Morgunblaðið - 23.11.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Kanaríeyjar eru öruggar og ferða-
vilji fólks er alveg greinilegur,“ segir
Þráinn Vigfússon, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar VITA.
„Við höldum okkar striki og verðum
með þrjár ferðir fyrir jólin; tvær til
Tenerife og eina til Gran Canaria, og
er mikill áhugi á ferðunum.“
Hópurinn sem ætlar út er á bilinu
350-400 manns, að sögn Þráins.
„Gjarnan er þetta fólk sem ætlaði
með okkur í vetur í ferðum sem var
aflýst þegar kórónuveiran var farin
af stað, en jólin eru alltaf vinsælust á
Kanaríeyjunum enda eini staðurinn í
Evrópu þar sem sumar og sól er á
þessum árstíma,“ segir Þráinn.
„Á Kanaríeyj-
um hefur tekist að
halda veirunni í
skefjum og staðan
er allt önnur en á
meginlandi Spán-
ar. Á eyjunum er
nú í sólarfríi mik-
ill fjöldi fólks víða
að úr Evrópu,
m.a. frá Norður-
löndunum. Allt
gengur vel með góðum smitvörnum,
grímuskyldu og fleiru slíku.“
Vikulegar ferðir í vor
Sem stendur liggja allar ferðir
VITA til Kanarí niðri, en jólaferðirn-
ar marka nýtt upphaf. „Eftir nýár og
fram á vor, þegar bóluefnið gegn
veirunni er vonandi komið, erum við
með vikulegar ferðir suður í sólina. Í
venjulegu árferði værum við hins
vegar með 3-4 flugferðir til Kanarí-
eyjanna á viku. Framboð sæta og
hótelrýma verður því ekki nema 30-
40% af því sem venjan er á þessum
árstíma. Við viljum fara rólega af
stað og sjá hvernig viðbrögðin verða.
Áhugi og eftirvænting fólks eru þó
greinileg,“ segir Þráinn.
Nýir áfangastaðir
Hann kveðst bjartsýnn á að fljótt
rætist úr þegar veiran hefur verið
brotin á bak aftur. Til vitnis um það
hafi VITA kynnt nú í vikunni þrjá
nýja áfangastaði á sólarsvæðum. Það
séu Lanzarote í Kanaríeyjaklasan-
um, Costa del Sol á Suður-Spáni og
Albufeira í Portúgal.
Þá mun VITA á nýju ári bjóða upp
á beint flug með Icelandair til grísku
eyjarinnar Krítar; áfangastaðar sem
Íslendingar þekkja vel. Góð viðbrögð
hafi verið við þessu nýmæli.
Ferðavilji landans greinilegur
Útlönd eru að opnast Kanaríeyjar koma sterkar inn Tenerife og Gran Canaria um jólin
VITA bindur vonir við vorferðirnar Góð viðbrögð við nýjum áfangastöðum sem kynntir hafa verið
Þráinn
Vigfússon
AFP
Kanaríeyjar Landinn þráir sólarlíf og senn verður fært að nýju í þá sælu.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Vinna fjárlaganefndar hefur gengið
vel en önnur umræða um fjárlög
frestast um allavega viku. Þetta
segir Willum Þór Þórsson, formaður
fjárlaganefndar og þingmaður
Framsóknarflokksins, í samtali við
Morgunblaðið. Hann segir að þær
aðgerðir sem ríkisstjórnin hafi boð-
að kalli á frekari vinnu áður en
hægt sé að ganga endanlega frá
nefndaráliti meirihluta.
Fjárheimildir fyrir aðgerðirnar
sem kynntar voru á föstudaginn
munu rata ýmist í breytingartillög-
ur við fjárlög eða fjáraukalög.
Gert var ráð fyrir annarri um-
ræðu um fjárlög samkvæmt starfs-
áætlun Alþingis á morgun. Willum
segir líklegt að hún fari fram um 2.
desember gangi allt eftir.
„Nefndin þarf að taka mið af því
sem ríkisstjórnin gerir og kann að
gera til viðbótar, þess vegna bíð-
um við,“ segir Willum Þór.
Ekki setið auðum höndum
Fjárlaganefnd mun ekki sitja
auðum höndum á meðan beðið er
eftir fjáraukafrumvarpi frá ráð-
herra.
Fyrir fjárlaganefnd liggur, auk
fjárlaga næsta árs, ný fjármálaáætl-
un fyrir 2021-2025, breytingar á lög-
um um opinber fjármál þar sem
lagðar eru til breytingar á skilyrði
um heildarjöfnuð og skuldahlutfall.
Þá liggur staðfesting ríkisreikings
einnig fyrir. Sem fyrr segir er einn-
ig von á fjáraukafrumvarpi sem
verður þá hið fimmta á þessu ári.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingarinnar og nefnd-
armaður í fjárlaganefnd, hefur
gagnrýnt frumvarpið og tiltekur
sérstaklega fjárfestingu í nýsköpun.
Hann hefur bent á að fjárfest-
ingarátak ríkisstjórnarinnar er 1%
af landsframleiðslu og að 85% starfa
sem við það skapast verði karla-
störf.
Þá segir Ágúst að aðhaldskrafa á
skóla og sjúkrahús sé ólíðandi á
þessum tímum. „Ég veit að það er
verið að bæta í en það er líka verið
að taka á móti,“ segir Ágúst. Nokk-
uð hefur verið rætt um aðhalds-
kröfu á Landspítalann að undan-
förnu og deilt um tilgang hennar
þegar verið er að auka fjárframlög.
Fjárlög frestast um viku
Formaður fjárlaganefndar segist horfa til 2. desember fyrir aðra umræðu um
fjárlög 2021 Aðgerðir ríkisstjórnar rata ýmist í fjárauka eða breytingartillögur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjárlög Willum Þór Þórsson,
formaður fjárlaganefndar.
Nú styttist í aðventuna og þarf þá að huga að
ýmsum verkum, eins og því að setja upp skauta-
svellið á Ingólfstorgi, en það hefur skemmt íbú-
um höfuðborgarsvæðisins undanfarin ár.
Þurfti m.a. að festa jólaseríur á topp skauta-
svellsins, enda lítið jólalegt án þeirra.
Morgunblaðið/Eggert
Skautasvell á Ingólfstorgi sett upp
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
GRO, þurfti að sinna fjórum útköll-
um um helgina, einu á laugardag og
þremur á sunnudaginn.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, sagði
í samtali við mbl.is að útköllin hefðu
verið óvenjumörg um helgina, en til
samanburðar fóru þyrlur Gæslunnar
aðeins í eitt útkall á undanförnum
tveimur vikum.
TF-GRO er eina þyrlan sem nú er
starfhæf, en vegna verkfalls flug-
virkja hjá ríkinu liggur fyrir að hún
verði óstarfhæf í miðri viku vegna
reglubundins viðhalds.
Sagði Ásgeir þann möguleika
einnig vera fyrir hendi að þyrlan
yrði ónothæf fyrr, ef hún kæmi biluð
úr útkalli. alexander@mbl.is
Fjögur
útköll um
helgina
Styttist í viðhald
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla TF-GRO þurfti að fara í
fjögur útköll og styttist í viðhald.