Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Hansi frændi,
síðustu mánuði hef
ég mikið verið að
hugsa hvað þú
varst í mínu lífi. Í
gegnum árin hef ég sagt að þú
værir eins og minn stóri bróðir
eða jafnvel einhvers konar föð-
urímynd. Það sem þú varst var
miklu mikilvægara. Bróðir
mömmu, stóri frændi sem
fylgdist með úr fjarlægð, sá
sem sá ekki öll smáatriðin held-
ur stóru myndina og passaði að
litli frændi hefði það gott. Áttir
það til að gagnrýna mig, stund-
um var það sárt því ég dýrkaði
þig og dáði en það var bara þitt
hlutverk því ég tók mark á því
… yfirleitt.
Þú varst þessi stóri frændi
sem ég gat alltaf leitað til og þú
sagðir það sem ég þurfti að
heyra. Skilaboðin voru skýr:
það þýðir ekkert að væla yfir
þessu, nú leysum við þetta, ég
skal hjálpa þér en þú þarft að
vinna vinnuna. Það var svo
ómetanlegt og veitti mér mikið
öryggi að hafa þig og Öldu
svona nálægt mér öll þessi ár í
Klyfjaseli þegar ég var pjakk-
ur. Hvort sem það var að
hjálpa mér með lærdóminn,
fara út í fótbolta eða stelast um
miðja nótt í lagterturnar henn-
Hans Helgi
Stefánsson
✝ Hans HelgiStefánsson
fæddist 15. október
1963. Hann lést 22.
nóvember 2020. Út-
förin fór fram 4.
desember 2020.
ar ömmu. Það var
mjög tómlegt þeg-
ar þú fluttir úr
Seljahverfinu því
ég var alltaf svo
glaður að heyra
röddina úr eldhús-
inu og ég dreif mig
niður til að hitta
þig.
Þegar ég varð
unglingur ætlaði
ég að verða rokk-
stjarna, vantaði mig þá hljóð-
færi. Var þá auðvitað leitað til
Hansa frænda. Svarið þitt var:
„Auðvitað, ekkert mál, ég lána
þér fyrir þessu og þú borgar
mér smátt og smátt.“ Svo bætt-
ir þú um betur og fékkst lán-
aðan magnara hjá kunningja
þínum óumbeðinn. Svona var
þetta, þegar ég keypti mína
fyrstu íbúð eða mig langaði í
nýtt sjónvarp; alltaf var það
Hansi frændi sem kom og
bjargaði málunum. Þú varst
bara þessi maður, alltaf ótrú-
lega hjálpsamur og jákvæður.
Ég elskaði að koma í vinnuna
til þín þegar þú varst kokkur á
Gauk á Stöng, brandararnir og
galsagangurinn sköpuðu svo
góða stemningu að mig langaði
aldrei að fara þaðan. Heim-
sækja þig í vinnuna eða hjálpa
þér að undirbúa veislur í eld-
húsinu hjá ömmu og afa í Klyfj-
aseli var svo gaman að ég
skráði mig á matvælasvið í FB
því ég ætlaði að verða kokkur
eins og Hansi frændi.
Fyrir um 15 árum áttum við
gott spjall í bílskúrnum í Víði-
teig. Mér langaði að þakka þér
þér fyrir allt sem þú hafðir gert
fyrir mig, mömmu og Óla bróð-
ur í gegnum tíðina og spurði:
„Af hverju varstu alltaf svona
góður við okkur?“ Það sem þú
svaraðir læt ég ósagt hér, en
svarið var svo frá hjartanu og
það lýsti þér svo vel, einfald-
lega góður í gegn og með mikla
réttlætiskennd. Eitt er víst, ég
væri ekki kominn á þann stað
sem ég er á nú án þín.
Það var hápunktur hátíðanna
að koma til ykkar í mat jóla-
dag, „ekki of snemma og ekki
of fínn!“ var skipunin. Eva Rut
inni í stofu að lesa bók sem hún
hafði fengið að gjöf daginn áður
og Patti tók alltaf á móti mér
með glotti og sagði: „Á að slá
metið í tartalettuáti í ár?“ Þú
gafst mér svo margar góðar
minningar sem ég mun leita í
þangað til ég kveð þessa veröld
en mikilvægast verður að reyna
að lifa eftir þínu fordæmi, vera
jákvæðari og taka lífinu með
bros á vör.
Lúðvík Þórir +Guð-
mundsson.
Hansi vinur minn er fallinn
frá, langt um aldur fram.
Yndislegri dreng var vart
hægt að hugsa sér, ávallt með
bros á vör, hlýtt viðmót og
stutt í hláturinn.
Ég kynntist Hansa fyrst með
vorinu 1989 þegar að hann var
einn af eigendum Gauks á
Stöng. Hljómsveitin sem ég var
þá í (Loðin rotta) var fengin til
að taka þátt í að breyta tónlist-
arstefnu Gauksins frá djassi yf-
ir í meira rokk og ról. Strax og
við Hansi vorum kynntir fór vel
á með okkur og var það að
stórum hluta Hansa að þakka,
því hann var þannig innrétt-
aður að manni leið strax eins
og um gamlan vin væri að
ræða. Aldrei brá skugga á
þessa vináttu þó svo að eftir
Gauksævintýrið hafi ég flutt til
útlanda og samskiptin því stop-
ulli. Þá var það svo að það var
alltaf eins og ekki hefði liðið
dagur síðan við hittumst síðast.
Við duttum strax í gamla gírinn
og það var gantast og hlegið
eins og enginn væri morgun-
dagurinn.
En svo kom morgundagurinn
og þrátt fyrir fyrirheit þá varð
því miður ekkert úr því að við
næðum að hittast. Veikindi
Hansa settu strik í reikninginn
en ég fékk að halda samskipt-
unum að mestu lifandi í gegn-
um Haddý systur Hansa og er
ég þakklátur fyrir það þó svo
að ég hefði viljað hitta hann
augliti til auglitis. Það kennir
manni að tíminn er ekki eilífð
og við eigum að grípa hvert það
tækifæri sem gefst til að hlúa
að þeim sem okkur þykir vænt
um.
Mér þótti einstaklega vænt
um Hansa og okkar kæru vin-
áttu og ég mun sakna þessa
vandaða og góða drengs.
Sofðu vært elsku vinur. Við
hittumst kannski einhvern tím-
ann aftur og tökum nokkrar
hláturrokur saman – það er til-
hlökkunarefni.
Ég vil votta börnum Hansa,
Öldu, Haddý systur hans og
öðrum ættingjum og vinum
mína dýpstu samúð.
Richard Scobie.
Borinn hefur verið til grafar
yndislegur og kær vinur. Hér
sitjum við fjölskyldan og rifjum
upp okkar góðu og dýrmætu
kynni. Hansi var einstakur
drengur, hlýr, hjálpsamur,
hress og skemmtilegur. Við
kynntumst Hansa þegar hann
byrjaði að vinna hjá okkur í
Grillvagninum. Frá upphafi féll
hann vel í hópinn okkar og
þótti öllum strax vænt um
hann. Alltaf þegar maður hitti
Hansa eða rakst á hann kom
hann með opinn faðminn á móti
manni, knúsaði mann, kyssti og
sagði eitthvað fallegt. Það sem
einkenndi Hansa var hans
svarti, skemmtilegi húmor.
Hann gat alltaf fengið mann til
þess að brosa eða hlæja og ein-
stakur var vilji hans til að
hjálpa þegar eitthvað bjátaði á
eða vantaði, bæði ef um vinnu
var að ræða eða að vera til
staðar sem vinur. Hansi tókst á
við veikindi sín af miklu æðru-
leysi og bjartsýni. Því miður
tapaði hann þessari baráttu en
barðist hetjulega fram á síðasta
dag. Börnunum okkar var hann
ávallt góður og reyndist þeim
vel.
Með sorg í hjarta kveðjum
við þig nú, þar til við hittumst
aftur í Sumarlandinu. Við mun-
um aldrei gleyma þér. Guð
geymi þig elsku vinur.
Elsku Alda, Eva, Patti og
fjölskylda, við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð. Minning
um góðan dreng lifir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þínir vinir,
Hildur, Svanur, Hörður,
Hafsteinn og Harpa.
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is
Önnumst alla þætti útfararinnar
með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Reynslumikið fagfólk
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
utfor.is
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Helga Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
Lögfræðiþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni Jónsson
Útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
Útfararþjónusta
Ellert Ingason
Útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Við veitum þjónustu vegna
Andláta um allt land
Andláta erlendis þegar
jarðsett verður á Íslandi
Andláta á Íslandi þegar
jarðsett verður erlendis
Dánarbússkipta og erfðaskráa
Sjá nánar á www.utfor.is
JÓN SIGURÐUR EIRÍKSSON
Drangeyjarjarl
lést 24. nóvember. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju klukkan 13 þriðjudaginn
8. desember að viðstöddum nánustu
aðstandendum.
Streymt verður frá athöfninni á: https://youtu.be/2kfc2cdSf_o
og á fésbókarsíðu Sauðárkrókskirkju.
Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk HSN á Sauðárkróki
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Eiríkur Jónsson
Sigurjón Jónsson
Viggó Jónsson
Sigmundur Jónsson
Alda Jónsdóttir
Sigfús Agnar Jónsson
Björn Sigurður Jónsson
Ásta Birna Jónsdóttir
Brynjólfur Þór Jónsson
Jón Kolbeinn Jónsson
og fjölskyldur