Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík Ýmsar stærðir kælikerfa í allar stærðir sendi- og flutningabíla, fyrir kældar og frystar vörur. Vottuð kerfi fyrir lyfjaflutninga. Við ráðleggjum þér með stærð og gerð búnaðarins eftir því sem hentar aðstæðum hverju sinni. ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING FÆRANLEG KÆLITÆKI Í SENDIBÍLA Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á svæði í miðbæ Eskifjarðar, sem gert er ráð fyrir að verði byggt upp á næstu árum, er meðal annars hægt að gera ráð fyrir útisvæði, torgi, verslun og þjónustu ásamt íbúðabyggð. Unnið er að nú að und- irbúningi vinnu við deiliskipulag og var leitað eftir þátttöku íbúa á þessu stigi málsins. Þó nokkuð af hug- myndum hefur borist, en einnig hafa verið talsverðar umræður á samfélagsmiðlum um skipulagið. Mikilvægt í bæjarmyndinni Miðað var við að hugmyndum yrði skilað fyrir síðustu mánaðamót, en Jón Björn Hákonarson, bæjar- stjóri í Fjarðabyggð, segir að íbúar og hagsmunaaðilar muni áfram hafa möguleika á aðkomu þegar formleg skipulagsgerð hefst sem byggja mun meðal annars á þeim hug- myndum sem inn koma núna. Eðli- legt hafi þótt að kalla eftir sjón- armiðum fólks og hugmyndum um þetta mikilvæga svæði í bæjar- myndinni og gera það við undirbún- ing skipulagsvinnunnar til að ein- falda ferlið. Á svæðinu eru frystihús Eskju og frystiklefi og er gert ráð fyrir að þau mannvirki verði rifin, en þegar er búið að rífa verbúðir sem stóðu innst á svæðinu. Fjarðabyggð eign- aðist þessi hús í fyrra með maka- skiptum við Eskju á lóðum og ann- arri eign. Aðstaða fyrirtækisins hefur verið flutt innar í bæinn og þar eru m.a. fullkomið uppsjávarfrysti- hús, fiskimjölsverksmiðja og skrif- stofur og unnið er að stækkun á hafnaraðstöðu. Áætlað er að heild- arkostnaður Fjarðabyggðarhafna við þá stækkun verði um einn millj- arður króna og eru verklok áætluð á vormánuðum 2022. Reiknað er með að viðlegukantur neðan við frystihúsið í miðbænum verði áfram hluti af bæjarmyndinni og til notkunar fyrir skip og báta. Ofan Strandgötu er Gamla-Búð, sem verið hefur hluti af Sjóminja- safni Austurlands frá 1981. Húsið er byggt 1816 og friðað í A-flokki af menntamálaráðherra 20. desember 1982. Húsið var byggt sem versl- unarhús af Verslunarfélaginu Örum & Wulff. Endurbygging hússins hófst 1968 og var það þá flutt ofar í lóðina til að rýma fyrir vegafram- kvæmdum. Árið 1983 lauk endur- byggingu og húsið var opnað al- menningi. Gamla-Búð hugsanlega flutt Jón Björn segir að þeir sem voru í fararbroddi við endurbyggingu hússins hafi verið talsmenn þess að Gamla-Búð yrði flutt utar í bæinn þar sem eru eldri hús, bryggjur og gömul sjóhús og það sé til skoðunar nú í tengslum við skipulagið. Eðli- lega séu skiptar skoðanir um það sem vert sé að hlusta eftir. Gamla skrifstofubygging Eskju stendur einnig ofan við Strandgötu og segir Jón Björn að bærinn sé að skoða framtíðarnotkun á því húsi. Þar fyrir ofan er grænt svæði þar sem áður var m.a. vélaverkstæði. Þar var fyrirhugað að reisa íbúðir fyrir eldri borgara í byrjun ald- arinnar, en ekkert varð af þeim áformum. Efst á skipulagssvæðinu eru tvö íbúðarhús og eru engar breytingar fyrirhugaðar á þeim. Íbúðir, útisvæði og torg í stað frystihúsa  Unnið er að nýju deiliskipulagi í miðbæ Eskifjarðar Ljósmynd/Gungör Tamzok Eskifjörður Unnið við að rífa verbúðirnar við gamla hraðfrystihúsið. Eskifjörður – deiliskipulag Umhverfi snefnd Fjarðabyggðar leitar eftir þátttöku íbúa við gerð deiliskipulagsins Eskifjörður-Útkaupstaður Svæðið er neðan Túngötu, milli Grjótár og Útkaup- staðarbrautar og til sjávar milli Strandgötu 42 og 44 Strandgata Túngata
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.