Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkj-
anna, hyggst tilkynna um fyrstu ráð-
herraefni sín á morgun, þriðjudag,
þrátt fyrir að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hafi enn ekki viðurkennt
ósigur sinn í forsetakosningunum, sem
fram fóru 3. nóvember síðastliðinn.
Ron Klain, sem þegar hefur verið
skipaður sem verðandi starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, vildi ekki greina
frá því við ABC-fréttastofuna í gær
hvaða ráðuneyti myndu fá útnefningar
í fyrstu atrennu, en Biden hefur þegar
lýst því yfir að hann hafi fundið verð-
andi fjármálaráðherra sinn. Biden
þykir hins vegar vera í þröngri stöðu
varðandi útnefningar, þar sem öld-
ungadeildin þarf að samþykkja allar
skipanir forsetans í svo há embætti, en
þar verða repúblikanar í meirihluta
allavega fram til 5. janúar næstkom-
andi.
Harðorður úrskurður
Viðleitni Trumps til þess að snúa
niðurstöðum kosninganna sér í hag
varð fyrir áfalli á laugardaginn þegar
alríkisdómari í Pennsylvaníu vísaði frá
kröfu framboðs hans um að öll póst-
atkvæði í ríkinu yrðu ógilt, eða að öðr-
um kosti að ríkisþinginu yrði falið að
útnefna kjörmenn þess.
Sagði dómarinn, repúblikani sem
skipaður var í forsetatíð Baracks
Obama, í harðorðum úrskurði sínum
að hann vissi ekki til þess að svo um-
fangsmikil beiðni um ógildingu kosn-
inga hefði áður verið sett fram, og
bætti við að þegar svo væri, hefði hann
átt von á því að slíkri kröfu fylgdu svo
óyggjandi sannanir um svik, að ekki
yrði hjá því komist að ógilda kosning-
arnar.
Þess í stað hefðu lögfræðingar
framboðsins sett fram „útteygð laga-
rök sem ekki stæðust skoðun og ásak-
anir byggðar á ágiskunum“. Sagði
dómarinn það ekki standast stjórnar-
skrá að svipta alla kjósendur sjötta
fjölmennasta ríkis Bandaríkjanna
kosningarétti sínum á ekki sterkari
grundvelli. Er gert ráð fyrir að Penn-
sylvaníuríki muni því staðfesta niður-
stöðu kosninganna í ríkinu í dag, en Bi-
den leiðir þar nú með um það bil 75.000
atkvæðum.
Fleiri repúblikanar snúast
Flestir repúblikanar hafa til þessa
ekki viljað skorast undan merkjum
Trumps, og varið rétt hans til þess að
fara dómstólaleiðina til þess að leið-
rétta meint svik í kosningunum. Eftir
úrskurðinn í Pennsylvaníu hafa hins
vegar fleiri framámenn í flokknum við-
urkennt að Biden hafi haft betur í bar-
áttunni um Hvíta húsið, eða í það
minnsta kallað eftir því að valdaskiptin
verði hafin með formlegum hætti.
Chris Christie, fyrrverandi ríkis-
stjóri New Jersey, sem aðstoðaði
framboð Trumps bæði 2016 og í ár,
sagði við ABC-fréttastofuna að lög-
fræðiteymi forsetans væri „þjóðar-
skömm“ og að kominn væri tími til að
láta Biden fá það fjármagn sem verð-
andi forseta ber samkvæmt lögum til
að aðstoða við valdaskiptin.
Larry Hogan, ríkisstjóri repúblik-
ana í Maryland, sagði Trump hafa látið
Bandaríkin líta út eins og bananalýð-
veldi, og hvatti hann til að leggja árar í
bát. Kevin Cramer, öldungadeildar-
þingmaður Norður-Dakóta, varði hins
vegar rétt Trumps til að sækja mál sitt
áfram, en bætti við að betra væri ef Bi-
den fengi meira en einn dag til að und-
irbúa sig, ef svo færi að hann yrði for-
seti á endanum.
AFP
Kosningar Stuðningsmenn forset-
ans eru hvergi af baki dottnir.
Hvattur til að leggja árar í bát
Biden hyggst útnefna í fyrstu ráðherrastöður sínar á morgun Úrskurður alríkisdómara í Pennsyl-
vaníuríki þykir áfall fyrir málstað Trumps Christie segir lögfræðingateymi Trumps „þjóðarskömm“
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tvö fórnarlömb eldgossins Vesúví-
usarfjalli í Pompei fyrir nærri tvö
þúsund árum voru nýlega grafin úr
jörðu. Ítalskir fornleifafræðingar til-
kynntu um fundinn á laugardag.
Telja þeir að um sé að ræða ungan
þræl og velmegandi eldri mann um
fertugt sem talinn er eigandi þræls-
ins. Er matið byggt á rannsóknum á
þeim klæðum sem þeir báru þegar
þessir voveiflegu atburðir urðu. Báð-
ir lágu þeir á bakinu við andlátið ef
marka má stöðu líkamsleifanna.
Pompei var ein ríkasta borg róm-
verska keisaradæmisins en eins og
frægt er orðið féll þykkt lag af ösku
yfir borgina eftir eldgosið úr Vesú-
víusi. Hafa því líkamsleifar þeirra
sem létust í gosinu varðveist vel.
Rústir Pompei eru vinsælasti
áfangastaður ferðamanna til að
heimsækja á Ítalíu á eftir hringleika-
húsinu í Róm.
Fundu líkams-
leifar í Pompei
Leifarnar af þræl og eiganda hans
AFP
Pompei Líkamsleifar tveggja manna fundust í rústum Pompei.
Heiko Maas,
utan-
ríkisráðherra
Þýskalands,
gagnrýnir mót-
mælendur sótt-
varnaaðgerða í
landinu harðlega
fyrir að líkja
sjálfum sér við
fórnarlömb nas-
ista í síðari
heimsstyrjöldinni. Sakaði hann
mótmælendurna um að gera lítið
úr voðaverkum helfararinnar og
því hugrekki sem andspyrnumenn
í heimsstyrjöldinni hefðu sýnt. Ma-
as lét ummælin falla eftir að ung
kona steig á svið á mótmælum í
borginni Hanover í gær og sagði
að sér liði „alveg eins og Sophie
Scholl“ en Scholl var háskólanemi
sem nasistar tóku af lífi árið 1943
fyrir þátt sinn í andspyrnuhreyf-
ingunni.
MÓTMÆLI Í ÞÝSKALANDI
Ráðherra gagnrýnir
mótmælendur
Heiko
Maas
Mikill fjöldi mótmælenda tók sig
saman og vann skemmdarverk á
þinghúsinu í Gvatemala á laugardag-
inn og kveikti í því. Mótmæli brutust
út við afgreiðslu fjárlaga og kalla
mótmælendur eftir afsögn forseta
Gvatemala, Alejandro Giammattei.
Meira en 20 manns voru handteknir
vegna mótmælanna og beitti lög-
reglan táragasi til að leysa þau upp.
Þá voru fleiri en 50 sendir á sjúkra-
hús eftir átökin.
Giammattei hefur heitið því að
mótmælendur sem staðnir hafa verið
að skemmdarverkum verði sóttir til
saka. Óánægja hefur ríkt með störf
Giammattei og hann talinn skorta
getu til takast á við Covid-farald-
urinn og afleiðingar hans. Þingið
samþykkti nýlega stærstu fjárlög í
sögu Gvatemala en þau þykja hygla
ríkum í landi þar sem mikil fátækt er. AFP
Þinghús
Gvatemala
í logum