Morgunblaðið - 23.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
Harðplast
• Viðhaldsfrítt, slitsterkt og
hitaþolið yfirborðsefni
• Háglans, matt og yrjótt áferð
• Auðvelt að þrífa og upplitast ekki
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Mánuður til jóla og jólastuðiðlæðist að. Jens Guð skrifar:
Á æskuheimili mínu, Hrafnhóli í
Hjaltadal, var hefð fyrir jólaboð-
um. Skipst var á jólaboðum við
næstu bæi. Það var gaman.
Veislukaffi og
veislumatur. Full-
orðna fólkið spilaði
bridge fram á nótt.
Yngri börn léku
sér saman. Þau
sem voru nær ung-
lingsaldri eða kom-
in á unglingsaldur
glugguðu í bækur eða hlustuðu á
músík.
Í einu slíku jólaboði 1969 barsvo við að í hús var komin
splunkuný plata með hljómsveit-
inni Trúbroti. Þetta var fyrsta
plata hljómsveitarinnar. Dúndur
góð og spennandi plata. Lokalag-
ið á henni heitir Afgangar (nafn-
ið hljómar ekki vel á færeysku.)
Þar er bróðir minn ávarpaður
með nafni - ásamt öllum hans
nöfnum. „Þarna ertu Stebbi minn
/ sanni og góði drengurinn. / Þú
ert eins og afi þinn / vænsti kall,
já, og besta skinn.“
Við bræður, ég 13 ára, lugum íafa að lagið væri um Stebba
bróður og afa. Afi, alltaf hrekk-
laus, trúði því. Hann fékk mikið
dálæti á laginu og allri plötunni.
Þó að hann þyrfti að staulast
kengboginn með erfiðismunum á
milli hæða þá lét hann sig ekki
muna um það til að hlusta enn
einu sinni á „lagið um okkur“. Í
jólaboðinu safnaðist unga fólkið
saman til að hlýða á Trúbrot.
Græjurnar voru þandar í í botn.
Bóndinn af næsta bæ hrópaði:
„Þvílíkur andskotans hávaði. Í
guðanna bænum lækkið í þessu
gargi!“
Afi kallaði á móti: „Nei, þettaer sko aldeilis ljómandi fínt.
Þetta er Trúbrot!““
Jens Guð
Afi góður
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Allir stjórnmálaflokkar sem eiga sæti á
Alþingi, og hafa þegar skilað ársreikn-
ingi, skiluðu hagnaði á síðasta ári.
Ríkisendurskoðun hefur nú farið yf-
ir ársreikninga þeirra flokka sem skil-
uðu ársreikningi fyrir lögbundinn
frest, en það gerðu allir flokkar nema
Píratar og Flokkur fólksins. Mestur
var hagnaður Samfylkingarinnar, 71
milljón króna, en hagnaður Sjálfstæð-
isflokks og Miðflokks litlu minni.
Minnstur var hagnaður Viðreisnar, 24
milljónir króna. Stærstur hluti tekna
stjórnmálaflokka kemur úr ríkissjóði,
en á fjárlögum ársins 2019 var 740
milljónum króna ráðstafað til stjórn-
málaflokka. Fjármununum er skipt
milli flokkanna í hlutfalli við atkvæða-
magn í síðustu alþingiskosningum.
Fær Sjálfstæðisflokkurinn því mest,
rúmar 178 milljónir króna, en minnst
fær Flokkur fólksins, rúmar 57 millj-
ónir. Framlög til stjórnmálaflokka
voru aukin um 127%, þ.e. rúmlega tvö-
földuð milli áranna 2017 og 2018, eftir
að allir þingflokkar, nema Píratar og
Flokkur fólksins, samþykktu tillögu
þess efnis. Voru flokkarnir þá margir
hverjir illa staddir eftir tvennar kosn-
ingar á einu ári með tilheyrandi dýrri
kosningabaráttu.
Allir flokkar á þingi skila hagnaði
Píratar og Flokkur fólksins skiluðu
ekki ársreikningi fyrir lögbundinn frest
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Stærstur hluti tekna stjórn-
málaflokka kemur úr ríkissjóði.
Ágústa K. Johnson,
fyrrverandi deildar-
stjóri í Seðlabanka Ís-
lands, lést á heimili
sínu laugardaginn 21.
nóvember. Hún var
fædd í Reykjavík 22.
mars 1939, dóttir
hjónanna Sigríðar
Kristinsdóttur Johnson
gjaldkera, f. 24. októ-
ber 1908, d. 11. júní
2009 og Karls Johnson
bankamanns, f. 12.
september 1905, d. 22.
júní 1939.
Ágústa lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla Íslands
vorið 1959 og hóf þá störf í Lands-
banka Íslands. Við stofnun Seðla-
banka Íslands fluttist hún yfir til
Seðlabankans og var í
hópi fyrstu starfs-
manna hans við stofn-
un, ritari hjá nýskip-
uðum bankastjóra.
Hún vann hjá Seðla-
banka Íslands nær all-
an sinn starfsferil eða í
tæpa hálfa öld, lengst
af sem deildarstjóri
skrifstofu bankastjóra.
Ágústa var fé-
lagslynd, trúuð og
kirkjurækin og tók
virkan þátt í safn-
aðarstarfi Dómkirkj-
unnar. Hún var í stjórn
Kirkjunefndar kvenna Dómkirkj-
unnar. Hún var ógift og barnlaus en
eftirlifandi bróðir hennar er Krist-
inn Johnson, fyrrv. skrifstofumaður.
Andlát
Ágústa K. Johnson
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is