Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert fær um að afla þér tekna
með því einu að opna munninn. Fólk tekur
mikið mark á ráðum þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Frelsi þitt skiptir þig miklu máli og í
dag hefurðu þörf fyrir að sinna þínum eig-
in málum. Fyrir liðsheildina væri ekkert
betra en að þú létir flakka nokkra góða
brandara.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert svo heillandi og sannfær-
andi þessa dagana að þú getur selt næst-
um hverjum sem er hvað sem er. Vertu
uppörvandi í samskiptum við aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér gengur allt í haginn og aðrir
undrast velgengni þína. Njóttu velgengn-
innar en láttu hana ekki stíga þér til höf-
uðs.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það freistar þín mjög að reyna eitt-
hvað nýtt svo þú skalt fyrir alla muni láta
það eftir þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Leggðu þig fram um að vera sér-
staklega skýr í öllum samskiptum þínum
við aðra. Tiltekt og skipulagning reynast
besta hugleiðslan í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þeir hlutir sem þú hefur látið þig
dreyma um svo lengi, eru ekki eins fjar-
lægir og þú vilt vera láta.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki láta aðra þagga niður í
þér, þegar þú vilt tjá tilfinningar þínar í
orðum. Reyndu samt ekki að gera allt upp
á eigin spýtur í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einbeittu þér að því sem þú
ert að fást við og leyfðu engum að trufla
þig á meðan. Komdu jafnvægi á þetta svo
þú getir komið einhverju í verk.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur verið flókið að tjá sig.
En innst inni veistu hvað þér er fyrir bestu
og þá er bara að sýna kjark og kjósa rétt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sinntu endurbótum á heimilinu
eða liðkaðu fyrir samskiptum á milli fjöl-
skyldumeðlima. Hikaðu ekki við að tala við
yfirmann þinn eða einhvern sem er í for-
svari.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú skiptir öllu máli að halda þétt
utan um budduna ef ekki á illa að fara.
Sýndu öðrum ástúð og vinarhót og þá
muntu fá það sama á móti.
inn til Raunvísindastofnunar HÍ.
Þetta var rannsóknarstaða með
kennsluskyldu. Árið 1985 varð Jak-
ob prófessor í kennilegri eðlisfræði
við HÍ og gegndi hann þeirri stöðu
til ársins 1996. „Ég kenndi mjög
mikið fyrstu árin, fyrst í stærð-
fræðiskor og svo í eðlisfræðiskor,
en ég var alltaf í miklu sambandi
við Þýskaland og kollega mína í
faginu svo ég einangraðist ekkert
hér heima.“ Það má segja að Jakob
Göttingen og segir Jakob að það
hafi verið haft á orði meðal kenn-
ara hvað Íslendingarnir væru vel
undirbúnir undir háskólanámið.
Árið 1968 kynntist Jakob eigin-
konu sinni, Guðrúnu Kvaran, og
giftu þau sig haustið 1969. Þau
bjuggu í Göttingen til loka ársins
1977 þar sem Jakob hafði fengið
stöðu að loknu doktorsprófi. Þegar
Jakob og Guðrún komu heim með
nýfæddan son sinn var Jakob ráð-
J
akob Yngvason fæddist í
Reykjavík 23. nóvember
1945. Hann ólst upp í
Vesturbænum og gekk í
Melaskóla, Hagaskóla og
Gagnfræðaskólann við Vonarstræti
og síðan í Menntaskólann í Reykja-
vík þaðan sem hann lauk stúdents-
prófi árið 1964. Jakob vissi snemma
hvert hugurinn stefndi.
„Ég fékk áhuga á eðlisfræði
strax sem unglingur, eiginlega í
barnaskóla, og ætlaði alltaf að
verða vísindamaður. Eitt sem hafði
mikil áhrif á mig var barnabókin
Ferðalangar eftir Helga Hálfdan-
arson, sem var gefin út árið 1939.
Sagan er um tvö börn sem eru að
velta fyrir sér úr hverju eldurinn
sé gerður. Þeim birtist þá lítill
dvergur sem fer með þau út í geim
og sýnir þeim tunglið, sólkerfið og
stjörnuþokur. Næsta dag fer hann
með þau inn í efnisheiminn og hann
bendir þeim á sambærileika atóm-
anna og sólkerfisins. Þessa bók
eignaðist ég vegna þess að öðru
barni úr fjölskyldunni hafði fundist
hún afspyrnu leiðinleg, en fyrir
mér var hún algjör opinberun.“
Jakob segir að önnur bók, Undur
veraldar, sem gefin var út í kring-
um 1950 með þýddum greinum um
alls konar fyrirbæri í náttúrunni,
hafi líka haft áhrif á sig og hann
hafi verið heillaður af heimi vís-
indanna.
Á þessum árum var ekki hægt að
læra raunvísindi við Háskóla Ís-
lands nema í verkfræðideildinni, því
það var ekki fyrr en sex árum síðar
sem verk- og raunvísindadeildin
var stofnuð við skólann. Þeir sem
vildu læra eðlis- og stærðfræði á
háskólastigi þurftu því að sækja sér
menntunina erlendis. Jakob fór
strax um haustið eftir mennta-
skólann til Göttingen í Þýskalandi
og lauk þar diplom-prófi 1969 og
doktorsprófi árið 1973. „Það var af-
skaplega gott að vera í Göttingen.
Borgin er lítil háskólaborg, u.þ.b.
100 þúsund íbúar og sennilega 30
þúsund stúdentar. Það var mjög
þekktur háskóli þarna frá fornu
fari, sérstaklega í stærðfræði.“
Margir Íslendingar hafa lært í
hafi þá verið kominn með annan
fótinn til útlanda, því að í rann-
sóknarleyfum var hann reglulega í
Þýskalandi og fleiri löndum. Hann
hafði þó aldrei hugsað sér að flytja
aftur utan, enda Guðrún prófessor
í íslenskum fræðum og börnin orð-
in tvö. En stundum koma tækifæri
sem erfitt er að sleppa. „Þannig
var að í Vínarborg fór mjög þekkt-
ur eðlisfræðingur á eftirlaun árið
1995. Auk þess að auglýsa stöðuna
var leitað persónulega til mögu-
legra kandídata, og ég var einn
þeirra sem leitað var til. Ég hugs-
aði með mér að mér yrði örugglega
boðið til Vínarborgar til að halda
kynningarfyrirlestur um störf mín
og að það gæti nú verið gaman að
koma þangað, enda hafði ég þá að-
eins rétt tyllt fæti þar áður og
langaði að sjá meira af borginni.
Mér datt ekki í hug að ég fengi
starfið, enda voru 70 kandídatar
um stöðuna. Svo gerist það að mér
er boðin staðan og ég hugsaði að
þetta væri tækifæri sem byðist að-
eins einu sinni á ævinni.“
Jakob er búinn að vera prófessor
í stærðfræðilegri eðlifræði við Há-
skólann í Vínarborg frá árinu 1996
og emeritus frá því í október 2014.
Hann var forstöðumaður Erwin
Schrödinger stofnunarinnar í
stærðfræðilegri eðlisfræði 1998-
2011 og í stjórn sömu stofnunar
2011-2014. Hann hefur verið forseti
Erwin Schrödinger-félagsins í Vín-
arborg frá 2017. „Vín er alveg stór-
kostleg menningarborg og stutt að
fara í allar áttir í Evrópu. Mér hef-
ur þótt mikill fengur að eiga hana
sem bækistöð á meginlandinu.“
Guðrún flutti ekki með til Vínar-
borgar og þau hafa verið í nokkurs
konar fjarbúð í nær aldarfjórðung,
eins og ekki er óalgengt meðal
fræðimanna erlendis. „Við höfum
mikla ánægju af því að fara í
gönguferðir um Ísland á sumrin,
en göngum ekki lengur með allt á
bakinu, eins og við gerðum í yfir 20
ár. En við höfum líka farið í marg-
ar skoðanaferðir til fjarlægra landa
og farið í gönguferðir í Ölpunum
og víðar.“
Jakob er vel þekktur í vísinda-
Jakob Yngvason prófessor emeritus – 75 ára
Ein bók getur breytt miklu
Hjónin Jakob og Guðrún með dótturdóttur sinni, Ylfu Björk Andradóttur.
Gönguferð Hér eru Guðrún, sonarsonurinn Einar Hugi og Jakob við norð-
urhlið Alpanna í hinum fræga Dólómítafjallgarði Norður-Ítalíu árið 2017.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Amelía Ýr Stefánsdóttir
fæddist 16. janúar 2020 kl. 12:49 á
fæðingardeild Landspítalans í Reykja-
vík. Hún vó 4.000 g og var 51 cm á
lengd. Foreldrar Amelíu eru Elva Björk
Kristjánsdóttir og Stefán Örn Krist-
jánsson.
Amelía á þrjú systkini: Andra Frey (14
ára), Anítu Sól (níu ára) og Alexander
Kristján (fjögurra ára).
Nýr borgari
30 ára Samúel ólst
upp á Húsavík en
býr núna á Akureyri.
Hann er húsasmiður
og vinnur hjá Lækj-
arseli. Helstu áhuga-
mál hans eru skot-
veiði, almenn útivera
og samvera með fjölskyldunni.
Maki: Elísa Rún Gunnarsdóttir, f.
1989, vinnur í verslun og er náms-
maður.
Börn: Guðjón Leó M. Þórdísarson, f.
2012 og Júlía Fanney Samúelsdóttir, f.
2010.
Foreldrar: Sigrún Jóna Samúelsdóttir,
f. 1972 og Sveinn Aðalsteinsson, f.
1968, húsasmiður hjá Slippnum á Ak-
ureyri.
Samúel Jón
Sveinsson
30 ára Sigurrós Harpa
er fædd og uppalin á
Akranesi og býr þar
enn og er kölluð Harpa
af öllum sem þekkja
hana. Harpa vinnur í
Grundaskóla á Akra-
nesi. Helstu áhugamál
hennar eru hannyrðir og samvera með
fjölskyldu og vinum.
Maki: Ingibjörn Þórarinn Jónsson, f.
1985, rafvirki, sem vinnur í Veitum í
Reykjavík og keyrir á milli.
Börn: Vigdís Bríet, f. 2012, og Ólafur
Bragi, f. 2018.
Foreldrar: Ásta María Einarsdóttir, f.
1959, húsmóðir og Sigurður Björn Þórð-
arson, f. 1957, vélvirki. Þau búa á Akra-
nesi.
Sigurrós Harpa
Sigurðardóttir