Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 32
32 FÓKUS 22. JANÚAR 2021 DV Tímalína um samband Kim Kardashian og Kanye West Kardashian-Jenner fjölskyldan er örugglega fræg- asta fjölskylda í heimi, fyrir utan bresku konungs- fjölskylduna. Það voru því stórfréttir þegar það var greint frá því að leiðir raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og rapparans Kanye West væru að skilja eftir rúmlega átta ára samband. 2003 Kim og Kanye hittust fyrst árið 2003 í gegnum sameiginlega vini. Kim var þá enn gift Damon Thomas, en hún og Kanye urðu vinir. Kanye varð hins vegar strax skotinn í framtíðareiginkonu sinni. Í viðtali við Ryan Seacrest árið 2013 sagði hann: „Ég bara vissi að ég vildi að hún yrði mín.“ 2008 Árið 2008 gaf Kanye út hipphopp-brúðusýningu og vildi að Kim yrði hluti af henni. Hún fór með hlutverk Princess Leiu í þættinum. 2010 Á þessum tíma voru Kim og Kanye góðir vinir og Kim í sambandi með Kris Humphries. Kanye kom í fyrsta sinn fram í raunveruleikaþætti fjölskyldunnar, „Kourt- ney and Kim Take New York“. Í þættinum heimsótti hann Kim og Kourtney í Dash, verslun þeirra í stór- borginni. Kanye var frekar feiminn á skjánum. 2011 Kim gekk í það heilaga með Kris Humphries árið 2011 í sérstökum sjónvarpsþætti. Kanye afhjúpaði mörgum árum seinna að hann hefði reynt að hvetja Kim til að hætta við brúðkaupið, en það gekk þó ekki. Kim og Kris skildu þó eftir 72 daga. APRÍL 2012 Kim og Kris Humphries stóðu í miðju skilnaðarferli þegar Kanye tjáði ást sína á Kim í rapplagi. Hann rappaði um að hann væri ástfanginn af stjörnunni. Stuttu seinna staðfesti Kourtney Kar- dashian, systir Kim, að fram- tíðarhjónin væru að stinga saman nefjum. MAÍ 2012 Kim og Kanye voru formlega orðin par og voru að gera hluti sem pör gera. Fóru út að borða, á körfu- boltaleiki og á ýmsa viðburði fyrir fína og fræga fólkið. Kanye fór einnig með Kim á fjölskyldu- viðburði. Í júní staðfesti Kim loks sambandið á Twitter og kallaði sig „stolta kærustu“. ÁGÚST 2012 Margir aðdáendur Keeping Up With The Kardashians muna eftir þættinum þegar Kanye fór í gegn- um fataskáp Kim. Það féll ekki vel í kramið hjá áhorfendum sem þótti hann stjórnsamur. OKTÓBER 2013 Kanye fór á skeljarnar á hafnabolta- velli í San F r a n c i s c o . Kim sagði já. NÓVEMBER 2013 Kim var í sjóðheitu tónlistarmynd- bandi fyrir lag Kanye, „Bound 2“. Í myndbandinu sitja þau hvort á móti öðru á mótorhjóli, Kim án fata, en Kanye fullklæddur. Mynd- bandið vakti gríðarlega athygli. MAÍ 2015 Hjónin t i l - k ynntu að þau ættu von á öðru barni. DESEMBER 2015 Saint West fæddist. MAÍ 2014 Kim og Kanye gengu í það he i laga á Ítalíu. Mynd af þeim að k y s s a s t framan við b l ó ma vegg var vinsælust á Instagram það ár. JÚNÍ 2017 Fjölmiðlar greindu frá því að hjónin hefðu ráðið staðgengilsmóður til að ganga með þriðja barn sitt. Læknar höfðu varað Kim við að ganga með fleiri börn. JANÚAR 2018 Þriðja barn þeirra og önnur dóttir, Chicago West, kom í heiminn. MAÍ 2018 Kanye óttaðist að Kim myndi fara frá sér eftir að hann sagði að „þrælahald“ væri val. „Þegar þú heyrir um þrælahald í 400 ár. Í 400 ár? Það hljómar eins og val,“ sagði hann í þættinum TMZ Live. Kanye sagði seinna í viðtali við The New York Times að hann hefði haft áhyggjur af að Kim færi frá sér og að andrúmsloftið heima fyrir hefði verið rafmagnað. MAÍ 2019 Hjónin bjóða fjórða barn sitt velkomið í heiminn, af tur með aðstoð stað- gengilsmóð- ur. Drenginn Psalm West. MAÍ 2019 Hjónin endur- nýjuðu heit sín við litla athöfn. 2020 Margt gerðist árið 2020. Kanye bauð sig fram til forseta í Banda- ríkjunum, sagðist vera á móti fóstureyðingum og hágrét á kosningaviðburði þegar hann sagðist hafa beðið Kim um að fara í fóstureyðingu þegar hún var ólétt að North. Fyrstu fregnir bárust um mögulega bresti í sambandi þeirra. 2021 F j ö l m i ð l a r greindu frá því að hjónin væru skilin að borði og s æng , og að Kim væri að skilja við Kanye. DESEMBER 2012 Kanye var að halda tónleika á gamlárskvöld 2012 þegar hann tilkynnti að hann og Kim ættu von á barni. Kim staðfesti síðan fregnirnar. MAÍ 2013 Kanye var sakaður um að hafa haldið fram hjá Kim. Leyla Gho- badi, kanadísk kona, sagðist hafa sofið tvisvar hjá Kanye, einu sinni á meðan Kim var ólétt. Kanye neitaði þessu staðfastlega. JÚNÍ 2013 Þann 15. júní 2 0 13 ko m fyrsta barn þeirra í heim- inn, Nor th West. MYND/GETTY MYND/E! ENTERTAINMENT MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/E! ENTERTAINMENT MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.