Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
hvað til. Ég þurfti stöðugt að sjá
einhverja afurð í höndunum. Ég hef
því verið að þessu alla ævi, en
Salka hefur bara verið að prjóna
undanfarið eitt ár,“ segir Sjöfn og
Salka Sól bætir við að hún hafi
prjónað fyrstu peysuna sína undir
handleiðslu Sjafnar.
„Fyrst prjónaði ég eingöngu
barnapeysur því ég hafði ekki þol-
inmæði í að prjóna stærri flíkur, en
svo var ég svo snögg að læra að ég
færði mig yfir í fullorðins. Mér
finnst ótrúlega stutt síðan
ég var að spyrja Sjöfn
um jafn einfaldan
hlut og hvernig ég
ætti að fella af. Ég
var svo æst í að
læra og hún svo
æst í að kenna
mér, þannig að
þetta var fullkomið.
Ég held að ég
hefði aldrei náð
svona
miklum
árangri í
prjóna-
skap nema
af því hún
hjálpaði
mér í
gegnum
þetta.
Mamma
hefur
þakkað
Sjöfn
heilshug-
ar fyrir að
hafa kveikt
prjónaáhuga hjá mér, bæði með
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þegar tveir einstaklingarhittast með svona mikinndrifkraft, þá er alvegótrúlegt hvað getur gerst.
Við höfum ekki þekkst nema í rúm-
lega ár en samt erum við búnar að
gefa út prjónabók,“ segja þær
Salka Sól Eyfeld og Sjöfn Krist-
jánsdóttir sem sendu nýlega frá sér
bókina Una prjónabók, með prjóna-
uppskriftum á mannamáli, fyrir
byrjendur og reynslubolta. „Allt á
þetta upphaf sitt í því að ég byrjaði
að prjóna í minni óléttu, án þess að
kunna neitt en ég prjónaði upp-
skriftir frá Sjöfn sem hún selur á
stroff.is, af því þær voru vel út-
skýrðar og ég skildi þær. Ég var að
deila því sem ég prjónaði á sam-
félagsmiðlum og Sjöfn hafði þá
samband við mig og við fórum að
spjalla. Þegar ég spurði hana einn
daginn hvar hún fengi sínar fallegu
tölur, þá kom hún bara til mín með
tölur. Þá sáum við hvor aðra í
fyrsta skipti og ég áttaði mig á að
ég hafði verið að tala við unga
skvísu,“ segir Salka Sól og hlær.
„Í framhaldi af því fórum við
að hittast á kaffihúsi og prjóna
saman. Þetta gerðist allt mjög hratt
en við bósktaflega smullum saman.“
Prjónaði á bangsa sína
Salka Sól og Sjöfn eru með
ólíkan bakgrunn í prjónareynslu.
„Ég hef verið að prjóna alveg
frá því ég var 12 ára. Ég prjónaði
föt á bangsana mína þegar ég var
krakki og ég var alltaf að búa eitt-
aðgengilegum upp-
skriftum og með því að
kenna mér nýja og nýja
tækni. Nú er ég óstöðv-
andi.“
Sjöfn segir
að þær nái svo
vel saman af því
þær séu báðar
mög drífandi
og með frjóa
kolla.
„Ég hef aldrei hitt manneskju
sem er jafn æst og ég í þessu, við
förum alveg á flug saman,“ segir
hún og Salka Sól bætir við að bókin
hafi einmitt orðið til í öllum þessum
æsingi.
„Upprunalega átti þetta að
vera ein stelpupeysa sem heitir
Una í höfuðið á dóttur minni, það
var það fyrsta sem við sköpuðum
saman. Þetta vatt upp á sig og eitt-
hvað sem átti að vera ein prjónaflík
endaði í heilli prjónalínu, sem end-
aði svo í miklu fleiri uppskriftum
sem urðu að prjónabók. Við vorum
alltaf að bæta við og núna er þetta
orðin 160 blaðsíðna bók. Við æsum
hvor aðra sannarlega upp í þessu.“
Dýpri merking í prjónagjöf
Þær segjast vona að bókin
kveiki áhuga hjá sem flestum sem
langar að byrja að prjóna, og að
fólk mikli það ekki fyrir sér heldur
láti vaða.
„Ef áhuginn er fyrir hendi þá
kemst maður ansi langt, ég er gott
dæmi um það. Fyrir mér voru prjó-
naflíkur hér áður pínu hallærislegar
og eitthvað sem klæjaði undan, en
þegar ég datt inn í þennan heim þá
uppgötvaði ég að þetta er annað og
meira en ég hafði gert mér grein
fyrir. Möguleikarnir eru svo miklu
meiri en ég hélt, það er hægt að
gera svo margt með prjónaskap.
Mig langar að vekja áhuga hjá
fleirum, en þar fyrir utan er svo
margt jákvætt í þessu. Það er um-
hverfisvænt að prjóna flíkur á sig
og sína og þetta er gott innlegg í
allri þeirri neysluhyggju sem tröll-
ríður samfélaginu okkar. Það er
gott mótvægi að gefa sér góðan
tíma í að búa til hverja flík, vanda
sig við að skapa hana, eiga hana
lengi og nota hana á fleiri en eitt
barn. Láta hana ganga áfram.
Verknaðurinn að prjóna og allt í
kring er mikil núvitund,“ segir
Salka Sól og bætir við að yndislegt
sé að fá heimaprjónaða jólagjöf,
eitthvað sem einhver sat og eyddi
mörgum klukkutímum í að búa til.
„Þannig fær gjöfin annað og
dýpra gildi, maður hefur kannski
gert tuttugu þúsund lykkjur í einni
peysu og hnýtt óteljandi hnúta.
Mér finnst mjög falleg gjöf að gefa
alla þá vinnu.“
Stroff óx og dafnaði skjótt
Bókin þeirra geymir ekki að-
eins uppskriftir að barnaflíkun,
heldur líka fyrir fullorðna og
hunda.
„Eiginlega er allur skalinn í
þessari bók, líka fylgihlutir, húfur,
vettlingar, sokkar og fleira, enda
var það markmiðið að allir gætu
fundið eitthvað við sitt hæfi. Þótt
bókin heiti Una og upphaflega hafi
þetta verið svolítið stelpuleg prjó-
nalína, þá bjóðum við til dæmis upp
á það í uppskriftunum að sleppa
pífunni og þá er flíkin orðin miklu
gauralegri.“
Þær leggja líka mikið upp úr
einfaldleikanum, að uppskriftirnar
séu ekki of flóknar, þær séu á
mannamáli og lítið um óskiljanlegar
skammstafanir.
„Í bókinni okkar höfum við
frelsi til að útskýra vel hverja og
eina uppskrift og láta hana taka
eins mikið pláss og við viljum. Það
er frábært frelsi sem felst í að gefa
út sína eigin prjónabók,“ segir
Sjöfn en hún og maðurinn hennar
stofnuðu saman fyrirtækið Stroff.is
fyrir þremur árum.
„Þetta átti bara að vera áhuga-
mál, en rétt eins og með Unu
prjónalínuna, þá vatt það upp á sig.
Á stroff.is sel ég stakar uppskriftir
eftir mig og það hefur verið rosa-
lega vinsælt. Nú er Stroff orðin heil
prjónabúð í Skipholti. Þetta var
langþráður draumur. Stundum
verða þeir að veruleika. Núna vinn
ég við það sem ég elska að gera,“
segir Sjöfn og bætir við að þær vin-
konurnar sé strax farnar að huga
að næstu bók.
Notalegt og fallegt Örlítið brot af þeim mörgu flíkum sem uppskriftir eru að í prjónabók vinkvennanna.
Við æsum
hvor aðra
upp í þessu
Upphaf vinskapar getur verið með mörgum hætti.
Salka Sól og Sjöfn kynntust í gegnum prjónaskap og
smullu saman. „Ég hef aldrei hitt manneskju sem er
jafn æst og ég í þessu, við förum alveg á flug saman,“
segir Sjöfn, en þær sendu frá sér prjónabók nýlega. Morgunblaðið/Kristinn MagnússonSalka og Sjöfn Saman í prjónaverslun Sjafnar, Stroff, þar sem hefur verið brjálað að gera undanfarið.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824
hakon@valfell.is | valfell.is
Sjóvá Almennar óskar eftir að taka á leigu sumarhús á Vesturlandi, ætlað starfsfólki
fyrirtækisins. Um er að ræða tímabundna leigu í allt að tvö ár.
Skilyrði fyrir leigu:
Sumarhús á Vesturlandi. Svefnherbergi a.m.k. 3. Æskilegt að að heitur pottur sé til
staðar og að eignin sé snyrtileg og vel með farin. Kostur ef húsgögn fylgja með.
Óskum eftir sumarhúsi til leigu
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við Hákon
í síma 898-9396 eða á netfanginu hakon@valfell.is