Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 11
Fyrir fjóra 1 grágæsarbringa handfylli ferskt rósmarín handfylli ferskt timían 1 msk. rósapipar 1 msk. grænn pipar 2 msk. þurrkað timían 50 g gróft sjávarsalt 50 g sykur  Öllum hráefnum er blandað saman og lagt ofan á plastfilmu.  Grágæsarbringunni er komið fyrir í miðjunni og svo er plast- inu vafið þétt utan um hana þannig að hráefnin dreifist jafnt yfir.  Sett í ísskáp í 2-3 daga undir fargi.  Snúið á degi hverjum. Cassis- og bláberjasulta 4 msk. bláberjasulta 100 ml cassis-líkjör  Byrjið á því að setja sultuna í pott og bætið sólberjalíkjörnum saman við.  Hrærið vandlega saman og sjóðið niður líkjörinn.  Látið kólna. Rjómaostsfroða ½ dós rjómaostur með lauk og graslauk 250 ml rjómi  Setjið rjómaostinn í skál og hrærið rjómanum vandlega sam- an við.  Hellið blöndunni í rjómasprautu og hleypið gasi á sprautuna.  Geymið í kæli.  Gætið að því að hrista sprautuna vel áður en þið sprautið úr henni. Gott er að prófa áður. Samsetning 4 súrdeigsbrauðsneiðar smjör hvítlauksrif grafin grágæs skorin í þunnar sneiðar handfylli af basilsprettum handfylli af bláberjum salt og pipar  Smyrjið brauðið með smjöri og steikið á pönnu.  Skerið hvítlauksrifið í helminga og raspið ofan á heitt brauðið.  Sneiðið grágæsarbringuna í þunnar sneiðar og leggið ofan á brauðið.  Skerið bláberin í helminga.  Raðið brauðinu á disk, sprautið rjómaostsfroðunni yfir.  Dreifið cassis-bláberjasultunni á diskinn  Skreytið með berjum og basilsprettum.  Salt og pipar eftir smekk. Grafin grágæsarbringa með cassis- og bláberjasultu, rjómaostsfroðu og ferskum bláberjum Ragnar Freyr Ingvarsson er mörgum sjálfsagt betur kunnur sem Læknirinn í eldhúsinu. Það sem byrjaði sem áhugamál er orðið að lífsstíl og gott betur. Læknirinn er einn vinsælasti matreiðslumaður landsins og bækur hans og sjónvarpsþættir hafa notið mikilla vinsælda. Ragnar leggur mikið upp úr hráefninu og veitt fátt skemmtilegra en að nostra við matinn og er útkoman ávallt eftir því. Hér er Ragnar með krónhjartarsteik sem hann parar með rauðvínssósu sem óhætt er að fullyrða að sé ein dýrasta sósa sem soðin hefur verið. Morgunblaðið/Eggert Læknirinn í eldhúsinu FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 11 Tilbúinn jafningur Þarf aðeins að hita 499kr/stk Hagkaup mælir Hangikjöt af íslensku birki HAG KAU PM ÆL IR M E • H AG K A U P M Æ LI R M E • HA GK AU P M ÆLI R ME • HAGKA UP MÆLIR ME • HAGKAUP MÆLIR ME • HAGK AU P M Æ LIR M E • HAGKAUPMÆLIRME Minna salt sama bragð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.