Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Stuttskífan er form sem liggur ámilli smáskífu og breiðskífu,hálfgert olnbogabarn á stund- um en í gegnum þetta form er engu að síður hægt að knýja fram öfluga, listræna yfirlýsingu. Breiðskífan býður nefnilega þeirri hættu heim að uppfyllingarefni láti á sér kræla á meðan smáskífan, sem ber aðeins tvö lög, næg- ir ekki til að lista- manneskjan geti sýnt fyllilega hvað í henni býr. Stuttskífan er hins vegar fullkomin hvað þetta varðar. Fjögur lög sem geta sýnt fram á breidd en um leið er ekkert pláss fyrir feilspor. Jelena Ciric sýnir fram á hámarks- nýtingu hvað þetta varðar á Shelters One. En áður en við förum í spjall um tónlistarkonuna og það sem meira er, innihaldið á plötunni, langar mig til að tala aðeins um hvernig Jelena hef- ur staðið að útgáfunni sjálfri, eitt- hvað sem er til eftirbreytni. Frétta- tilkynningar og ljósmyndir, allt er þetta vandað mjög, en hún spilar líka inn á streymisveiturnar, þar sem tón- listarútgáfa í dag birtist einna helst. Hægt er nálgast plötuna á Bandcamp og Spotify og á hinu síðarnefnda hef- ur hún sett upp sérstakan lagaspotta með lögum sem höfðu áhrif á tónlist- ina í „Lines“, einu laganna sem var hlaðið upp á Spotify í aðdraganda Shelters One (Lines Inspiration). Þar er að finna lög með t.d. Aldous Har- ding, Joni Mitchell, The Roches og The Magnetic Fields. Upplýsandi fyrir hlustandann og gildisaukandi fyrir almenna upplifun af Jelenu um leið. Snjallt. Ég kom stuttlega inn á heims- hornaflakk Jelenu í inngangi og læt það sosum nægja. Hún fluttist hingað til Íslands árið 2016 ásamt frónversk- um ektamanni og hefur unað hag sín- um vel síðan, vinnur við ritstörf sam- fara tónlistarstússi og hefur verið giska virk í íslensku senunni. Í spjalli við Fréttablaðið lýsir hún því hversu gott það sé að búa á litlum stað, sam- anborið við fyrri íverustaði, og hversu margt skapandi fólk þrífist hér á landi. Þetta nefna aðfluttir svo oft og stundum finnst ritara eins og hann sé óþarflega ómeðvitaður um þessa sterku upplifun þeirra sem landið sjá með gests auga. Þeir eygja þetta jákvæða, sem of oft týnist í argaþvargi hversdagsins. Platan kemur út í gegnum útgáfu- fyrirtækið Paradís Sessions. Albert Finnbogason stýrði upptökum ásamt Jelenu sem semur alla texta og lög. Jelena leikur á píanó og syngur, Karl James Pestka spilar á fiðlu og víólu, Margrét Arnardóttir þenur harmo- nikku og Albert leikur á það sem hendi er næst, er þess þarf. Platan hefst með áðurnefndu „Lines“. Það er viss þjóðlagablær yfir en þegar um hálf mínúta er liðin af laginu var ég minntur harkalega á stórkostlega smíð Juliu Holter, Have you in my Wilderness (2015). Trúið mér, ég hendi þessari samlíkingu ekki út að gamni mínu. Eftir að vers- ið er búið öðru sinni, en það er tiltölu- lega „eðlilegt“, fer Jelena á hlemmi- skeið í viðlaginu, klifrar skyndilega af krafti upp tónstigann og fer glæsi- lega í háu nóturnar. Innlifunin er alger og áhrifin eftir því. Tónlistin styður glæsilega við allan tímann, maður er eiginlega kominn á bríkina. Þarna slær tvennu saman, tveimur heimum getum við sagt, þekkilegu þjóðlagastefinu er rænt af andsetn- um og undurfurðulegum kafla (og ég skil að hún tefli Reginu Spektor fram sem áhrifavaldi). „In Time“ er næst, snotur ballaða. Stöldrum við söngröddina, hún er falleg og kannski það sterkasta á allri plöt- unni. Tónlistin er dramatísk, varleg, næm og svo gjörsamlega við hæfi. „Concrete“ er grallaralegra, mikill leikur í því og takti hraðað og á hon- um hægt. Nánast eins og barnagæla. „Loughbreeze“ lokar þessari stuttu en vel heppnuðu plötu. Lokalagið er „lokalag“, höfugt flæði og letilegt, nett sorgbundið jafnvel. Söngröddin og „tilfinningin“ í því tónar engu að síður vel við hin þrjú systkinin. Allt í allt sannfærandi og vandað verk þar sem ekkert er uppfyllingarefnið en um leið nægur efniviður til að gefa heilsteypta mynd af listamanninum. Ég er til í breiðskífu! »Eftir að versið er bú-ið öðru sinni, en það er tiltölulega „eðlilegt“, fer Jelena á hlemmi- skeið í viðlaginu, klifrar skyndilega af krafti upp tónstigann og fer glæsi- lega í háu nóturnar. Innlifunin er alger og áhrifin eftir því. Stuttskífan Shelters One eftir Jelenu Ciric kom út fyrir stuttu. Fædd í Serbíu, alin upp í Kanada, lærði á Spáni, gegndi prófess- orsstöðu í Mexíkó en býr nú og starfar á Íslandi. Nei, Jelena er ekki einhöm tónlistar- kona, langt í frá. Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð sem hófst í Bíó Paradís 27. nóv- ember lýkur á morgun, 6. desem- ber, en hægt er að leigja myndir há- tíðarinnar á nýrri netleigu kvikmyndahússins, Heimabíó Para- dís, auk fleiri mynda. Á barnakvik- myndahátíðinni í ár má finna myndir fyrir alla aldurshópa, m.a. teiknimyndina Muggur og götuhá- tíðin sem er úr smiðju dönsku skop- myndateiknaranna Wulfmorgen- thaler. Frekari upplýsingar má finna á bioparadis.is. Spaugileg Úr teiknimyndinni Muggur og götuhátíðin sem er á kvikmyndahátíðinni. Kvikmyndahátíð lýkur á morgun Gunnar Helgason og Felix Bergs- son bjóða öllum börnum landsins á jólaskemmtun á morgun sem streymt verður á Facebook-síðu Landsbankans kl. 14. „Þeir félagar ætla að tryggja réttu jólastemn- inguna með því að kenna börnum þessa lands hvernig á að standa að ÖLLU í jólaundirbúningnum,“ seg- ir um viðburðinn í tilkynningu. Þá munu þeir einnig leita uppi jóla- sveina og í stað áhorfenda í sal verða sex dansarar frá Dansskóla Birnu Björns sem munu dansa með Gunna á meðan Felix syngur jóla- lög þeirra félaga. Felix mun svo kenna Gunna að skreyta jólatré á mettíma. Jólin koma með Gunna og Felix Eldhressir Felix og Gunni í jólaskapi. Ljósmynd/Julie Rowland Fjölær Jelena Ciric sannar í gegnum lögin fjögur að ekki er tjaldað til einnar nætur. Margra heima sýn Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ STÓRKOSTLEGA VEL GERÐNÝ MYND FYRIR FJÖLSKYLDUNA FRÁROBERT ZEMECKIS. SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND MEÐ ÍSLENSKU TALI FYRIR ALLA FJÖSLSKYLDUNA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.