Morgunblaðið - 23.11.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri
samfélaginu og hefur stundað
rannsóknir út um allan heim, í
Leipzig, París, Göttingen, Münch-
en, Róm, Princeton, Kaupmanna-
höfn, Hamborg, Marseille, Singa-
púr og Grenoble. Hann er
höfundur að á annað hundrað vís-
indaritgerða og bóka á ýmsum
sviðum kennilegrar eðlisfræði,
einkum um skammtasviðsfræði,
varmafræði og skammtafræði fjöl-
eindakerfa, og hefur hlotið marg-
víslegar viðurkenningar fyrir störf
sín í þágu vísinda.
Fjölskylda
Eiginkona Jakobs er Guðrún
Kvaran, f. 21.7. 1943, prófessor em-
eritus í íslenskum fræðum, lengi
starfsmaður og síðar forstöðumað-
ur Orðabókar HÍ. Foreldrar henn-
ar eru Böðvar Kvaran, fulltrúi í
Reykjavík, f. 17.3. 1919, d. 16.9.
2002 og Guðrún Kvaran húsfrú, f.
15.3. 1921, d. 15.3. 2008. Börn Jak-
obs og Guðrúnar eru 1) Böðvar
Yngvi, f. 12.2. 1977, heimspekingur
og listamaður í Reykjavík. Sam-
býliskona a) Marta Guðrún Jó-
hannesdóttir, kennari og skóla-
stjóri, f. 1978; þau slitu sambúð, b)
Kristín Lilja Gunnsteinsdóttir mód-
el, f. 1990, d. 14. júlí 2020. 2) Stein-
unn Helga, f. 26. apríl 1981, kynn-
ingarstjóri UNICEF á Íslandi,
Reykjavík. Sambýlismaður Andri
Már Arnlaugsson, f. 1982, málari.
Barnabörn: 1) Einar Hugi Böðv-
arsson, f. 9.8. 1999, nemandi í
Listaháskóla Íslands; 2) Ylfa Björk
Andradóttir, f. 27.8. 2019. Systir
Jakobs er Helga Björg Yngvadótt-
ir, f. 6.7. 1943, áður kennari á Ak-
ureyri, nú búsett í Reykjavík.
Foreldrar Jakobs eru Yngvi
Pálsson, f. 24.5. 1909, d. 2.7. 1980,
fulltrúi í Reykjavík, og eiginkona
hans Katrín J. Smári, f. 22.7. 1911,
d. 13.1. 2010, kennari, varaþing-
maður og læknaritari í Reykjavík.
Jakob Yngvason
Björg Sigurðardóttir
húsfreyja í Álfsnesi, síðar í Reykjavík
Þorkell Ingjaldsson
bóndi í Álfsnesi á Kjalarnesi
Helga Þ. Smári
kjólameistari, Reykjavík
Jakob Jóh. Smári
máfræðingur, kennari og skáld, Reykjavík
Katrín J. Smári
kennari, varaþingmaður,
læknaritari, Reykjavík
Steinunn Jakobsdóttir
húsfreyja á Sauðafelli,
síðar í Reykjavík
Jóhannes Lárus Lynge Jóhannesson
prestur á Kvennabrekku og
málfræðingur, síðar í Reykjavík
Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja á Hyrningsstöðum í Reykhólasveit
Pétur Pétursson
bóndi á Hyrningsstöðum
í Reykhólasveit
Björg Pétursdóttir
ljósmóðir í Flatey á Breiðafirði, síðar í Reykjavík
Páll Andrés Sigurður Nikulásson
verslunarmaður í Flatey á Breiðafirði, síðar í Reykjavík
Anna Sigríður Pálsdóttir
vinnukona, A.-Húnavatnssýslu
Nikulás Guðmundsson
vinnumaður A.-Húnavatnssýslu
Úr frændgarði Jakobs Yngvasonar
Yngvi Pálsson
fulltrúi, Reykjavík
„ÉG ANDMÆLI - ÁSAKANIRNAR ERU
SETTAR FRAM AF HÖFUÐLAUSUM
HULDUHER.”
„HÉR STENDUR AÐ ÞÚ EIGIR ÞAÐ TIL AÐ
VERA OF UNDIRGEFINN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá sér sneið af
heimabökuðu kökunni
hennar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ELSKA ÞAÐ
ÞEGAR JÓN
SEFUR
HANN ER SVO
FRIÐSÆLL…
OG
VARNARLAUS
SKIPIÐ ÞITT ER TILBÚIÐ!
ÉG LÆT ÞIG FÁ TÓLF
BJÖRGUNARVESTI Í
KAUPBÆTI ÞVÍ ÞAÐ ER
ALDREI AÐ VITA!
ALDREI
AÐ VITA
HVAÐ?
ÞAÐ ER ERFITT AÐ META ÞAÐ HVORT NÝI
GAURINN VITI HVAÐ HANN ER AÐ GERA!
SLIPPUR
Góður er hver genginn. Í Blöndusegir svo: „Af því að margt
ófrægilegt hafði verið sagt og ort
um Magnús konferensráð (Steph-
ensen, 1762-1833) í hans lifanda lífi,
þá voru, þegar lofsamleg erfiljóð
tóku að berast eptir hann dáinn,
gerðar þessar vísur:
Fyrst menn létu hann lífs um bil
líkjast döfli snauðum,
gera munu þeir, get ég til,
guð úr honum dauðum.
Löstunum á oss logið er
lífs á meðan varir töf,
en dygðunum, þegar dánir vér
dysjaðir hvílum lágt í gröf.“
Torfi stúdent Eggerts (d. 1836)
orti líklega þegar hann var að læra
undir skóla í Odda:
Vestra dalir, fjara fjöll,
fljót, grös, klettar, steinar
gleði veita hugar höll,
hér sem austrið meinar.
Sigluvíkur-Sveinn var dóttur-
sonur Árna Eyjafjarðarskálds.
Hann var einn af liprustu hagyrð-
ingum í Eyjafirði á síðari hluta 19.
aldar og kastaði oft fram gaman-
vísum:
Það er ætíð meining mín
mestan bæti trega
brúður mæt og brennivín
brúkað gætilega.
Hann var spurður um efnahag
sinn:
Ekki bíður svarið Sveins,
síst eru hagir duldir.
Ég á ekki neitt til neins
nema börn og skuldir.
Ein beinakerlingarvísa sakar
ekki:
Kerling ein á kletti sat
Kötlusands á stræti,
vísað mönnum veginn gat
var þó kyrr í sæti.
Helgi R. Einarsson yrkir „Ábótin
(n):
„Ábótin er til bóta,
iðrumst en fyrst er að njóta,“
kvað ábótinn aldni,
ástríðuhaldni
og færði sig því næst til fóta.
Hér koma hestavísur. Stefán frá
Hvítadal orti:
Gráni fljót og geymi sig,
gráni rót og fylli,
gráni hótin – gleðji þig
Grána fótasnilli.
Óvíst um höfund:
Mesta gull í myrkri og ám
mjúkt á lullar grundum.
Einatt sullast eg á Glám
og hálffullur stundum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sitthvað gamalt og nýtt