Morgunblaðið - 23.11.2020, Síða 6
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum á
föstudag að greiða umsækjendum
um alþjóðlega vernd viðbót við fast-
ar framfærslugreiðslur í desember.
Greiðslan nemur 10 þúsund krón-
um fyrir fullorðinn einstakling og 5
þúsund krónum fyrir barn.
Þetta kemur fram á vef Stjórnar-
ráðsins.
Samkvæmt reglugerð um útlend-
inga er gert ráð fyrir 8.000 krónum
í fæðispeninga á viku fyrir ein-
staklinga, 13.000 krónum fyrir hjón
eða sambúðarfólk og 5.000 krónum
fyrir barn, þó aldrei meira en
28.000 krónum fyrir hverja fjöl-
skyldu.
Þessu til viðbótar eiga umsækj-
endur rétt á vikulegum greiðslum
eftir fjögurra vikna dvöl hér á landi
sem nema 2.700 krónum fyrir full-
orðinn og 1.000 krónum fyrir barn.
Gert er ráð fyrir að greiðslan
komi af ráðstöfunarfé ríkisstjórn-
arinnar og má gera ráð fyrir að
heildarkostnaður verði um 4,5
milljónir miðað við fjölda umsækj-
enda 13. nóvember.
Umsækjendur fá
desemberviðbót
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þegar ég hóf kennaraferilinn
varð mér ljóst að tækin sem notuð
var innan skólanna var ólík því
sem nemendur höfðu utan þeirra.
Þetta bil þurfti að minnka svo nám
innan og utan skóla væri á svip-
uðum stað. Efling upplýs-
ingatækni var því lykilatriði,“ seg-
ir Ingvi Hrannar Ómarsson
grunnskólakennari og kennslu-
ráðgjafi í Skagafirði.
„Margir telja að inntak skóla-
starfs séu fjórir veggir, einn kenn-
ari og svo nemendur, ferköntuð
borð og stólar, alls tuttugu af
hverju. Þetta er breytt. Skólar
færa sig æ meira í átt að teym-
iskennslu þar sem kennarar bera
sameiginlega ábyrgð á námshópi.
Í samtali verður starfsþróun. Þeg-
ar þú fylgist með öðrum kenn-
urum og lærir af þeim gerast góð-
ir hlutir.“
Ótæmandi lindir
þekkingar og upplýsinga
Á dögunum veitti forseti Ís-
lands Íslensku menntaverðlaunin
sem eru í fjórum flokkum. Einn
þeirra eru hvatningarverðlaun
sem að þessu sinni komu í hlut
Ingva Hrannars og Utís-hópsins;
lærdómssamfélags brautryðjenda
í kennsluháttum þar sem miðlun
framsækinna hugmynda og upp-
lýsingatækni eru í aðalhlutverki
Utís-hópinn mynda kennarar
sem Ingvi Hrannar segir ein-
hverja þó mögnuðustu á landinu.
Sköpunargleði, kraftur, og sam-
vinna séu í fyrirrúmi starfs, sem
byggist á samtölum og skoð-
anaskiptum í hinum stafræna
heimi. Ráðstefnur í raunheimum
hafa svo haldnar allt frá árinu
2015 á Sauðárkróki að und-
anskildu því að í ár mættist fólk á
netinu.
„Aukin samvinna innan og á
milli skóla hefur gjörbreytt starfs-
umhverfi kennara. Fólk í stéttinni
er margt orðið svo óhrætt við að
deila reynslu sinni, þekkingu og
viðhorfum og slíkt leiðir af sér
áhugaverða framþróun. Þá hafa
kórónaveiran og yfirstandandi
ástand breytt ýmsum viðhorfum,“
segir Ingvi Hrannar og heldur
áfram.
„Af veirunni höfum við séð
hvað samskipti augliti til auglitis
eru mikilvægt og hvað skólar eru
mikilvægir félagseiningar í hverju
samfélagi. Starfið snýst um miklu
meira en að börn læri á bókina og
til þess að allt gangi upp nú á
tölvuöld þarf að beita upplýs-
ingatækni. Að breyta kennsluhátt-
um og innleiða tækni var ekki gert
til þess að undirbúa vegna heims-
heimsóknir og upplifa vonandi
tengsl en ekki einangrun í starfi.“
Í Skagafirði eru grunnskólar
á Sauðárkróki, Hofsósi og í
Varmahlíð. Áherslur í upplýsinga-
tæknimálum skólanna breyttust
um 2014 þegar ákveðið var að
endurskoða málin.
Eitt skólasamfélag
„Sveitarfélagið og samfélagið
allt hefur tekið forystu skólaþró-
un og í upplýsingatæknimálum á
landsvísu,“ segir Ingvi Hrannar.
„Stóra breytingin er samt sú að
með tækni nútímans er auðveld-
ara fyrir fólk að miðla sín á milli
upplýsingum og viðhorfum sem
skila þekkingu, reynslu og
tengslum. Loksins nú er hægt að
tala um eitt skólasamfélag á Ís-
landi og að tilheyra því eru for-
réttindi. Íslenskir kennarar og
skólastjórnendur eru stór-
stjörnur; árangur og framþróun í
starfinu leyfir slíka einkunagjöf.“
faldurs heldur til að undirbúa
nemendur fyrir framtíð þeirra en
ekki fortíð hinna fullorðnu. Á net-
inu eru ótæmandi lindir þekk-
ingar og upplýsinga, en það er
ekki sama hvernig við nálgumst
slíkar uppsprettur. Að kenna slíkt
er hlutverk skóla.“
Tæknin hjálpar í faraldri
Ingvi Hrannar segir að í skól-
um þar sem upplýsingatækni er
virkur þáttur í starfinu hafi reynst
mun auðveldara en annars staðar
að halda starfi áfram í heimsfar-
aldri. „Ég tala vissulega fyrir
teymiskennslu, samvinnu innan og
á milli skóla og aukinni tækni-
notkun. Fyrir þessu er mikill
áhugi meðal kennara sem deila og
miðla reynslu, aðstoða, hringja og
senda skilaboð sín á milli, fara í
Fékk hvatningu Íslensku menntaverðlaunanna fyrir nýjungar í skólastarfi í Skagafirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skólamaður Undirbúa nemendur fyrir þeirra framtíð en ekki fortíð
hinna fullorðnu, segir Ingvi Hrannar Ómarsson hér í viðtalinu.
Kennarar eru stórstjörnur
Ingvi Hrannar Ómarsson er
fæddur árið 1986. Hann út-
skrifaðist sem grunnskóla-
kennari árið 2010 og hóf það
sama ár störf sem kennari við
Árskóla á Sauðárkróki, sem er
heimabær hans. Hann aflaði
sér síðar meistaragráðu í
kennslufræðum, hönnun og
tækninotkun frá Stanford-
háskóla í Bandaríkjunum með
hæstu einkunn.
Nú starfar Ingvi Hrannar
sem kennsluráðgjafi í
skólaþróun, við nýsköpun og
upplýsingatækni hjá Sveitarfé-
laginu Skagafirði og þjónar öll-
um þremur grunnskólunum á
svæðinu.
Hver er hann?
Landsbankinn hf. býður til sölu, í heild eða að hluta, allt að 12,1% eign-
arhlut í Stoðum hf.
Stoðir hf. er fjárfestingarfélag í meirihlutaeigu einkafjárfesta.
Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna
og er öllum opið sem uppfylla skilyrði um að teljast hæfir fjárfestar.
Áhugasamir fjárfestar geta haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Lands-
bankans með því að senda tölvupóst á netfangið soluferli@landsbank-
inn.is. Þá má nálgast trúnaðaryfirlýsingu, eyðublað vegna hæfismats og
tilboðsskilmála á vef bankans, www.landsbankinn.is.
Fjárfestar sem undirritað hafa trúnaðaryfirlýsingu og uppfylla hæfis-
skilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu fá afhent kynningargögn um Stoðir
hf. og gera tilboð á grundvelli þeirra. Eingöngu verður tekið við til-
boðum á sérstöku tilboðsformi og samkvæmt þeim skilmálum sem þar
koma fram. Tilboðsformið má nálgast hjá umsjónaraðila söluferlisins,
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.
Tilboðsfrestur er til kl. 17.00, þriðjudaginn 8. desember 2020.
Opið söluferli á eignarhlut
Landsbankans í Stoðum
„Þetta var oft fjör. Ég lék meira við
systkinabörnin en systkinin. Börnin
þeirra eru á sama aldri og ég og
voru meira hjá mömmu og pabba,“
segir Sigþrúður Jónasdóttir sem er
yngst sextán barna Jónasar Ólafs-
sonar og Sigríðar Gústafsdóttur frá
Kjóastöðum í Biskupstungum.
Í dag fagnar Þórey Jónasdóttir
74 ára afmæli og ná systkinin sam-
tals árafjöldanum 1.100, en í sept-
ember 2014 urðu þau samanlagt
þúsund ára gömul. Yngst er Sig-
þrúður, 54 ára og elst er Sigríður,
sem fæddist árið 1941 og er orðin 79
ára.
„Eins og mamma segir þá voru
aðrir tímar og aðrar kröfur þá, þess
vegna gekk þetta. Ég á tvær stelp-
ur,“ segir Sigþrúður.
Nokkrir íslenskir systkinahópar
hafa náð svipuðum aldri og Kjóa-
staðafólkið og jafnvel komist yfir
þúsund árin en tímamót sem þessi
eru eigi að síður sjaldgæf. Systkinin
hafa haldið hópinn ágætlega og hitt-
ast reglulega. Eiga systkinin það
sameiginlegt að vera glaðlynd og
vinnusöm – systurnar eru almennt
góðar í höndunum og prjónar og
saumaskapur liggur vel fyrir þeim.
Bræðurnir eru hins vegar miklir
hagleiksmenn og hafa margir hverj-
ir verið í allskyns verkamannavinnu.
Ljósmynd/Aðsend
Systkinin Kjóastaðasystkinin eru 1.100 ára gömul samtals í dag.
Kjóastaðasystkinin
ná 1.100 ára aldri
Sextán systkini ná samanlagt 1.100 ár-
um í dag Þórey fagnar 75 ára afmæli
Jarðskjálfti að stærð 3,1 varð
austarlega í Kötluöskjunni klukk-
an átta mínútur yfir ellefu í gær-
morgun. Að sögn veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands hafði engin
skjálftavirkni mælst í kjölfarið í
gær. Þá er enginn gosórói á ná-
lægum svæðum.
Jarðskjálfti fannst
í Kötluöskjunni
Morgunblaðið/RAX
Mýrdalsjökull Jarðskjálfti að stærð 3,1
fannst í Kötlu í gær, en enginn gosórói.