun en 749 eru í skimunar- sóttkví. Sagði Kári í gær að nú væri rétt að taka að ofan fyrir þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til og fagna virkni þeirra en þrátt fyrir góðan árangur vilji hann ekki aflétta neinum sótt- varnaaðgerðum fyrir jól. Kórónuveirusmit á hverja 100 þús- und íbúa eru hvergi í Evrópu færri en hér á landi, samkvæmt samantekt evrópsku sóttvarnastofnunarinnar. Ísland og Finnland eru einu ríkin með undir 100 smit á hverja 100 þúsund íbúa en hæst er hlutfallið í Lúxem- borg. Ferðamenn geti valið sóttkví til þess að virða hana ekki „Fyrir fáeinum vikum var hér nán- ast sama nýgengi og í Bandaríkjun- um. Sjáðu núna hvar við stöndum miðað við ástandið þar,“ sagði hann í samtali við mbl.is. Segist hann þó ósamþykkur þeim ákvörðunum sem teknar hafi verið á landamærunum; þau séu sá staður þar sem mesta varkárni þurfi að sýna. „Frá mínum bæjardyrum séð er óskynsamlegt að veita fólki val um að fara í sóttkví við komuna til landsins eða í skimun. Þeir sem hafa valið að fara í sóttkví hafa gjarnan valið svo vegna þess að þeir ætluðu einmitt að virða hana ekki,“ sagði Kári og bætti við að það að halda að það að „stinga pinna upp í nefið á einhverjum“ sé meiri frelsisskerðing en að skikka hann í sóttkví sé hlægilegt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðgerðir Kári Stefánsson telur of snemmt að hrósa sigri í faraldrinum. Telur of snemmt að lýsa yfir sigri  Kári telur rétt að fagna virkni aðgerð- anna Ísland með fæst smit hlutfallslega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.