Morgunblaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is VELDU VANDAÐ
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
Reyjanesbæ
Hjálparstofnanir á Suðurnesjum
finna vel fyrir auknu atvinnuleysi á
svæðinu og meiri spurn eftir að-
stoð. Hundruð fjölskyldna hafa
þegið mataraðstoð. Í fyrstu aðstoð
Fjölskylduhjálpar Íslands, svo
dæmi sé tekið, voru 330 úthlutanir
og talið að um 800 manns séu að
baki þeim fjölskyldum. Matar-
úthlutanir fóru fram í gær og
fyrradag og mynduðust langar bið-
raðir.
Forsvarsmenn Velferðarsjóðs
Suðurnesja og Fjölskylduhjálpar
Íslands á Suðurnesjum segja ein-
staka velvild ríkja í garð hjálp-
arstarfsins og náungakærleikurinn
hafi vaxið nú þegar ljóst er að fleiri
þurfa aðstoð. Einstaklingar, fyrir-
tæki og félagasamtök hafa aukið
styrki sína til sjóðanna og nýir
styrktaraðilar hafa bæst í hópinn.
„Við vitum að aukin ásókn verð-
ur í sjóðinn núna og erum undir
það búin. Allir þeir sem komu í
fyrstu úthlutun voru nýir umsækj-
endur sem gefur ákveðnar vís-
bendingar. Við finnum að það er að
þyngjast og verður enn þyngra eft-
ir áramót miðað við stöðu mála hér
á svæðinu, þótt tölur liggi ekki fyr-
ir. En við búum í einstöku sam-
félagi sem stendur vörð um sjóðinn
og náungann. Velferðarsjóðurinn
er sameiningartákn, fólk þarf ekki
að fara á marga staði að sækja sér
aðstoð. Á þeim 12 árum sem sjóð-
urinn hefur verið starfandi höfum
við aldrei þurft að biðja um pening
í sjóðinn, hann kemur alltaf,“ segir
Þórunn Íris Þórisdóttir, rekstrar-
stjóri Keflavíkurkirkju, í samtali
við fréttaritara. Enda var það svo
að þegar fréttaritari var staddur á
skrifstofu Þórunnar komu fleiri en
einn íbúi færandi hendi.
Sjálfboðaliðum fjölgar
Í sama streng tekur Anna Valdís
Jónsdóttir, forstöðukona hjá Fjöl-
skylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ.
„Hér er alltaf að bætast við í lest
þeirra sem eru að gefa. Fleiri sjálf-
boðaliðar eru að leggja okkur lið og
erum við t.a.m. með alveg nýja sjálf-
boðaliða í úthlutunum. Sjálfboða-
liðar okkar í búðinni hafa reyndar
flestir verið hér frá upphafi og eru
samfélagsþjónar. Það er mikil vel-
vild og skilningur í samfélaginu á
mikilvægi Fjölskylduhjálpar. Ég
segi að ég veit ekki hvar sumir væru
ef ekki væri fyrir okkur,“ segir
Anna Valdís.
Sú nýbreytni er hjá Fjölskyldu-
hjálpinni í ár að úthlutun hefur ver-
ið færð í annað húsnæði í eigu
Reykjanesbæjar, enda segir Anna
að þeim hafa þótt hræðilegt að láta
fólk standa í röð utan við húsnæði
Fjölskylduhjálpar sem liggur við
eina af fjölförnustu umferðargötur
bæjarins. Anna segir 330 úthlutanir
hafa verið í þeirri fyrstu fyrir þessi
jól en á bak við hvern einstakling
sem fær úthlutað er fjölskylda og
því megi reikna með að um 800
manns hafi fengið aðstoð. Búast
megi við meiri fjölda í þeim úthlut-
unum sem eftir eru fram að jólum.
Líkt og Velferðarsjóðurinn var
útibú Fjölskylduhjálparinnar opnað
á Suðurnesjum kringum hrunið árið
2008, Velferðarsjóðurinn reyndar
stofnaður degi áður en Geir Haarde
bað Guð að blessa Ísland.
Fallegar sögur af hjálparstarfi
Sú nýbreytni var í jólaúthlutun
Velferðarsjóðs Suðurnesja í ár að sú
fyrsta fór fram í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Sóknirnar á Suðurnesjum
hafa nú tekið sig saman um út-
hlutun úr sjóðnum, enda sjóðurinn
allra Suðurnesjamanna þótt ut-
anumhald sé í Keflavíkurkirkju.
Þær breytingar hafa einnig orðið að
sjóðurinn greiðir ekki lengur fyrir
skólamat, heldur sveitarfélögin, þar
sem sá kostnaður var orðinn tölu-
vert stór baggi fyrir sjóðinn.
„Fátækt er ekki bara það sem þú
borðar,“ hefur Þórunn á orði og seg-
ir aðstoðina felast í svo mörgu,
greiðslu fyrir tómstunda- og
íþróttastarf, skólagöngu og náms-
bækur svo nokkuð sé nefnt. Hún á
fallegar sögur af ungu fólki sem
sjóðurinn hefur styrkt í gegnum
skólagöngu og uppvaxtarár. Þar
hafi tekist að rjúfa vítahring fátækt-
ar og aðstoða hæfileikarík ung-
menni sem hafa metnaðarfull mark-
mið og ætla að ná þeim.
„En ég markaðsset aldrei hjálp-
arstarfið, hér er aldrei sýnilegt hver
þarf aðstoð enda er þetta viðkvæmt
mál. Sumir kjósa að sækja aðstoð-
ina til Hjálparstofnunar kirkjunnar
á höfuðborgarsvæðinu og er það
vel.“
Rauði krossinn og Hjálpræð-
isherinn leggja til sjóðanna
Rauði krossinn á Suðurnesjum
hefur lagt sitt framlag í Velferð-
arsjóð Suðurnesja undanfarin ár.
„Við finnum að fleiri hafa minna á
milli handanna og andleg vanlíðan
hefur aukist. Almenningur gæti
brugðist við með því að gerast
mannvinir og skrá sig sem sjálf-
boðaliða í verkefnum RKÍ sem hafa
það hlutverk að rjúfa félagslega ein-
angrun. Ég nefni sem dæmi síma-
vini,“ segir Fanney Grétarsdóttir,
deildarstjóri Rauða krossins á Suð-
urnesjum, um þeirra aðstoð.
Þá býðst umsækjendum um að-
stoð kostur á að fá gjafakort frá
Hertex á Íslandi, en herinn hefur
um skeið rekið útibú og verslun í
Reykjanesbæ. Starfsemin þar hefur
þó breyst í áranna rás, t.a.m. eru
ekki lengur jólaboð í Reykjanesbæ
vegna manneklu en að sögn Hjör-
dísar Kristinsdóttur, svæðisforingja
og tengiliðar við Reykjanesbæ, er
fólk úr Reykjanesbæ byrjað að skrá
sig í jólamatinn í Reykjavík á að-
fangadag.
„Hann verður nú eins og í fyrra
frá klukkan 12 til 16 til að taka mið
af almenningssamgöngum,“ segir
Hjördís. Auk jólaboðsins gefst fólki
kostur á að fá gjafakort í Hertex-
verslanirnar svo að allir geti fengið
föt eða gjafir fyrir jólin.
„Eftir samtal við kirkjurnar á
svæðinu ákváðum við að vel væri
hugsað um matarúthlutanir á svæð-
inu. Við höfum því boðist til að gefa
gjafakort í Hertex-verslanir okkar
sem verður þá úthlutað hjá kirkj-
unum á svæðinu samhliða annarri
úthlutun þeirra,“ segir Hjördís.
Róðurinn þyngist á Suðurnesjum
Mikið sótt í matarúthlutanir hjálparsamtaka „Búum í einstöku samfélagi sem stendur vörð um
náungann“ Velferðarsjóður Suðurnesja og Fjölskylduhjálp Íslands finna fyrir mikilli velvild
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Suðurnes Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar á Suðurnesjum í önnum við matarúthlutun í vikunni. Mikið atvinnuleysi er á Suðurnesjum og margir í neyð.
Anna Valdís
Jónsdóttir
Þórunn Íris
Þórisdóttir
Doktor Helga
Kristjánsdóttir
hefur hlotið
framgang til pró-
fessorsstöðu við
viðskiptafræði-
deild Háskólans
á Akureyri, HA.
Helga lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
á Akureyri árið
1989 og BS-prófi í hagfræði frá Há-
skóla Íslands 1992. Hún lauk jafn-
framt MBA-gráðu í stjórnun frá
Boston College í Boston, Massachu-
setts, í Bandaríkjunum árið 1995 og
meistaraprófi MS í hagfræði frá
Katholieke Universiteit í Leuven
KUL í Belgíu árið 2000. Loks lauk
hún doktorsprófi í hagfræði 2004
frá Háskóla Íslands, að því er segir
í tilkynningu frá HA.
Helga starfaði áður sem hag-
fræðingur, verðbréfamiðlari og
rekstrarráðgjafi.
Hún er gift Sveini Benediktssyni
og á einn son.
Doktor Helga verður
prófessor við HA
Helga
Kristjánsdóttir