Morgunblaðið - 23.11.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020
NOREGUR
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Alfons Samp-
sted rak smiðshöggið á góða viku í
gærkvöldi er hann varð norskur
deildarmeistari með félagsliði sínu
Bodö/Glimt. U21-árs landslið Ís-
lands, þar sem Alfons er fyrirliði,
tryggði sér fyrr í vikunni sæti í loka-
keppni Evrópumeistaramótsins á
næsta ári sem haldið verður í Slóv-
eníu og Ungverjalandi.
Norski meistaratitillinn var í höfn
eftir 2:1-sigur á Strömsgodset í úr-
valsdeildinni í gærkvöldi en Alfons
og félagar hafa haft ótrúlega yfir-
burði í deildinni. Það eru enn þá
fimm umferðir eftir en ekkert lið
getur náð Bodö/Glimt sem er með 68
stig eftir 25 umferðir, átján stigum
meira en Molde í öðru sæti. Alfons
lagði upp seinna mark heimamanna
er hann spilaði allan leikinn í hægri
bakverðinum og mætti félögum sín-
um í U21-árs landsliðinu. Valdimar
Þór Ingimundarson spilaði einnig
allan leikinn og skoraði mark gest-
anna en Ari Leifsson sat á vara-
mannabekknum.
Lygilegur uppgangur
„Þeir einu sem trúa þessu erum
við sjálfir, þetta er svona hálf-
lygilegt,“ sagði glaðvær Alfons
Sampsted í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, nýkrýndur
norskur meistari.
Þetta er fyrsti meistaratitill Bodö/
Glimt í sögunni en félagið hefur vak-
ið heimsathygli fyrir framgöngu
sína. Blaðamaðurinn Rory Smith
bauð lesendum sínum í The New
York Times upp á frásögn af félag-
inu sem hefur boðið lögmálum knatt-
spyrnunnar birginn. Í Bodö búa um
50 þúsund manns og hefur knatt-
spyrnuliðið ekki unnið til mikilla af-
reka. Liðið var í B-deildinni árið
2017 en hafnaði í öðru sæti efstu
deildar í fyrra og hefur nú farið alla
leið, þrátt fyrir að vera ekki nálægt
því að eyða sömu fjármunum í leik-
mannahópinn sinn og stærstu lið
Noregs gera. Liðið er búið að skora
85 mörk í 25 leikjum og aðeins feng-
ið á sig 28. Sigrarnir eru 22, jafntefli
tvö og aðeins einn leikur hefur tap-
ast. Þá stóð liðið í ítalska stórveldinu
AC Milan í Evrópudeildinni, tapaði
naumlega 3:2 á San Síró í Milanó.
Alfons gekk til liðs við Bodö/Glimt
í byrjun ársins og kom frá Norrköp-
ing í Svíþjóð. Varnarmaðurinn hefur
verið lykilmaður í meistaraliðinu,
spilað alla deildarleikina til þessa
nema einn. Hann segist hafa fundið
það snemma að liðið hefði það sem
til þyrfti til að fara alla leið. „Ég fór
að finna það frekar fljótlega, hvernig
liðið er á æfingum, leikplanið sem
þjálfarinn setur upp. Hægt og ró-
lega fór ég að hafa meiri og meiri trú
á því að við gætum farið langt.“
Sem fyrr segir hefur vikan hjá
Alfons ekki verið slæm. Sæti á EM
U21, svo var hann kallaður upp í A-
landsliðshópinn fyrir leikinn gegn
Englandi og svo meistaratitillinn í
gær.
„Þessi vika hefur ekki verið af
verri endanum, þetta hefur verið
draumi líkast. Það er ótrúlega gam-
an að vera í þeirri stöðu að geta
keppt um eitthvað svona. EM-sætið,
gullið hérna í Noregi.“
Evrópumeistaramótið verður síð-
asta verk Alfons með U21-árs liðinu
þar sem hann á leikjametið, 30 leiki.
Hann er orðinn 22 ára og stefnir nú
á sæti í A-landsliðinu.
„Ég hugsa að það sé ekki til leik-
maður á Íslandi sem á ekki þann
draum að spila fyrir A-landsliðið.
Það er stóra markmiðið að komast
þangað en hvenær það verður er
ekki mitt að ákveða. Ég mun hins
vegar gera allt í mínu valdi til að
vera klár þegar kallið kemur.“
Íslendingar víðar í Noregi
Axel Óskar Andrésson kom inn á í
uppbótartíma er Viking vann 2:1-
útisigur gegn Sarpsborg en Samúel
Kári Friðjónsson var ónotaður vara-
maður. Þá vann Start 2:1-útisigur
gegn Odds en Jóhannes Þór Harð-
arson þjálfar lið Start. Guðmundur
Andri Tryggvason er á mála hjá lið-
inu en var ekki í leikmannahópnum í
gær. Viðar Ari Jónsson kom inn á á
58. mínútu og Emil Pálsson á þeirri
78. er Sandefjord mátti þola 3:2-tap
á útivelli gegn Haugesund.
Hefur verið draumi líkast
Alfons er norskur meistari og á leiðinni á EM með U21-árs landsliði Íslands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistari Vikan hjá Alfons Sampsted hefur verið draumi líkust. Hann er á leiðinni á EM og er nú norskur meistari.
New York City tapaði fyrir Orlando
City í vítaspyrnukeppni í fjórðungs-
úrslitum Austurdeildar MLS í
knattspyrnu í Bandaríkjunum og er
því úr leik. Staðan var jöfn eftir
venjulegan leiktíma og framleng-
ingu, 1:1, og þurfti að grípa til víta-
spyrnukeppni en Guðmundur Þór-
arinsson kom inn á sem varamaður
hjá New York á 115. mínútu.
Orlando vann 6:5 þótt liðið væri
með útileikmann í markinu eftir að
markvörður liðsins fékk rauða
spjaldið og varði hann síðustu
spyrnuna frá Guðmundi.
Brenndi af í víta-
spyrnukeppni
Bandaríkin Guðmundur og sam-
herjar eru úr leik vestan hafs.
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari
kvenna í knattspyrnu, hefur þurft
að gera tvær breytingar á hópnum
fyrir leikina við Slóvakíu og Ung-
verjalandi í undankeppni EM sem
fram fara ytra 26. nóvember og 1.
desember.
Dagný Brynjarsdóttir getur ekki
tekið þátt vegna meiðsla og Sandra
María Jessen er í sóttkví þar sem
smit hefur komið upp hjá félagsliði
hennar, Leverkusen. Í þeirra stað
voru valdar þær Kristín Dís Árna-
dóttir úr Breiðabliki og Bryndís
Arna Níelsdóttir úr Fylki.
Breytingar hjá
landsliðinu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tækifæri Kristín Dís Árnadóttir var
valin í landsliðshópinn.
Þýskaland
Göppingen – Wetzlar .......................... 33:30
Janus Daði Smárason skoraði 2 mörk
fyrir Göppingen.
Leipzig – Lemgo.................................. 32:32
Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir
Lemgo.
Bergischer – Füchse Berlín ............... 29:31
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 4 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
skoraði ekki.
Flensburg – Stuttgart......................... 34:30
Viggó Kristjánsson skoraði 11 mörk fyr-
ir Stuttgart en Elvar Ásgeirsson lék ekki
með.
Staðan:
Kiel 14 stig, RN Löwen 14, Flensburg 12,
Stuttgart 11, Göppingen 10, Wetzlar 10,
Melsungen 9, Füchse Berlín 9, Erlangen 9,
Lemgo 9, Magdeburg 8, Leipzig 8, Berg-
ischer 7, Hannover - Burgdorf 6, Nordhorn
6, Balingen 4, Minden 3, Ludwigshafen 3,
Essen 2, Coburg 0.
B-deild:
Gummersbach – Dessauer ................. 34:26
Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Sachsen Zwickau – Nord Harrislee .. 35:24
Díana Dögg Magnúsdóttir var ekki í leik-
mannahópi Sachsen Zwickau.
Spánn
Barcelona – Cuenca ............................ 38:26
Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Barcelona.
Danmörk
Kolding – Aalborg............................... 32:29
Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í
marki Kolding.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Lemvig – GOG...................................... 26:28
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í
marki GOG.
Pólland
Kielce Chobry – Glogów..................... 35:26
Sigvaldi Björn Guðjónsson lék ekki með
Kielce og Haukur Þrastarson er meiddur.
Frakkland
Cesson Rennes – Aix ........................... 23:24
Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4
mörk fyrir Aix.
B-deild:
Nice – Angers....................................... 31:35
Grétar Ari Guðjónsson varði 13 skot í
marki Nice.
Noregur
Bikarkeppni, undanúrslit:
Elverum – Drammen .......................... 30:28
Óskar Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir
Drammen og gaf 1 stoðsendingu.
Svíþjóð
Kristianstad – Skövde......................... 23:25
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 8
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 1 mark.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki
með Skövde.
Varberg – Alingsås ............................. 30:28
Aron Dagur Pálsson skoraði 4 mörk fyr-
ir Alingsås.
Heid – Lugi........................................... 22:20
Hafdís Renötudóttir lék ekki með Lugi.
Ungverjaland
Budakálász – Pick Szeged.................. 24:33
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged vegna meiðsla.
Spánn
Zaragoza – Barcelona......................... 85:97
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig og
tók 4 fráköst fyrir Zaragoza.
Valencia – Tenerife............................. 89:95
Martin Hermannsson skoraði 6 stig og
gaf 5 stoðsendingar fyrir Valencia.
Gran Canaria – Andorra .................... 62:79
Haukur Helgi Pálsson skoraði 3 stig, tók
5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar fyrir An-
dorra.
Þýskaland
Oldenburg – Fraport .......................... 82:69
Jón Axel Guðmundsson skoraði 12 stig,
gaf 5 stoðsendingar og tók 4 fráköst fyrir
Fraport.
Litháen
Siaulai – Neveziz ................................. 87:85
Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig,
gaf 7 stoðsendingar og tók 4 fráköst fyrir
Siaulai.
Bretland
Leicester Riders – Nottingham ........ 61:48
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 11 stig,
tók 6 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
Meistararnir í Liverpool létu ekki skakkaföll á
sig fá þegar þeir fengu Leicester City í heimsókn
í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en Leicester
var í efsta sæti fyrir umferðina. Með sigrinum
fer Liverpool upp í annað sætið og er þar fyrir
neðan Tottenham á markatölu, með 20 stig. Leic-
ester er með 18 stig í 4. sæti. Brendan Rodgers,
fyrrverandi stjóri Liverpool, stýrir Leicester og
hefði vafalaust viljað ná í stig á Anfield en svo fór
ekki.
Töluvert marga leikmenn vantar í lið Liver-
pool, sérstaklega í vörnina, og þá fór miðjumað-
urinn Naby Keita meiddur af velli snemma í síð-
ari hálfleik. Heimamenn tóku forystuna á 20.
mínútu er Jonny Evans varð fyrir því óláni að
skora sjálfsmark í kjölfar hornspyrnu. Staðan
varð 2:0 á 41. mínútu er Diogo Jota skoraði með
skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Andrew Robert-
son. Roberto Firmino rak svo smiðshöggið á
sannfærandi sigur með skallamarki á 86. mínútu.
Tottenham hafði betur þegar „stórvinirnir“
Jose Mourinho og Pep Guardiola mættu með
sín lið á Tottenham Hotspur-leikvanginn. Tott-
enham vann 2:0 og er liðið í efsta sæti eins og
áður segir. Manchester City hefur aðeins unnið
þrjá af fyrstu átta leikjum sínum og er með 12
stig. Suður-Kóreumaðurinn frábæri, Heung-
Min Son, kom heimamönnum yfir strax á
fimmtu mínútu eftir að Tanguy Ndombéle lyfti
boltanum inn fyrir vörn City. Heimamenn juku
forystuna á 65. mínútu. Giovani Lo Celso sem
var nýkominn inn af varamannabekknum skor-
aði eftir stoðsendingu frá Harry Kane.
„Þetta er opnari deild en oft áður, ef við
náum að vinna nokkra í röð þá er aldrei að
vita,“ sagði Kane í viðtali við Sky Sports, spurð-
ur um möguleika liðsins á að vinna deildina.
sport@mbl.is
AFP
Sigur Jose Mourinho leiddist ekki að vinna Man-
chester City með Pep Guardiola í brúnni.
Liverpool lét ekki meiðslin trufla