Morgunblaðið - 23.11.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
Elísabet Gunnarsdóttir bætti fjöður
í hatt sinn í þjálfuninni í gær þegar
hún var útnefnd þjálfari ársins í
sænsku knattspyrnunni. Er þetta í
annað sinn sem Elísabetu hlotnast
þessi heiður en hún varð einnig fyr-
ir valinu árið 2017.
Kristianstad hafnaði í 3. sæti
undir stjórn Elísabetar á nýaf-
stöðnu tímabili. Er það besti árang-
ur í sögu liðsins og mun það leika í
Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti
á næsta ári. Glódís Perla Viggós-
dóttir, hjá Rosengård, var tilnefnd
sem besti varnarmaðurinn.
Elísabet heiðr-
uð í annað sinn
Ljósmynd/@_OBOSDamallsv
Svíþjóð Elísabet Gunnarsdóttir nýt-
ur mikillar virðingar í Svíþjóð.
Seltirningurinn Viggó Kristjánsson
er kominn í hóp þeirra Íslendinga
sem skorað hafa 10 mörk eða fleiri í
leik í efstu deild þýska handboltans.
Viggó skoraði ellefu mörk gegn
stórliði Flensburg á útivelli í gær.
Það dugði ekki Stuttgart til sigurs
því Flensburg sigraði 34.30.
Viggó skoraði mörkin 11 úr 16
skottilraunum og var auk þess með
fjórar stoðsendingar.
Viggó hefur skorað 71 mark á
tímabilinu, jafnmörg og Austurrík-
ismaðurinn Robert Weber hjá
Nordhorn og eru þeir markahæstir.
Ljósmynd/Stuttgart
Þýskaland Viggó Kristjánsson rað-
ar inn mörkunum fyrir Stuttgart.
Stórleikur gegn
stórliðinu
FRÉTTASKÝRING
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Áfrýjunardómstóll Knattspyrnu-
sambands Íslands kvað upp dóma í
málum Fram og KR gegn stjórn
sambandsins á föstudaginn en hann
felldi þar úr gildi úrskurð aga- og úr-
skurðarnefndar og vísaði málunum
aftur til nefndarinnar.
Margir eru þessum málum vel
kunnugir en málavextir eru stuttlega
þeir að bæði félög kærðu stjórn KSÍ
til aga- og úrskurðarnefndar eftir að
hún tók ákvörðun um að hætta
keppni á Íslandsmótum sínum þann
30. október síðastliðinn. KR-ingar
töldu að stjórninni hefði verið óheim-
ilt að setja á laggirnar bráðabirgða-
reglugerð vegna kórónuveirufarald-
ursins en hætt var keppni á grund-
velli hennar. Töldu KR-ingar
stjórnina hafa farið gegn lögum sam-
bandsins. Framarar kröfðust þess að
ógilt yrði sú ákvörðun að veita
Leikni úr Reykjavík sæti í úrvals-
deild á sinn kostnað en bæði lið voru
jöfn að stigum þegar keppni var
hætt. Töldu Framarar að stjórnina
hefði skort heimild í reglugerðinni til
að taka umrædda ákvörðun.
Nefndin úrskurðaði í málum félag-
anna mánudaginn 16. nóvember og
vísaði þeim báðum frá, enda taldi
hún það ekki á valdsviði sínu að beita
stjórn KSÍ viðurlögum og vísaði
meðal annars til þess að stjórnin
gæti samkvæmt lögum ekki verið
varnaraðili í málum innan sam-
bandsins. Framarar og KR-ingar
gagnrýndu þessa niðurstöðu og
töldu það ekki boðlegt að stjórn KSÍ
gæti tekið ákvörðun sem síðan eng-
inn aðili gæti tekið til endurskoð-
unar, sér í lagi í ljósi þess að aðild-
arfélögunum er einnig óheimilt að
bera ágreiningsmál sín innan vé-
banda sambandsins undir almenna
dómstóla. Báðir aðilar áfrýjuðu mál-
um sínum til dómstólsins og sagði
Páll Kristjánsson, formaður knatt-
spyrnudeildar KR, að Vestur-
bæingar myndu ekki una því að mál-
ið fengi ekki efnislega meðferð,
jafnvel ef það þýddi að leita þyrfti út
fyrir dómstól sambandsins.
„Það er oft þannig í íþróttunum að
stjórnskipulagið er öðruvísi, sér-
samböndin setja sér eigin lög og
reglur sem virðast stundum vera
óháðar því sem gildir í samfélaginu,“
sagði Ragnar Baldursson, lögmaður
með meistaragráðu í íþróttarétti frá
De Montfort-háskólanum á Eng-
landi, við Morgunblaðið sem sló á
þráðinn til hans til að ræða málaferl-
in stuttlega. Hann segist fagna því
að málin fái efnislega meðferð innan
KSÍ en annars hefðu félögin senni-
lega getað leitað réttar síns annars
staðar.
Bitist um 1. desember
„Þetta er eitt af þeim atriðum sem
hefur oft reynt á erlendis, þ.e. hvort
almennir dómstólar geti fjallað um
mál sérsambanda í íþróttahreyfing-
unni. Almennt hefur verið talið, ef
málið varðar mikla hagsmuni og
skipti einstaklinga verulegu máli, að
þá geti dómstólar tekið málið fyrir.
Þetta á ekki síst við ef íþrótta-
samböndin hafa hugsanlega brotið
gegn eigin lögum.“
Ragnar telur að það sé nú aga- og
úrskurðarnefndarinnar að meta
hvort 44. grein laga KSÍ hafi veitt
stjórninni vald til að taka umrædda
ákvörðun. Í því ákvæði segir að
„stjórn KSÍ hefur lokaákvörðun um
öll þau málefni varðandi knattspyrn-
una innan vébanda ÍSÍ, sem lög
þessi eða reglugerðir KSÍ ná ekki
sérstaklega til eða þegar meiriháttar
utanaðkomandi atburðir krefjast
þess“.
„Í mínum huga snýst þetta um
hvort þessi 44. grein leyfi mönnum
að grípa inn í mótahaldið,“ sagði
hann en stjórn KSÍ taldi sig, með vís-
an til þessarar lagagreinar, hafa haft
skýra tilvísun og lagastoð til að grípa
til aðgerða enda flestum ljóst hvaða
áhrif kórónuveiran hefur haft í sam-
félaginu og á sviði íþrótta innanlands
sem erlendis.
„En svo er auðvitað spurning
hvort það hafi legið svona mikið á
eða hvort eðlilegra hefði verið að
kalla aðildarfélögin saman,“ bætti
hann við og vísar þar til þess að síð-
ustu mögulegu mótslok Íslandsmóts-
ins voru ákveðin 1. desember 2020 í
bráðabirgðareglugerðinni. KR-ingar
telja að sú dagsetning hafi enga þýð-
ingu, að stjórn KSÍ hafi ekki heimild
til að breyta lokadegi mótsins og að
44. lagagreinin, sem var tíunduð hér
að ofan, hafi ekki veitt henni heimild
til að fara gegn skýrum ákvæðum
laga sambandsins um mótslok.
Gott að fá efnislega meðferð
Ragnar segist ekki geta svarað því
af hverju KSÍ miðaði við 1. desember
en benti á hvað gerðist víða í Evrópu
í sumar þegar keppni fór að dragast
á langinn vegna veirunnar. „Eitt af
stóru vandamálunum sem víða þurfti
að leysa var að leikmannasamningar
á lokaári gildistíma síns runnu út 30.
júní en á því tímamarki voru nokkrar
umferðir óleiknar. Meira að segja
FIFA blandaði sér í málið og setti
meðal annars fram leiðbeiningar um
hvernig sambandið teldi best að
standa að málum varðandi leik-
mannasamninga sem voru að renna
út.
Það er ákveðið grundvallaratriði
hjá FIFA og UEFA að tímabil séu
kláruð með þeim leikmannahópum
sem byrjuðu það. Ef Íslandsmótið á
að hefjast aftur næsta vor þá verða
mörg félög komin með allt annan
leikmannahóp og jafnvel nýjan þjálf-
ara.“
Á Íslandi er algengt að leikmanna-
samningar renni út 16. október og þó
KSÍ geti óskað eftir að tillit sé tekið
til aðstæðna til skamms tíma að því
markmiði að ljúka mótum, þá er það
auðvitað alltaf ákvörðun félags og
leikmanns hvað skal gera að samn-
ingi loknum.
„Félagaskiptagluggar eru í raun
takmarkanir á atvinnufrelsi, knatt-
spyrnumenn geta ekki farið á milli
vinnuveitenda eins og í öðrum störf-
um í Evrópu. En þessar takmark-
anir voru heimilaðar vegna þess að
það er talið gríðarlega mikilvægt að
halda leikmannahópum liða yfir
tímabilið svo að deildirnar séu trú-
verðugar,“ sagði Ragnar.
.„Það verður skemmtilegt fyrir
okkur sem fylgjumst með að fá efn-
islega meðferð á þessu máli,“ bætti
hann við og eru það viðeigandi loka-
orð.
Niðurstaða er í augsýn
Morgunblaðið/Íris
Úrlausn Stjarnan fékk sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð en KR sat eftir með sárt ennið þegar keppni var hætt. Liðin áttu eftir að mætast innbyrðis.
Fagnaðarefni að mál Fram og KR gegn stjórn KSÍ fái efnislega meðferð
England
Fulham – Everton.................................... 2:3
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá
Everton á 76. mínútu.
Leeds – Arsenal ....................................... 0:0
Rúnar Alex Rúnarsson var á vara-
mannabekknum hjá Arsenal.
Newcastle – Chelsea ................................ 0:2
Aston Villa – Brighton ............................ 1:2
Tottenham – Manchester City................ 2:0
Manchester United – WBA..................... 1:0
Sheffield United – West Ham ................. 0:1
Liverpool – Leicester............................... 3:0
Staðan:
Tottenham 9 6 2 1 21:9 20
Liverpool 9 6 2 1 21:16 20
Chelsea 9 5 3 1 22:10 18
Leicester 9 6 0 3 18:12 18
Southampton 8 5 1 2 16:12 16
Everton 9 5 1 3 19:16 16
Aston Villa 8 5 0 3 19:11 15
West Ham 9 4 2 3 15:10 14
Crystal Palace 8 4 1 3 12:12 13
Manch.Utd 8 4 1 3 13:14 13
Arsenal 9 4 1 4 9:10 13
Wolves 8 4 1 3 8:9 13
Manch.City 8 3 3 2 10:11 12
Leeds 9 3 2 4 14:17 11
Newcastle 9 3 2 4 10:15 11
Brighton 9 2 3 4 13:15 9
Fulham 9 1 1 7 9:18 4
WBA 9 0 3 6 6:18 3
Burnley 7 0 2 5 3:12 2
Sheffield Utd 9 0 1 8 4:15 1
B-deild:
Millwall – Cardiff..................................... 1:1
Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill-
wall eftir 76 mínútur.
C-deild:
Peterborugh – Blackpool ....................... 1:2
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Blackpool.
Þýskaland
Mönchengladbach – Augsburg.............. 1:1
Alfreð Finnbogason lék fyrstu 65 mín-
úturnar með Augsburg.
B-deild:
Aue – Darmstadt...................................... 3:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék ekki með
vegna meiðsla.
Ítalía
Sampdoria – Bologna.............................. 1:2
Andri Fannar Baldursson var á vara-
mannabekknum hjá Bologna.
B-deild:
Brescia – Venezia .................................... 2:2
Birkir Bjarnason kom inn á eftir 70 mín-
útur hjá Brescia en Hólmbert Aron Frið-
jónsson er meiddur.
Óttar Magnús Karlsson kom inn á eftir
70 mínútur hjá Venezia en Bjarki Steinn
Bjarkason var ekki í hópnum.
Frakkland
Montpellier – Le Havre........................... 3:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna
Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn
með Le Havre.
Rússland
CSKA Moskva – Sotsjí ............................ 1:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn. Arnór Sigurðsson lék fyrstu 69
mínúturnar og skoraði mark CSKA.
Holland
AZ Alkmaar – Emmen ............................ 1:0
Albert Guðmundsson lék fyrstu 78 mín-
úturnar fyrir AZ.
Kasakstan
Shakhtar Karagandy – Astana.............. 3:1
Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 69
mínúturnar með Astana.
Grikkland
PAOK – Giannina .................................... 2:1
Sverrir Ingi Ingason var á varamanna-
bekknum hjá PAOK.
Olympiacos – Panathinaikos.................. 1:0
Ögmundur Kristinsson var varamark-
vörður hjá Olympiacos.
Katar
Al-Arabi – Al-Sadd .................................. 1:4
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 90
mínúturnar og skoraði fyrir Al-Arabi.
Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið.
Danmörk
Vejle – Bröndby ....................................... 0:2
Hjörtur Hermannsson kom inn á hjá
Bröndby á 78. mínútu.
AGF – Midtjylland ................................... 1:2
Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á hjá
AGF á 71. mínútu.
Mikael Anderson kom inn á hjá Midt-
jylland á 71. mínútu.
OB – SönderjyskE ................................... 1:1
Aron Elís Þrándarson og Sveinn Aron
Guðjohnsen komu báðir inn á hjá OB á 78.
mínútu.
Ísak Óli Ólafsson var á varamanna-
bekknum hjá SönderjyskE.
B-deild:
Esbjerg – Skive ........................................ 2:1
Andri Rúnar Bjarnason lék fyrstu 60
mínúturnar og skoraði fyrir Esbjerg. Ólaf-
ur H. Kristjánsson þjálfar liðið.
Silkeborg – Helsingör............................. 3:3
Stefán Teitur Þórðarson kom inn á eftir
78 mínútur hjá Silkeborg.