Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 16
Eftir aðeins
nokkrar
klukkustundir
í starfi
hófst Biden
handa við
að snúa við
tilskipunum
forvera síns í
Hvíta húsinu.
MYND/GETTY
22. JANÚAR 2021 DV
SETUR BIDEN
BANDARÍKIN
Í TÍMAVÉL?
Eftir aðeins örfáar klukkustundir
í starfi hafði Biden þegar undið
ofan af óvinsælum stefnumálum
forvera síns. Viðbúið er að Biden
muni á næstu vikum reyna að
forða arfleifð sinni frá því að
markast um of af Donald Trump.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Joe Biden varð á miðviku-daginn 46. forseti Banda-ríkjanna er hann sór
embættiseið sinn á tröppum
þinghússins í Washington,
þeim sömu og óeirðaseggir
höfðu vanhelgað aðeins tveim-
ur vikum fyrr.
Innsetningarathöfnin var
ólík þeim sem áður hafa sést.
Í stað áhorfenda blöktu tvö
hundruð þúsund bandarískir
fánar á grasblettinum á milli
Washington-minnisvarðans
og þinghússins á Capitol-hæð.
Frægir tónlistarmenn sungu
þjóðlega tónlist og fyrrverandi
forsetar og varaforsetar, allir
nema Donald Trump reyndar,
voru viðstaddir þegar Biden
og varaforseti hans, Kamala
Harris, sóru embættiseiða
sína.
Innsetningardagur í banda-
rískum stjórnmálum markast
alla jafna af hefðum sem orðið
hafa til í gegnum árin og ald-
irnar. Margar hefðirnar voru
brotnar á miðvikudag. Sumar
vegna fýlu Donalds Trump
sem neitaði að vera viðstaddur
og flaug á brott úr Washing-
ton-borg. CNN sagði frá því
að hann hefði gert það vegna
þess að hann vildi ekki fara
frá borginni sem fyrrverandi
forseti og vildi ekki þurfa að
biðja nýjan forseta um að fá
forsetavélina lánaða.
Stílbrot á stílbrot ofan
Að athöfn lokinni ók for-
setinn að Hvíta húsinu,
sem er stílbrot frá því sem
áður þekktist, þó Biden hafi
gengið síðustu örfáu metrana
upp Pennsylvania Avenue að
Hvíta húsinu.
Um klukkan fjögur að
staðartíma var Biden kominn
í Hvíta húsið sem Donald
Trump hafði yfirgefið aðeins
8 klukkustundum fyrr. Þann
tíma nýttu starfsmenn Hvíta
hússins í að flytja einkaeigur
Trumps úr íbúð forsetans á 2.
hæð hússins og forsetaskrif-
stofunni í vesturálmunni,
þrífa allt, skipta út rúmum og
færa til húsgögn samkvæmt
breyttum þörfum nýrra íbúa
og flytja svo loks eigur Biden-
hjónanna inn.
Tími annarra starfsmanna
Hvíta hússins hefur einnig
verið vel nýttur, því á slaginu
12.00 að staðartíma var kom-
in ný forsíða á vefsíðu Hvíta
hússins, whitehouse.gov, og
opinber Twitter-reikningur
forsetans var færður yfir á
Biden.
Á blaðamannafundi síð-
degis í Hvíta húsinu mátti sjá
Biden sitjandi við Resolute-
skrifborðið fræga með per-
sónulegar myndir uppstilltar
í bakgrunni. Joe Biden hefur
verið innanbúðarmaður í að
verða hálfa öld og fylgst með
hvorki meira né minna en níu
forsetum taka við auk þess
sem hann var sjálfur vara-
forseti í tíð Baracks Obama.
Þessi mikla reynsla leyndi sér
ekki á fyrstu klukkustundum
hans í embætti.
ur vestanhafs hafa þó undan-
farna daga bent á að fyrstu
hundrað dagarnir í embætti
marki gjarnan forsetatíð for-
seta. Málin sem hann leggur
áherslu á á þeim tíma munu
fylgja honum næstu fjögur
árin.
Biden þarf því að fóta sig
varlega á næstu vikum og
mánuðum ætli hann sér ekki
að láta arfleifð síns fyrsta
kjörtímabils vera það eitt að
slátra arfleifð Trumps. Biden
mun vilja marka sína eigin
arfleifð, en hver hún verður
er óráðið. Kosningabaráttan
undanfarna mánuði snerist
minna um málefnin og meira
um COVID og persónuna
Don ald Trump. Hafa sumir
gárungar haft á orði að helsta
stefnumál Bidens hafi verið að
hann sé ekki Trump.
Viðbúið er að allt sem Biden
og teymi hans segja og gera
fyrstu vikurnar í embætti
verði borið saman við það
sem Trump hefði sagt eða
ekki sagði um sama mál. Þetta
sýndi sig einna best á við-
brögðum netverja við fyrstu
framkomu Jen Psaki, fjöl-
miðlafulltrúa Hvíta hússins.
Bandaríski fjölmiðilinn The
Wrap orðaði það svo að fyrsti
fundurinn hefðu verið „eðli-
legur“, en ekki „brunaslöngu-
úði af lygum“. Ágætis byrjun
hjá Psaki, myndi maður segja.
En, aftur, ef Biden-stjórnin
á að öðlast sjálfstætt líf þarf
hún, benda skýrendur á, að
slíta sig mjög fljótlega frá
samanburðinum við Trump-
stjórnina, alveg óháð því
hversu vel Biden-stjórnin kann
að koma út í þeim samanburði.
100 dagar án Trumps
Í stefnuáætlun forsetans fyrir
fyrstu 100 dagana í embætti er
efling viðbragða alríkisins við
COVID-19 faraldrinum í for-
grunni. Biden hefur sagst ætla
að stórefla viðbrögðin, inn-
leiða grímuskyldu, efla bólu-
setningaráætlanir alríkisins
og stórefla útgjöld alríkisins
til að hægja á samdrætti í hag-
kerfinu vegna faraldursins.
Í ljósi þessa alls er arfleifð
Bidens líklegast þegar inn-
sigluð í þremur orðum; Ekki
Trump og COVID-19. Hvort
Biden takist að skapa sér nýja
arfleifð á næstu mánuðum
verður að koma í ljós. n
Vatt sér beint að efninu
„Við megum engan tíma
missa,“ sagði Biden við fjöl-
miðlamenn er hann undir-
ritaði fyrstu forsetatilskip-
anir sínar, eftir aðeins örfáar
klukkustundir í embætti. Á
borðinu mátti sjá háan stafla
af möppum sem hann spændi í
gegnum í beinni útsendingu. Á
meðal tilskipana var innganga
Bandaríkjanna á ný í Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunina,
stöðvun framkvæmda við olíu-
leiðslur á norðurheimskautinu
og byggingar veggs á landa-
mærum Bandaríkjanna við
Mexíkó, og að afnema ferða-
bann til múslimaríkja. Ætlun
Bidens hér er hverjum ljós
sem vill sjá: Hann ætlar að
snúa við eins mörgum ákvörð-
unum Trumps og hann kemst
upp með. Þá hefur Biden þegar
sent sitt fyrsta frumvarp til
þingsins til umfjöllunar. Efni
frumvarpsins, innflytjenda-
mál, er heldur engin tilviljun.
Trump lagði mikla áherslu á
það að torvelda flutning fólks
til landsins.
Biden hefur í sjálfu sér ekki
dregið dul á ætlun sína. Hann
hefur opinberlega sagt marg-
oft að hans fyrstu verk verði
að vinda ofan af eins mörgum
tilskipunum og framkvæmd-
um Trumps og hægt er.
Óvinsældir Trumps
marka framtíð Bidens
Trump var og er með eindæm-
um óvinsæll forseti. Hann er
fyrsti forseti sögunnar sem
sá aldrei vinsældatölur sínar
fara yfir 50%, og fór úr emb-
ætti sem óvinsælasti forseti í
sögu Gallupmælinga. Pólitískt
séð ætti það því ekki að koma
Biden illa að ráðast á stefnur
Trumps á fyrstu dögum sínum
í embætti. Stjórnmálaskýrend-
Kosningabaráttan
undanfarna
mánuði snerist
minna um mál-
efnin og meira
um COVID og
persónuna
Donald Trump.
16 EYJAN