Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fleiri tilkynningar bárust barna-
verndarnefndum á landinu í október
en í nokkrum öðrum mánuði það sem
af er árinu eða samtals 1.336 tilkynn-
ingar. Þessar tilkynningar voru
einnig vegna fleiri barna en áður og
vörðuðu alls 1.038 börn.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýrri samantekt Barnaverndarstofu
á tölum frá barnaverndarnefndum
en stofan hefur tekið saman þessar
upplýsingar í hverjum mánuði frá
því veirufaraldurinn braust út.
Tilkynningar til barnaverndar-
nefnda vegna ofbeldis hafa síðustu
mánuði verið yfir meðaltali saman-
burðartímabilsins, fyrir utan júlí og
ágúst. Í október bárust 329 tilkynn-
ingar varðandi ofbeldi og voru þær
talsvert færri en í september. „Nú er
staðan sú að á fyrstu 10 mánuðum
ársins hafa borist fleiri tilkynningar
vegna ofbeldis en bárust allt árið
2016, 2017, 2018 og 2019,“ segir í um-
fjöllun Barnaverndarstofu.
Fjölgun vegna áfengis- eða
fíkniefnaneyslu foreldris
Tilkynningar um vanrækslu barna
voru 559 í október og fjölgaði mikið
frá mánuðunum á undan. Tilkynn-
ingar um vanrækslu á umliðnum átta
mánuðum hafa allan þann tíma verið
yfir meðalfjölda slíkra tilkynninga á
fyrri samanburðartímum. Frá ára-
mótum til loka októbermánaðar hafa
barnaverndarnefndum borist jafn
margar tilkynningar vegna van-
rækslu barna og allt árið í fyrra og
eru þær einnig fleiri en bárust á ár-
unum 2016, 2017 og 2018.
Er sérstök athygli vakin á því að
ekki hafa fleiri tilkynningar borist
vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu
foreldris, eða hvors tveggja, það
sem af er þessu ári en í október síð-
astliðnum. „Að auki hafa nú, á
fyrstu 10 mánuðum ársins, borist
fleiri tilkynningar vegna áfengis-
og/eða fíkniefnaneyslu foreldris en
allt árið 2016, 2017, 2018 og 2019,“
segir enn fremur í umfjölluninni.
Nefndunum bárust fleiri tilkynning-
ar frá lögreglu en áður eða 498 í
októbermánuði.
„Sérstakt áhyggjuefni“
„Eru þessar tölur, sem hér hefur
verið greint frá, sérstakt áhyggju-
efni sem ber að fylgjast nánar með,“
segir í greinargerð Barnaverndar-
stofu um tilkynningarnar sem bár-
ust barnaverndarnefndum í októ-
bermánuði.
559 tilkynningar um vanrækslu
Október var metmánuður í fjölda
tilkynninga til barnaverndarnefnda
Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Fjöldi tilkynninga í sept. og okt. 2020 miðað við samanburðartímabil
1.500
1.200
900
600
300
0
Reykjavík
Höfuðborgarsv. utan Reykjavíkur
Landsbyggðin
september október Heimild: Barnaverndarstofa
469
369
423
1.261
1.336
493
373
470
Meðaltal á mánuði á
samanburðartímabilinu
Hæsta gildi á samanburðartímabilinu
janúar 2019 til febrúar 2020
1.135
955
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hótel Grænahlíð, sem svo er kölluð,
var vinsæll viðkomustaður sjófarenda í
rysjóttri veðráttu síðustu daga. Ágætt
skjól fyrir NA-áttinni er undir hlíðinni
sem er við mynni Ísafjarðardjúps
norðanvert. Vel
þekkt er úr langri
sögu að leitað sé
vars á þessum
slóðum og það
breytist ekki. Rit-
ur er yst í Grænu-
hlíð og fyrir opnu
hafi. Sjö togarar
og bátar voru við
hlíðina frá því að-
faranótt miðviku-
dags og fram á
fimmtudaginn auk þess sem nokkrum
var siglt í nálægar hafnir, svo sem inn
á Ísafjörð.
„Við vorum á leiðinni frá Siglufirði
suður á bóginn á þriðjudagskvöldið og
þá var komið leiðindaveður. Í mestu
hviðunum fór vindurinn í allt að 26
metra á sekúndu. Þegar komið var fyr-
ir Horn taldi ég nauðsynlegt að fara í
var og renndi því að Grænuhlíðinni
strax og við beygðum fyrir Ritur,“ seg-
ir Vigfús Markússon, skipstjóri á línu-
bátnum Valdimari GK. „Nei, það væsti
ekki um okkur þarna. Hlíðin gefur
skjól og við vorum á nánast sléttum
sjó. Stundum komu reyndar vind-
strengir niður hlíðina, jafnvel um 30
sekúndumetrar að styrk, en þeir rugg-
uðu okkur lítið.“
Auk Valdimars GK voru undir
Grænuhlíð togararnir Tómas Þor-
valdsson GK, Vigri RE og Drangey
SK svo nokkrir séu nefndir. Þessi skip
eru nú aftur komin á miðin og í gær,
föstudag, var Vigfús Markússon með
sinni áhöfn á Brjálaðahrygg, sem er
um 60 mílur vestur af Snæfellsnesi.
Þar var þokkalegan og blandaðan afla
að fá, en Vigfús taldi líklegt að sótt yrði
á önnur mið ef ekki rættist betur úr.
Báturinn á að koma inn til löndunar í
Grindavík næsta miðvikudag, eftir að
hafa lagt upp á Siglufirði í allt haust.
Raunar hafa flestir línubátar landsins
verið á miðunum fyrir norðan land í
haust, en eru nú komnir á ný mið.
Á Brjálaðahrygg frá Grænuhlíð
Flotinn leitaði vars í rysjóttri tíð Beygt fyrir Ritur yst og nyrst í Ísafjarð-
ardjúpi Hviðurnar voru 30 m/sek. Valdimar á veiðum út af Snæfellsnesi
Ljósmynd/Vigfús Markússon
Grænahlíð Éljaklakkar ganga yfir en nokkuð lygnt þó. Framundan er himinhá hlíðin, sem veitti gott skjól.
Vigfús
Markússon
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
Landshús - Sími 553 1550 - landshus.is
EFLA verkfræðistofa sér um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar.
- Öll hönnun á burðarvirki, festingumog efnisval er skv. íslenskri byggingarlöggjöf.
KLETTAR SUMARHÚS Viltu lækkabyggingar-
kostnað?
Klettar sumarhús eru útfærð í einingakerfi
Landshúsa. Einingakerfið okkar hefur undanfarin ár fengið afar góðar
viðtökur og hafa húsin okkar risið um allt landmeð góðum árangri.
Markmið okkar er að bjóða upp á lausn sem
gerir fólki kleift að byggja traust hús á
einfaldan og hagkvæman hátt.
Verð frá kr. 8.373.120.
-
65 fmgrunnhús + 35 fm
svefnloft.
Val á gluggum:
Timbur
Ál/timbur
PVC
Lögreglan á Suðurlandi kannar til-
drög andláts manns sem féll ofan í
vök á fimmtudagskvöldið.
Atvik þetta átti sér stað í skurði
nærri bænum Hólum í Flóa, sem er
skammt austan við Stokkseyri.
Tilkynnt var um mann sem var
fastur í skurði og kallaði eftir aðstoð.
Lögregla, björgunarsveit og sjúkra-
flutningamenn fóru á vettvang og
náðu manninum upp, en þá var af
honum dregið og hann missti með-
vitund fljótlega. Tilraunir til endur-
lífgunar báru ekki árangur og var
maðurinn úrskurðaður látinn þegar
komið var með hann á sjúkrahúsið á
Selfossi. Hinn látni var Íslendingur,
maður á sjötugsaldri. sbs@mbl.is
Rannsaka
tildrög slyss
í Flóanum
Karlmaður sem
lést var á sjötugsaldri
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Björgunarsveitir Lögregla og
björgunarsveitir fóru á vettvang.
Kórónuveirufaraldurinn hefur sett
mikinn svip á uppgjör ríkissjóðs á
fyrstu níu mánuðum ársins.
Tekjurnar voru rúmum 53 millj-
örðum króna lægri en á sama tíma-
bili á síðasta ári og útgjöldin voru
rúmum 91 milljarði króna hærri, að-
allega vegna stóraukins atvinnuleys-
is og aðgerða sem því tengdust. Voru
útgjöld ríkissjóðs vegna vinnumála
og atvinnuleysis nærri 50 milljörðum
króna hærri en á sama tímabili í
fyrra eða sem nam 247%.
Alls voru útgjöld ríkissjóðs 131
milljarði króna hærri en tekjurnar
fyrstu níu mánuði ársins en á sama
tímabili á síðasta ári voru tekjurnar
14 milljörðum meiri en gjöldin. Halli
án afkomu hlutdeildarfélaga á fyrstu
níu mánuðum ársins nam 168 millj-
örðum króna og segir fjármálaráðu-
neytið að það sé í samræmi við vænt-
ingar að teknu tilliti til áhrifa
kórónuveirufaraldursins.
Fram kemur á vef ráðuneytisins
að fjárfestingar ríkisins á tímabilinu
námu 30 milljörðum króna, 23 millj-
örðum króna meira en á sama tíma-
bili árið 2019. Þá segir ráðuneytið að
fyrr á þessu ári hafi 18 milljarða
framlag verið veitt í sérstakt fjár-
festingarátak ríkisstjórnarinnar.
Stærsti málaflokkurinn í fjárfesting-
unum sé málefnasviðið samgöngur
þar sem gert sé ráð fyrir 21 milljarðs
króna fjárfestingum, sem sé hækkun
um 6 milljarða króna frá fyrra ári.
Mikill halli á ríkissjóði
vegna kórónuveirunnar
Útgjöldin 131 milljarði meiri en tekjur fyrstu níu mánuði ársins
Morgunblaðið/Golli
Útgjöld Kórónuveiran hefur valdið
ríkissjóði miklum búsifjum.