Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Kærleikskúlan
Heil kúla af kærleik
Með kaupum á
Kærleikskúlunni
styrkir þú börn og
ungmenni með fötlun.
kærleikskúlan.is
Meðal þeirra sem tjáð hafa sigum niðurstöðu yfirdeildar
Mannréttindadómstóls Evrópu
(MDE) í Landsrétt-
armálinu eru
Gagnsæi, „samtök
gegn spillingu“,
sem vöknuðu af
værum blundi til
að segja að „þeir
sem [bæru] ábyrgð
á því að brjóta nið-
ur traust á dóm-
stólum ættu ekki
að koma að frekari
trúnaðarstörfum
fyrir hönd almenn-
ings“. Sem sagt að
Sigríður, Alþingi
allt, ríkisstjórnin,
Hæstiréttur og forsetinn eigi ekki
aðeins að segja af sér, heldur
aldrei framar að gefa sig að trún-
aðarstörfum fyrir þjóðina!
Gagnsæi minntist ekki á þáskrýtnu aðferð MDE, að efist
menn um að Róbert Spanó dóm-
ari dæmi rétt og áfrýi, þá er það
Róbert Spanó háyfirdómari sem
um fjallar. En kannski varla við
að búast frá Gagnsæi, sem fer
margt betur en gagnsæi. Á
heimasíðunni hjá þeim má sjá árs-
reikninga, engan þó nýrri en frá
2018. Af þeim má þó sjá að fé-
lagsgjöldin hröpuðu úr tæpri
hálfri milljón niður í 13.000 kr.
árið 2018, sem þýðir að í félaginu
hafa verið 2,6 félagar. Sömuleiðis
má lesa að félagið hefur fengið
fjárstyrki, en ekki orð um frá
hverjum.
En hver þarf að vera hissa áþví? Gagnsæi eru lítið annað
en enn ein sýndarsamtök vinstri-
manna til þess að koma áróðri á
framfæri við fjölmiðla. Jón Ólafs-
son heimspekingur hefur verið
potturinn og pannan í þeim, en
þar eru líka í forystu fyrrverandi
þingmenn og borgarfulltrúar
vinstri flokkanna.
Jón Ólafsson
Svo gagnsæis
sé gætt
STAKSTEINAR
Róbert Spanó
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jó-
hannesson, sendi nýverið bréf til for-
ráðamanna Kaupfélags Skagfirðinga
(KS) til þess að þakka fyrir þær
höfðinglegu matargjafir sem kaup-
félagið og dótturfyrirtæki þess hafa
komið til Fjölskylduhjálpar Íslands
svo ekki skorti mat á neitt borð nú í
kringum hátíðarnar.
Greint var frá þessu í héraðs-
fréttablaðinu Feyki á Sauðárkróki,
en í bréfinu, sem barst þeim Bjarna
Maronssyni, stjórnarformanni KS,
og Þórólfi Gíslasyni kaupfélags-
stjóra, þakkar forsetinn myndar-
skap og samhug í aðdraganda jóla á
erfiðum tímum þegar þrengingar
eru á mörgum heimilum. Biður
Guðni fyrir þakkir og jólakveðjur til
alls starfsfólks kaupfélagsins.
Í þakkarbréfi Guðna forseta til
Kaupfélags Skagfirðinga segir að í
samfélagi okkar finnist þeir því mið-
ur ætíð sem þurfa á aðstoð að halda
og farsóttin valdi því að enn hafi
fjölgað í þeim hópi. „Enginn á að
þurfa að þola matarskort í þessu
landi. Rausnarleg gjöf kaupfélags-
ins, sem kynnt var nýlega, mun víða
skipta sköpum. Fólk mun fá notið
heilnæms fæðis, kjöts, fisks og
mjólkurvöru. Ég veit að upp til hópa
kunna Íslendingar vel að meta rausn
af þessu tagi.“
Forseti þakkar fyrir matargjöfina
Sendir Kaupfélagi Skagfirðinga jóla-
kveðju Þakkar myndarskap og samhug
Þakkarbréf forseta til Kaupfélags
Skagfirðinga og starfsmanna þess.
Yfirskattanefnd telur að tollgæslu-
stjóri hafi ekki aflað nægjanlegra
upplýsinga áður en úrskurður var
kveðinn upp um tollskyldu inn-
fluttrar höggmyndar. Felldi nefndin
úrskurðinn úr gildi og lagði fyrir
tollgæslustjóra að taka málið til
nýrrar meðferðar.
Undanþága er frá greiðslu virð-
isaukaskatts listaverks þegar það er
flutt inn af listamanninum sjálfum.
Ágreiningurinn í þessu máli snýst
um hvort svo hafi verið.
Eigandi höggmyndarinnar keypti
hana í galleríi og flutti inn frá
Frakklandi á síðasta ári. Tollgæslu-
stjóri taldi hana því ekki falla undir
undanþáguákvæðið og greiddi kaup-
andinn aðflutningsgjöldin með fyr-
irvara. Að svo búnu mótmælti hann
álagningunni með kæru til tollstjóra.
Fullyrti hann að þótt listaverkið
væri keypt fyrir milligöngu
listmunasala væri í raun verið að
kaupa það af listamanninum sjálfum
enda væri það fyrsta sala verksins.
Lagði hann fram staðfestingu þess
efnis. Tollstjóri hafnaði kröfunni á
þeim forsendum að listaverkið væri
ekki flutt inn af listamanninum sjálf-
um og gallerí væri seljandi þess.
Við rekstur málsins fyrir yfir-
skattanefnd viðurkenndu toll-
yfirvöld að ekki væri útilokað að sal-
an hefði verið á milli listamannsins
og kaupandans, fyrir tilstuðlan milli-
gönguaðila og biðluðu til kæranda að
skila inn nauðsynlegum gögnum um
það.
Yfirskattanefnd bendir á að toll-
yfirvöldum beri að sjá til þess að
málið sé nægjanlega upplýst áður en
ákvörðun er tekin. Var lagt fyrir
tollgæslustjóra að taka það til nýrr-
ar meðferðar. helgi@mbl.is
Hver var raunveru-
legur seljandi?
Tollur af listaverki
ræðst af því hver
flutti það til landsins
Morgunblaðið/Ómar
Höggmynd Listaverkið var flutt frá
Frakklandi. Myndin er úr safni.